Morgunblaðið - 12.10.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NAFNSPJALDSDISKUR er fyrir-
bæri sem er að ryðja sér til rúms um
þessar mundir. Diskurinn er hins
vegar það nýr af nálinni að hann
krefst frekari skýringar. „Nafn-
spjaldsdiskur gegnir svipuðu hlut-
verki og nafnspjald starfsmanns, en á
hann er hægt að setja hvaða upplýs-
ingar sem er í ýmsu formi,“ útskýrir
Ágúst K. Ágústsson, einn af þremur
starfsmönnum fyrirtækisins Greind-
ar ehf., sem sýnir á fagsýningu þekk-
ingariðnaðarins, Agora, í Laugardals-
höll.
Ágúst nefnir sem dæmi að hægt er
að hafa allar upplýsingar um fyrir-
tækið og starfsemi þess, myndband,
lista yfir starfsfólk og netföng þeirra
og margt fleira á disknum. Þá er hægt
að hafa allar þessar upplýsingar á
fleiru en einu tungumáli. Nafn-
spjaldsdiskur er minni en dæmigerð-
ur geisladiskur, hann er ferkantaður
en hægt er að nota hann í venjulegt
geisladrif.
En fyrir utan nafnspjaldadiska
hvað fæst fyrirtækið Greind ehf. við?
„Greind er nýtt fyrirtæki sem tek-
ur að sér hönnunarvinnu og gerð staf-
ræns kynningarefnis fyrir fyrirtæki,
t.d. margmiðlunar- og kynningar-
diska,“ segir Ágúst. Á diskana, sem
sífellt njóta meiri vinsælda, er t.d.
hægt að setja myndbönd og getur
Greind séð um gerð og útfærslu
þeirra.
Greind var stofnað í mars á þessu
ári. „Greind fæddist eiginlega í kring-
um heimasíður fyrir veiðimenn, agn.is
og sportfishing-iceland.com,“ útskýr-
ir Ágúst. „Við erum þeir fyrstu og
einu á markaðnum sem erum með
veiðileyfasölukerfi á Netinu. Nú geta
veiðimenn farið á vefinn, keypt leyfi í
laxveiðiá, prentað út veiðileyfið og
lagt af stað í veiðiferðina. Það þarf
ekki lengur að elta bændur út um allt
og engin hætta er á tvíbókun.“
Georg Hilmarsson hönnuður segir
að það sem m.a einkenni Greind er að
fyrirtækið starfi á mjög breiðu sviði.
„Fyrirtækið er lítið og við getum boð-
ið gott verð, en þegar við ráðumst í
stærri verkefni göngum við til sam-
starfs við aðra aðila.“
Georg segir að t.d. henti þjónusta
Greindar vel nýjum fyrirtækjum sem
eigi eftir að skapa sér ímynd og útlit.
„Við getum nefnilega hannað útlit fyr-
irtækis frá upphafi, allt frá því að
hanna merki fyrirtækis til þess að búa
til myndband og kynningardisk.“
Diskur í stað nafnspjalds
Morgunblaðið/Sverrir
Ágúst K. Ágústsson og Jóhann Á. Sigurðarson kerfisfræðingar og
Georg Hilmarsson hönnuður eru heilarnir að baki Greind ehf.
ÁHANGENDUR skoska landsliðs-
ins setja svip sinn á miðborg
Reykjavíkur um þessar mundir,
en um 2500 Skotar eru komnir
hingað til lands til að fylgjast með
landsleik við Íslendinga sem fram
fer í dag. Á hverju götuhorni má
sjá skotapilsi bregða fyrir og hafa
veitingamenn í miðbænum tekið
við sér og hafa tilboð á fljótandi
veigum fyrir þessa þyrstu knatt-
spyrnuáhugamenn.
Blaðamaður og ljósmyndari
Morgunblaðsins brugðu sér inn á
írsku krána Dubliners rétt eftir
hádegi í gær, út á Hafnarstrætið
hljómaði tónlist og allir tóku Skot-
arnir hástöfum undir „Hey, hey
baby ... ÚH, AH.“ Einn áhangend-
anna lyfti upp skotapilsinu við
innganginn og geta blaðamaður
og ljósmyndari staðfest, að það er
rétt sem sagt er: Skotarnir eru
ekki í neinu undir.
Íslendingar
mjög gestrisnir
Chris Garvie, 27 ára fram-
kvæmdastjóri bruggverksmiðju í
Perth, áætlar að hann muni
drekka um 20 stóra bjóra á dag í
Íslandsheimsókninni. Áhangend-
urnir sofi út, en mæti síðan gal-
vaskir á krána á hádegi og
skemmti sér fram eftir kvöldi. „Ís-
lendingar eru mjög gestrisnir, það
er gott að koma hingað,“ segir
hann. Aðspurður segir Garvie til-
gang fararinnar að drekka og
skemmta sér. Um helmingur
áhangendanna eigi miða á leikinn,
hinir muni fylgjast með leiknum á
sjónvarpsskjá á krám í mið-
bænum.
Garvie segist hafa farið um 20
sinnum áður á erlenda grund til
að styðja skoska landsliðið. Það sé
vissulega dýrt en vel þess virði.
Hann spáir því að leikurinn fari
3–0 fyrir Skotum, Steve Crawford
sóknarmaður muni eiga tvö mark-
anna. „Skoska landsliðið verður í
raun með 12 leikmenn á vellinum,
stuðningsmennirnir verða tólfti
maðurinn,“ segir hann skælbros-
andi.
Blaðamann fýsir að vita hvað
kærustum og eiginkonum fótbolta-
áhugamannanna finnist um þessar
fótboltaferðir. „Þetta er allt í lagi,
svo lengi sem þær fá póstkort,“
kallar vinur Garvies og uppsker
mikil fagnaðarlæti vinanna.
John Low, sem kallar sig Ludo,
segist hafa farið í fótboltaferðir
frá árinu 1964, alls hafi hann far-
ið í 50 ferðir.
„Konan fær viku í sólinni“
„Konan fær viku í sólinni og ég
fer í fótboltaferðir. Hún hefur
reyndar komið með mér til Prag
og Brussel,“ segir Ludo sem seg-
ist vinna í skoska varnarmála-
ráðuneytinu.
Hann telur að leikurinn fari 2–0
eða 2–1 fyrir Skotum. „Íslenska
landsliðið er gott, en ekki nógu
gott til að bera sigurorð af Skot-
um. Við höfum ekki unnið í síð-
ustu sjö leikjum, þannig að nú
verðum við að vinna,“ segir Ludo
en leikurinn í dag er fyrsti leikur
Íslendinga í undankeppni Evr-
ópumóts landsliða í knattspyrnu
árið 2004 og annar leikur Skot-
anna.
Hann segir að skoskir knatt-
spyrnumenn hafi orð á sér fyrir
góða hegðun og því geti íslenska
lögreglan andað rólega, tvisvar
sinnum hafi þeir verið valdir
prúðustu áhangendurnir. „Við
viljum bara skemmta okkur og
horfa á góðan fótbolta,“ segir
Ludo.
Sigurvissir áhangendur skoska knattspyrnulandsliðsins setja svip sinn á miðborgina
Morgunblaðið/Sverrir
John Low, t.v., hefur ferðast um 50 sinnum á erlenda grundu til að styðja sína menn. Dyggir áhangendur skoska landsliðsins voru m.a. skrýddir fánum hinna ýmsu þjóða.
Pilsaþytur í borginni
PAUL Lambert, skoski landsliðs-
maðurinn í knattspyrnu og leikmaður
Glasgow Celtic, gaf sér tíma frá æf-
ingum í gær til að kaupa Porsche
Carrera 2 hjá Bílabúð Benna. Eins og
kunnugt er leika Íslendingar við
Skota landsleik á Laugardalsvelli í
dag kl. 14.
Lambert sagði í samtali við Morg-
unblaðið að ástæðan fyrir bílakaup-
unum hér á landi væri sú að biðtími
eftir Porsche Carrera 2 væri fimmtán
mánuðir í Skotlandi þar sem mikil
spurn er eftir Porsche-bílum um allan
heim. Með því að kaupa bílinn á Ís-
landi þarf Lambert ekki að bíða nema
í þrjár vikur. Bíllinn kostar um tólf
milljónir króna með gjöldum hér á
landi en án gjalda er verðið nálægt 6
milljónum króna. „Það er eitthvað við
þennan bíl. Ég veit ekki hvað en ég
hef alltaf viljað eiga Porsche. Ég á
líka Mercedes-Benz sem ég ætla að
halda því hann er góður fjöl-
skyldubíll,“ segir Paul Bílabúð Benna
fær úthlutað bílum frá verksmiðj-
unum eins og aðrir umboðsaðilar. Þar
sem markaðurinn fyrir slíka bíla er
takmarkaður hérlendis hefur fyr-
irtækið selt bíla víða um heim.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Keypti Porsche á Íslandi
Paul Lambert við Porsche hjá Bílabúð Benna.