Morgunblaðið - 12.10.2002, Page 60

Morgunblaðið - 12.10.2002, Page 60
60 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ „ÞÚ NÁÐIR mér á frídegi,“ segir Oakes glaðlega við blaðamann og var greinilega nokk sama þótt hann eyddi nokkrum mínútum í að ræða um nýju plötuna sína enda segist hann stoltur af henni í meira lagi. Platan heitir A New Morning, nýr morgunn, og er eins og titillinn gefur til kynna öllu líflegri og jákvæðari en fyrri verk sveitarinnar sem hingað til hefur verið kunnust fyrir böl- sýnislega borgarsögur söngvarans Bretts Andersons. Viðmælandinn Oakes er 25 ára gamall en hefur verið í bransanum í ein 8 ár, eða frá því honum var skyndlega kippt inn í bandið um miðbik ársins 1994 eftir að Bernard Butler hafði stormað út úr hljóðveri, skellt hurðum og ekki látið heyra frá sér eitt aukatekið múkk. Þetta var þegar upptökum var að ljúka á ann- arri plötu sveitarinnar Dog Man Star og þurfti því hinn kornungi og óreyndi gítarleikari, án nokkurs undirbúnings, að vippa sér í allt of stór fótsporin sem Bernard Butler hafði skilið eftir sig, náungi sem þá var talinn einhver magnaðasti gít- arleikari og lagahöfundur er komið hafði fram á sjónarsviðið í háa herr- ans tíð. En sá ungi virtist hvergi banginn er hann hóf tónleikareisu með sveit- inni þá um haustið og small inn í bandið. Hann hafði líka verið forfall- inn Suede-aðdáandi frá því fyrsta lagið „The Drowners“ tryllti breska ungviðið 1992 og kunni allar gítar- kúnstir Butlers, hetjunnar sinnar, utanað. En nú hafði hann leyst hetj- una sína af, sem var engin smábyrði á ungum og óreyndum herðum. Mörgum að óvörum lifðu Suede af mannabreytingarnar og gaf út popp- plötuna Coming Up sem var mun léttari en þær sem Butler tók þátt í og sýndi ennfremur að Oakes væri ýmislegt fleira til lista lagt en að apa upp eftir forvera sínum. Þannig héldu vinsældir Suede að mestu og það sem meira er þá lifði sveitin af bólu Bretapoppsins. Lögin á nýju plötunni voru prófuð á Íslendingum Það var síðan stuttu eftir út- komu fjórðu skífunnar Head Music sem Suede rak á Fróns- ins fjörur, nánar tiltekið er hún lék fyrir íslenska tónleikagesti í Laugardalshöllinni, ásamt bandarísku sveitinni The Flam- ing Lips, á Iceland Airwaves í október 2000. „Þessir tónleikar eru mér ennþá ljóslifandi í minni,“ segir Oakes, „enda þeir einu sem við héldum það árið. Við ætluðum ekkert að spila en við gáum ekki hafnað boði um að spila á Ís- landi því þangað hafði okkur alla langað að koma. Og Ís- landsförin stóð svo sannarlega undir væntingum, landið er fallegt og jöklaferðin er mér sérstaklega minn- isstæð. Svo tókust tónleikarnir mjög vel, viðtökurnar sem við fengum frá- bærar, sérstaklega með tilliti til þess hversu mörg ný lög við tókum. Vel á minnst. Þið Íslendingar voruð þá fyrstir allra til þess að heyra lögin af nýju plötunni.“ Frammistaða Suede mæltist vel fyrir eins og Oakes getur sér til um og má að því líkum leiða að sveitin hafi þá styrkt stöðu sína enn frekar hér á landi og að nýja platan A New Morning sé orðin langþráð og kær- komin í huga margra tónlistargesta sem sveifluðu mjöðmum sínum ómeðvitað í takt við Anderson og margfræga mjaðmahnykki hans. „Þetta var samt alltof stutt stopp og mér er minnisstætt að við vorum ekki búnir að vera á landinu nema í rúman hálftíma, vorum að stíga út rútunni sem keyrði okkur af flugvellinum, þegar einhver spurði hvernig okkur líkaði Ís- land!“ Oakes hlær og blaða- maður getur ekki stillt sig um að taka undir enda óþægilega kunnuglegur kækur sem mör- landin virðist eiga erfitt með að venja sig af. – Höfðu viðbrögð íslensku gestanna við nýju lögunum áhrif á val þeirra á nýju plöt- una? „Já, tvímælalaust. Það er mjög hvetjandi að fá jákvæð viðbrögð við lagi sem maður flytur í fyrsta sinn fyrir áhorf- endur. Það gefur til kynna að maður sé á réttri leið og lagið þess virði að vinna meira með það.“ Mannabreytingar og misheppnaður upptökur – Fyrst þið voruð tilbúnir með svo mörg lög þá hvers vegna tók það ykkur tvö ár til viðbótar að koma plötunni út? „Það var ansi margt sem tafði okkur. Þegar við lékum á Íslandi vorum við í miðju kafi að semja fyrir plötuna og við ætluðum okkur að hefja upptökur fljótlega eftir það. En það kom ýmislegt upp á. Neil Codling hljómborðsleikari hætti t.d. sem gerir Íslandstónleikana þá síð- ustu sem hann lék með okkur. Þá hafði hann átt við langvarandi veik- indi að stríða og treysti sér hrein- lega ekki í að taka upp aðra plötu.“ – Hefur hann náð fullum bata? „Já, já, en það hefur tekið heilt ár og hann þurfti sannarlega á því að halda að draga sig í hlé. Hljóm- sveitalífið á engan veginn við hann, gerði hann bara veikari og veikari.“ Og svo hélt Oakes áfram að skýra hvers vegna leið og beið án þess að platan kæmi út: „Eftir brotthvarf Codlings réðum við Alex Lee og það tók sinn tíma að spila hann inn í bandið, auk þess sem við vildum að hann legði einnig sitt af mörkum til lagasmíðanna. Svo höfðum við eiginlega lokið upptökum við nýja plötu í mars á þessu, plötu þar sem Tony Hoffer stjórnaði upp- tökum en þegar við hlustuðum á út- komuna í heild þá leist okkur ekkert á hana og svo gott sem hentum allri plötunni og byrjuðum upp á nýtt.“ – Hvað var að? „Okkur líkaði einfaldlega ekki upptökustjórnin, hljómurinn var alls ekki sá sem við vorum að sækjast eftir, alltof móðins, kuldalegur og dauðhreinsaður. Það hentaði lögun- um engan veginn því þau kölluðu á mun lífrænni og náttúrulegri útsetn- ingar þar sem tilfinningin fengi að njóta sín. Tony skildi það bara ekki og því slitum við samstarfinu við hann, sömdum fleiri lög og fengum Stephen Street (The Smiths, Blur, The Cranberries) til að taka þau upp.“ – Hvers vegna hann? „Einfaldlega vegna þess að hann hefur stjórnað upptökum á svo mörgum góðum plötum. Hann er frábær upptökustjóri og líka mjög enskur. Við vorum bara vissir um að hann næði að laða fram það besta í okkur, koma til skila kjarnanum í Suede og mér finnst honum hafa Morgunstund gefur gull í mund „Við erum búnir að gefa út okkar björtustu og bestu plötu,“ sagði Richard Oakes, gítarleikari Íslandsvinanna í Suede, í símasamtali við Skarphéðin Guðmundsson á dögunum. Umrædd plata er A New Morning, nýútkomin fimmta plata sveitarinnar. Richard Oakes var 17 ára gamall þegar honum var skyndilega kippt inn í eina af heitustu hljómsveitum síns tíma. Hljómsveitin Suede sendi frá sér á dögunum breiðskífuna A New Morning 1/2 Kvikmyndir.is 1/2 HK. DV 1/2 Kvikmyndir.com 1/2 SV. MBL AL PACINO • ROBIN WILLIAMS • HILARY SWANK I I I I I Tímamótaverk í íslenskri kvikmyndasögu  HJ Mbl Gunnar og Herdís leiða eftirminnilegan leikarahóp sem á þátt í að gera Hafið að einni bestu íslensku kvikmyndinni 1/2 HK DV „Íslenskt meistaraverk..“  SFS Kvikmyndir.is 34.000 áhorfendur Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. B.i. 12. MBL Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12.Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.05.  SV Mbl  SG. DV ÓHT Rás 2  Kvikmyndir.is GH Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  SG. DV HL. MBL Frábær rómantísk gamanmynd FRÁ FRAMLEIÐENDUM „Bridget Jones’s Diary“ og „About A Boy“. FRUMSÝNING „Þetta er fyrsta flokks hasarmynd.“ Þ.B. Fréttablaðið. GH Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is Sýnd kl. 2. Sýnd kl. 4 og 6.Kl. 1.50 og 3.40. Frá leikstjóra Memento. Frá framleiðendum Ocean’s Eleven og Traffic. Sýnd í stóra salnum kl. 3 og 5.45 Ó.H.T. Rás2 Sýnd kl. 3, 5.45, 8 og 10.15. B.i. 12. Sýnd kl. 6.50 og 9. Vit 433 Frábær fjölskyldumynd frá Disney um grallarann Max Keeblesem gerir allt vitlaust í skólanum sínum! Sýnd kl. 2, 3, 4, 5 og 6. Vit 441. 34.000 áhorfendur FRUMSÝNING Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit 435 Sýnd kl. 2 og 4. Ísl tal. Vit 429 Sýnd kl. 5.45, 8, 10.15 og 11.15. B.i. 16 ára. Vit 453 Ef þú ert að leita að sannleikanum þá ertu ekki á réttum stað E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P  Kvikmyndir.com Frábær spennumynd með Val Kilmerfyrir þá sem fíluðu Memento.. Brjáluð tónlist í myndinni með m.a. ChemicalBrothers og Moby. AUKASÝNING KL. 11.15  HJ Mbl 1/2 HK DV 1/2 Kvikmyndir.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.