Morgunblaðið - 12.10.2002, Blaðsíða 21
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 21
ÞAÐ er ekki á hverjum degi að
nemendur grunnskólanna fá tæki-
færi til að tefla við heimsfræga
skákmeistara. Draumur margra
ungra skákmanna rættist þó því
skákmeistararnir Ivan Sokolov, Jan
Votava, Tomas Oral, Pedrac Nicol-
ic, Luk McShane og Íslendingurinn
Stefán Kristjánsson tefldu fjöltefli
við þó nokkuð á annað hundrað
nemendur í íþróttahúsinu á Selfossi
í dag.
Allir þátttakendur fengu svo við-
urkenningarskjal með eiginhand-
aráritun meistaranna.
Mótið var haldið í tilefni af 150
ára afmæli Barnaskólans á Eyr-
arbakka og Stokkseyri.
Ljósmynd/Óskar Magnússon
Fjöltefli
Eyrarbakki
„ÞAÐ hefur verið mjög gaman hvað
fólk hefur verið duglegt að líta inn
hér á Hótel Selfoss til að fylgjast
með. Núna um helgina verður teflt
frá klukkan 14 og það verður alveg
örugglega góð stemning,“ sagði
Hrafn Jökulsson, aðalstjórnandi
Mjólkurskákmótsins á Hótel Sel-
fossi.
„Við viljum sjá fólk af öllum stig-
um skákáhugans því það er nefnilega
svo gaman að koma á skákstað og
finna andrúmsloftið í kringum skák-
ina,“ sagði Hrafn. Hann sagði að
góðir gestir myndu vera með skák-
skýringar og útlendingarnir á
mótinu tækju það líka að þér. Þá
sagði hann gaman að fylgjast með
stórmeisturunum fara yfir skákir
sínar og lýsa því hvað þeir hefðu ver-
ið að hugsa. „Ég er viss um að það
má líkja kraftinum í þessum mönn-
um við kjarnorkuver þegar þeir eru
að hugsa um skákina.“
Stöðugur straumur fólks er inn á
skákmótið til að fyljast með meist-
urunum tefla og þeim sviptingum
sem eiga sér stað á skákborðunum
inni í keppnissalnum. Greinilegt er
að skákáhugamenn líta á mótið sem
góðan feng og greinilegt að skák-
bakterían hefur lifnað hjá mörgum.
Frammi á stigapallinum er mögulegt
að setjast að tafli og þar má sjá þátt-
takendur mótsins setjast niður eftir
skákirnar í keppnissalnum og fara
yfir þær í sameiningu. Að sögn
stjórnenda mótsins er það sterkasta
taflmót sem haldið hefur verið á Ís-
landi síðan 1991.
„Þetta er stórkostlegt og gott að
koma hér. Það er gott skipulag á
mótinu og allt er vel undirbúið. Ég
tefldi hér síðast 1991 og er mjög
ánægður með að fá tækifæri hérna
og mér sýnist þetta einnig vera gott
tækifæri fyrir íslenska skákmenn að
reyna sig,“ sagði Pedrag Nikolic
stórmeistari en hann var með skák-
skýringar á fimmtudagskvöldið.
Góð stemning á
Mjólkurskák-
mótinu á Selfossi
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Áhorfendur fylgjast með skákunum í keppnissalnum á Hótel Selfossi.
Selfoss
KIRKJUÞING mun koma saman í
Eyrarbakkakirkju sunnudaginn 13.
október og mun á þann hátt minnast
150 ára afmælis Barnaskólans á
Eyrarbakka og Stokkseyri.
Þar mun prófasturinn, séra Úlfar
Guðmundsson, bjóða þingið velkom-
ið og ávörp flytja biskup Íslandis
herra Karl Sigurbjörnsson, Arndís
Harpa Einarsdóttir, skólastjóri
Barnaskólans og Menntamálaráð-
herra Tómas Ingi Olrich.
Séra Sigurður Pálsson flytur er-
indi.
Börn úr leikskólanum Brimveri og
barnakór Selfosskirkju syngja nokk-
ur lög.
Kirkjuþing í
Eyrarbakka-
kirkju
Eyrarbakki
SUNNUDAGINN 13. október verð-
ur handverksmarkaður í félagsheim-
ilinu Stað á Eyrarbakka, frá kl. 14 til
18. Húsið og sjóminjasafnið verða
opin þennan dag og Rauða húsið
verður með kaffisölu. Handverkið er
unnið úr ýmsum efnum; járni, tré,
leir og ull. Nú verða vetrarvörur, svo
sem vettlingar og þvíumlíkt, á mark-
aðnum. Þessir markaðir hafa unnið
sér sess hér og þátttakendur koma
víða að, auk Árborgarmanna.
Handverksmarkaður
Eyrarbakki
♦ ♦ ♦