Morgunblaðið - 14.08.2002, Side 13

Morgunblaðið - 14.08.2002, Side 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2002 13 K O R T E R LÖGREGLAN í Reykjavík fékk um helgina tilkynningu um grunsamlegt athæfi grímuklæddra manna sem bar sterkan keim af mannráni. Mennirnir sáust draga unga stúlku inn í bifreið við Hveradali og óku í átt til borg- arinnar. Þeir voru stöðvaðir af lög- reglu og kom þá í ljós að brottnám stúlkunnar var leikur í svokölluðu gæsapartýi. Lögreglunni var ekki skemmt yfir tiltækinu enda hröðuðu lögreglumenn sér í verkefnið, sem þeir tóku af fullri alvöru. Að sögn lög- reglu vill hún ekki þurfa að leggja sjálfa sig og vegfarendur í aukna slysahættu vegna platverkefna. Lögreglan skarst í vafa- saman leik STARFSMENN Landhelgisgæsl- unnar hafa síðustu vikur prófað nýtt tæki til sjómælinga sem hafrann- sóknastofnun bandaríska sjóhersins lánaði hingað. Hafa bandarískir starfsmenn hennar þjálfað starfs- menn Landhelgisgæslunnar við sjó- mælingar og næstu vikurnar munu þeir spreyta sig á eigin vegum áður en tækjabúnaðinum verður skilað í næsta mánuði. Ásgrímur Ásgrímsson, deildar- stjóri mælingadeildar og skipstjóri á sjómælingaskipinu Baldri, segir að bandaríski búnaðurinn sé svonefndur fjölgeislamælir en hingað til hafa sjó- mælingar Landhelgisgæslunnar far- ið fram með eingeislamæli. Munurinn á þeim er einkum sá að eingeislamæl- irinn mælir einn punkt á hafsbotni í einu en fjölgeislamælirinn gefur heildarmynd af botninum. Segir Ás- grímur það ekki síst mikilvægt þegar mælt er á grunnsævi, t.d. þar sem skipsflök geti legið; með eingeisla- mæli geti mönnum hæglega sést yfir einn slíkan punkt en með fjölgeisla- mælinum náist meiri yfirsýn. Sjómælingamenn Landhelgisgæsl- unnar hafa frá miðjum júlí verið við mælingar ásamt fulltrúum banda- ríska sjóhersins á svæðinu frá Kjal- arnesi og suður fyrir Gróttu. Í gær var unnið að mælingum við Sand- gerði. Ásgrímur sagði að með þessum tilraunum fengist góð mynd af því hvort mælir sem þessi hentar og mun hluti af verkefninu nýtast beint við mælingar vegna kortagerðar og ann- arra verkefna. Hefur m.a. verið gerð tilraun til að mæla flak Goðafoss út af Garðsskaga. Prófanir á nýju sjómæl- ingatæki ANNA Kristine Magnúsdóttir út- varpsmaður segir að ástandið á flóðasvæðunum í Tékklandi sé verra nú en það var fyrir fimm árum þegar mikil flóð í landinu ollu stórtjóni. Mörg af helstu menningarverðmæt- um landsins eru nú undir vatni. Hún skorar á íslensku þjóðina að láta fé af hendi rakna sem varið verður til hjálpar íbúum Tékklands sem eiga um sárt að binda. Fyrir fimm árum hófst fjársöfnun hér á landi fyrir frumkvæði Önnu Kristine eftir að mikil flóð ollu stór- tjóni í Tékklandi. M.a. var efnt til styrktartónleika í Háskólabíói. Söfn- unarféð var notað til að byggja upp elliheimili fullbúið húsgögnum í litlum bæ á Mæri í Tékklandi. „Frá þessum tíma hafa þúsundir Íslendinga sótt Tékkland heim og þá sérstaklega Prag. Ég vil höfða til þeirra sem unna Tékklandi og vilja hjálpa landsmönnum í nauð,“ segir Anna Kristine. Í Búnaðarbankanum er söfnunar- reikningur sem ber yfirskriftina „Neyðarhjálp úr norðri“. Númer reikningsins er 301-26-72000. Söfnun til hjálpar Tékkum MARGIR sem leggja leið sína að Hellnum á Snæfellsnesi hrífast af einstæðri náttúrufegurð staðarins og fjörugu fuglalífi. Útivist á vaxandi vinsældum að fagna á svæðinu og leita þangað er- lendir ferðamenn sem íslenskir. Margt var um manninn síðastliðinn sunnudag þar sem fólk naut blíð- viðrisins og einn ferðalanganna settist niður við fallegar kletta- myndanir við fjöruborðið til að hvíla lúin bein. Morgunblaðið/Alfons Hvíld að Hellnum ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.