Morgunblaðið - 12.10.2002, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 9
SAMKVÆMT reglum sem Bretar
settu árið 1997 verða skip frá lönd-
um Evrópusambandinu (ESB) að
uppfylla eitt eftirfarandi skilyrða,
að landa a.m.k. helming afla í
breskri höfn, meirihluti áhafnar
verður að vera búsettur á Bret-
landi og meirihluti veiðiferða verð-
ur að vera stundaður frá Bret-
landi. Reglurnar voru settar eftir
dóm í svokölluðu „kvótahopps-
máli“.
Einar Oddur Kristjánsson al-
þingismaður gerði þetta að um-
talsefni á fundi Heimssýnar um
síðustu helgi.
Gagnrýni Einars Odds
Einar Oddur sagði að sam-
kvæmt dómi dómstóls ESB þyrftu
þeir sem fjárfestu í veiðiheimildum
á Íslandsmiðum einungis að sýna
fram á að a.m.k. 50% áhafnarinnar
væru Íslendingar eða að landa
a.m.k. 50% aflans hérlendis eða að
fá a.m.k. 50% þjónustu við skipið á
Íslandi. Með því að uppfylla eitt
þessara skilyrða gætu útlendingar
keypt veiðiheimildir og sett þær á
frystitogara, sem þyrfti aldrei að
koma í íslenska höfn, þyrfti aldrei
að landa einum sporði til vinnslu í
íslensku fiskvinnsluhúsi. Þar með
væri búið að flytja virðisaukann úr
landi og lífskjör þjóðarinnar yrðu
verri fyrir vikið.
Í bók Úlfars Haukssonar stjórn-
málafræðings um sjávarútvegs-
stefnu ESB er fjallað um þennan
dóm. Aðdragandi málsins er sá að
Bretar settu árið 1988 lög sem
áttu að stemma stigu við svoköll-
uðu kvótahoppi, en þar er átt við
kaup erlendra sjávarútvegsfyrir-
tækja, aðallega spænskra, á veiði-
heimildum sem úthlutað var í
breskri lögsögu, en Bretar töldu
að með því hefðu Spánverjar kom-
ist bakdyramegin inn í breskan
sjávarútveg. Spánverjar töldu
þessi lög ósanngjörn og skutu mál-
inu til ESB-dómstólsins. Dómstóll-
inn taldi að lögin brytu í bága við
grundvallarreglu Rómarsáttmál-
ans um atvinnuréttindi einstak-
linga innan sambandsins óháð
þjóðerni. Dómstóllinn útilokaði
hins vegar ekki þann rétt strand-
ríkja til að setja lög sem kveða á
um efnahagsleg tengsl fiskiskipa
við fánaríki. Tekið var undir sjón-
armið Breta um mikilvægi þess að
tryggja raunveruleg efnahagsleg
tengsl milli fiskiskps og þess
strandríkis sem úthlutar því veiði-
kvóta. Slík skilyrði mættu hins
vegar ekki mismuna aðilum á
grundvelli þjóðernis og mætti ekki
fara út fyrir markmiðið sem þeim
væri ætlað, þ.e. að tryggja efna-
hagsleg tengsl skips við strandríki.
Í framhaldi af þessum dómi áttu
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, og Jacques Santer, forseti
framkvæmdastjórnar, viðræður
um kvótahoppið. Í framhaldi af því
settu Bretar ný skilyrði fyrir
skráningu fiskiskipa á Bretlandi.
Þau fela í sér að skip verða að
uppfylla eitt eftirfarandi skilyrða,
að landa a.m.k. helmingi afla í
breskri höfn, meirihluti áhafnar
verður að vera búsettur á Bret-
landi og meirihluti veiðiferða verða
að vera stundaðar frá Bretlandi.
Einnig dugar að sýnt verði fram á
efnahagsleg tengsl með öðrum
hætti, t.d. blöndu af þessum þrem-
ur skilyrðum.
Bretar settu reglur 1997 eftir dóm í „kvótahopps-máli“
Verða að uppfylla eitt
þriggja skilyrða
ATVINNA mbl.is
Hausttilboð
á yfirhöfnum - Síðasti dagur
Nýkominn glæsilegur
samkvæmisfatnaður
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Mörkinni 6, sími 588 5518
Nýjar vörur
Opið virka
daga frá kl. 9-18.
Laugardaga
frá kl. 10-15.
Úlpur, ullarstuttkápur,
hattar, húfur og
kanínuskinn
Fallegur
samkvæmisfatnaður
Stærðir 36—56
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030.
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18,
lau. 10—15.
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið laugard. 10-14
Ný sending
Mikið úrval af uppgerðum borðstofustólum og
borðstofuborðum. Einnig margt fleira góðra muna.
Opið laugardaga-sunnudaga 15-18,
virka daga og á kvöldin eftir samkomulagi.
s. 566 8963 og 892 3041, Ólafur.