Morgunblaðið - 12.10.2002, Qupperneq 29
HEILSA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 29
15. október nk. fer af stað bólusetningarátak gegn
meningókokkum C hér á landi. Börn og unglingar á
aldrinum 6 mánaða til og með 18 ára verða bólusett
gegn þessari skæðu bakteríu, en sá hópur telur um
80 þúsund einstaklinga. Búast má við að það taki
nokkra mánuði að bólusetja allan þennan hóp og er
áætlað að átakinu ljúki innan eins árs.
Börn á aldrinum 6 mánaða til og með 11 mánaða
munu fá tvær sprautur með 1–2 mán. millibili en
eldri börn og unglingar fá eina sprautu. Fram-
kvæmd átaksins er í höndum heilsugæslunnar í
landinu. Ungbarnabólusetning gegn meningókokk-
um C hefst einnig 15. október og verður framvegis
við 6 og 8 mánaða aldur (tvær sprautur).
Af hverju er verið að bólusetja gegn meningókokkum C?
Meningókokkar eru flokkur baktería sem getur valdið skæðum sjúk-
dómi, aðallega hjá börnum og unglingum. Tvær undirtegundir men-
ingókokka hafa valdið sjúkdómi hér á landi á undanförnum árum. Þær eru
tegund C, sem bólusetja á gegn, og tegund B, en ekkert bóluefni er til
gegn þeirri tegund.
Undanfarin ár hafa greinst hér á landi um 20 tilfelli á hverju ári með al-
varlega sýkingu af völdum meningókokka, aðallega B og C. Á árinu 2001
greindust alls 19 tilfelli og þar af voru 15 með tegund C. Meningókokka-
sýkingar geta verið mjög alvarlegar þar sem bakterían fer oftast í blóðið
og getur valdið alvarlegri heilahimnubólgu. Um 10% þeirra sem fá slíka
sýkingu deyja og annar eins hópur fær alvarleg örkuml, einkum truflun á
heilastarfsemi, og getur misst útlim. Undanfarin ár hafa um 1–2 ein-
staklingar látist árlega af völdum meningókokka C, aðallega börn og ung-
lingar.
Þrátt fyrir miklar framfarir í læknisfræði á undanförnum árum hefur
ekki tekist að lækka dánartíðni sýkingarinnar eða koma í veg fyrir alvar-
legar afleiðingar hennar. Því er afar mikilvægt að koma í veg fyrir hana
með bólusetningu. Á markað eru nú komin mjög virk og örugg bóluefni
gegn meningókokkum C. Bretar hófu bólusetningu gegn meningókokkum
C í nóvember 1999. Sú bólusetning hefur fækkað meningókokka C-
sýkingum um 90% þar í landi.
Með ofangreindu bólusetningarátaki á Íslandi má búast við að koma
megi í veg fyrir um 100–150 tilfelli sýkinga af völdum meningókokka C á
næstu 10 árum og um 10–15 dauðsföll. Áframhaldandi ungbarnabólusetn-
ing mun væntanlega útrýma öllum meningókokka C-sýkingum hér á landi.
Á næstu árum kemur vonandi einnig á markað virkt og öruggt bóluefni
gegn meningókokkum B þannig að hægt verði að útrýma öllum men-
ingókkasjúkdómum hér á landi.
Þórólfur Guðnason
Yfirlæknir bólusetningaverkefnis og yfirlæknir
á sóttvarnasviði Landlæknisembættisins
Frá Landlæknisembættinu
Heilsan í brennidepli
Bólusetning
gegn meningó-
kokkum C
Átakið er í
höndum heilsu-
gæslunnar
Alltaf á þriðjudögum
Fyrir litla krílið
Kuldakrem fyrir litlar kinnar frá
WELEDA. Engin aukaefni.
Þumalína, Skólavörðustíg 41
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
Toppárangur
með
þakrennukerfi
þakrennukerfi
Fagm
enns
ka
í
fyrir
rúmi
BLIKKÁS EHF.
SKEMMUVEGUR 36
200 KÓPAVOGUR
SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111
Söluaðilar um land allt
Sérhanna›ir fyrir
íslenskar
a›stæ›ur
Opnunartímar í Glæsibæ: mán. - föst. kl. 10-18 • lau. kl. 10-16
Ertu klár
í rjúpuna?
Tilbo› á byssum,
skotfærum og ö›rum útbúna›i
í Glæsibæ til 20. október.
Gott úrval
af GPS
sta›setningartækjum
frá Garmin
og Magellan.
Gazella auto
haglabyssa
Ver›: 59.900 kr.
TILBO‹: 44.900
Express
rjúpnaskot, 42g, 25 stk.
Ver›: 1.100 kr.
TILBO‹: 935
Winchester
rjúpnaskot, 40 g, 10 stk.
Ver›: 590 kr.
TILBO‹: 440
Rjúpnavesti Ver› frá: 7.900 kr.
Nota›ar tvíhleypur Ver› frá 19.900 kr.
Legghlífar: Ver› frá 2.290 kr.
Ver›: 5.990 kr.
TILBO‹: 4.990
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
1
90
17
10
/2
00
2
High Peak
Yellow Stone, 35 l.
Meindl gönguskór
Island Pro
GPS eTrex Ver›: 22.990 kr.
GPS eTrex Venture Ver›: 27.990 kr.
GPS eTrex Legend Ver›: 54.990 kr. Fr
á
Ga
rm
in
Ver›: 24.990 kr.
TILBO‹: 19.990
Meindl gönguskór
Island Pro Lady
Ver›: 24.990 kr.
TILBO‹: 19.990
TILBO‹: 19.000
TILBO‹: 25.000
TILBO‹: 44.000
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1550 og 545 1500
Glæsilegur 73,9 fm sumarbústaður
staðsettur í mjög fögru og kjarrivöxnu
umhverfi. 3 góð svefnherb., stór stofa,
eldhús og baðherb. Rafmagn og hita-
veita. Stór verönd og heitur pottur.
Sérsmíðað útigrill. 1 ha afgirt lóð með
stórri flöt með leiktækjum. Allt innbú
fylgir með. Frábært tækifæri fyrir vand-
láta. Verð 12,5 m. Upplýs. hjá Agnari í
síma 820 8657.
Sumarhús í Vaðnesi - Grímsnesi
OPIÐ HÚS LAU. OG SUN. FRÁ KL. 13-16
533 4300 564 6655