Morgunblaðið - 05.12.2002, Síða 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BÆJARSTJÓRAR Reykjanesbæj-
ar og Seltjarnarnesbæjar telja að
með stofnun sértæks fasteigna-
félags, sem kaupi og leigi eignir
sveitarfélaga og fjármálastofnana,
megi hugsanlega ná fram aukinni
hagkvæmni í rekstri. Að undan-
förnu hafa átt sér stað viðræður
milli Íslandsbanka og nokkurra
sveitarfélaga um málið en stefnt er
að því að það verði stofnað síðar í
mánuðinum. Félagið mun ekki
standa að byggingu eða viðhaldi
eignanna með eigin starfsmönnum
heldur kaupa alla þjónustu.
Samkvæmt nýjum reglum um
reikningsskil sveitarfélaga, sem
taka gildi um næstu áramót, ber
sveitarfélögum að stofna sérstaka
eignasjóði, sem ætlað er að sjá um
rekstur, nýbyggingar og kaup og
sölu fasteigna í umboði sveitar-
stjórna. Sveitarfélög leigja síðan
fasteignirnar af eignasjóðum sínum.
Í leiðbeiningum félagsmálaráðu-
neytisins um bókhald og reiknings-
skil sveitarfélaga segir að mark-
miðið með stofnun eignasjóða sé
margþætt. „Sem dæmi má taka að
raunkostnaður rekstrareininga
verður sýnilegri og kostnaður dreif-
ist á rekstur hvers árs. Ætla má að
kostnaðarvitund starfsmanna sveit-
arfélaganna og sérþekking á rekstri
fastafjármuna muni aukast.“ Árni
Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanes-
bæjar, segir að öllum sveitarstjórn-
armönnum sé ljóst að það sé ekki
skylda sveitarstjórnra að byggja
eða reka fasteignir né heldur liggi
sérþekking þeirra á því sviði. Mörg
dæmi séu um framúrkeyrslu í
kostnaði við nýbyggingar og einnig
megi nefna óskipulegt viðhald á op-
inberum eignum. „Það er því eðli-
legt að við leitum hagstæðari leiða í
þessu sambandi. Það sem rekið hef-
ur sveitarfélög áfram í að byggja og
rekja fasteignir sjálf er að þau hafa
fengið betri lánskjör en einkaaðilar
til bygginga. Á móti má segja að
byggingakostnaður hefur oft farið
fram úr áætlun. Sú hugmynd sem
nú er verið að ræða er að sveit-
arfélög stofni fasteignafélag í sam-
vinnu við traustar og virtar fjár-
málastofnanir, sem hafa reynslu af
rekstri fasteignafélaga.“ Árni segir
Íslandsbanka hafa leitt þessa vinnu
en einnig hafi verið rætt við Lands-
bankann og hann hafi óskað eftir að
málið yrði skoðað með Sparisjóði
Keflavíkur.
Hann segir að miðað við þær
hugmyndir sem nú eru uppi gæti
félagið jafnvel farið af stað með allt
að 10–12 milljarða eignir innan
sinna vébanda. „Hugmyndin geng-
ur út á að okkur yrði tryggð ævi-
löng leiga. Í engu tilviki værum við
að varpa frá okkur eignum eða
sleppa af þeim höndunum nema að
okkar eigin ákvörðun. Við gætum
því sett þarna inn allar skrifstofu-
byggingar, íþróttamannvirki, skóla-
húsnæði og margvíslegt húsnæði,
sem bærinn hefur eignast í gegnum
tíðina. Það er líka mikilvægt að við
höfum á fimm ára fresti rétt til að
kaupa eignir aftur, t.d. ef við höfum
ekki lengur þörf fyrir að nýta
ákveðna fasteign, annað félag býður
betur eða aðstæður breytast með
einhverjum öðrum hætti.“ Hann
sagði að þau tækifæri, sem Reykja-
nesbær teldi felast í þessari hug-
mynd, auk hagkvæmari reksturs,
væri fyrst og fremst að hægt væri
að nota þá fjármuni er fengust með
sölu fasteignanna til að greiða niður
skuldir sveitarfélagsins. „Þá væri
einnig hægt að stofna sjóð, þar sem
byggt yrði á föstum höfuðstóli og
ávöxtunin nýtt til áhugaverðrar
uppbyggingar í bænum. Við værum
að leysa fjármagnið úr steinsteyp-
unni.“ Árni tók fram að ekki væri
verið að ræða um félagslegar eignir
í þessu sambandi heldur þær bygg-
ingar sem notaðar væru undir ýmsa
þjónustu. Ætla mætti að Reykja-
nesbær gæti lagt inn um 3,5 millj-
arða í félagið ef af yrði.
Bætt þjónusta með
verkaskiptingu
Viðræður hafa einnig átt sér stað
við Seltjarnarsnesbæ um aðkomu
að félaginu. Jónmundur Guðmars-
son bæjarstjóri segir Seltjarnarnes
ávallt hafa verið varfærið og far-
sælt sveitarfélag í fjármálum. „Við
höfum nálgast málið af varfærni en
jafnframt séð í því mörg tækifæri.“
Kostirnir væru m.a. aukin hag-
kvæmni í rekstri, m.a. með lægri
fjármagnskostnaði, og jafnara við-
hald. Um leið mætti með þessari
verkaskiptingu skapa skilyrði fyrir
því að bæjarfélagið geti einbeitt sér
betur að þjónustu fyrir íbúana
sjálfa.
„Við gætum einnig losað fé en er-
um raunar í þeirri stöðu að vera
mjög lítið skuldsett sveitarfélag.
Við þurfum ekki frekar en við vilj-
um fara í mjög umfangsmiklar eða
dýrar framkvæmdir, þar sem upp-
byggingu er að mestu lokið.
Það gætu hins vegar skapast
skilyrði fyrir því að fjármunirnir
færu að vinna með okkur og þannig
skapað beinan ávinning til fram-
tíðar.“ Verðmæti fasteigna, sem til
greina kemur að setja inn í félagið,
nemur um 2,5 milljörðum, en Jón-
mundur segir að líklega væri hyggi-
legra fyrir Seltjarnarnesbæ að
leggja inn minna eða allt að helm-
ing fasteigna í upphafi ef af þátt-
töku verður.
„Við höfum ekki formlega tekið
neina efnislega afstöðu til málsins
en sjáum auðvitað þau tækifæri
sem í þessu felast. Að lokum stend-
ur þetta og fellur hins vegar með
mati á langtímahagsmunum bæj-
arins. Fulltrúar meirihluta og
minnihluta hafa unnið að málinu
saman en ekki afgreitt það form-
lega. Við höfum gert ráð fyrir að
þegar til endanlegrar afgreiðslu
verði það í tveimur umræðum í
bæjarstjórn, um miðjan desember
og í janúar.“
Bæjarstjórar Reykjanesbæjar og Seltjarnarnesbæjar um stofnun fasteignafélags
Markmiðið að losa fé
og auka hagkvæmni
Morgunblaðið/Jim Smart
Sjálfstæðisþingmennirnir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Guðmundur Hallvarðsson stinga saman nefj-
um á þingfundi í gær en á dagskrá voru fjölmörg mál auk þess sem lögð voru fram svör við fyrirspurnum.
HEILDARKOSTNAÐUR ríkis-
sjóðs við undirbúning álvers í
Reyðarfirði er tæplega 200 millj-
ónir kr. á árunum 1997 til 2002.
Þetta kemur fram í skriflegu svari
Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðar-
ráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar
Halldórsdóttur, þingmanns
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs. Svarinu var dreift á Al-
þingi í gær.
Í svarinu kemur fram að kostn-
aður ríkissjóðs í undirbúningnum
hafi verið greiddur af fjárveiting-
um Fjárfestingarstofunnar – orku-
sviðs og iðnaðarráðuneytis.
Þá er tekið fram í svarinu að í
heildarkostnaðinum sé innifalinn
útlagður kostnaður sem fæst end-
urgreiddur komi til framkvæmda.
Þingmaðurinn spurði hver þátt-
taka Norsk Hydro/Hydro Alumin-
ium væri í kostnaðinum og í
svarinu segir: „Hlutdeild Fjárfest-
ingarstofunnar – orkusviðs í sam-
eiginlegum kostnaði sem endur-
greiða átti samkvæmt samningi
við Reyðarál hf. ef til framkvæmda
kæmi er 112,6 milljónir kr. Eins
og kunnugt er hætti Norsk Hydro/
Hydro Aluminium við byggingu ál-
versins. Í tengslum við samninga
um kaup Alcoa Inc. á Reyðaráli
var samið um að Alcoa greiddi
Fjárfestingarstofunni – orkusviði
600.000 USD eða tæplega 52 millj-
ónir kr.“
Í svarinu er tilgreint hvernig
kostnaður vegna undirbúnings ál-
versins skiptist milli áranna. Kem-
ur fram að hann hafi verið um 9
milljónir árið 1997, rúmar 23 millj-
ónir árið 1998, rúmar 52 milljónir
árið 1999, um 30,4 milljónir árið
2000, um 48,5 milljónir árið 2001
og rúmar 36 milljónir árið 2002.
Undirbúningur fyrir byggingu álvers í Reyðarfirði
Heildarkostnaður
tæplega 200 milljónir
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl.
10.30 í dag. Á dagskrá verður
þriðja umræða um fjáraukalög og
þriðja umræða um fjárlög 2003.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagðist á Alþingi í gær ætla að drífa í
því að skipa nefnd sem hefði verndun
Þingvallaurriðans að markmiði, en
Alþingi samþykkti ályktun þessa
efnis í mars 1998. Kom þetta fram í
svari ráðherra við fyrirspurn Össur-
ar Skarphéðinssonar, formanns
Samfylkingarinnar, en Össur hefur
löngum beitt sér fyrir verndun Þing-
vallaurriðans.
Össur benti á að Þingvallaurriðinn
væri einstakur; í honum væru gen
sem yllu því að hann yrði seint kyn-
þroska og yrði ákaflega stór og gam-
all. Össur skýrði frá því að mann-
anna verk hefðu hins vegar leitt til
þess að urriðinn hefði verið í hættu
og að fyrir tíu árum hefði hann verið
við það að deyja út. Þá tókust menn á
um það hvernig vernda ætti urrið-
ann og á Alþingi árið 1998 var sam-
þykkt ályktun um að stofnuð yrði
nefnd um verndun urriðans, eins og
áður sagði. Spurði Össur hvernig
starfi nefndarinnar hefði miðað.
Gripið til ýmissa aðgerða
Í svari Davíðs kom fram að nefnd-
in hefði aldrei verið skipuð. Á hinn
bóginn hefði verið gripið til ýmissa
aðgerða til að vernda urriðann. Með-
al annars hefði verið stofnað til
tveggja rannsóknarverkefna sem
hefðu það m.a. að markmiði að rann-
saka hegðun og vistkerfi urriðans.
Þá kom m.a. fram í máli ráðherra að í
skoðun væri hjá Landsvirkjun í sam-
ráði við Veiðimálastofnun að gera
varanlegt skarð í stíflu í útfalli Þing-
vallavatns þar sem tryggt yrði lág-
marksrennsli og um leið sköpuð skil-
yrði til hrygningar urriðans ofan við
skarðið. Síðar í umræðunni tók Dav-
íð fram að hann myndi drífa í því að
stofna nefnd um verndun urriðans
og að það yrði gert í samráði við Öss-
ur Skarphéðinsson.
Nefnd um
verndun
Þingvalla-
urriðans
TEKJUR Íslenskra söfnunarkassa
sf. og Happdrættis Háskóla Íslands
af söfnunarkössum og happdrættis-
vélum voru samtals rúmir 2,5 millj-
arðar árið 2001 og rúmir 2,2 millj-
arðar árið 2000. Þetta kemur fram í
skriflegu svari dómsmálaráðherra,
Sólveigar Pétursdóttur, við fyrir-
spurn Rannveigar Guðmundsdóttur,
þingmanns Samfylkingarinnar, á Al-
þingi.
Í svarinu kemur fram að tekjur
Happdrættis HÍ vegna happdrætt-
isvéla hafi verið um 1,2 milljarðar á
síðasta ári en um 960 milljónir árið
2000. Tekjur Íslenskra söfnunar-
kassa af söfnunarkössum voru rúmir
1,3 milljarðar á síðasta ári og tæpir
1,3 milljarðar árið á undan.
Söfnunarkassar og
happdrættisvélar
Tekjur um
2,5 millj-
arðar á síð-
asta ári
LAGT hefur verið fram á Al-
þingi stjórnarfrumvarp þess
efnis að bifreiðar sem nota í til-
raunaskyni annan orkugjafa en
bensín, dísilolíu eða annað elds-
neyti unnið úr olíu verði und-
anþegnar greiðslu þungaskatts
í eitt ár, þ.e. frá 1. janúar 2003
til 31. desember 2003.
Í athugasemdum með frum-
varpinu segir að það sé lagt
fram með hliðsjón af því að enn
séu tilraunir með aðra orku-
gjafa en þá sem unnir eru úr ol-
íu skammt á veg komnar. „Því
er eðlilegt að veita þeim sem
stunda slíkar rannsóknir áfram
undanþágu frá greiðslu þunga-
skatts af ökutækjum sem knúin
eru með öðrum orkugjöfum en
þeim sem unnir eru úr olíu.“
Tímabund-
in undan-
þága frá
þunga-
skatti