Morgunblaðið - 12.10.2002, Page 23
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 23
ÁÆTLANIR varðandi byggingu
nýrrar lyfjaverksmiðju Balkan-
pharma, dótturfyrirtækis Pharma-
co, í borginni Dupnitza í Búlgaríu
stóðust. Það á bæði við um tíma-
áætlanir og fjárhagsáætlanir. Þetta
kom fram á ávarpi Björgólfs Thors
Björgólfssonar, stjórnarformanns
Pharmaco, við formlega opnun
verksmiðjunnar í gær, en byrjað
var á byggingu hennar 26. sept-
ember á síðasta ári. Byggingar-
kostnaður var um 15 milljónir
Bandaríkjadala, jafnvirði um 1,3
milljarða íslenskra króna.
Viðstaddir opnun nýju lyfjaverk-
smiðjunnar í Dupnitza voru forseti
Búlgaríu, Georgi Parvanov, og Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands. Forseti Búlgaríu sagðist vona
að fleiri fjárfestingar Íslendinga
ættu eftir að fylgja í kjölfar fjárfest-
inga Pharmaco í Búlgaríu. Hann
sagði að landið hentaði vel sem
stökkpallur fyrir íslenska fjárfesta
á nýja markaði, sérstaklega í austri.
Forseti Íslands sagði að fjárfest-
ingar Pharmaco í Búlgaríu væru
gott dæmi um samstarf Íslands og
Búlgaríu og bindi þjóðirnar saman
með hætti sem ekki hefði verið
hugsanlegt fyrir einungis áratug.
Íslendingar sjái af þessu hvernig
hægt sé að ráðast í samstarf við
aðrar þjóðir, sem beri vott um þau
tækifæri sem 21. öldin bjóði upp á
svo og hið nýja hagkerfi.
Fram kom í máli Sindra Sindra-
sonar, forstjóra fjárfestinga
Pharmaco, við opnun lyfjaverk-
smiðjunnar, að bygging hennar
væri afar mikilvægt verkefni fyrir
Balkanpharma og Pharmaco. Gæði
verksmiðjunnar verði að fullu sam-
bærileg við það besta sem hann hafi
séð annars staðar. Þá sagði hann
það uppörvandi fyrir frekari fjár-
festingar Pharmaco í Búlgaríu hvað
vel hefði tekist til með byggingu
verksmiðjunnar.
Stefnt er að því að framleiðsla í
nýju verksmiðjunni hefjist í desem-
ber næstkomandi.
Uppfyllir GPM-gæðakröfur
Balkanpharma á þrjár lyfjaverk-
smiðjur í Búlgaríu, í borgunum
Troyan og Razgrad auk Dupnitza,
og er fyrirtækið 100% í eigu
Pharmaco. Samanlögð framleiðslu-
geta Balkanpharma er um 10 millj-
arðar taflna á ári og þar af verður
hægt að framleiða um 3 milljarða
taflna í nýju verksmiðjunni í Dupn-
itza.
Balkanpharma fékk fyrirtækið
Austin Company, sem sérhæfir sig í
hönnun lyfjaverksmiðja, til að sjá
um hönnun nýju verksmiðjunnar í
Dupnitza þannig að hún uppfylli
svonefndar evrópskar GPM-gæða-
kröfur, eða Good Manufacturing
Practice.
Lyfjafyrirtækin Pharmaco og
Delta voru sameinuð í síðasta mán-
uði undir nafni Pharmaco. Fyrir-
tækið er með starfsemi í 10 löndum
og eru starfsmenn um 5.300, þar af
um 450 á Íslandi. Fjöldi starfs-
manna í Búlgaríu er um 4.500, þar
af um 1.800 í Dupnitza, en tvær
lyfjaverksmiðjur Balkanpharma eru
fyrir í borginni, við hlið nýju verk-
smiðjunnar.
Stærsti lyfjaframleiðandi í Búlgaríu
Auk forseta Íslands og Dorrit
Moussaieff heitkonu hans voru um
180 Íslendingar viðstaddir opnun
hinnar nýju lyfjaverksmiðju í gær,
fulltrúar fjármálastofnana og fjár-
festa, starfsmenn Pharmaco og fjöl-
miðlamenn. Fyrr um daginn, áður
en verksmiðjan var formlega opnuð,
var haldinn fundur fyrir fulltrúa
fjármálastofnana og fjárfesta þar
sem forstjóri rekstrar Pharmaco,
Róbert Wessman, gerði grein fyrir
fjárfestingum félagsins í Búlgaríu
og framtíðarsýn Pharmaco. Fram
kom í máli hans að Balkanpharma
væri stærsti lyfjaframleiðandi í
Búlgaríu og flytti út lyf og virk
lyfjaefni til yfir 30 landa. Markaðs-
hlutdeild fyrirtækisins í Búlgaríu
væri nú um 17%. Hann sagði að við-
skiptaumhverfið í Búlgaríu væri
hagstætt vegna lágs framleiðslu-
kostnaðar, fyrirhugaðra skatta-
lækkana auk þess sem stefnt væri
að ESB-aðild landsins.
Fulltrúi frá endurskoðunarskrif-
stofu Balkanpharma, KPMG í Búlg-
aríu, gerði á fundinum grein fyrir
efnahags- og atvinnulífinu í Búlg-
aríu og sagði m.a. að framfarir
hefðu orðið miklar, þó nokkuð væri
í land á ýmsum sviðum.
Forsetarnir ánægðir með
samskipti landanna
Forseti Íslands og forseti Búlg-
aríu ræddust við um samskipti
landanna í gær að viðstöddum
stjórnarmönnum í Pharmaco og
Svavari Gestssyni, sendiherra Ís-
lands í Búlgaríu. Á blaðamanna-
fundi að fundi forsetanna loknum
kom fram að þeir væru báðir
ánægðir með samskipti landanna,
sem hefðu aukist mikið. Þau bæru
þess vott að þau væru góð. Forseti
Búlgaríu sagði að fjárfestingar
Pharmaco í landinu, koma íslenskra
fjárfesta í tilefni af opnun verk-
smiðjunnar í Dupnitza og alþjóðleg
ráðstefna um Snorra Sturluson og
rætur norrænna bókmennta, sem
verður haldin í Búlgaríu dagana
14.–16. október, beri vott um aukin
samskipti milli landanna. Og þeim
beri að fagna.
Fram kom í máli forseta Íslands
á blaðamannafundinum að nýja
verksmiðjan í Dupnitza væri ekki
einungs til vitnis um miklar fjár-
festingar Íslendinga erlendis, held-
ur sýndi hún einnig hverju þjóð-
irnar tvær, Ísland og Búlgaría,
gætu áorkað saman.
Ný lyfjaverksmiðja Balkanpharma formlega opnuð í borginni Dupniza í Búlgaríu
Allar áætl-
anir stóðust
Forsetar Íslands og Búlgaríu opna lyfjaverksmiðju Balkanpharma, dótturfyrirtækis Pharmaco, í Búlgaríu.
Dupnitza, Búlgaríu. Morgunblaðið.
TVÆR greiningar á Kaupþingi voru
gefnar út í vikunni og er í báðum til-
vikum mælt með sölu á hlutabréfum
í félaginu. Samkvæmt verðmati
greiningardeildar Búnaðarbankans
ætti gengi Kaupþings að vera 12,1
en útreikningar Greiningar Íslands-
banka gefa gengið 11,0. Lokagengi
Kaupþings í gær var 12,6.
Í verðmati sínu gerir Búnaðar-
bankinn 14% raunávöxtunarkröfu til
eigin fjár Kaupþings og Íslands-
banki gerir 17% nafnávöxtunar-
kröfu. Hærri ávöxtunarkrafa felur í
sér lægra verðmat bréfanna og í
báðum tilvikum er um að ræða
hærri ávöxtunarkröfu en til við-
skiptabankanna þriggja, Búnaðar-
banka, Íslandsbanka og Lands-
banka. Það er meðal annars rökstutt
með því að sveiflur í afkomu fjár-
festingarbanka séu meiri en í af-
komu viðskiptabanka.
Í greiningu Íslandsbanka kemur
fram að kostir Kaupþings felist í
metnaðarfullum stjórnendum, mikl-
um seljanleika hlutabréfanna,
sterkri stöðu á íslenskum verðbréfa-
markaði, góðri arðsemi í gegnum
tíðina og tækifæri á Norðurlöndum
taki verðbréfamarkaðir við sér.
Gallarnir séu hins vegar að Kaup-
þing sé án lánshæfismats, stór hluti
efnahags sé fjármagnaður til
skamms tíma, markaðsáhætta sé
mikil, norrænir verðbréfamarkaðir
séu í sárum og að upplýsingagjöf sé
ábótavant.
Í greiningu Búnaðarbanka er góð
markaðssetning og heilsteypt
ímyndarvinna, víðfeðmt útibúanet
og vöruþróun talin til styrkleika
Kaupþings. Veikleikar eru taldir
vera litlir vaxtarmöguleikar innan-
lands, að bankinn hafi ekki við-
skiptabankarekstur sem jafni sveifl-
ur í rekstri og að tekjustoðir séu
fáar, en þeim fari fjölgandi.
Mælt með sölu á
Kaupþingsbréfum