Morgunblaðið - 12.10.2002, Qupperneq 26
ERLENT
26 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FLEST bendir til, að Dora Bako-
yannis verði fyrsta konan til að
verða kjörin borgarstjóri í Aþenu,
en kosið verður til sveitarstjórna
í Grikklandi á sunnudag. Eitt af
helstu stefnumálum hennar er að
endurnýja og endurlífga þessa
elstu höfuðborg í Evrópu en hún
er nú að búa sig undir að halda
Ólympíuleikana árið 2004.
„Ég geri mér fulla grein fyrir
því, að þetta verður erfitt verk,“
sagði Bakoyannis í viðtali við
fréttamann AFP og nefndi þá
meðal annars mikla mengun, gíf-
urlegt umferðaröngþveiti og kæf-
andi skrifræði. Hún er samt stað-
ráðin í að gera Aþenu að betri
borg og endurheimta stöðu henn-
ar sem vinsælasta ferðamanna-
staðar í heimi.
Bakoyannis, sem vantar tvö ár í
fimmtugt, er dóttir Constantine
Mitsotakis fyrrverandi forsætis-
ráðherra og leiðtoga helsta
stjórnarandstöðuflokksins, Nýja
lýðræðisflokksins. Var hún fyrst
kjörin á þing fyrir 13 árum,
skömmu eftir að liðsmenn í
hryðjuverkasamtökunum 17. nóv-
ember myrtu fyrri mann hennar,
þingmanninn Pavlos Bakoyannis.
Bakoyannis hefur forystu í öll-
um skoðanakönnunum en helsti
keppinautur hennar er Kristos
Papoutsis, frambjóðandi Pasoks
eða gríska sósíalistaflokksins.
Vinsældir Bakoyannis eru raunar
ekki nýjar af nálinni. Í þingkosn-
ingunum 2000 var hún kjörin með
fleiri atkvæðum en nokkur annar
frambjóðandi.
Tekist á við Papandreou
Bakoyannis segist ætla að ein-
beita sér að málefnum Aþenu
næstu fjögur árin en útilokar
ekki, að þá verði hún tilbúin til
að takast á við George Pap-
andreou utanríkisráðherra og son
fyrrverandi forsætisráðherra
sósíalista. Hann og Mitsotakis,
faðir Bakoyannis, voru helstu
keppinautarnir í grískum stjórn-
málum í hálfa öld.
Bakoyannkis, sem kallar sig
gjarna „endurfæddan Evrópu-
mann“, á sér mjög alþjóðlegan
bakgrunn. Fjölskylda hennar flýði
land þegar gríski herinn hrifsaði
til sín völdin 1967 og hún bjó
lengi í Frakklandi og Þýskalandi.
Talar hún ensku, frönsku og
þýsku reiprennandi og af vest-
rænum leiðtogum lítur hún einna
mest upp til Jose Maria Aznars,
forsætisráðherra Spánar. Bako-
yannis giftist kaupsýslumanninum
Isidor Kouvelos 1998 en á dóttur
og son frá fyrra hjónabandi.
„Endurreisn“
borgarinnar
helsta stefnumálið
Líkur eru á að kona verði kjörin
borgarstjóri í Aþenu í fyrsta sinn
Aþenu. AFP.
AP
Íbúar Aþenu ganga hjá kosningaauglýsingaspjaldi með mynd af fram-
bjóðandanum Doru Bakoyannis. Kosningarnar fara fram á sunnudag.
HÆTTUNNI af Kúbudeilunni lauk
í raun ekki með samningum Banda-
ríkjamanna og Sovétmanna, heldur
óttaðist Níkíta Krústsjev, þáverandi
leiðtogi Sovétríkjanna, að „hinn óút-
reiknanlegi Castro“ myndi ögra
Bandaríkjunum upp á eigin spýtur
og jafnvel koma af stað styrjöld.
Kemur þetta fram í skjölum, sem
rússnesk stjórnvöld hafa birt, en
þau og margvísleg gögn frá yfirvöld-
um á Kúbu og í Bandaríkjunum
verða rædd á ráðstefnu, sem hófst í
gær í Havana á Kúbu í tilefni af því,
að 40 ár eru liðin frá því heimurinn
stóð á barmi kjarnorkustyrjaldar.
Sitja hana margir þeirra, sem þá
voru í aðalhlutverkunum, meðal
annars Fidel Castro, forseti Kúbu,
og Robert McNamara, varnarmála-
ráðherra í stjórn Johns F. Kenn-
edys.
Ráðstefnan stendur í þrjá daga en
auk þeirra Castros og McNamara
munu taka þátt í henni þeir Arthur
Schlesinger, sérstakur ráðgjafi
Kennedys, Richard Goodwin og Ted
Sorenson, sem önnuðust ræðuskrif
fyrir Kennedy á þessum tíma, og
Dino Brugioni, sérfræðingur hjá
CIA, bandarísku leyniþjónustunni,
en hann varð fyrstur til að greina
njósnamyndirnar og átta sig á því,
sem um var að vera á Kúbu. Þá má
einnig nefna Jose Ramon Fern-
andez, núverandi varaforseta Kúbu,
en hann skipulagði ráðstefnuna og
var foringi í Kúbuher þegar deilan
stóð sem hæst.
162 kjarnaoddar
Kúbudeilan hófst um miðja októ-
ber 1962 þegar Kennedy og stjórn
hans komust að því, að Sovétmenn
voru að koma þar fyrir kjarnorku-
flugskeytum, sem unnt var að skjóta
allt að 2.400 km en minnsta fjarlægð
milli Bandaríkjanna og Kúbu er að-
eins 145 km. McNamara upplýsir
nú, að um hafi verið að ræða 162
kjarnaodda, sem hefðu getað tor-
tímt 90 milljónum Bandaríkja-
manna. Deilunni lauk síðan tveimur
vikum síðar þegar Krústsjev féllst á
að flytja eldflaugarnar frá Kúbu.
Varpaði þá allur heimurinn öndinni
léttara.
Í skjölum, sem Rússar hafa birt í
tilefni af ráðstefnunni, kemur fram,
að nokkrum vikum eftir að deilunni
lauk formlega hafi Krústsjev haft
áhyggjur af því, að „hinn óútreikn-
anlegi Castro“ myndi auka á
spennuna á ný og koma jafnvel af
stað styrjöld.
Lýsti ábyrgðinni
á hendur Castro
„Kúbverjar vilja hafa okkur eins
og hund í bandi og draga okkur inn í
styrjöld við Bandaríkin“ segir í
bréfi, sem Krústsjev sendi sovéska
sendiráðinu í Havana 16. nóvember
1962. Tilefnið var njósnaflug Banda-
ríkjamanna til að fylgjast með því,
að Sovétmenn stæðu við samninga
um brottflutning eldflauganna.
Krústsjev hafði hins vegar áhyggjur
af því, að Castro skipaði hernum að
skjóta þær niður. Kemur það líka
fram í kúbversku leyniskjali, að her-
inn hafi verið búinn að fá fyrirskipun
um að skjóta á bandarísku eftirlits-
flugvélarnar frá og með 18. nóvem-
ber. Castro segir hins vegar í einu
leyniskjalanna, að skipunin hafi ver-
ið afturkölluð, kúbversku hermönn-
unum til sárrar gremju.
Krústsjev fannst sem Castro
hefði svikið sig með því að meta ekki
að verðleikum samninginn við
Bandaríkin en eitt aðalatriðið í hon-
um var, að Bandaríkin lofuðu að ráð-
ast ekki á Kúbu. Kvað hann það
hörmulegt ef Kúbustjórn gerði ekki
allt til að forðast stríð.
„Ef félagar okkar á Kúbu vilja
gæta hagsmuna sinna, þá hafa þeir
rétt til þess,“ sagði Krústsjev. „Þá
verður þó að benda þeim á, að við
munum ekki bera neina ábyrgð á af-
leiðingunum.“
Mistök Krústsjevs
Kúbustjórn hafði líka á sínum
tíma sitthvað að athuga við aðferðir
Sovétstjórnarinnar og Krústsjevs.
Kemur það meðal annars fram í við-
tali, sem bandaríska sjónvarpsstöð-
in ABC átti við Castro fyrir nokkr-
um dögum og átti að birta í gær. Þar
segir hann, að Krústsjev hafi gert
illt verra með því að reyna að
blekkja Kennedy og halda því fram,
að viðbúnaðurinn á Kúbu væri að-
eins til varnar, að þar væru engin
kjarnorkuvopn.
„Kennedy trúði Krústsjev í
fyrstu,“ segir Castro. „Þetta voru
mikil mistök og við vorum algerlega
andvígir þessu.“
Fram kemur í skjölum frá þessum
tíma, að Krústsjev reyndi að halda
þessu fram jafnvel eftir að ljóst var,
að Sovétmenn voru að koma upp
langdrægum eldflaugum á Kúbu.
Fernandez, varaforseti Kúbu,
segist hafa gert sér grein fyrir því,
að Bandaríkjamönnum var full al-
vara þegar hann las yfirlýsingu
Kennedys til Bandaríkjamanna í að-
alstöðvum kúbverska hersins 22.
október 1962.
„Mér skildist þá, að stríð gat verið
yfirvofandi,“ segir hann. „Ég bjóst
við dauða mínum en vonaði, að allt
færi vel.“
Yfirlýsing Kennedys var svo-
hljóðandi: „Síðustu vikuna hafa
komið fram óhrekjanlegar sannanir
fyrir því, að verið er að koma upp
árásareldflaugum í þessu undirok-
aða landi. Tilgangur þeirra getur
ekki verið neinn annar en sá að gera
kjarnorkuárás á Bandaríkin mögu-
lega.“
Fernandez segir, að sér hafi verið
skipað að eyða margvíslegum skjöl-
um og finna yfirstjórn hersins hæli
annars staðar en í varnarmálaráðu-
neytinu enda hefði mátt búast við
árás á það.
Viðræður en ekki vopn
Fernandez segir, að vonandi hafi
stjórnmálamenn og herforingjar
lært sína lexíu af Kúbudeilunni og
láti það aldrei henda aftur að ýta
heiminum fram á brún kjarnorku-
stríðs.
Undir það taka Bandaríkjamenn-
irnir, til dæmis McNamara, og
Thomas Blanton, yfirmaður ríkis-
leyndarskjalasafnsins í Washington,
segir, að ráðstefnan sé stórmerkur
viðburður og til marks um þann
skilning, að leysa skuli málin með
viðræðum en ekki vopnum.
Krústsjev óttaðist að Castro
kæmi af stað styrjöld
Bandarísk, kúbversk og sovésk
leyniskjöl birt í fyrsta sinn
AP
Thomas Blanton, yfirmaður ríkisleyndarskjalasafnsins í Washington,
faðmar að sér Jose Ramon Fernandez, varaforseta Kúbu, við komuna
til Havana. Með þeim er Robert McNamara, sem var varnarmálaráð-
herra í stjórn John F. Kennedys.
Havana. AP.
’ Kúbverjar viljahafa okkur eins og
hund í bandi. ‘
Alþjóðleg ráðstefna á Kúbu í tilefni af fjörutíu ára afmæli Kúbudeilunnar
Þingmenn
gera hróp að
Berlusconi
Rómarborg. AFP.
NEÐRI deild ítalska þingsins sam-
þykkti á fimmtudag umdeilda löggjöf
sem mun gera sakborningum í dóms-
málum kleift að fá réttarhöld sín færð
og þannig komast hjá því að mæta til-
teknum dómurum. Eru margir þeirr-
ar skoðunar að löggjöfin sé sniðin að
þörfum Silvios Berlusconis forsætis-
ráðherra, sem og ýmissa banda-
manna hans.
Löggjöfin hefur vakið sterk við-
brögð á Ítalíu og umræða á þingi í
fyrradag var afar hörð. Hélt stjórn-
arandstaðan á lofti ítalska fánanum,
söng and-fasíska söngva og gerði
hróp að ríkisstjórninni. „Hneisa,
hneisa,“ hrópuðu þingmenn stjórnar-
andstöðunnar og þurfti þingforseti
oft að grípa inn í til að þingfundur
gæti haldið áfram.
Löggjöfin var þó samþykkt með
307 atkvæðum gegn 253 en einn sat
hjá. Nú fara lögin fyrir efri deild
þingsins en þar hefur hægristjórn
Berlusconis öruggan meirihluta.
Löggjöfin kveður á um að sakborn-
ingar geti, ef „málefnalegar forsend-
ur“ eru fyrir hendi, dregið óhlut-
drægni dómara í efa og þannig fengið
réttarhöldin flutt í annað umdæmi.
Andstæðingar laganna segja
markmið þeirra að bjarga Cesare
Previti, nánum bandamanni Berlusc-
onis, en Previti hefur verið ákærður
fyrir spillingu í Mílanó. Hafa lög-
menn Previtis gert kröfu um að rétt-
arhöldin verði flutt þar sem dómarar
í Mílanó kunni að vera hlutdrægir.