Morgunblaðið - 05.12.2002, Blaðsíða 21
Eyjólfur Kristjánsson tónlist-
armaður og Viktor Arnar Ingólfsson
rithöfundur kynna nýútkomin verk
sín í Deiglunni, Kaupvangsstræti
annað kvöld, föstudagskvöldið 6.
desember, kl. 21.30.
Eyjólfur spilar og leikur lög af tón-
leikaplötu sinni, „Engan jazz hér“,
og Viktor Arnar fjallar um og les
upp úr glæpasögu sinni, „Flateyj-
argáta“. Þeir félagar árita verk sín í
Pennanum/Bókvali fyrr um daginn
eða frá kl. 16 til 18.
Á MORGUN
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 21
HEIMIR Gunnarsson, aðstoðar-
slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyr-
ar, fékk í hendur starfslokasamning
sl. föstudag og var honum jafnframt
tilkynnt að hann þyrfti ekki að mæta
meira til vinnu á slökkvistöðinni.
Heimir sagðist alls ekki sáttur við
þessar lyktir mála enda hefði hann
ekkert brotið af sér í starfi. Hann er
að láta lögfræðing skoða mál sitt,
enda þekkti hann ekki lagalega hlið
þess.
„Ég veit það bara að ég er látinn
fara án þess að nokkurn tíma hafi ver-
ið rætt við mig og aldrei hef ég fengið
starfslýsingu,“ sagði Heimir sem hef-
ur verið aðstoðarslökkviliðsstjóri í
tæp tvö ár. Hann vísaði að öðru leyti í
greinargerð sína sem hann sendi yf-
irstjórn bæjarins og bæjarfulltrúum.
Þar kemur m.a. fram að hann hafi
verið boðaður á fund með sviðsstjóra
tæknisviðs bæjarins og bæjarlög-
manni hinn 22. nóvember sl. þar sem
farið var yfir skýrslu um úttekt á
rekstri slökkviliðsins.
„Þegar hann (sviðsstjóri tækni-
sviðs – innskot blm.) var búinn að fara
yfir helstu atriði skýrslunnar kom
fram hjá honum að mér væri gefinn
kostur á að segja upp hjá SA eða að
þeir yrðu að segja mér upp. Ég spurð-
ist fyrir um hvort eitthvað kæmi fram
í úttektinni um mig sjálfan en hann
sagði svo ekki vera en sagði að það
væri ákveðið að segja mér upp ef ég
segði ekki upp sjálfur. Þar sem ég hef
ekki brotið af mér í starfi og ekki
fengið fullnægjandi leiðsögn um
hvernig ég átti að sinna starfi mínu,
hvað þá að ég hafi fengið starfslýs-
ingu, sætti ég mig ekki við að hverfa
úr starfi og mun ekki segja upp sjálf-
ur. Ég fer fram á að gegna áfram
starfi aðstoðarslökkviliðsstjóra í SA
eða að fá sambærilegt starf hjá Ak-
ureyrarbæ,“ segir Heimir í greinar-
gerð sinni.
Einnig kemur fram í greinargerð
Heimis, að samstarf hans við slökkvi-
liðsstjóra hefði verið án nokkurra
árekstra, aldrei hefði þeim orðið
sundurorða og að hann hefði sinnt
þeim störfum sem slökkviliðsstjóri
hefði falið honum. „En því miður hef-
ur hann ekki falið mér mörg verkefni
og aldrei hef ég fengið starfslýsingu á
því starfi sem ég á að gegna, hvorki
frá honum eða öðrum yfirmönnum
SA og aldrei hef ég gengið á móti
hans vilja í þeim málum sem við höf-
um fjallað um.“ Heimir segir jafn-
framt í greinargerðinni að hann hafi
átt gott samstarf við varðstjóra og
aðra starfsmenn liðsins sem og við-
skiptamenn SA. Heimir segist einu
sinni hafa verið kallaður til viðtals við
sviðsstjóra tæknisviðs, þar sem hann
hefði m.a. spurt um samskiptin og
hvernig staðið hefði verið að stjórnun
við brunann í Strýtu.
Eins og áður hefur komið fram
kom fram veruleg gagnrýni á stjórn-
un í úttekt á rekstri Slökkviliðs Ak-
ureyrar. Menn í stjórnunarstöðum
hafi ekki verið samstiga og mikil tog-
streita til staðar. Bæjaryfirvöld yrðu
að grípa inn í og leysa þetta mál, svo
hægt sé að fá starfsfrið í slökkviliðinu,
sagði m.a. í skýrslunni. Fram-
kvæmdaráð samþykkti í kjölfarið að-
gerðaráætlun sviðsstjóra tækni- og
umhverfissviðs, sem m.a. lýtur að því
að koma á breytingum í stjórnunarliði
slökkviliðsins.
Hörð gagnrýni kom
fram í bæjarstjórn
Málið var rætt í bæjarstjórn á
þriðjudag og þar kom fram hörð
gagnrýni frá Oktavíu Jóhannesdótt-
ur, Samfylkingunni, og Valgerði H.
Bjarnadóttur, Vinstri grænum. Val-
gerður sagði nauðsynlegt að bregðast
við slíkum úttektum og taka á málum.
Hins vegar sé afar sorglegt hvernig
hefði verið staðið að málum varðandi
uppsagnir á yfirmönnum og hún
sagðist heldur ekki skilja tilganginn
hjá yfirstjórn bæjarins með því að
ganga svona fram. Valgerður sagðist
vonast til að hægt yrði að laga það
sem úrskeiðis hefði farið og að tryggt
væri að ekki verði á mönnum brotið,
hvorki siðferðilega eða réttarfarslega.
Oktavía sagði málið nokkuð heitt
um þessar mundir og ekki að ástæðu-
lausu. Hún sagði viðbrögð bæjaryf-
irvalda gagnvart aðstoðarslökkvi-
liðsstjóra vera dæmalaus, enda hefði
hann aldrei fengið áminningu í starfi.
Hún sagði þessi viðbrögð ógeðfelld og
siðlaus, auk þess sem hún taldi þau
einnig ólögleg.
Jakob Björnsson, bæjarfulltrúi og
formaður framkvæmdaráðs, sagði að
ýmislegt jákvætt hefði komið fram í
úttektinni. Hins vegar hefðu komið
fram ýmsir þættir sem betur mættu
fara og liður í að bæta úr því var sú
ákvörðun sem framkvæmdaráð tók.
Jakob sagði það hastarlegt þegar
hreyfa þyrfti við fólki í starfi. Hann
sagðist þess þó fullviss að reynt yrði á
allan hátt að koma fram þá sem fyrir
því verða af sanngirni og að ekki
kæmi til þess að brjóta á mönnum lög
eða rétt.
Aðstoðarslökkviliðsstjóra afhentur starfslokasamningur
Var gert að segja upp
eða verða sagt upp
Benedikt S. Lafleur, myndlist-
armaður og rithöfundur, heldur
glermálunarnámskeið í kvöld og
annaðkvöld, 5.-6. desember, í Gall-
erí gersemi, Bláu könnunni á Ak-
ureyri, og stendur það frá kl. 18 til
22. Hægt er að mæta aðeins annað
kvöldið. Í kjölfarið verður haldin
glerlistasýning á sunnudag, 8. des-
ember, kl.14 á sama stað, þar sem
þátttakendur námskeiðsins geta
sýnt verk sín ásamt listamann-
inum.
Í DAG
SKAMMDEGIÐ á Akureyri er með
allra svartasta móti þessa dagana,
enda ekki snjókorn að sjá í bænum.
Ökumenn þurfa því fara mjög var-
lega, ekki síst gagnvart gangandi
vegfarendum. Stefán Baldursson
framkvæmdastjóri Strætisvagna
Akureyrar sagði að vagnstjórar
SVA hefðu miklar áhyggjur af
gangandi fólki, enda væru alltof fáir
með endurskinsmerki. Hann sagði
ástandið mjög slæmt og hefði sjald-
an verið verra.
SVA hefur því í samstarfi við
Sjóvá-Almennar farið í gefa fólki
endurskinsmerki, sem hægt er að
smeygja í fötin. „Við viljum endilega
hvetja fólk til þess að setja þessi
merki í sig og erum strax farnir á
sjá mun á fólki sem stendur á bið-
stöðvunum,“ sagði Stefán. Hann
sagði þetta ástand reyna mjög á
vagnstjóranna, sem væru verr á sig
komnir eftir daginn en eftir akstur í
mikilli hálku.
Þá fá allir nemdur í 1.–10. bekk í
grunnskólum Akureyrar afhent
endurskinsmerki í dag en alls eru
rúmlega 2.500 börn í grunnskólum
bæjarins. Áður hafði lögreglan af-
hent öllum kennurum og starfsfólki
skólanna endurskinsmerki. Um er
að ræða samstarfsverkefni lögregl-
unnar á Akureyri og Vífilfells og
munu lögreglumaður og starfsmað-
ur Vífilfells fara á milli skólanna og
afhenda merkin. Er það von þeirra
sem að verkefninu standa að börnin
lími endurskinsmerkin á yfirhafnir
eða skólatöskur, enda verði allir að
sjást. Þorsteinn Pétursson lögreglu-
maður bendir á að allir sem til þekki
viti að endurskinsmerkið geri fólk
fimm sinnum sýnilegra og að það
auki til muna öryggi gangandi veg-
farenda. Hann sagði jafnframt til
lítils að biðja börnin að bera end-
urskinsmerki ef þeir fullorðnu
gerðu það ekki. „Við erum jú fyr-
irmyndin.“
Allir verða að sjást með endurskinsmerki í skammdeginu
Vagnstjórar SVA
hafa miklar áhyggjur
Morgunblaðið/Kristján
Pétur Ringsted, sölustjóri Vífilfells, og Þorsteinn Pétursson lögreglumað-
ur með endurskinsmerki við stæðu af Svala. Grunnskólabörn á Akureyri fá
í dag afhent endurskinsmerki og Svala frá Vífilfelli.
LÖGREGLAN á Dalvík handtók sex
manns sl. mánudagskvöld vegna
gruns um fíkniefnamisferli. Við hand-
tökurnar fundust á fólkinu um 25 g af
hassi sem hald var lagt á. Þá var lagt
hald á rúmlega 50 þúsund krónur í
peningum vegna meintrar fíkniefna-
sölu og fjöldinn allur af tólum til
neyslu fíkniefna gerður upptækur.
Í tengslum við mál þetta var farið í
tvær húsleitir á Dalvík og einnig var
leitað í tveimur bifreiðum. Fíkniefna-
leitarhundur frá Akureyri var feng-
inn til aðstoðar við leitirnar. Lög-
reglumenn frá Akureyri og úr
Ólafsfirði aðstoðuðu við þetta mál
sem telst upplýst. Það verður sent
Sýslumannsembættinu á Akureyri til
frekari meðferðar, samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni á Dalvík.
Fíkniefnamisferli
á Dalvík
Sex manns
handteknir
Mikið verður um að vera í Laufási á
morgun, laugardaginn 7. desember,
þegar starfsmenn gamla bæjarins
og velunnarar hans í Laufáshópnum
taka til hendi við jólaundirbúninginn
inni í bænum og á stéttum úti.
Barnastund verður í kirkjunni kl.
13.30 sem séra Pétur Þórarinsson
stýrir. Á eftir verður gengið í gamla
bæinn þar sem ungir og gamlir sitja
við tóvinnu og hægt er að skoða
gömul jólatré, jólaskraut, leiki og
spil, fylgjast með kertagerð og
spjalla um jólin í gamla daga. Einnig
er gestum boðið að fylgjast með
laufabrauðsskurði, smakka á
hangikjöti og hitta nokkra ættingja
gömlu jólasveinanna sem eru á leið í
bæinn á undan jólasveinunum sjálf-
um en sá fyrsti þeirra, Giljagaur,
kemur ekki til manna fyrr en 12.
desember. Boðið verður upp á sopa
af heitu kúmenkaffi og í fínu stof-
unni verður lesið upp eitthvað gott
sem tengist jólunum. Þar verður líka
kveikt á kertunum á gamla jólatrénu
og margt fleira gert.
Í þjónustuhúsinu er svo hægt að
kaupa heitt kakó og smákökur. Jóla-
stússinu lýkur um kl. 15.30.
Á NÆSTUNNI