Morgunblaðið - 12.10.2002, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 12.10.2002, Blaðsíða 42
KIRKJUSTARF 42 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ kynslóðabilið brúað og ekki má á milli sjá hver nýtur sín best, leik- skólabarnið, amman eða afinn. Við eigum í kirkjunni góða stund þar sem við gleðjumst saman. Söng- urinn skipar veglegan sess með- gömlum og nýjum sunnudagaskóla- söngvum. Prestar og sunnudagaskólakennarar sjá um fræðslu og leik ásamt brúðunum Sollu og Kallasem aldrei láta sig vanta. Kaffi, djús og kex í safn- aðarheimilinu eftir guðsþjón- ustuna. Við hlökkum til að hitta ykkur á sunnudaginn kl. 11. Prestar og starfsfólk Árbæj- arkirkju. Kvennakirkjan í Háteigskirkju KVENNAKIRKJAN heldur guð- þjónustu í Háteigskirkju sunnudag- inn 13. október kl. 20.30. Yfirskrift messunnar er fagnaðarerindið í túlkun kvennaguðfræðinnar. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar. Kór Kvennakirkjunnar leiðir sönginn við undirleik Að- alheiðar Þorsteinsdóttur. Á eftir verður kaffi í safn- aðarheimilinu. Fimmtudaginn 17. október kl. 17.30 verður síðdegisboð í stofum Kvennakirkjunnar í Þingholts- stræti 17. Þóra Björnsdóttir hjúkr- unarfræðingur talar um hið gull- góða gildi slökunarinnar og kennir konum að slaka á og hvílast. Þóra hefur haft slökunarnámskeið á veg- um Kvennakirkjunnar og einnig hefur slökun verið liður í öðrum námskeiðum þar sem fléttað er saman slökun og bæn. Kvennakirkj- an hefur gefið út spólu þar sem Þóra leiðir slökun við tónlist og séra Auður Eir fer með bænir. Kirkjudagurinn í Óháða söfnuðinum KIRKJUDAGURINN er í Óháða söfnuðinum sunnudaginn 13. októ- ber kl. 14. Þá er fjölskyldumessa og að henni lokinni er kvenfélagið með kaffisölu til styrktar starfinu. Hef- ur kvenfélagið gefið 17 nýja ferm- ingarkyrtla á umliðnum tveimur árum. Eru allir velkomnir til þess að njóta hins góða meðlætis hjá kven- félagskonum og þar sem þetta er fjölskylduguðsþjónusta þá eru börnin sérstaklega velkomin, sem og aðrir að vanda. Kópavogskirkja – þakkargjörð Þakkargjörðarguðsþjónusta verð- ur sunnudag kl. 11. Þetta er í þriðja skipti sem Kópavogskirkja efnir til sérstakrar þakkargjörðarguð- sþjónustu og hefur sú nýbreytni mælst afar vel fyrir. Kór Kópavogs- kirkju syngur og leiðir safn- aðarsöng undir stjórn Julian Hew- lett organista. Í guðsþjónustunni lesa ferming- arbörn ritningarlestra og leiða bænir þar sem lögð er áhersla á að þakka allt það góða og mikilsverða sem guð gefur okkur og við fáum að njóta. Í tilefni þakkargjörð- ardagsins mun Ásdís Lilja Ragn- arsdóttir garðyrkjufræðingur skreyta kirkjuna á viðeigandi hátt. Sóknarnefnd, sóknarprestur. Bandaríkin og Mið-Austurlönd HEIMSBYGGÐIN stendur á önd- inni? Hvað gerist í Mið-Aust- urlöndum á næstunni? Dr. Magnús Þorkell Bernharðs- son lektor mun ræða efnið Banda- ríkin og Mið-Austurlönd, gagn- kvæm viðhorf og misskilningur, á fræðslumorgni í Hallgrímskirkju næsta sunnudag, 13. október, kl. 10. Auk þess að ræða ofangreint efni mun Magnús einnig ræða stöðu kristinnar trúar á þessu menning- arsvæði, þar sem islam hefur yf- irburðastöðu. Dr. Magnús er sérfræðingur í nú- tímasögu Mið-Austurlanda og islam og starfar sem lektor við Hofstra- háskólann í New York. Að fyrirlestrinum loknum gefst færi á fyrirspurnum en síðan hefst guðsþjónusta kl. 11, þar sem ferm- ingarbörn vetrarins verða boðin velkomin, en þau taka jafnframt þátt í undirbúningi messunnar. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Sigurði Pálssyni og séra Jóni Bjarman. Fermingarfræðslu- helgi í Lindakirkju í Kópavogi SUNNUDAGINN 13. október verð- ur fjölskylduguðsþjónusta í Linda- skóla í Kópavogi. Fermingarbörn munu setja svip sinn á guðsþjón- ustuna að þessu sinni, en nú um helgina er haldin fyrsta ferming- arfræðsluhelgin af fimm á vegum safnaðarins. Fermingarfræðslu- helgunum mun að jafnaði ljúka með þátttöku fermingarbarna í guðs- þjónustu viðkomandi sunnudags. Að þessu sinni munu þau annast forsöng ásamt kirkjukórnum og sýna sakamálahelgileikinn; Leynd- ardómurinn um líkama Jesú. Einn- ig munu brúður koma í heimsókn og sitthvað fleira. Reynt er að sníða fjölskylduguðs- þjónustur á vegum Lindakirkju að fólki á öllum aldri en, eins og nafnið gefur til kynna, er fjölskyldan sett í öndvegi. Áhrif atvinnumissis á líðan fólks MIÐVIKUDAGINN 16. október kl. 13.30 verður haldinn fræðslu- og umræðufundur í Hallgrímskirkju um atvinnumissi – áhrif hans á líð- an fólks og hvernig skynsamlegt er að bregðast við. Á undanförnum mánuðum hefur nokkur fjöldi fólks orðið fyrir því að missa atvinnuna. Dæmi eru um að fyrirtæki hafa sagt upp fólki hópum saman. Slíkar uppsagnir raska högum fólks á margan hátt, bæði fjárhagslega, félagslega og tilfinningalega. Þegar þannig stendur á eiga sem betur fer flestir vísan stuðning frá fjölskyldu, vin- um, kirkjunni og félagasamtökum. Engu að síður getur verið gagnlegt að koma saman og leiða hugann að því hvaða áhrif mótlæti sem þetta hefur á hugarástand og líðan fólks, hvernig hægt er að glíma við erf- iðleikana og forðast lífskreppu. Þess vegna stendur kærleiksþjón- ustusvið Biskupsstofu fyrir fræðslu- og umræðufundi. Á fundinum mun Pétur Tyrfings- son sálfræðingur halda fyrirlestur með yfirskriftinni Ég þoli, ég get, ég skal … Í erindinu mun hann ræða líðan fólks þegar það verður fyrir mótlæti eins og atvinnumissi og hvernig hægt er að bregðast skynsamlega við. Í framhaldi af fyr- irlestrinum verður þátttakendum gefinn kostur á umræðum sem skipulagðar verða í samræmi við fjölda fundargesta. Fundarstjóri er Bryndís Val- bjarnardóttir guðfræðingur. Allir velkomnir. Boðið verður upp á kaffi og kleinur. Morgunblaðið/Ómar HINN þrautreyndi skákþjálfari Zigurds Lanka heimsótti Ísland í haust og hélt uppi stífri þjálfum fyrir íslenska skákmenn. Það hefur lengi verið rætt um það að slík þjálfun væri nauðsynlegur þáttur í því að efla skáklífið hér á landi. Hins vegar hafa fáir íslenskir skákmenn reynslu af slíkri þjálfun auk þess sem Zig- urds Lanka var þeim lítt kunnur áð- ur en hann kom til landsins. Hins vegar var stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson sannfærður um ágæti hans og lagði mikla áherslu á að fá hann hingað til lands. Það kom í ljós að Helgi hafði rétt fyrir sér. Lanka er þrautreyndur þjálfari, sem hefur þjálfað Shirov, Bologan, Nönu Jos- ielani, svo og pólsku og lettnesku landsliðin. Shirov hittir hann enn til að njóta þjálfunar hans. Þjálfunin hér á landi stóð átta tíma á dag þannig að það var full vinna að fylgjast með öllu sem fram fór. Það er mikil upplifun að hlusta á fyrirlestra hans um skákbyrjanir, þar sem hann sýnir nemendum hin ýmsu afbrigði, helstu hugmyndirnar í stöðunni og vitnar í margar grundvallarskákir í viðkomandi afbrigði. Þeir skák- menn, sem gátu notfært sér þetta tækifæri, eru mun fróðari og örugg- ari í byrjunum á eftir og hafa mikið efni til að vinna úr. Það ber vott um hversu markviss þjálfun Lanka var að strax á meðan hann dvaldist hér voru skákmenn- irnir farnir að notfæra sér þjálf- unina. Þannig nýtti Stefán Krist- jánsson sér nýfengna þekkingu til að ná fyrsta jafnteflinu í einvíginu gegn Oral og á Íslandsmóti skákfélaga sást Jón Viktor Gunnarsson beita einu byrjunarafbrigðinu sem Lanka fór í. Lanka er sjálfur liðtækur skák- maður og hér kemur stutt og snörp sóknarskák með honum. Hvítt: Zigurds Lanka Svart: Marek Vokac Prag 2001 Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Db6 5. Rb3 Rf6 6. Rc3 e6 7. Bd3 Be7 8. De2 d6 9. Be3 Dc7 10. f4 0–0 11. g4!? Rd7 12. g5 He8 13. 0– 0–0 – Þessi hefðbundni leikur hefur ekki sést áður í þessari stöðu. Þekkt er 13. h4 Rc5 14. Rxc5 dxc5 15. e5 Rb4 16. Be4 Bd7 17. a3 Ra6 18. Dh5 g6 19. Df3 Hab8 20. h5 Bf8 21. Dh3 Bg7 22. 0–0–0 b5 23. hxg6 hxg6 24. Hxd7! Dxd7 25. Rd5 exd5 26. Dxd7 dxe4 27. f5 gxf5 28. g6 og svartur gafst upp. (Wohl-Sanz Montarelo, Padron 2002). 13. – a6 14. Hdg1!? b5 Eftir 14. … Rb4 15. h4 (15. Kb1!? Rxd3 16. cxd3, ásamt 17. Hc1) 15. –Rxd3+ 16. Dxd3 Rc5 17. Rxc5 dxc5 18. g6 hxg6 19. h5 gxh5 20. Hxh5, með mun betra tafli fyrir hvít. 15. e5! Bb7 (Sjá stöðumynd 1) Eftir 15. … dxe5 16. Bxh7+ Kf8 (16. … Kxh7 17. Dh5+ Kg8 18. g6) 17. f5 exf5 18. Bxf5 Kg8 (18. … Rc5 19. Dh5) 19. g6 Rf8 20. gxf7+ Kxf7 21. Dh5+ Kg8 22. Hxg7+ og mátar. Önnur leið er 15. … Rf8 16. Re4! dxe5 17. Rf6+ Bxf6 (17. … gxf6 18. gxf6+ Rg6 19. fxe7 exf4 20. h4 fxe3 21. h5 Rcxe7 22. hxg6 Rxg6 23. Dh5) 18. gxf6 Rg6 (18. … g6 19. Dh5-h6- g7+ mát)) 19. h4! exf4 20. h5 og hvít- ur er kominn í sókn, sem svartur getur varla varist til lengdar. 16. Bxh7+! Kf8 Ekki gengur 16. … Kxh7 17. Dh5+ Kg8 18. g6! fxg6 19. Hxg6 Bf8 20. exd6 Dxd6 21. Hhg1 (hótunin 22. Hh6) 21. … Rce5 22. fxe5 Rxe5 23. Hxg7+ Bxg7 24. Hxg7+ Kxg7 25. Bh6+ Kh8 (25. – Kg8 eða 25. – Kf6 26. Dg5+-g7+ mát) 26. Bf8+, ásamt 27. Bxd6 o.s.frv. 17. Be4! dxe5 18. Dh5 Bb4 19. f5! Rd4 20. f6 gxf6 21. gxf6 Rxf6 22. Dh6+ – Hvítur á fallega vinningsleið í stöðunni: 22. Bh6+ Ke7 23. Dxf7+! Kxf7 24. Hg7+ Kd6 (24. – Kf8 25. Hxc7+) 25. Dxf6 Bxc3 26. Hg7 o.s.frv. 22. – Ke7 23. Bxb7 -- Hvítur hefði einnig átt yfirburða- stöðu, eftir 23. Dxf6+! Kxf6 24. Bg5+ Kg7 25. Bd8+ Kf8 26. Bxc7 Re2+ 27. Rxe2 Bxe4 28. Bxe5 o.s.frv. 23. … Bxc3 24. Rxd4 Dxb7 25. Hf1 Rd7 (Sjá stöðumynd 2) 26. Hxf7+! Kd8 Eða 26. … Kxf7 27. Dh7+ Kf6 (27. … Kf8 28. Bh6+ mát) 28. Hf1+ og mátar. 27. Rf3 Bd4 28. Hd1 Kc8 29. Rxd4 exd4 30. Bxd4 Dc6 31. Bf2 Re5 Eftir 31. … Hd8 32. Bh4 Kc7 33. Df4+ Kb7 34. Dd2 Kc7 35. Da5+ Kb7 36. Bxd8 vinnur hvítur auðveld- lega. 32. Hg7 Hf8 33. Bg3 Rf7 Eftir 33. … Rc4 34. Hc7+ Dxc7 35. Dxf8+ verður fátt um varnir hjá svarti. 34. Df4 Db7 35. Db4 og svartur gafst upp, því að hann verður mát, eftir 35. …He8 36. Dc5+ Dc6 37. Dxc6+. Hannes náði jafntefli gegn Tregubov Þriðja umferðin á Mjólkurskák- mótinu reyndist Íslendingunum frekar erfið. Mesta athygli vakti við- ureign Hannesar Hlífars Stefáns- sonar og Tregubov. Það er varla hægt að orða það öðruvísi en að Hannes hafi fengið gjörtapað tafl, en tókst að krækja sér í jafntefli á seigl- unni og með því að halda andstæð- ingnum í tímapressu. Vel af sér vikið hjá Hannesí. Úrslit þriðju umferðar í meistaraflokki: Tregubov – Hannes Hlífar ½–½ Oral – Nikolic ½–½ Bragi Þorfinnss. – Helgi Ólafsson ½–½ Hracek – Sokolov 0–1 Stefán Kristjánss. – McShane 0–1 Helgi er efstur íslensku skák- mannanna, hefur tvo vinninga, Hannes er með 1½ vinning, Stefán Kristjánsson með 1 vinning og Bragi Þorfinnsson hefur fengið ½ vinning. Sokolov leiðir á mótinu með fullt hús. Í áskorendaflokki urðu úrslit þessi: Pedersen – Guðmundur Kjart- anss. 1–0 Jón V. Gunnarss. – Páll Þórarinss. 1–0 Votava – Lenka Ptacnikova 1–0 Þorsteinn Þorsteinss. – Sigurður P. Steindórss. 0–1 Flovin Naes – Ágúst S. Karlss. 1–0 Flóvin Þór Næs leiðir í áskorenda- flokki, einnig með fullu húsi. Teflt er daglega á Hótel Selfossi og hefjast helgarumferðirnar klukk- an 14. Þeir sem vilja fylgjast með spennandi skákum við afar góðar að- stæður ættu að bregða sér á skák- stað til að fylgjast með þessu sterk- asta kappskákmóti undanfarinna ára. Kramnik – Fritz: 3–1 Kramnik er með tveggja vinninga forskot á Deep Fritz þegar einvígi þeirra í Barein er hálfnað. Jafntefli varð í fjórðu skákinni. Kramnik hafði hvítt og stjórnendur Fritz töldu greinilega ekki ástæðu til að endurtaka móttekna drottningar- bragðið sem leiddi til taps í annarri skákinni. Þess í stað ákváðu þeir að láta forritið tefla Tarrasch-vörn. Kramnik fékk heldur betra tafl og vann peð, en í þetta sinn tefld Fritz vel þrátt fyrir drottningaruppskiptin sem hafa reynst Kramnik svo vel fram til þessa. Fimmta skákin verð- ur tefld á sunnudag og stýrir þá Kramnik svörtu mönnunum. Spenn- andi verður að sjá hvernig Chess- base-menn haga byrjunartafl- mennskunni þá. Zigurds Lanka – þjálfari á heimsmælikvarða Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson SKÁK Reykjavík ÞJÁLFUN ÍSLENSKRA SKÁKMANNA September 2002 Félag eldri borgara í Hafnarfirði Eldri borgarar í Hafnarfirði spila brids-tvímenning í Hraunseli, Flata- hrauni 3, tvisvar í viku, á þriðjudög- um og föstudögum. Það vantar fleiri spilara. Mæting kl. 13.30. Spilað var 1. okt. Þá urðu úrslit þessi: Þórarinn Árnason – Sigtryggur Ellertss. 91 Sævar Magnússon – Sófus Berthelsen 84 Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson 84 Jón Gunnarsson – Sigurður Jóhannss. 74 8. okt. Árni Bjarnason – Þorvarðurs S. Guðm. 93 Hermann Valsteinss. – Jón V. Sævaldss. 88 Jón Gunnarsson – Sigurður Jóhannsson 84 Þórarinn Árnason – Sigtryggur Ellertss. 83 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK Gullsmára spil- aði tvímenning á tíu borðum fimmtu- daginn 10. október sl. Meðalskor 168. Efst vóru: NS Karl Gunnarss. – Kristinn Guðmundss. 227 Sigurþór Halldórsson – Viðar Jónsson 194 Sigtryggur Ellertss. – Þórarinn Árnas. 193 AV Filip Höskuldsson – Páll Guðmundss. 228 Auðunn Bergsv. – Sigurður Björnss. 200 Valdimar Lárusson – Einar Elíasson 195 Bridsfélag Kópavogs Það stefnir í spennandi lokakvöld í hraðsveitakeppninni, en staða efstu sveita er þessi eftir tvö kvöld: Orkuveitan 970 Ragnar Jónsson 947 Óskar Sigurðsson 942 Vinir 891 Hæstu kvöldskor fengu: Kristinn Þórisson 481 Logo Flex 461 Vinir 461 Meðalskor 432 Bridsfélag Suðurnesja Nú stendur yfir 4 kvölda sveita- rokk. Eftir 6 umferðir af 11 er þetta staðan: Stefán Ragnarsson – Kári Jónsson 117 Kristján Kristjánss. – Garðar Garðarss. 110 Karl Hermannss. – Arnór Ragnarsson 109 Heiðar Sigurjónss. – Þröstur Þorlákss. 102 Laugardaginn 12. okt. tekur félag- ið á móti hópi Borgnesinga. Háð verður bæjarkeppni á laugardag og tvímenningur á sunnudag. Spila- mennska hefst kl. 13 báða dagana. Allir eru velkomnir í tvímenninginn. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.