Morgunblaðið - 12.10.2002, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 12.10.2002, Qupperneq 48
VATNAVEXTIR Á SUÐAUSTURLANDI 48 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ HVORKI Þorsteinn Sigfússon, bóndi á Skálafelli, né tengdafor- eldrar hans sem hafa búið þar í um 60 ár, hafa áður séð annan eins vatnsflaum og var í Kol- grímu í fyrrinótt og í gær. Þor- steinn er viss um að jökulhlaup hafi valdið hinum miklu vatna- vöxtum. Um fjögurleytið í fyrradag var farið að vaxa verulega í ánni og var vöxturinn mun hraðari en venjulega. Þegar Þorsteinn og Þóra Vilborg Jónsdóttir, eig- inkona hans, brugðu sér af bæ um klukkan 21:30 urðu þau þó ekki vör við neitt óvenjulegt. Annað var upp teningnum þegar þau sneru til baka um tveimur klukkustundum síðar. Jökulvatnið hafði þá flætt upp úr farveginum, yfir tún og engjar og fært veginn upp að bænum í kaf og grafið undan honum á kafla. Þetta sá Þorsteinn ekki og þegar hann hugðist aka upp að bænum hall- aði bíllinn skyndilega til vinstri og lagðist nánast á hliðina og urðu þau að klöngrast út um bíl- stjórahurðina. „Það var talsverð lífsreynsla að stökkva út í jökulvatn á stað þar sem maður átti alls ekki von á því,“ sagði Þorsteinn í samtali við Morgunblaðið. Í birtingu hafði sjatnað veru- lega í ánni og skemmdirnar komu í ljós. „Það eru stærðarjakar á túninu og tjónið er gríðarlegt, það sýnir sig alltaf betur og bet- ur. Valllendisbakkar við árfar- veginn eru horfnir auk þess sem vegurinn heim að bænum er stór- skemmdur,“ sagði Þorsteinn. Vatnið flæmdist yfir um 8-10 ha og skildi eftir sig grjóthnullunga og allt að mannhæðarháa ísjaka. Þá gróf hún út skurði og undan rafmagnslínum sem voru lagðar í jörðu í sumar. Þorsteinn telur að Kolgríma hafi flætt upp fyrir bakka sína fyrir ofan þrengsli í árfarveginum um 4-500 metrum fyrir ofan þjóðveginn. Vatnið hafi síðan flæmst vestur með veginum þar til hún gróf hann í sundur á tæplega 100 metra kafla. Oddur Sigurðsson, jarðfræð- ingur hjá Vatnamælingum Orku- stofnunar, segir að vatnavext- irnir á þessum slóðum séu líklega þeir mestu í hálfa öld, eða frá því að Kolgríma var brúuð. Hann segir ekki öruggt að um jök- ulhlaup sé að ræða og bendir á að Vatnsdalslón hafi verið nánast tómt 28. september. Það geti þó vel verið að önnur lón hafi tæmst en aðalrennslið sé þó væntanlega vegna úrkomu og bráðnunar. Morgunblaðið/RAX Kolgríma bar með sér stærðar ísjaka upp á heimatúnin við Skálafell. Feðgarnir Þorsteinn Sigfússon og Ingi Steinn Þorsteinsson (sitjandi) virða ósköpin fyrir sér ásamt Sigfúsi Jónssyni. Þorsteinn Sigfússon, bóndi á Skálafelli, teygir sig í gaddavír í 3 metra hæð þar sem áður stóð girðing á túni. Áin sópaði hvorutveggja burtu. Ísjakar og grjót- hnullungar á túnum Snorri Bjarnason, starfsmaður Vegagerðarinnar í Höfn, skoðar verksummerki eftir hlaupið í Kolgrímu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.