Morgunblaðið - 05.12.2002, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 05.12.2002, Blaðsíða 38
UMRÆÐAN 38 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ BORGARFULLTRÚAR Sjálf- stæðisflokksins lögðu fram tvær til- lögur á fundi borgarstjórnar 21. nóvember sl. Báðar tillögurnar lúta að skólamálum, önnur vegna stað- festra tilvika um neyslu og sölu fíkniefna í grunnskólum en hin snýr að ytra skipulagi skólamála. Tillög- urnar voru báðar samþykktar sam- hljóða í borgarstjórn og er þegar hafin vinna við að fylgja eftir fyrri samþykktinni. Hún er þó ekki til- efni skrifa minna að þessu sinni. Skólahverfi Við sjálfstæðismenn leggjum til að Reykjavíkurborg verði skipt í skólahverfi og er tilgangurinn að efla samstarf skólastjórnenda, kennara, foreldra og nemenda. Í hverju skólahverfi verði skólaráð með fulltrúum þessara aðila í stað fræðsluráðs og leikskólaráðs eins og nú er. Reykjavíkurborg er ein- ungis eitt skólahverfi en lögin heimila borgarstjórn að skipta henni í fleiri skólahverfi enda eru um 120 leik- og grunnskólar í borg- inni. Of mikil fjarlægð Nýlegar kannanir sýna að of mikil fjarlægð er á milli þeirra sem móta stefnuna í skólamálum borg- arinnar og þeirra sem vinna eiga eftir henni. Fræðsluráð Reykjavík- ur er skólanefnd samkvæmt lögum um grunnskóla frá 1995 og fer með málefni grunnskóla borgarinnar. Hún er því yfirstjórn þessa stóra og viðkvæma málaflokks. Skóla- nefndir í öðrum sveitarfélögum eru eðli málsins samkvæmt með færri skóla undir sínum verkahring. Þar eru mun meiri líkur á að skóla- nefndarmenn hafi farið í viðkom- andi skóla og eigi auðveldara með að sinna lögbundnu hlutverki sínu sem er m.a. að fylgjast með námi, kennslu og gerð skólamannvirkja í skólahverfinu og senda sveitar- stjórn tillögur til úrbóta. Við sem sitjum í fræðsluráði fáum að sjálf- sögðu upplýsingar frá embættis- mönnum Fræðslumiðstöðvar, t.d. yfirlit yfir vetrarleyfi í skólum og upplýsingar um skólasetningu og skólaslit. En við getum engan veg- inn sagt að við þekkjum það starf sem fram fer í öllum skólum borg- arinnar. Ég hef það þó líklega fram yfir aðra fræðsluráðsfulltrúa að ég hafði áður en ég tók þar sæti heim- sótt flesta grunnskóla borgarinnar og yfir 80% grunnskóla á landinu öllu. Ég sannfærð um að allir í fræðsluráði vilja fara að ákvæðum grunnskólalaga um hlutverk skóla- nefnda en fullyrði jafnframt að eins og málum er nú háttað er okkur það illkleift. Fræðsluráð skortir nauðsynlega yfirsýn til að sinna hlutverki sínu sem stjórn og eft- irlitsaðili með grunnskólum borg- arinnar. Samstarf heimila og skóla Sem kennari veit ég hve gott samband við foreldra nemenda skiptir miklu máli. Gott og jákvætt umtal heima fyrir skilar sér inn í skólastofuna. Í lögum um grunn- skóla og Aðalnámskrá grunnskóla birtist stefna ríkisins um samstarf heimila og skóla. Í Aðalnámskrá segir að frumábyrgð á uppeldi og menntun hvíli á foreldrum en hlut- ur grunnskólans felist einkum í því að sjá nemendum fyrir formlegri fræðslu og taka þátt í félagslegri mótun þeirra. „Þetta sameiginlega verkefni heimila og skóla kallar á náin tengsl, gagnkvæmt traust, gagnkvæma upplýsingamiðlun, samábyrgð og samvinnu.“ Auðvitað snýst samstarf heimila og skóla að stórum hluta um ein- staka nemendur, en flutningur grunnskóla frá ríki til sveitarfélaga gaf nýja möguleika á þessu sam- starfi. Björn Bjarnason flutti erindi á foreldraþingi Heimilis og skóla í desember 2001 í tíð sinni sem menntamálaráðherra og sagði þá m.a.: „Með flutningi grunnskólans til sveitarfélaganna hefur hlutverk foreldra gagnvart skólanum tekið á sig nýja mynd. Þar vísa ég ekki að- eins til nýrra laga um grunnskólann og ákvæða þar um hlut foreldra heldur einnig þeirrar staðreyndar, að með flutningnum var valdinu dreift. Skólarnir standa nú stjórn- arfarslega nær borgurunum en áð- ur. Þeir eiga því að geta haft meira um þá að segja.“ Fræðsluráð Reykjavíkur og þær ákvarðanir sem þar eru teknar eru hins vegar langt frá því að vera miklu nær borgurunum en á meðan málaflokk- urinn var alfarið í höndum ríkisins. Við höfum núna tækifæri og raun- hæfa möguleika til að stíga næsta skref og skipta Reykjavík í skóla- hverfi þannig að um raunverulega valddreifingu verði að ræða og við getum kinnroðalaust sagt að skól- inn sé nær borgurunum en áður. Nánari tengsl leik- og grunnskóla Tillagan felur einnig í sér að leik- skólaráð og fræðsluráð verði sam- einuð en slík heimild liggur fyrir í sveitarstjórnarlögum. Er þarna kærkomið tækifæri til að efla allt samstarf á milli skólastiganna og eyða þeirri tortryggni sem því mið- ur gætir stundum þeirra á milli. Góðar undirtektir SAMFOK, samband foreldra- félaga og foreldraráða í grunnskól- um Reykjavíkur, vill að skoðað verði af alvöru að skólanefnd verði í hverjum skóla eða borgarhluta því markmiðið sé að stytta fjarlægðina frá skólanefnd að hverjum skóla. Á fundi fræðsluráðs 25. nóvember sl. tóku fulltrúar kennara einnig undir þá hugmynd að skólanefndum verði fjölgað af því að þar með aukist möguleikar kennara á að hafa áhrif á stjórn skólamála. Stjórnkerfis- nefnd borgarinnar var falið að vinna að frekari úrvinnslu tillög- unnar og vænti ég mikils af henni. Skilvirkt skipu- lag skólamála Eftir Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur Höfundur er borgarfulltrúi og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fræðsluráði. „Tillagan fel- ur einnig í sér að leik- skólaráð og fræðsluráð verði sameinuð.“ KIRKJUGARÐASAMBAND Ís- lands hefur ráðist í það verkefni að safna saman öllum legstaðaskrám á landinu og skrá þær inn á einn gagnabanka og gengur sú vinna vel. Vefurinn gardur.is hefur verið settur á laggirnar og eru nú komin tæplega 80 þúsund nöfn látinna inn á gagna- bankann og eru þau nöfn frá rúm- lega 90 kirkjugörðum víðs vegar af landinu og eru skrárnar frá mismun- andi tíma eftir því hvaða kirkjugarð- ur á í hlut. Í legstaðaskránni er hægt að leita á marga vegu. Hægt er að leita í ákveðnum garði, eftir nafni, fæðingardegi o.s.frv. Ef leitað er eft- ir nánari upplýsingum um einstak- linginn má smella á nafn viðkomandi og fást þá ítarlegri upplýsingar s.s. legstaður, útfarardagur og kort af kirkjugarðinum. Við þróun vefjarins kom sú hug- mynd upp að gefa aðstandendum kost á að senda inn ítarefni um látna ættingja sína, ásamt mynd eða myndum. Þessari hugmynd hefur verið vel tekið og hefur Kirkjugarða- sambandið samið við Morgunblaðið um að það láti í té helstu ævidrög einstaklinga og mynd, ef aðstand- endur óska þess. Útfararstjórar og prestar hafa og sýnt þessu framtaki áhuga og samið hefur verið við þá um að kynna þessa nýju þjónustu við undirbúning útfara. Hversu hratt það gengur ræðst af því hvernig heimamenn bregðast við. Innan skamms tíma mun gardur.is væntanlega verða gríðarlega verð- mætt gagnasafn um látna Íslend- inga, einskonar þjóðskrá látinna. Það er von stjórnenda Kirkju- garðasambandsins að Íslendingar taki þessu framtaki opnum örmum og leggi sig fram við að koma inn upplýsingum um ástvini sína og for- feður. Allar upplýsingar er að finna á gardur.is og á skrifstofu Kirkju- garða Reykjavíkur í síma 585-2700 og á skrifstofu Kirkjugarða Akur- eyrar í síma 462-2613. Látið minn- inguna lifa! Eftir Þórstein Ragnarsson Höfundur er formaður Kirkjugarða- sambandsins. „Kirkju- garða- sambandið mun á næstu mánuðum skrá alla látna á landinu frá 1. janúar 2000 inn í gagnabanka.“ TÍMA Íslendingar ekki að sinna eigin menningararfi? Vandræða- gangi stjórnvalda vegna Þjóðminja- safnsins ætlar seint að linna. Fyrir fjórum árum, þegar loks var búið að gera við húsið að utan svo það var orðið vatns- og vindhelt, var gripum safnsins komið fyrir í framtíðar- geymslum. Yfirvöld sáu hinsvegar ekki aðra leið til að brunaverja þetta löngu tímabæra húsnæði en að klípa tugi miljóna af byggingarfé safnsins. Sama ár var starfsliðinu skipað burt úr safnhúsinu því nú átti að loks að endurbæta þessa lýðveldisgjöf þjóð- arinnar að innan og setja upp nýja grunnsýningu með úrvali þessa menningararfs. Ætlunin var að ljúka því starfi á árunum 1998 og 1999 opna húsið aftur á menningarárinu 2000. Framkvæmdasýsla ríkisins skipaði sérstaka byggingarnefnd ofhlaðins fólks til að hafa umsjón með verkinu í stað þess að láta stjórn safnsins sjálfs annast það sem vitaskuld hefði haft meira vit og áhuga en aðrir til að knýja verkið áfram. Eftir fjögur ár er enn ekki búið að ganga frá húsinu að innan, en ótaldir verktakar, nefndir og arkitektar virðast hafa fengið að nýta verkefnið sem mjólkurkú. Þegar húsið verður loks afhent, tekur minnst sex mánuði, jafnvel heilt ár, að koma sýningargripum fyrir með öllum þeim tæknibúnaði sem nútím- inn krefst. Þvílíkt ráðslag er ekki einsdæmi í breytni stjórnvalda við menningar- arfinn eftir að Ísland varð fullvalda ríki. Sem dæmi skal tekin útgáfa Ís- lensks fornbréfasafns, eins mikilvæg- asta heimildabrunns um sögu lands og þjóðar. Að frumkvæði Jóns Sig- urðssonar var því verkefni hleypt af stokkunum árið 1857, og fram til full- veldis voru gefin út tíu hnausþykk bindi, alls á níunda þúsund blaðsíður. Á árunum milli stríða tókst enn að gefa út fjögur bindi en aðeins tvö síð- an Ísland varð lýðveldi og ekkert frá 1972 eftir að Ísland varð eitt af efn- uðustu ríkjum heims miðað við höfða- tölu. Nokkur bindi hafa þó legið hálfbúin til prentunar í hartnær átta áratugi frá hendi Jóns Þorkelssonar fyrrum þjóðskjalavarðar. Hver er skýring þess að unnt var að vinna að slíku stórvirki meðan Ís- lendingar voru fátækir, en ekki eftir að þeir urðu velmegandi? Hún virðist helst sú að áður komu danskir pen- ingar til verkefnisins, en íslensk stjórnvöld tímdu ekki að halda því áfram eftir að þeim óx fiskur um hrygg. Þetta á við á fleiri sviðum. Ís- lendingar reistu af litlum efnum Safnahúsið fallega við Hverfisgötu, og dálítill kippur kom við stofnun lýð- veldisins árið 1944 þegar Alþingi ákvað að reisa sérstakt hús yfir Þjóð- minjasafnið. Starfsemin innan þess húss hefur á hinn bóginn lengstum verið hornreka í kerfinu. Stjórnvöld hafa önnur gæluverkefni. Nýjasta fjárlagafrumvarp virðist ætla að hökta í sama farinu. Undirritaður hefur aldrei verið í hópi þeirra sem langar til að ganga inn í eitthvert púkalegt stórríki á borð við ESB eða USA með þeirri andlegu þröngsýni sem almenningur í slíkum fjölveldum virðist einatt of- urseldur. En sú undarlega hugsun skýtur samt óneitanlega upp kollin- um hvort þetta sé kannski að verða helsta leiðin til að unnt sé að sinna eigin menningararfi af myndarskap. Þarf ESB til að opna Þjóðminjasafnið? Eftir Árna Björnsson „Hver er skýr- ing þess að unnt var að vinna að slíku stórvirki með- an Íslendingar voru fá- tækir, en ekki eftir að þeir urðu velmegandi?“ Höfundur er menningarfræðingur. „VIÐ Íslendingar erum þjóð sem búum við mikla velmegun. Fólk hefur efni á því að leyfa sér margt.“ Þannig komst leiðarahöfundur Morgunblaðs- ins að orði laugardaginn 30. nóvem- ber sl. og dregur af því þá ályktun að auka beri einkarekstur í heilbrigðis- kerfinu og gefa þannig þeim sem eru aflögufærir kost á að skjótast fram fyrir biðlistana í heilbrigðiskerfinu. Tilefni þessara hugleiðinga leiðara- höfundar Morgunblaðsins var ræða formanns Framsóknarflokksins, Halldórs Ásgrímssonar, á miðstjórn- arfundi flokksins hinn 29. nóvember sl. Í ræðu sinni hafnaði Halldór Ás- grímsson tvískiptu heilbrigðiskerfi sem mismunaði fólki á grundvelli efnahags eða félagslegrar stöðu. Þessi skoðun Halldórs er raunar í góðu samræmi við þá þjóðarsátt sem ríkt hefur hér á landi um að aðgangur að heilbrigðisþjónustunni eigi að vera jafn og óháður þáttum á borð við efnahag eða búsetu. Það er varla ann- ars að vænta en að ábyrgir stjórn- málamenn telji rétt að fara varlega áður en hróflað er við þeirri sátt, sem er í raun grundvöllur þess velferðar- kerfis sem við Íslendingar búum við. Það er hins vegar ljóst af skrifum Morgunblaðsins að blaðið telur að nægt rými sé fyrir einkarekna heil- brigðisþjónustu hér á landi, til hliðar við þá sem rekin er af sameiginlegum sjóðum landsmanna. En getum við verið viss um að svo sé? Vissulega býr þjóðin við velmegun. Eigi að síður eru kjör fólksins misjöfn. Margir Íslend- ingar geta leyft sér ýmsan munað, á borð við tíðar utanlandsferðir. En því miður er stór hópur fólks sem býr við mun krappari kjör og lítt aflögufært. Þetta fólk hefur ekki síður þörf fyrir greiðan aðgang að hágæðaheilbrigð- isþjónustu. Morgunblaðið varpar fram nokkr- um spurningum til Framsóknar- flokksins í áðurnefndum leiðara sín- um. Þessar spurningar eru allar mikilvægar og full ástæða til að Framsóknarflokkurinn glími við þær, eins og raunar stjórnmálaflokkarnir allir. En í ljósi áhuga blaðsins á heil- brigðismálum er ekki síður ástæða til þess að spyrja Morgunblaðið nokk- urra spurninga: Telur Morgunblaðið réttlátt að hin- ir efnameiri geti borgað sig framhjá biðlistunum á meðan hinir efnaminni í samfélagi þurfa að híma þar áfram? Telur Morgunblaðið að þeir sem eru aflögufærir í samfélaginu eigi að hafa greiðari aðgang að heimilislækn- um en þeir sem eru síður aflögufær- ir? Telur Morgunblaðið að aukin þátt- taka sjúklinga í rekstrarkostnaði sjúkrahúsanna sé heppileg leið til að tryggja viðunandi rekstrargrundvöll spítalanna í landinu? Hver telur Morgunblaðið að sé eðlileg hlutdeild almannatrygginga í greiðslu lyfjakostnaðar? Að lokum ein spurning. Hvernig rökstyður Morgunblaðið þá fullyrð- ingu sína að aukinn einkarekstur í heilbrigðisþjónustunni muni ekki raska „því jafnvægi jafnaðar og vel- ferðar, sem náðst hefur í íslensku samfélagi“? Með fyrirfram þökk fyrir svörin. Eftir Finn Þór Birgisson Höfundur er lögfræðingur. „En í ljósi áhuga blaðs- ins á heil- brigðismál- um er ekki síður ástæða til þess að spyrja Morgunblaðið nokkurra spurninga.“ Morgunblaðið og heil- brigðismál
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.