Morgunblaðið - 12.10.2002, Síða 55
yrði illviðráðanleg. 16. Bf4+
Bxe1 17. Dxe1+ Kd8 18.
Bxc7+ Hxc7 19. Rf5 He8 20.
Dd1 He6 21. h3 g6 22. Rd4
Hd6 23. Dd2 dxc4 24. Bxb7
Hxb7 25. Df4 Hd5 26. Rc6+
Ke8 27. He1+ og svartur
gafst upp. 5. umferð Mjólk-
urskákmótsins hefst kl.
17.00 í dag á Hótel Selfossi.
1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5
4. d4 Rf6 5. Rf3 e6 6. Be3
Rbd7 7. c4 Dc6 8. Rc3 cxd4
9. Rxd4 Dc7 10. Be2 a6 11.
0–0 b6 12. Bf3 Bb7 13. Hc1
Hc8 14. He1
Bb4
Staðan kom
upp í Evrópu-
keppni tafl-
félaga sem lauk
fyrir skömmu í
Grikklandi.
Eduardas Ro-
zentalis (2.564)
hafði hvítt gegn
Heimo Titz
(2.309). 15. Rd5!
exd5 15... Rxd5
var einnig
slæmt sökum
16. cxd5 og
hvíta sóknin
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 55
DAGBÓK
Raðhús á einni hæð til sölu
190 fm hús með einföldum eða tvöföldum bílskúr. 3 eða 4
svefnherb., þar af eitt forstofuherbergi, tvö baðherbergi.
Gott útsýni.
Upplýsingar gefur: Örn Ísebarn, byggingameistari,
í síma 896 1606 — 557 7060.
Nýtt upphaf.
Helgarnámskeið 26. - 27. október.
Ertu ofhlaðin(n) vinnu? Ertu stressaður/stressuð? Er leiði í þér?
Óskar þú stundum að líf þitt væri allt öðruvísi?
Á þessu námskeiði öðlast þú eldmóð á ný, færð nýjan innblástur
og endurnærir lífskraftinn.
Orkustöðvaæfingar, heilun, lífsval, jóga, íhugun, umræður.
Gitte Lassen, ráðgjafi, heilari og miðill, sími:861 - 3174
netfang: gstefans@visir.is gsm 822 - 4562
VÖRNIN snýst um það
að telja, telja aftur og telja
einu sinni enn. Segir Kelsey,
og hefur mikið til síns máls.
En hvað er verið að telja?
Oft eru það punktar og
lengd lita, en síðasta taln-
ingin er alltaf á slögunum.
Með öðrum orðum: Hvað á
sagnhafi marga slagi?
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ G76
♥ K83
♦ D1054
♣ÁD7
Vestur Austur
♠ K1094 ♠ D53
♥ 105 ♥ 72
♦ Á873 ♦ K962
♣K32 ♣G1064
Suður
♠ Á82
♥ ÁDG964
♦ G
♣985
Vestur Norður Austur Suður
– 1 grand * Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
* 12–14 punktar
Kelsey setur lesandann í
spor austurs. Vestur spilar
út spaðatíu, sagnhafi lætur
lítið úr borði og tekur strax
á ásinn heima. Spilar svo
hjartaás og hjarta á kóng-
inn. Og tígli úr borði.
Í sjálfu sér er nokkuð til-
gangslaust að stöðva frá-
sögnina á þessum punkti og
spyrja: Hvað á austur að
gera? Svarið blasir við um
leið og spurningin er borin
upp. Undir venjulegum
kringumstæðum fylgja
menn smátt í slíkri stöðu, en
úr því spurt er hlýtur það að
vera rangt í þessu tilfelli.
Sem þraut er spilið því mis-
lukkað. Hins vegar er þetta
ágæt æfing í að telja.
Setjum okkur í spor aust-
urs. Hann sér að makker
fylgir tvisvar lit í hjarta, svo
sagnhafi á aðeins sexlit.
Spaðaásinn hefur suður
sýnt, sem er sjöundi slagur-
inn, og ÁD í laufi blasa við í
borði, sem eru aðrir tveir.
Allt í allt níu slagir. Makker
verður þar með að eiga tíg-
ulásinn. Og til að tryggja að
sagnhafi geti ekki byggt upp
tígulslag síðar með tromp-
svíningu ætti austur að
hoppa upp með kónginn.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
95 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 13. október, verður 95
ára Ingimar Á. Magnússon,
húsasmíðameistari, Holts-
búð 87, Garðabæ. Hann tek-
ur á móti ættingjum og vin-
um á afmælisdaginn kl.
15–17 í hjúkrunar- og dval-
arheimilinu Holtsbúð,
Garðabæ.
50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 12.
október, er fimmtugur
Magnús Daðason, málara-
meistari, Keflavík. Magnús
er staddur erlendis.
LJÓÐABROT
BLÁKLUKKAN
Geislinn henni á kollinn klappar,
kringum hana golan vappar,
ljós gaf henni litinn bláa.
Fann hún um sig alla saman
ylinn leggja, – þótti gaman
höfðingsmótið stærstu stráa.
Nótt og dagur vöggu vagga,
vindur, skin og svölun dagga
fylgja barni blóms og drauma.
Faðir, móðir: sól og svörður
segja að hennar næturvörður
skuli tungl, með skinið nauma.
– – –
Kristinn Stefánsson
Þessir duglegu krakkar, Sóley Margrét Rafnsdóttir, 9 ára,
og Karl Óskar Smárason, 8 ára, héldu hlutaveltu á Flúðum
um verslunarmannahelgina og söfnuðu 16.753 krónum til
styrktar SOS-barnahjálpinni.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VOG
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert félagslyndur og
vakandi fyrir því sem er að
gerast í kring um þig.
Komandi ár verður eitt
besta ár lífs þíns.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Dagurinn hentar vel til sam-
vista við foreldra og aðra
ættingja. Það er mikilvægt
að sýna þeim virðingu sem
hafa fætt okkur og veitt okk-
ur stuðning sinn og visku.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefðir gott af því að
bregða út af vananum og
gera eitthvað óvenjulegt í
dag. Farðu í bókabúð, á list-
sýningu eða á stað sem þér
finnst fallegur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur þörf fyrir rómantík
og skemmtanir í dag. Láttu
það eftir þér að njóta lífsins
og fara í bíó eða leikfimi með
góðum félaga.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Reyndu að eiga stund með
foreldrum þínum í dag.
Leggðu þig fram við að
gleðja þau og gera stundina
eftirminnilega.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft að huga að leiðum
til að bæta heilsuna. Þú get-
ur lagt áherslu á mataræði
og hreyfingu eða reynt að
venja þig af einhverju sem
þú veist að skaðar heilsu
þína.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Njóttu þess að vera með
börnum í dag. Notaðu tæki-
færið til að segja þeim sögur
sem endurspegla þau lífs-
gildi sem þér finnst skipta
máli.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Láttu heimilisverkin hafa
forgang. Þú ert óvenju við-
kvæmur fyrir umhverfi þínu
og þarft að hafa hlutina í röð
og reglu til að halda ró
þinni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Dagurinn hentar vel til
ferðalaga og alls kyns útrétt-
inga. Þú nýtur þess að vera
á ferðinni og hitta fólk.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Dagurinn hentar vel til alls
kyns viðskipta. Þú ættir að
kaupa gjöf handa vini þínum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það veitir þér forskot að
hafa tunglið í merki þínu.
Notaðu tækifærið og leitaðu
stuðnings við fyrirætlanir
þínar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft á því að halda að
vera einn með sjálfum þér í
dag. Þú fæddist fimmtíu ár-
um fyrir tímann og ert því
oft misskilinn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hefur mikla þörf fyrir
samskipti við aðra í dag. Þú
ættir að bjóða vinum þínum í
heimsókn og þiggja öll þau
boð sem þér berast.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Hefurðu eitthvað á
móti því að við breyt-
um herberginu þínu í
sjónvarpsherbergi
fjölskyldunnar?
FRÉTTIR
Steinunn Valdís ekki í landsmálin
Morgunblaðinu hefur borist eftirfar-
andi yfirlýsing frá Steinunni Valdísi
Óskarsdóttur:
„Vegna umfjöllunar um hugsanlegt
framboð mitt til Alþingis og þar með
þátttöku í prófkjöri Samfylking-
arinnar þann 9. nóvember næstkom-
andi vil ég lýsa því yfir að ég hyggst
ekki gefa kost á mér í prófkjörinu.
Eftir vandlega umhugsun hef ég
komist að þeirri niðurstöðu að á
næstu misserum geti ég best þjónað
hagsmunum Reykvíkinga á vettvangi
borgarstjórnar. Á yfirstandandi kjör-
tímabili verða skipulagsmál í brenni-
depli og tók ég að mér að leiða þann
málaflokk. Ég tel að á næstu árum
séu miklir möguleikar á að breyta
áherslum í skipulagi Reykjavíkur og
ber þar hæst endurskipulagningu
Vatnsmýrarinnar, uppbyggingu við
hafnarsvæðið og Mýrargötu, mið-
borgina og aukna áhersla á þéttingu
byggðar víðs vegar um borgina. Við
eigum nú möguleika á að breyta hefð-
bundnu úthverfaskipulagi liðinna
áratuga í nýjum hverfum á borð við
Úlfarsárdalinn. Þar mun byggjast
upp svæði á stærð við Kópavog allan
og er því um að ræða einstakt tæki-
færi til að hrinda í framkvæmd heild-
arskipulagi sem tekur mið af nýjum
hugmyndum um borgarsamfélagið,
þjónustu við borgarbúa og mik-
ilvægri reynslu fortíðarinnar. Ég vil
taka þátt í þeim stóru verkefnum sem
framundan eru á þessu sviði og beita
mér fyrir því að efla umræðu um
skipulagsmál meðal borgarbúa í sam-
ræmi við þau markmið sem Reykja-
víkurlistinn setti fram fyrir síðustu
kosningar.
Ástæður þess að ég hef gefið því
nokkurn tíma að hugleiða framboð til
Alþingis eru fyrst og fremst þær að
ég tel að nokkuð skorti á tengsl milli
umræðu á Alþingi og umfjöllunar og
verkefna borgarstjórnar Reykjavík-
ur.
Alltof oft verða mikilvæg málefni höf-
uðborgarinnar afgangsstærð á Al-
þingi og nægir þar að nefna áherslur í
vega- og samgöngumálum, nið-
urskurð til löggæslu í Reykjavík og
skort á uppbyggingu hjúkrunarheim-
ila fyrir aldraða. Þingmenn Reykja-
víkur þyrftu allir sem einn að standa
vörð um hagsmuni umbjóðenda sinna
í borginni en því miður hefur það vilj-
að brenna við að þingmenn og ráð-
herrar D-listans setji andúð sína á
stjórnendum Reykjavíkurborgar ofar
hagsmunum borgarbúa. Reykvík-
ingar eiga betra skilið. Á und-
angengnum vikum hefur fjöldi borg-
arbúa haft samband við mig vegna
þessa og lýst stuðningi við þessi sjón-
armið og vil ég nota tækifærið til að
þakka fyrir þann stuðning.“
Í DAG STJÓRNMÁL
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Rannsókn-
arnefnd flugslysa, RNF:
„Í Morgunblaðinu 10. október s.l.
var grein frá tveimur af aðstandend-
um fórnarlamba flugslyss flugvélar-
innar TF-GTI í Skerjafirði 7. ágúst
2000. Í þessari grein voru aðstand-
endurnir að gera athugasemdir við
viðbrögð RNF við skýrslu tveggja
breskra einstaklinga sem ráðnir voru
af aðstandendunum til að skoða rann-
sóknarskýrslu RNF og aðstæður
varðandi slysið.
Mál þetta er komið í ákveðinn far-
veg eftir að samgönguráðherra
ákvað að verða við tillögu RNF um að
setja saman sérstaka óháða nefnd
valinkunnra manna, innlendra og er-
lendra, með sérþekkingu á sviði flug-
mála og flugslysarannsókna, sem fal-
ið yrði að skila hlutlausu mati á
niðurstöðum í skýrslu RNF um slys-
ið og eftir atvikum koma fram með
aðrar mögulegar skýringar á slysinu,
svo og viðbótarábendingar í öryggis-
átt sem stuðlað geti að auknu flug-
öryggi.
RNF krafðist þess jafnframt, til að
enginn vafi léki á hlutleysi nefndar-
manna við meðferð málsins, að þeir
vikju sæti við frekari meðferð þess.
Því mun RNF að svo stöddu ekki tjá
sig frekar um þetta tiltekna mál.“
Yfirlýsing frá Rann-
sóknarnefnd flugslysa
Gefur kost á sér á lista Fram-
sóknarflokksins í Norðvest-
urkjördæmi Elín R. Líndal bóndi,
Lækjamóti í Húnaþingi vestra, hef-
ur ákveðið að gefa kost á sér í þriðja
sæti á lista Framsóknarflokksins í
Norðvesturkjördæmi og hefur sent
kjörnefnd framboð sitt.
Elín hefur gegnt og gegnir mörgum
trúnaðarstörfum fyrir Framsókn-
arflokkinn í héraði og á landsvísu.
Elín varð 1998 fyrsti oddviti samein-
aðra sveitarfélaga í Húnaþingi
vestra og er nú formaður byggð-
arráðs. Hún var 1. varaþingmaður
Framsóknarflokksins í Norður-
landskjördæmi vestra á tólf ára
tímabili 1987–1999 og hefur átt sæti
í miðstjórn flokksins um árabil.
Elín er formaður Jafnréttisráðs,
stjórnar Heilbrigðisstofnunarinnar
á Hvammstanga og skólanefndar
Hólaskóla.
Sinfóníutónleikar
Smávægileg tilfærsla varð á texta
við vinnslu á umsögn Jóns Ásgeirs-
sonar um tónleika Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands í blaðinu sl. föstudag.
Textinn er réttur svona: „…því kafl-
arnir nr. 5, Sanctus, nr. 6, Benedict-
us, sérlega falleg tónsmíð, er var
mjög vel sungin af einsöngvurun-
um“.
Á öðrum stað stóð „tvístrikaða“
þar sem átti að standa tvístrikað „a“.
Beðist er velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
♦ ♦ ♦
Árnað heilla
Hlutavelta