Morgunblaðið - 12.10.2002, Page 33

Morgunblaðið - 12.10.2002, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 33 Í FRUMVARPI til fjár- laga er framlag til lög- reglunnar í Reykjavík lækkað. Upphæðin er ekki há, niðurskurður um 5,6 milljónir. Í huga fjölda Reykvíkinga hlýtur þessi tillaga hins vegar að endurspegla ótrú- legt skilningsleysi, ef ekki metn- aðarleysi, dómsmálaráðherra í löggæslumálum höfuðborg- arinnar. Ef gerð er einföld grein- ing á þróun löggæslumála í Reykjavík undanfarin ár er erfitt að verjast þeirri hugsun að dómsmálayfirvöld hafi meiri áhuga á að þyngja refsingar og verja fjármunum til fangelsa en aðgerðum til að fækka afbrotum og koma í veg fyrir glæpi. Það er vert að staldra við þetta atriði. Í besta falli er umdeilanlegt hvort þyngri refsingar og aukinn fjöldi fanga leiði til öruggara sam- félags. Til að fækka afbrotum og koma í veg fyrir glæpi er miklu nær að leggja áherslu á sýnilega lögreglu og grenndarlöggæslu. Lögreglan getur leikið lyk- ilhlutverk í markvissum for- vörnum sem hljóta að beinast að ungu fólki. Mörg athyglisverð dæmi eru um þetta í Reykjavík þar sem hverfalögregla hefur unnið í náinni samvinnu við for- eldra, skóla, heilbrigðisstarfsfólk og félagsmálayfirvöld. Þess vegna er það þyngra en tárum taki að kostað hafi harmkvæli að ná fjölda hverfalöggæslumanna og forvarnarfulltrúa til samræm- is við það sem hann var fyrir rúmum tíu árum. Að það hafi tekist nú í haust er hins vegar ánægjulegt. Annað gott dæmi um gjöfult samstarf frá umliðnum árum er úr miðborginni. Þar hafa for- eldrar, kirkjan og Íþrótta- og tómstundaráð tekið höndum saman við lögregluna og fleiri með þeim árangri að unglingar undir lögaldri sjást varla eftir að skyggja tekur. Hættuástandið sem skapaðist um hverja helgi hefur þokast til betri vegar með rýmri reglum um opnunartíma veitingahúsa. Skemmtanaglaðir Reykvíkingar og gestir þeirra flykkjast nú ekki allir út úr öld- urhúsum á sama augnabliki. Þetta eru dæmi um það að sýni- leg lögregla, samstarf og mark- vissar aðgerðir geta skilað árangri. Til mikils er að vinna. Niðurskurður í almennri lög- gæslu ógnar þeim árangri sem náðst hefur á undanförnum ár- um og getur komið í veg fyrir að haldið verði áfram á sömu braut. Fyrir árið 2001 taldi lögreglan í Reykjavík að fjölga þyrfti lög- reglumönnum úr 290 í 303. Markmiðið var að auka götueft- irlit með fíkniefnasölum og efla hverfalöggæslu. Í stað þessarar aukningar var lögreglunni gert að fækka lögreglumönnum um 20. Í skýrslu dómsmálaráðherra til Alþingis síðastliðinn vetur kom fram að lögreglumenn í Reykjavík væru 267 í heild en hefðu verið 242 fyrir tíu árum. Þetta segir þó ekki alla söguna. Ef skyggnst er á bak við töl- urnar kemur í ljós að almennir lögreglumenn á götum Reykja- víkur eru ekki aðeins færri en þeir voru fyrir 10 árum. Þeir eru færri en fyrir 25 árum. Bregðum okkur 10 ár aftur í tímann. Í fjárlagatillögum ársins 1992 kom fram að fjöldi lögreglu- manna við almenna löggæslu í Reykjavík árið 1991 var nánast sá sami og 15 árum áður. Hvað hefur gerst síðan? Þótt heild- arfjöldi lögreglumanna í Reykja- vík sé ögn hærri en hann var fyr- ir áratug er hlutfall almennra lögreglumanna mun lægra. Með gildistöku nýrra lögreglulaga ár- ið 1997 var rannsóknarlögregla ríkisins lögð niður. Verulegur hluti verkefna hennar færðist til embættis lögreglunnar í Reykja- vík. Þetta er ein meginskýring þess að rannsóknarlög- reglumönnum við lögregluna í Reykjavík hefur fjölgað um tæp- lega 50 milli áranna 1990 og 2001. Augljóst er að fjárveitingar hafa ekki fylgt þessum auknu verkefnum. Fjölgun rannsókn- arlögreglumanna hefur leitt til þess að almennum lög- reglumönnum hefur fækkað að sama skapi, úr 146 árið 1990 í 101 árið 2001. Með öðrum orðum má ætla að allt að þriðjungi færri lögreglumenn séu á götum Reykjavíkur nú en árið 1976. Almennir lögreglumenn eru þeir sem starfa í framlínunni. Þeir eru hinn sýnilegi hluti lög- reglunnar. Stöðum þeirra hefur ekki aðeins fækkað á und- anförnum árum. Fjöldi á hverri vakt hefur einnig dregist saman. Skoðum tölur um næturvaktir um helgar. Eftir skammvinna fjölgun fyrir alþingiskosning- arnar 1999 tók nið- urskurður við. Á síðustu þremur árum hefur lög- reglumönnum á þessum vöktum fækkað um 15%. Í miðborginni eru nú 9 lög- reglumenn í stað 13 þegar mest var. Á virkum dögum er fækkunin hlutfallslega meiri eða 22%. Þessi fækk- un sýnilegra lögreglumanna helst í hendur við yfirvinnubann og lokun flestra hverfastöðva lögreglu eftir að dagvinnu lýkur. Aðeins Breiðholtsstöðin er opin til kl. 23. Síðasta aldarfjórðung má segja að Reykjavík hafi verið að þróast hröðum skrefum úr bæ í borg með kostum þess og göll- um. Reykjavík státar af öflugu skemmtana- og menningarlífi, fjölda veitingastaða og blómlegu kvöld- og næturlífi. Því fór fjarri fyrir 25 árum og hefði jafnvel verið hæpið að fullyrða fyrir ára- tug. Þessar breytingar eru að langstærstum hluta af hinu góða. Rétt eins og fjölgun íbúa, marg- földun í bílaeign að ógleymdum stórauknum fjölda ferðamanna kallar breyttur borgarbragur í Reykjavík á aukna þjónustu á fjölmörgum sviðum. Þar hefur löggæslan setið eftir. Ef litið er til nágrannaland- anna tekur skipulag löggæslu- mála alls staðar mið af því að lög- reglu er frekast þörf í borgum. Þessu er öfugt farið á Íslandi. Samanburður á höfuðborgum þar sem reiknaður er fjöldi íbúa á hvern lögreglumann staðfestir enn frekar að ekki er nema von að lögreglan í Reykjavík hafi í nógu að snúast. Íbúar á lögreglu- mann eru 456 í Reykjavík sam- anborið við 380 í Helsinki, 328 í Kaupmannahöfn, 303 í Osló, 199 í Berlín, 167 í Stokkhólmi og 113 í París. Í skýrslu dómsmálaráð- herra er þó það sem upp úr stendur að viðurkennt er að ekk- ert mat hefur farið fram á lög- gæsluþörf í Reykjavík. Í tilefni af þeim tíðindum er fyllsta ástæða fyrir borgaryfirvöld að ítreka kröfur sínar þar um. Það þarfn- ast sérstakra skýringa að lög- reglan eigi að komast af með þriðjungi færri almenna lög- reglumenn árið 2002 en lög- reglustjóri hafði á að skipa 1976. Löggæsla í kreppu Eftir Dag B. Eggertsson ’ Almennir lögreglu-menn á götum Reykja- víkur eru ekki aðeins færri en þeir voru fyrir 10 árum. Þeir eru færri en fyrir 25 árum. ‘ Höfundur er læknir og borgarfulltrúi. nu forset- hyggju og . Forsetinn bróður m. Þá sagði né þjóða- ða hótanir máu. Við otárás á til að skapa ið úti eft- ein eignist ðingarvopn ensku. Eft- ngariðju nanna. raðar til að forseta- nnvirkjum dlitlar lljarða n. Tak- urs til að t var al- að hindra ands. Á nnum á að fram- að hafa þving- er nið- opn og líf- nast meira a framleitt Með þessum rökum og vísan til stuðnings Saddams við hryðjuverkamenn vilja ríkisstjórn og þing Banda- ríkjanna, að öryggisráð SÞ samþykki nýtt og strangara umboð fyrir eftirlitsmenn sína og einnig heimild til að beita hervaldi gegn Saddan Hussein, til að fylgja ákvörðunum SÞ eftir. „Bandaríkin vilja, að Sameinuðu þjóðirnar séu virk stofnun, sem stuðli að friði,“ sagði Bush á mánudagskvöld, þess vegna þyrfti að skerpa umboð eftirlitsmanna þeirra. Írakar ættu að segja frá öllum gjöreyðingarvopnum sínum og eyðileggja þau undir stjórn SÞ. Í því skyni að tryggja sannsögli ætti Íraksstjórn að leyfa vitnum að ólögmætum aðgerðum hennar að svara spurningum ut- an Íraks. Vitnin ættu að hafa heimild til að taka fjöl- skyldur sínar með sér úr landi, svo að þær væru lausar undan grimmd og drápshug Saddams. Eftirlitsmenn ættu að fá aðgang að öllum stöðum, alltaf, fyr- irvaralaust, tafarlaust og undantekningarlaust. „Tími höfnunar, blekkinga og tafa er liðinn. Saddam Hussein verður að afvopnast, geri hann það ekki sjálf- viljugur munum við verða í forystu fyrir þeim, sem sam- einast um að gera það í þágu friðar,“ sagði Bush. x x x Á vettvangi öryggisráðsins ræðst, hvort Bandaríkin og bandamenn þeirra einir eða þjóðasamfélagið allt beitir Saddam meiri hörku. Samþykkt Bandaríkjaþings þýðir hvorki tafarlausa né óhjákvæmilega beitingu her- valds. Hún er á hinn bóginn þung áskorun á Sameinuðu þjóðirnar. Þar skiptir mestu, að samstaða myndist milli ríkjanna fimm, sem fara með neitunarvald í öryggisráðinu: Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Kína og Rúss- lands. Stjórnir Bandaríkjanna og Bretlands eru einhuga. Rússar eru að færast á þeirra band. Tony Blair, for- sætisráðherra Breta, fór í vikunni til fundar við Vladim- ir Pútín Rússlandsforseta til að reka smiðshöggið. Í ör- yggisráðinu haga Kínverjar gjarnan seglum eftir vindi. Frakkar þola ekki einangun í ráðinu til lengdar og munu leitast við að komast úr henni með breytingum á orða- lagi eða formsatriðum. Þeir vilja, að ályktun örygg- isráðsins verði tvískipt. Fyrst verði umboð eftirlits- mannanna hert með strangari kröfum í garð Íraka. Síðar verði ályktað um eftirfylgni með valdbeitingu, verði Íraksstjórn ekki við kröfunum. Fyrir virðingu SÞ og til aðhalds við Saddam er höf- uðnauðsyn, að ekki verði um undanskotsleiðir fyrir hann að ræða. Tvíþætt ályktun öryggisráðsins, sem veitti honum slíka leið, yrði aldrei samþykkt. x x x Það yrði mikið áfall fyrir Sameinuðu þjóðirnar, ef þær hikuðu nú gagnvart blekkingum og lygum Saddams Husseins. Hann hefur haft samþykktir og kröfur örygg- isráðsins að engu. Öflugasta aðildarríki SÞ vill beita sér í nafni samtakanna til að knýja einræðisherrann til hlýðni við ákvarðanir alþjóðasamfélagsins. Ef ekki skapast forsendur til þess, mun mörgum enn þykja, að fordómar þeirra í garð SÞ hafi ræst – þar berji menn sér á brjóst en hopi, þegar á hólminn er komið. Saddam Hussein er best lýst sem sönnum lærisveini Stalíns. Hann beitir ógnarvaldi sínu jafnt innan landa- mæra Íraks sem utan. Hann hikar ekki við að drepa nána samstarfsmenn eða fólk úr eigin fjölskyldu til að þjóna valdafíkn sinni. Engri þjóð er brýnna að losna við einræðisherrann en Írökum sjálfum. Þegar sagt er, að áhugi og áhyggjur Bandaríkjamanna byggist á þörf fyr- ir lægra olíuverð, er athygli aðeins beint að einum auka- vinningi við brotthvarf Saddams. Þeir eru margir fleiri fyrir mannkyn allt. Raunar er það prófsteinn á fleiri en Sameinuðu þjóð- irnar, að takist að sameina þjóðir heims til að brjóta Saddam Hussein á bak aftur. Það reynir á trúverð- ugleika allra málsvara mannréttinda og mannúðar, hvort þeir leggi þessum málstað lið. Friðkaup við ein- ræðisherrann skila engu. Að læra ekki af sögunni, getur verið dýrkeypt. þjóðanna í húfi bjorn@centrum.is a andúðar þeirra á Bandaríkjunum. eynir hins vegar að greina sagn- á bak við þessa andúð og telur að gi rekja allt aftur til sjálfstæðisbar- daríkjanna á átjándu öld. Þá hafi stutt Suðurríkin í þrælastríðinu í n að geta splundrað hinu nýja ríki. ga hafi andúðin fest sig í sessi eftir aríkin sigruðu nýlendur Spánar á Filippseyjum í lok nítjándu aldar. elur að þessi andúð hafi gegnt pólitísku og félagslegu hlutverki þetta hafi verið nær eina málið sem gátu sameinast um. Þá hafi hatur Þjóðverjum, eftir þrjár styrjaldir á 1870–1945, verið yfirfært á Banda- n, ekki síst fyrir tilstilli kommún- hafi verið talið mikilvægt að sætt- ið Þjóðverja eftir seinni rjöldina og Bandaríkin tóku því við Þýskalands sem „óvinurinn“. fi m.a. verið hægt þar sem Frakkar rei til Bandaríkjanna á nítjándu öld í sama mæli og t.d. Írar og Þjóðverjar. Því hafi ekki myndast sömu vensl milli þjóð- anna. Nú reynir enn og aftur á samskipti Bandaríkjanna og Frakklands vegna Íraks- málsins. Það er því forvitnilegt að þegar rætt er við franska embættismenn og stjórnmálamenn um þessi mál, leggja þeir sig í líma að taka fram – yfirleitt án þess að þeir séu spurðir að fyrra bragði – að fátt sé mikilvægara en samskipti Frakka og Bandaríkjanna og að alls ekki megi líta svo á að stefna Frakka í Íraksmálinu sé með neinu móti and-amerísk. „Það er afskræming á af- stöðu okkar,“ segir Jean-Francois Cope, að- stoðarráðherra, sem jafnframt er talsmaður frönsku ríkisstjórnarinnar. „Við erum stað- fastir í því að taka á ógnum á borð við Írak,“ segir Cope. Hins vegar segir hann ótækt að eitt ríki taki sér það vald að ákveða hvort fara eigi í stríð eða ekki. Slíkar ákvarðanir verði að taka á vettvangi öryggisráðsins. Pólítískur ráðgjafi í franska utanríkis- ráðuneytinu sagði það vera markmið Frakka að reyna að standa með þeim í bandaríska stjórnkerfinu, sem væru reiðu- búnir að starfa með þeim. „Hagsmunir Bandaríkjanna og okkar fara yfirleitt sam- an. Það er hins vegar erfitt að eiga samstarf þegar sumir virðast líta svo á að við skiptum ekki máli.“ Hann bætti þó við að oft virtist núverandi Bandaríkjastjórn tala eins og hún ætlaði að gera alla hluti sjálf en þegar á reyndi væri hins vegar yfirleitt reynt að finna lausnir í samstarfi við önnur ríki. Frakkar vilja skýra afstöðu sína í Íraks- málinu þannig að þeir séu að flestu leyti sammála Bandaríkjunum varðandi þá ógn er stafi af Saddam Hussein og nauðsyn þess að grípa til aðgerða. Hins vegar sé mat ríkjanna á því hvaða leið eigi að fara til að ná markmiðinu ekki hið sama. Þeir óttast áhrif átaka og telja að hægt sé að knýja Saddam til að láta undan með vopnaeftirliti. Jean- Francois Bureau, talsmaður franska varn- armálaráðuneytisins, orðaði það svo að Frakkar væru í vafa um hversu sterk tengsl væru á milli hernaðaraðgerða og pólitísks árangurs. Í umræðum í franska þinginu um Íraks- málið nú í vikunni var forvitnilegt að fylgjast með þeim blæbrigðamun sem er á stefnu Bandaríkjanna og Frakklands. Að mörgu leyti snýst munurinn um nálgun að vand- anum. Í Bandaríkjunum er hefð fyrir því í opinberri umræðu að reyna að einfalda hlut- ina og draga skýrar línur þótt flóknar rök- ræður liggi að baki niðurstöðunni. Jean- Pierre Raffarin forsætisráðherra lagði hins vegar áherslu á það í þingumræðunum að það mætti ekki setja upp Íraksmálið á þann veg að það snerist um baráttu „góðs og ills“. Meginrök Raffarins – sem tveir fyrrum for- sætisráðherrar, þeir Alain Juppé og Ed- ouard Balladur, tóku undir – voru þau að það ætti ekki að vera fyrsti kosturinn að fara í stríð. Því legði Frakkland áherslu á tvær ályktanir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Þeir útilokuðu ekki hernað gegn Saddam, „allir kostir yrðu að vera á borðinu“, en sögðu að það ætti að vera „lokaúrræði“. Ut- anríkisráðherrann Dominique de Villepin sagði að með því ferli er Frakkar legðu til væri verið að undirbúa jarðveg almennings- álitsins ef hernaður yrði að lokum raunin. Að flestu leyti virðist sem Frakkar hafi haldið mjög vel á spilum sínum í þessu máli. Þeir fylgja stefnu sem er í fullu samræmi við hagsmuni þeirra. Þeir vilja halda málinu í öryggisráðinu, þar sem þeir eiga fastafull- trúa, en hafa jafnframt framfylgt stefnu sem er í miðju evrópskra stjórnmála og reyna þannig að ná málamiðlun milli afstöðu Evr- ópuríkja og Bandaríkjanna. íkin…og Írak Reuters a var vel fagnað er hann heimsótti Frakkland fyrr á árinu. sts@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.