Morgunblaðið - 12.10.2002, Blaðsíða 52
52 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!"#
#$
#
%
!& #
$
%
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
EITTHVAÐ það alvitlausasta sem ég
hef lesið eru ummæli Ecclestones,
sem sagður er holdgervingur Form-
úlu 1, um að þyngja bíl Schumachers
um eitt kíló fyrir hvert stig sem hann
kann að hafa í forskot á keppinauta
sína í formúlunni. Menn verða að taka
því að Michael Schumacher er besti
ökumaður formúlunnar frá upphafi,
hvort sem þeim líkar það eða ekki.
Væri ekki alveg eins hægt að láta liðs-
menn Arsenal keppa á skíðaskóm,
eða hafa stöng heimsmeistarans í
stangarstökki tveimur metrum
styttri en annarra keppenda? Ég
vona bara að minn maður vinni kapp-
aksturinn í Japan, þótt hann hampi
heimsmeistaratitli nú þegar.
ÆGIR KRISTINSSON,
áhugamaður um akstursíþróttir,
Hlíðargötu 24, Fáskrúðsfirði.
Á að refsa Schumacher
fyrir að vera bestur?
Frá Ægi Kristinssyni:
Reuters
Hér fagna Rubens Barrichello og Michael Schumacher sigri .
„SAGA Línu.nets sýnir að stjórn-
málamenn eiga ekki að setja fé al-
mennings í áhætturekstur,“ segir í
forystugrein Morgunblaðsins 10.
október. Fullyrðingin virðist almenn
og vísa til grundvallarafstöðu blaðs-
ins. Blaðið hefur þó ekki lagst gegn
því að lagðir verði 90–100 milljarðar
af fé almennings í Kárahnjúkavirkj-
un, mörgum sinnum meira en fór í
Línu.net. Rafmagnsverð frá virkjun-
inni sveiflast með álverði og má því
gera ráð fyrir að rekstraráhætta
hennar sé svipuð og hjá álverum. Ef
illa fer ber almenningur tapið, rétt
eins og Reykvíkingar bera nú tap
vegna Línu.nets. Þá má rifja upp ein-
dreginn stuðning blaðsins við 20
milljarða ríkisábyrgð til Íslenskrar
erfðagreiningar (forystugrein 10.
apríl 2002). Formaður viðskipta- og
efnahagsnefndar Alþingis telur
3–5% líkur á að ábyrgðin falli á ríkið
– og það er vissulega áhætta.
Fróðlegt væri að heyra hvort blað-
ið hefur nú snúist gegn þátttöku hins
opinbera í Kárahnjúkavirkjun og
ríkisábyrgðinni til deCODE, eða
hvort það eru einungis andstæðingar
þess í stjórnmálum sem ekki mega
setja almannafé í áhætturekstur.
SIGURÐUR JÓHANNESSON,
hagfræðingur.
Fyrirspurn
vegna leiðara
Frá Sigurði Jóhannessyni:
NÚ NÝLEGA var frétt í Morgun-
blaðinu þar sem sagði frá góðum ár-
angri Slökkviliðsins á Keflavíkur-
flugvelli í eldvörnum. Fékk liðið
æðstu verðlaun fyrir afbragðs ár-
angur, fjórða árið í röð. Fréttir sem
þessar hafa verið í blaðinu öðru
hvoru árum saman og eru þess
vegna ekki neinar fréttir. Nú hagar
svo til þar suðurfrá að herstöðin er á
hitaveitusvæði og þess vegna lítil
eldhætta. Í Bandaríkjunum eru
ströng lög um samkeppni og hringa-
myndun og þess vegna öllum fyrir
bestu að Ameríska sjóliðafélagið
komist ekki að þessu. Annars er
bandaríski sjóherinn um margt hin
ágætasta stofnun, bestur er hann
náttúrlega þegar hann er ekki að
berja á neinum, enda þykir flestum
leiðinlegt að láta lemja sig. Agi og
uppeldi í þessum flota er með þeim
ágætum að liðsmenn flotans sem
starfa hér á landi, eru á sérstökum
vildarkjörum hjá íslenzkum trygg-
ingafélögum, vegna lágrar tjóna-
tíðni. Nú eru margir Íslendingar
sem eru ekkert síðri ökumenn en
þetta erlenda fólk, en verða að sæta
því að greiða tjón fyrir unglinga sem
sumum finnst skemmtilegt að „tjóna
bíla“ eins og þeir segja. Nú er til
nokkuð sem heitir Mannréttinda-
sáttmáli Evrópu og Íslendingar eru
aðilar að, en sáttmálinn sá bannar
alla mismunun vegna þjóðernis, lit-
arháttar eða trúarskoðana m.a.
Hér með er skorað á þann góða
dreng Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, að hann láti leiðrétta þetta.
GESTUR GUNNARSSON,
tæknifræðingur,
Flókagötu 8, Reykjavík.
Sjólið Bandaríkjanna
Frá Gesti Gunnarssyni: