Morgunblaðið - 14.08.2002, Blaðsíða 36
MINNINGAR
36 MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Elsku vinurinn minn.
Mikið þykir mér það leitt að hafa
ekki getað gengið með þér síðasta
spölinn. Þótt vegurinn hafi oft verið
torfær, þá hafðir þú alveg sérstakt
lag á að gera gönguna létta og
skemmtilega. Í þetta sinn skiljast
leiðir okkar á þessum hverfulu
vegamótum lífsins. Þú heldur í þína
hinstu ferð með betri og reyndari
leiðsögumönnum á meðan ég byrja
nýjan áfanga án míns besta og kær-
asta ferðafélaga. Ekki veit ég
hvernig ég fer að því að rata un
borgina núna þegar þú ert farinn.
Um daginn var ég rétt komin upp á
Skaga á leiðinni út á Seltjarnarnes.
Frændi sendir sínar bestu kveðjur.
Þið voruð nú yfirleitt sammála um
alla hluti jafnvel þótt hann segði
stundum að þið hjá Manchester
United vissuð ekki muninn á fótbol-
taknetti og Siríus súkkulaðikúlu.
Hann biður þig að vera sér og Real
Madrid innanhandar í þetta skiptið
og ræna ekki Ronaldo frá þeim.
Jæja elskan mín, þetta er ekki bless
eða vertu sæll heldur sjáumst aftur,
sjáumst síðar. Tíminn er skrítinn
ferðafélagi. Stundum stendur hann
í stað, stundum flýgur hann áfram.
Tíminn flaug alltaf áfram á göng-
unni með þér og sjáðu til áður en þú
veist af verðum við öll komin saman
aftur á ný.
Þín frænka,
Katrín.
Í dag kveð ég ástkæran frænda
minn Svein Skafta. Það eru ekki
nema þrjár vikur síðan að þú komst
til mín til að sýna mér draumabílinn
sem þú hafðir keypt þennan dag,
mikið varstu stoltur, elsku ljúfur.
Síðustu helgina í júlí ákvaðstu að
bjóða foreldrum þínum og Írisi í bíl-
túr til Laugarvatns og þar í kring til
að prófa nýja bílinn þinn og auðvit-
að fylktum við liði, ég, Maggi og
Alda fórum á okkar bíl, Lísa
frænka, Raggi og litlu frændsystkin
þín á sínum bíl. Mikið var þetta góð-
ur dagur.
Elsku Skafti, það er svo margt
sem mig langar að segja en ég er
svo tóm. Alda segir að það sé vegna
þess að okkur sé svo illt í hjartanu.
Þú varst svo duglegur að rækta
fjölskyldutengslin, mér þykir svo
vænt um allar heimsóknirnar, þá
SVEINN SKAFTI
SVEINSSON
✝ Sveinn SkaftiSveinsson fædd-
ist í Reykjavík 4.
september 1974.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri 5. ágúst síð-
astliðinn. Hann var
sonur hjónanna
Sveins Sveinssonar, f.
22. ágúst 1953, og
Súsönnu Ollý Skafta-
dóttur, f. 24. mars
1954. Systkini Sveins
Skafta eru Guðmund-
ur, f. 1. desember
1979, og Íris Björk, f. 11 júlí 1983.
Útför Sveins Skafta verður gerð
frá Neskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
var nú talað um heima
og geima. Spánarferð-
ina með Pálhönnu
ömmu þinni, fótbolta-
ferðirnar til London
með pabba þínum, það
var nú hápunkturinn.
Þú fórst í vor til Prag
með vinnufélögum þín-
um, þú varst svo
ánægður með þá ferð
og talaðir um hvað all-
ir hafi verið þér góðir
og mikið gladdir þú
mömmu þína þegar þú
komst heim með þessa
líka fallegu afmælisgjöf handa
henni.
Elsku vinur, þú kenndir okkur
öllum sem þekktum þig svo margt,
öll þín hreinskilni og hjartahlýja
snerti okkur öll og ekki má gleyma
húmornum. Þú varst svo einlægur
og góður, kæri vinur.
Síðasta helgi, verslunarmanna-
helgin, er ein sú besta en jafnframt
sú erfiðasta sem ég hef lifað. Við
lögðum svo glöð af stað út úr bæn-
um 1. ágúst, leiðin lá austur að
Klaustri, þar áttum við saman alls-
vakalegan rigningardag, þú vildir
fara austar, eftir hlutkesti var hald-
ið af stað enn austar eða þar til við
komum í Atlavík. Það er óhætt að
segja að veðurguðirnir hafi tekið
vel á móti okkur. Náttúran skartaði
öllu sínu fegursta, kvöldið var frá-
bært, grillað, sungið, spilað á gítar
langt fram eftir nóttu. Þú í essinu
þínu enda mikill músíkunnandi.
Elsku Skafti minn, þessa nótt átt-
um við langt og mikið spjall saman
sem ég geymi í hjarta mínu. Ég lof-
aði að gefa þér mynd af þér og
Kjartani frænda þínum sem ég tók
af ykkur sex ára gömlum og við rifj-
uðum upp í leiðinni ýmislegt sem
var brallað í öllum þeim ferðalögum
sem við höfum farið í gegnum árin.
Mikið höfðum við gaman af þessu
enda hlegið dátt.
Elsku hjartans vinur minn, ekki
datt mér í hug að þetta væri okkar
síðasta kvöld saman. Daginn eftir
varstu fluttur á Sjúkrahúsið á Ak-
ureyri vegna sýkingar, þú varst
kominn með heilahimnubólgu. Það
var allt gert sem í mannlegu valdi
stóð til að hjálpa þér en himnafað-
irinn þurfti á þér að halda. Skafti
minn, myndin sem ég lofaði þér er á
sínum stað. Mér þykir svo vænt um
að hafa fengið að vera með þér
þessa helgi, einnig fannst mér gott
að hafa þig hjá mér á leiðinni í bæ-
inn.
Elsku foreldrar Ollý og Svenni,
systkin Guðmundur og Íris Björk
og amma þín Pálhanna, megi algóð-
ur Guð blessa ykkur og styrkja og
alla þá sem eiga um sárt að binda
vegna fráfalls þíns.
Ég kveð þig að sinni, elsku Skafti
minn. Ég ætla að gera það eins og
Betsý amma þín gerði alltaf við
okkur þegar við fórum að sofa.
Góða nótt, elsku ljúfur. Jesú
pabbi geymi þig.
Þín frænka
Rannveig (Randý).
Þótt Sveinn Skafti Sveinsson
væri enn ungur að árum er komið
að kveðjustund. Sveinn Skafti
stundaði nám í Öskjuhlíðarskóla
1984 til 1993. Eftir að hann útskrif-
aðist frá starfsdeild skólans, hélt
hann alla tíð mikilli tryggð við skól-
ann. Hann kom reglulega í heim-
sóknir og heilsaði upp á starfsmenn
og nemendur, spurði frétta úr
skólastarfinu og sagði jafnframt frá
högum sínum og viðfangsefnum.
Þessi innlit Sveins Skafta í skólann
voru okkur, gömlu kennurunum
hans, til mikillar ánægju og fyrir
þau erum við þakklát.
Í Öskjuhlíðarskóla verður Sveins
Skafta lengi minnst fyrir sína ein-
staklega góðu skapgerð og fallega
bros. Í erli daganna var gott af hafa
hann nálægt sér með alla sína ljúf-
mennsku og jafnaðargeð. Sveinn
Skafti var vinsæll meðal skóla-
félaga sinna, enda einkenndist öll
hans framganga í leik og starfi af
drengskap og jákvæðu hugarfari.
Sveinn Skafti var íþróttamaður af
lífi og sál og árið 1993 var hann val-
inn Íþróttamaður skólans. Hann
var vel að þeim heiðurstitli kominn
fyrir íþróttaáhuga sinn og prúð-
mennsku í framkomu.
Fyrir hönd starfsmanna Öskju-
hlíðarskóla vottum við fjölskyldu
Sveins Skafta innilega samúð. Í
huga okkar mun minningin lifa um
góðan dreng.
Sigríður Níelsdóttir,
Jóna S. Valbergsdóttir.
Það er erfitt að setjast niður og
koma orðum að hugsunum og til-
finningu og skrifa um Svein Skafta
sem var stór hluti af lífi okkar og til-
veru.
Það er alltaf erfitt þegar ungt
fólk er tekið í blóma lífsins. En eins
og sagt er, þeir sem Guðirnir elska
mest deyja ungir. Skafti var alltaf
vanur að detta inn hjá okkur óvænt,
bara til að kíkja á krakkana og al-
veg sama hversu óþekk þau voru og
djöfluðust í kringum hann þá fannst
honum þau alltaf jafnyndisleg. Sér-
staklega talaði hann um hvað það
væri gaman að þau vildu tala við
hann og leika og væru ekkert feim-
in við hann. Og þegar hann var að
fara var alltaf hangið utan í honum
og Katrín Sól kyssti hann í bak og
fyrir en Sindri var meira fyrir að
senda fingurkoss til hans af því að
hann var líka strákur.
En Skafti var sem betur fer bú-
inn að gera flest sem hann dreymdi
um, hann var búinn að kaupa
drauma bílinn sinn, Golf. Svo var
hann búinn að fara út að horfa á
Man. Utd. spila á heimavelli og það
var mikið rætt á okkar heimili. Það
var líka rætt um að Siggi kæmi með
þeim feðgum Svenna og Skafta út
næst þegar þeir færu því þeir voru
allir jafn fótboltasjúkir.
Við erum þakklát fyrir allar þær
stundir sem við áttum saman.
Elsku Svenni, Ollý, Gummi og Ír-
is Björk, megi Guð styrkja ykkur í
þessari miklu sorg.
Herdís Hanna, Sigurður,
Sindri Freyr og Katrín Sól.
Þeir deyja ungir sem guðirnir
elska, sannast enn og aftur með
ótímabæru fráfalli Sveins Skafta
Sveinssonar. Ég kynntist Sveini
Skafta þegar hann lagði inn umsókn
hjá Atvinnu með stuðningi fyrir
þremur árum og hóf í framhaldi af
því störf hjá Tré og blikk í desem-
ber 1999. Hann var mjög vel liðinn í
fyrirtækinu og hafði þar starfsandi
fyrirtækisins mikið að segja og tal-
aði hann oft um það hversu al-
mennilegir vinnufélagarnir væru
við sig. Þetta sannaði sig best þegar
starfsmannahópurinn hélt til Prag
snemma á þessu ári og voru allir
boðnir og búnir að aðstoða Svein
Skafta við það sem þurfti.
Það er heiður að fá að kynnast
jafnmiklum ljúflingi og Sveini
Skafta og lifir minningin um góðan
mann hjá þeim sem fengu að kynn-
ast honum.
Hann tignar þau lög sem lífið
með logandi eldi reit.
Hann lærði af styrkleika stálsins
að standa við öll sín heit.
,
7.
7
? 5+ $!<"$ ( "
?$G
*1
!
%*!
!%*!))!
,$"*( $'!$ "
"$ '"$ &
!"'"$ & -" $""
! '"$ "
;'"$ & !! "
/ "";
! & B"! +. $3"
* * &$* * * +
/ ,
"
%"AB&!"C9
;
/ 3
/ #
<!
;
#
%&!
!%(!()!
' % & ; / """
"$ 3% " ; " &
% ) "% & )! $ $ "
* * &$! $ * +
5
/
1
. 7 E4 !"
$=0
'?%( 5 %
/
!
:
%*!
!%*!))!
'" . $3&
/ " 3
("
'" 3' ! '" "
+
! &
!"
&
/ "
" +
8.4,
3$'
A"
" 5 %
$
/
#
%&!
!%'!))!
) <&%"
& '"
& 'HB IB ! &
/ "
" '!$"+. $3&
& 5 !
& &AB&A '%B&$
-" $" ,$"
& . 2 !$'" "
! $
" & ! %
+ !! &
* * &$* * * +
=
8.4,
2
8.4
*1=:>
+
#
%&!
!%*!))!
>
+
%%( )* &(%'&
> / .# ;
!"
& %'! $ "
-( % ! "
'
"
-( % ! "
"$ *( ! &
"$ *( &
"$ *( &
'!' 5 5 "
&$ (!%?! +
;
-
#
, ,
#
/
#
#
7/ 8; !$(
-'?%"B! J '%%==K
'?%( 5 %+
6
-
/
9
1/
/71
. $3"
3'!" +$ 3 % "
!B'" % " %! %!&
* &$ " ' +