Morgunblaðið - 12.10.2002, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 61
tekist það.“
– Og kom ykkur vel
saman, skyldi hann
þarfir ykkar?
„Svo sannarlega,
enda tók það hann ekki
nema átta vikur að
taka upp plötuna, plöt-
una sem við höfðum
verið að væflast með í
tvö ár. Það var aldeilis
munur að vinna svo
hratt og örugglega, því
við vorum allt öðru
vanir. Það tók t.d. 6–8
mánuði að hljóðrita
Head Music.“
Jákvæðni
– Þær hljóma líka
einstaklega ólíkt þess-
ar tvær plötur Head
Music og A New Morn-
ing, eru í raun algjörar
andstæður, sú fyrr-
nefnda mjög kuldaleg
en síðarnefnda hlýleg.
„Já, sú nýja er mjög
þjóðlagaskotin, engin
borgarplata heldur
sveitaplata enda var
hún samin að mestu ut-
an Lundúna, í mikilli
einangrun og umvafin náttúru. Það
leiddi tvímælalaust til afslappaðri
lagasmíða, rómantískari og yfir höf-
uð þægilegri. Samvinnan var á end-
anum meiri en nokkru sinni áður og
t.a.m. er „Positivity“, fyrsta smáskíf-
an skrifuð á alla sveitina, sem ekki
hefur gerst áður.“
– Var það markviss ákvörðun ykk-
ar að gera plötu sem hljómaði gjör-
ólíkt Head Music?
„Að sumu leyti. Í rauninni gefur
þessi mýkri hlið á Suede mun rök-
réttari mynd af tónlistarsmekk okk-
ar sem skipum sveitina því við höf-
um lengi verið hugfangnir af tónlist
söngvaskálda á borð við Nick Drake
og Neil Young, eldra efninu með
Fleetwood Mac og gömlu sálartón-
listinni. A New Morning endurspegl-
ar það betur en aðrar plötur okkar
hafa gert. En það þýðir ekki að
næsta plata muni gera það líka.“
– Segðu mér frá titli plötunnar?
„Hann endurspeglar texta Ander-
sons sem eru jákvæðari nú en
nokkru sinni fyrr. Hann er bara svo
miklu sáttari við lífið, er hættur í
ruglinu og fluttur upp í sveit. Svo er-
um við allir bara svo sáttir við bandið
og hvar það er statt. Það er því nýr
morgunn hjá okkur.“
– Þið virðist alveg hættir að gera
þessa löngu dramatísku ópusa sem
einkenndu fyrstu tvær plöturnar,
sér í lagi Dog Man Star, og kjósið í
staðinn sígilda 3 mínútna popplaga-
stílinn?
„Við kunnum enn að meta slíka
tónlist, flóknar og margslungnar
lagasmíðar í stórum
dramatískum útsetn-
ingum, eins og þú segir,
voru áberandi á Dog
Man Star. Í dag höfum
við bara engan áhuga á
að búa til þannig tón-
list. Það er bara ein-
faldara að semja gott
stutt lag heldur en gott
langt lag. Og mér
finnst þessi stuttu lög
sem við semjum í dag
betri en þau sem voru á
tveimur fyrstu plötun-
um.“
17 ára rokkstjarna
– Nú eru átta ár liðin
síðan þú gekkst til liðs
við sveitina og margt
náttúrlega gerst síðan.
„Síðan ég byrjaði í
Suede hef ég tekið þátt
í gerð þriggja platna
sem ég er mjög sáttur
við. Það var alltaf
draumurinn að gerast
tónlistarmaður og ég er
mjög sáttur við hvernig
líf mitt hefur þróast.
Markmið mitt og metn-
aður er í sjálfum sér
mjög einfaldur, að halda áfram að
búa til góða popptónlist. Ég hætti
þegar ég tek þátt í að gera vonda
plötu.“
– Það hýtur að hafa verið svolítið
yfirþyrmandi að ganga í heimsfræga
hljómsveit ekki eldri en 17 ára gam-
all?
„Jú, vissulega, en ég varð bara að
láta mig hafa það og leiða slíkt hjá
mér. Þetta var samt ekki eins mikið
áfall og menn halda. Ímyndaðu þér
bara ef þér hefði verið boðið 17 ára
gömlum að ferðast um heiminn og
leika á gítar í vinsælli hljómsveit,
búa til mikinn hávaða og horfa upp á
óteljandi stelpur garga til þín. Auð-
vitað stekkur maður á slíkt tækifæri
án þess að hugsa sig um tvisvar,“
segir Oakes og hlær.
– Manstu hvenær nákvæmlega
þér fannst þú vera orðinn fullgildur
liðsmaður í Suede?
„Já, þegar lag eftir mig var sett á
plötu. Alex hefur sömu sögu að
segja, honum fannst hann ekki vera
alvöru Suede-liði fyrr en hann kom
lagi að.“
– Var ekki erfitt að ganga í hljóm-
sveit og þurfa að leika lög eftir ann-
an gítarleikara á heilli tónleikaferð?
„Það var vissulega skrítið, en
veistu, eftir á að hyggja þá er ég feg-
inn því það gaf mér nægilegt svig-
rúm til að átta mig á þessu nýja lífi.“
– Þegar þú gekkst í raðir Suede
varstu yfirlýstur aðdáandi Bernards
Butlers, forvera þíns, ertu það enn?
„Í fullri hreinskilni finnst mér
hann aldrei hafa náð aftur þeim
hæðum sem hann var í með Suede.
Þó get ég sagt honum til hróss að
hann hefur sinn sérstæða stíl og er
heiðarlegur tónlistarmaður.“
– Sjálfur segist hann ekki hafa
heyrt eitt einasta lag með Suede eft-
ir að hann hætti?
„Það rifjar örugglega upp of
óþægilegar minningar fyrir hann,
get ég ímyndað mér.“
– Hvert finnst þér vera besta lag
sem Suede hefur sent frá sér?
„„Lost in TV“ af nýju plötunni og
svo trúlega „Wild Ones“.“
– Og svona að endingu, hvað er
Richard Oakes að hlusta á þessa
dagana?
„Þessa stundina er ég að stúdera
bandarískt neðanjarðarrokk, sveitir
á borð við Sonic Youth, Pavement og
The Breeders. Kannski vegna þess
hversu viðkvæm og blíð tónlistin er
sem ég sjálfur spila.“
– En þú hefur samt ekki stormað
inn á æfingu og heimtað að sveitin
fari að leika bandarískt neðanjarð-
arrokk?
Oakes hlær og segir síðan: „Nei,
það hefur alltaf verið langur vegur
milli tónlistarinnar sem ég hlusta á
og þeirrar sem ég spila.“
Oakes segir Suede-liða sátta og afslappaðri en áður.
skarpi@mbl.is
Það þarf tvo til
(Two Can Play That Game)
Gamanmynd
Bandaríkin, 2001. Skífan VHS/DVD. 92
mín. Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn og
handrit: Mark Brown. Aðalhlutverk: Viv-
ica A. Fox, Morris Chestnut og Anthony
Anderson.
AFÞREYINGAREFNI sem
reynir að höfða til áhorfenda með því
að fjalla um samskipti kynjanna er
nokkuð sem oft er uppfullt af klisjum
og kreddum. Lífsspekibókin Konur
eru frá Mars og
karlar frá Venus er
kannski eitt skæð-
asta dæmi um slíkt,
sem og hinn sívin-
sæli Hellisbúi, en í
þessum verkum er
gjarnan gert út á
fyrirfram skil-
greindan mismun
milli karla og kvenna, og kynjunum
kennt að ganga út frá þessum mis-
muni og læra á ákveðnar „leikregl-
ur“ í samskiptum sínum, í stað þess
að tala einfaldlega saman sem jafn-
ingjar.
Kvikmyndin sem hér um ræðir er
algjörlega í þessum anda, nema hvað
hún er fremur þreytt útgáfa af
stefnumótaspeki. Þar kemst hin full-
komna Shante að því að kærastinn
hennar er að gefa öðrum konum hýrt
auga. Hún setur því ákveðna her-
kænskutækni í gang, og fá áhorfend-
ur að fylgjast með vitsmunlegu stríði
kærustuparsins, sem miðar að því að
Shante nái að knýja fram iðrun og
ævarandi tryggð kærastans. Þessi
viðureign er bara ekki nógu áhuga-
verð eða frumleg til að maður nenni
að fylgjast með henni ótilneyddur.
Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Kærustu-
par í stríði
Frábær fjölskyldumynd
frá Disney um
grallarann Max
Keeblesem gerir
allt vitlaust í
skólanum sínum!
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Vit 441.
Sýnd kl. 3, 5.45, 8 og 10.20. B.i. 12 ára. Vit 444
MBL
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14 ára. Vit 444
1/2
Kvikmyndir.is
MBL Kvikmyndir.is
Roger Ebert
DV
Kvikmyndir.com
1/2
SK.RadioX
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 12 ára. Vit 427
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl tal. Vit 429
Sýnd kl. 2, 4. Enskt tal. Vit 430.
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6 og 8. B.i. 12 ára. Vit 435
AL PACINO
ROBIN WILLIAMS
HILARY SWANK
HJ Mbl
1/2HK DV
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6 og 8.
1/2
HK. DV
Kvikmyndir.com
1/2
HK. DV
1/2
Kvikmyndir.com
Ó.H.T. Rás2
1/2
SV. MBL
1/2
Kvikmyndir.is
Ó.H.T. Rás2
1/2
SV. MBL
34.000
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20. B.i. 16 ára. Vit 453
Ef þú ert að leita
að sannleikanum
þá ertu ekki á
réttum stað
Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.20. Vit 433
M A T T D A M O N E R J A S O N B O U R N E
GH Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.isSG. DV
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 14 ára. Vit 427
HL. MBL
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P
Sýnd í lúxussal kl. 3, 5.45, 8 og 10.20. B. i. 16. Vit 454
AL PACINO
ROBIN WILLIAMS
HILARY SWANK
AKUREYRI
AKUREYRI
Forsýning kl. 10.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2 og 4.
Sýnd kl. 2.
Kvikmyndir.com
FORSÝNING
Frábær spennumynd með Val Kilmerfyrir þá sem fíluðu
Memento.. Brjáluð tónlist í myndinni með m.a.
ChemicalBrothers og Moby.
www.sambioin.is
Sýnd kl. 10.15.
Sýnd kl. 4 og 6.
Hafið
Big Fat Liar
Max Keeble´s
Lilo & Stitch
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 2 og 4.
Sýnd kl. 2 og 4.
Sýnd kl. 6 og 8.
The Bourne Identity
Clockstoppers
Max Keeble´s
Lilo & Stitch