Morgunblaðið - 13.09.2002, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 13.09.2002, Blaðsíða 50
DAGBÓK 50 FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Carnival Legend kemur og fer í dag. Bjarni Sæ- mundsson fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Celo di Barents fór í gær. Örvar kom í gær. Mannamót Aflagrandi 40, kl. 9 vinnustofa og leikfimi, kl. 14 bingó. Árskógar 4. kl. 13–16.30 opin smíða- og handa- vinnustofan, kl. 13.30 bingó, kl. 10–16 púttvöll- urinn. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 16, hárgreiðsla, kl. 8.30– 12.30 böðun, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 13–16 spilað. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið er á mánu- og fimmtudögum. Mánud: Kl. 16 leikfimi. Fimmtud: kl. 13 tré- skurðarnámskeið, kl. 14 bækur frá bókasafninu til útláns, kl. 15–16 bóka- spjall, kór eldri borgara Vorboðar: kóræfing í DAMOS kl. 17–19. Laugardagar: kl. 10–12 bókbandsnámskeið, línudans byrjar 5 okt. kl. 11. Námskeið í postu- línsmálun byrjar 18. nóv. Uppl. og skráningar Svanhildur s. 586 8014 e.h. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 op- in handavinnustofan, hárgreiðslustofan opin kl. 9–16.45 alla daga nema mánudaga. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. FEBK stendur fyrir opnu húsi laugard. 14. sept. kl. 14 í Gjábakka. Dagskrá: Hljóðfæra- leikur, upplestur og fleira. Kaffi og meðlæti. Farin verður hópferð til Akureyrar á vegum FEBK vegna þáttöku í 20 ára afmæli Félags eldri borgara á Ak- ureyri, laugard. 12 okt. Mánud. 16. sept. verður ferð í Þverárrétt í Þver- árhlíð í Borgarfirði. Lagt af stað frá Gjá- bakka kl. 8 og frá Gull- smára kl. 8.15 Áætluð heimkoma er kl. 18. Þátttökulistar og upp- lýsingar liggja frammi í Félagsmiðstöðvunum Gjábakka (s: 554 3400) og Gullsmára (s: 564 5260) Athugið – tak- markað sætaframboð – Ferðanefndin: Bogi Þór- ir (s: 554 0233) og Þráinn (s: 554 0999). Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 11 leikfimi, kl. 13. „Opið hús“ spilað á spil. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli , Flatahrauni 3. Brids kl. 13.30 pútt á Hrafn- istuvelli kl. 14–16. Á morgun ganga kl. 10 frá Hraunseli, rúta frá Firð- inum kl. 9.50. Bilj- ardstofan opin virka daga frá kl. 13.30–16, skráning í Hraunseli. Leikfimi eldri borgara í Íþróttastöðini Björk (Gamla Haukahúsinu) á þriðju-, fimmtu- og föstudögum kl. 11.30 skráning í Hraunseli s. 555 0142. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Félagið hefur opnað heimasíðu www.feb.is. Réttarferð í Þverárrétt 15. sept- ember. Leiðsögumaður Sigurður Kristinsson. Einnig verður komið í Reykholt og að Deild- artunguhver. Selt verð- ur réttarkaffi. Þeir sem eiga pantað sæti vinsam- legast sækið miðann í dag. Brottför frá Ás- garði Glæsibæ kl. 12. Sunnudagur: Dansleikur kl. 20 Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Silfurlínan er opin á mánu- og mið- vikudögum kl. 10–12. Skrifstofa félagsins er flutt í Faxafen 12 s. 588 2111. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Upplýsingar á skrifstofu FEB. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9–12 böð- un, kl.9–16.30 opin vinnustofa, myndlist, kl. 9.30 gönguhópurinn Gönuhlaup leggur af stað, kaffi á eftir göng- unni, allir velkomnir, kl. 14 bridge og spila- mennska. Sviðaveisla verður 20. sept. kl. 12. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 9.30 sund og leikfimiæfingar í Breið- holtslaug, frá hádegi vinnustofur og spilasal- ur opinn, kl. 14 kóræfing hjá Gerðubergskórnum. Nýir félagar velkomnir. Síðustu sýningadagar hjá Huga Jóhannessyni. Veitingar í Kaffi Bergi. Allar upplýsingar á staðnum og í síma 575- 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 málm- og silf- ursmíði, kl. 9.15 ramma- vefnaður, kl. 13 bók- band. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið virka daga kl. 9–17 hádegismatur, kaffi og heimabakað meðlæti. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurður, fótaaðgerð og hár- greiðsla. Fræðslu- og kynningarfundur kl. 14. Dagskrá: Lyf og inntaka þeirra. – Beinþynning. Lyfja- og hjúkr- unarfræðingar annast fræðsluna á eftir verður boðið upp á beinþéttni- mælingu, fólk er hvatt til að mæta. Kaffi og með- læti verður á boðstólum. Allir velkomnir. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun, kl. 10 mæðra- morgunn, Fótaaðgerð, hársnyrting. Allir vel- komnir. Undir liðnum Mæðramorgun: Nú er verið að fara af stað með mæðramorgna og eru allar mæður velkomnar til að njóta fræðslu og samskipta hver við aðra. Við höfum góða aðstöðu fyrir barnavagna og kerrur. Börnin geta sof- ið úti ef vill. Norðurbrún 1. Kl. 9–13 tréskurður, kl. 9–17, hárgreiðsla kl. 10–11 boccia. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15 handa- vinna, kl.13.30 sungið við flygilinn, kl. 14.30–16 dansað við lagaval Hall- dóru, kaffiveitingar allir velkomnir. Leikfimi- kennsla byrjar þriðjud. 17. sept kl.11–12, einnig verður kennt á fimmtud. kl. 13–14 Theodóra Em- ilsdóttir. Vitatorg. Kl. 8. 45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla og myndlist, kl. 9.30 bók- band og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerðir og leikfimi, kl. 12.30 leir- mótun, kl. 13.30 bingó. Vetrardagskráin komin. Laus pláss í eftirtöldum námskeiðum: bókband, myndlist, leirmótun, körfugerð, mósaik og smiðju. Upplýsingar í síma 561 0300. Allir ald- urshópar velkomnir. Hallgrímskirkja, eldri borgarar. Vetrarstarfið er hafið. Leikfimi þriðju- daga kl. 13, súpa, spil og spjall. Uppl. gefur Dag- björt s. 510 1034. Bridsdeild FEBK Gjá- bakka. Brids kl. 13.15 í dag. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13, kl. 10 á laugar- dögum. Félag kennara á eft- irlaunum. Félagsvistin laugard. 14. sept. verður í Síðumúla 37, húsi Bridgesambands Ís- lands, klukkan 13.30, en ekki í Húnabúð eins og sagt var í seinasta fréttabréfi FKE. Þórir Sigurðsson segir frá þingi Norrænna kenn- ara á eftirlaunum. Karlakórinn Kátir karl- ar. Hefur æfingar þriðjudaginn 17. sept kl. 13 í Félags- og þjónustu- miðstöðinni Árskógum 4. Söngstjóri Úlrik Óla- son. Tekið við pöntunum í söng í s. 553 5979 Jón, s. 551 8857 Guðjón eða s. 553 2725 Stefán. Ungt fólk með ungana sína. Hitt húsið býður ungum foreldrum (16 –25 ára) að mæta með börnin sín á laugard. kl.15–17 á Geysi, Kakó- bar, Aðalstræti 2 Félag eldri borgara Suðurnesjum. Bingó í Selinu Vallarbraut 4, Njarðvík öll mánudags- kvöld kl. 20. Minningarkort Minningarspjöld Kristniboðssambands- ins frást á skrifstofunni, Holtavegi 28 (hús KFUM og K gengt Langholtsskóla) sími 588-8899. Í dag er föstudagur 13. september, 256. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Til frelsis frelsaði Kristur oss. Standið því stöðugir og látið ekki aftur leggja á yður ánauðarok. (Gal. 5, 1.) 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 fljótfærni, 8 örlög, 9 ól, 10 veiðarfæri, 11 tálga, 13 tómum, 15 toll, 18 óhamingja, 21 blóm, 22 skóf í hári, 23 að baki, 24 léttlyndur. LÓÐRÉTT: 2 erfið, 3 dráttardýrin, 4 hefja, 5 fléttað, 6 tuddi, 7 tölustafur, 12 dreg úr, 14 ótta, 15 stofuhúsgagn, 16 stétt, 17 ófús, 18 reykti, 19 kynið, 20 beitu. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 breks, 4 fjöld, 7 líðum, 8 örgum, 9 ill, 11 römm, 13 alur, 14 ærleg, 15 bjór, 17 grun, 20 hal, 22 keyta, 23 eljan, 24 nýtin, 25 tunna. Lóðrétt: 1 bílar, 2 eyðum, 3 sómi, 4 fjöl, 5 öngul, 6 dæm- ir, 10 lúlla, 12 mær, 13 agg, 15 bókin, 16 ólykt, 18 rýjan, 19 nenna, 20 hann, 21 lest. Víkverji skrifar... FORDÓMAR gegn bílum – þ.e.ákveðnum tegundum bíla – eru útbreiddir og Víkverji verður t.d. að játa að hann hefur enn fordóma gagnvart austur-evrópskum bílum, sem í tíð kalda stríðsins þóttu hálf- gert drasl. Víkverja er líklega farið eins og skozka leikaranum Sean Connery, sem fékk tilboð um að kynna nýjan Skoda í auglýsingu, fékk að prófa bílinn og fannst hann alveg ágætur, en fékk sig bara ekki til að auglýsa bíl, sem einu sinni kom ryðgaður úr kassanum, eins og Connery orðaði það sjálfur. Nú bregður hins vegar svo við að heil halarófa af vinum og kunningjum Víkverja hefur keypt sér Skoda. Vík- verji hefur fengið að sitja í nokkrum þessara bíla og það er eins og að sitja í þýzkum Volkswagen-gæðabíl, enda eru Skoda-verksmiðjurnar nú í eigu VW og það er að renna upp fyrir evr- ópskum neytendum að með því að kaupa Skoda fá þeir VW-tækni á lágu verði. Margir ánægðir Skoda-eigendur telja sig vafalaust munu geta haldið tryggð við merkið til frambúðar, enda hafa bílarnir batnað stórum undanfarin tíu ár og ættu að geta haldið áfram að batna. Í tékkneska blaðinu The Prague Post, sem gefið er út á ensku, les Víkverji hins vegar að nú séu æðstu stjórnendur Volkswagen farnir að ókyrrast vegna velgengni Skoda. Haft er eftir sérfræðingum um bílamarkaðinn að innan samsteypunnar hafi allir verið himinsælir með rífandi söluaukningu Skoda til þessa, en nú hafi menn áhyggjur af því að vönduðu Skoda- bílarnir dragi úr sölunni á Volkswag- en-bílum. Sumir spá því þess vegna að Skoda fái ekki að verða raunveru- legur lúxusbíll, heldur muni Volks- wagen vilja þjóna „neðri enda“ markaðarins með Skoda en vilji fólk dýran lúxusbíl frá samsteypunni verði það að kaupa Volkswagen eða Audi. Víkverja fyndist það hálfgerð synd að leyfa Skoda ekki að fá fulla uppreisn æru með framleiðslu lúx- usbíla fyrir vestrænan markað. x x x VÍKVERJI er dálítill súkku-laðigrís. Með árunum hefur smekkur hann þróazt þannig að nú vill hann helzt dökkt súkkulaði með miklu kakóinnihaldi. Víkverji hefur verið súr út í íslenzka sælgætisfram- leiðendur fyrir að framleiða ekki al- vöru dökkt súkkulaði og geta þess jafnvel ekki á umbúðum, hversu mikið kakóinnihaldið sé í súkku- laðinu. Víkverji hefur af þessum sökum leitað á náðir erlendra vörumerkja eftir góðu, dökku súkkulaði. Það kom Víkverja því ánægjulega á óvart að finna – eins og svar við bænum sínum – svokallað Síríus 70% súkku- laði í búðarhillu. Á umbúðunum stendur að súkkulaðið sé „jafngott til átu sem í dýrindis súkkulaðirétti og til matargerðar“ og Víkverji getur staðfest það, hafandi bæði stýft súkkulaðið úr hnefa og notað það í eftirrétti. Hvenær þessi vara kom á mark- aðinn veit Víkverji ekki, enda hefur hún lítið verið auglýst. Þegar skrifari fór á vef Nóa-Síríusar til að fletta því upp varð hann litlu nær, því að þar hefur fréttasíðan ekki verið uppfærð frá því í apríl 2001. Hvað sem því líður hefur Víkverji nú fundið sitt íslenzka uppáhalds- súkkulaði. Skemmdar grillkartöflur ÉG keypti grillkartöflur innpakkaðar í álpappír fyr- ir stuttu. Það vildi svo til að ég opnaði álpappírinn og við blöstu kartöflur sem voru farnar að spíra og ein var orðin mjög skemmd. Var ég að velta því fyrir mér hvort verið væri að koma lélegum kartöflum út með því að pakka þeim í álpappír. Vil ég beina því til selj- enda þessarar vöru að fylgjast betur með gæðun- um – en ég kaupi þetta ekki aftur. Neytandi. Félag eldri borgara – fyrirspurn ÉG vil koma á framfæri lít- illi fyrirspurn til stjórnar Félags eldri borgara í Reykjavík. Fyrir um það bil tveimur árum var mjög ofarlega í umræðunni að tveir þriðju hlutar þess er eldri borg- arar fengju greitt úr lífeyr- issjóðum væru fjármagns- tekjur og ættu því að skattleggjast sem slíkar tekjur eða bera 10% skatt. Ekkert hefur hins vegar heyrst um þetta mál í lang- an tíma. Það var látið í veðri vaka að þessu máli yrði vísað til dómstóla til úrskurðar. Margir munu hafa áhuga að vita hvernig þetta mál stendur í dag. Ellilífeyrisþegi. Hvergi þorsk að fá Í BRÉFI til dagblaðsins „La Vanguardia“ í Barce- lona 5. september þ.m. seg- ist B. Porcel nokkur hvergi hafa fengið þorsk í Íslands- ferð sinni. Og hann á greinilega við glænýjan þorsk, steiktan, e.t.v. soð- inn, en ekki saltfisk. Og 7. september segir hann Íslendinga lítið fyrir að elda fisk og farist það óhönduglega. Það vil ég ekki taka undir en það fyrr- nefnda, þ.e. að þorskur fá- ist hvergi framreiddur, passar alveg við reynslu mína sem leiðsögumaður með Ítali fyrir fáum árum. Í heilli hringferð fékkst hvergi pönnusteiktur þorskur né nokkur annar þorskréttur og þótti þeim það með ólíkindum í landi sjálfrar þorskveiðiþjóðar- innar. Þorsk! Nei við erum aldrei með þorsk var svarið sem við fengum í myndar- legum fiskibæ norðanlands. Þótt mér sé að vísu kunn- ugt um að þorskréttir hafi verið á boðstólum á örfáum veitingastöðum, a.m.k í Reykjavík, held ég að langtum fleiri veitinga- menn mættu bera þorskinn á borð fyrir útlenda munna enda annað varla sæmandi þorskveiðiþjóðinni. Steinar Árnason. Norsk-íslensk orðabók GETUR einhver vísað mér á hvar ég get fengið keypta eða lánaða norsk-íslenska orðabók. Ég hef leitað um allt án árangurs. Þeir sem gætu liðsinnt mér vinsam- lega hringi í síma 893 9954. VR til fyrirmyndar FYRIR stuttu fór ég með eiginmanni mínum í Versl- unarmannafélag Reykja- víkur. Fannst mér alveg sérstaklega almennilegt og kurteist starfsfólkið sem tekur á móti manni þar. Hreint til fyrirmyndar. Ég hef átt erindi í minn lífeyr- issjóð og þar var ekki eins vel tekið á móti manni og símaþjónustan þar er ekki góð. Vil ég benda starfs- fólki lífeyrissjóða á að taka starfsfólk VR sér til fyrir- myndar. Félagsmaður. Tapað/fundið Rauð taska og vind- jakki týndust RAUÐ taska merkt Winst- on og rauður vindjakki frá Levi’s týndust í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sl. sunnudags. Skilvís finnandi hafi samband í síma 697 6782. Fundarlaun. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is UNDANFARIÐ hefur ver- ið rætt um skeytingarleysi og jafnvel grimmd sam- borgaranna í Reykjavík. Það eru ekki þeir sam- borgarar sem ég þekki og umgengst. Ég varð fyrir því óhappi að hjóla upp á kant, missa jafnvægið og lenda á höfð- inu á mótum Nóatúns og Skipholts á laugardaginn 24. ágúst. Þar sem ég reyndi að staulast á fætur dreif samstundis að fólk sem skipaði mér að liggja, hringdi í neyðarlínu, setti mig í læsta hliðarlegu, plástraði skurfur á höfði og höndum, bar að mér teppi og hlúði að mér þar til sjúkrabíll kom. Starfskonur í Baðhús- inu komu og tóku hjólið í geymslu. Á slysadeild lenti ég í höndum á besta fagfólki og kom út þaðan nokkrum tímum síðar, ringlaður, bólginn, risp- aður, saumaður en um það bil í lagi. Ég vil koma á framfæri þökkum til allra þessara óeigingjörnu veg- farenda sem sinntu ókunnugum manninum þar sem hann lá í blóði sínu. Sveinn Ólafsson. Hjólreiðamaður færir þakkir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.