Morgunblaðið - 05.12.2002, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 05.12.2002, Blaðsíða 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 47 Veturinn 1949–1950 dvaldi hópur ungra stúlkna við nám í Kvennaskólanum á Blönduósi sem var húsmæðraskóli, einn af nokkrum á landinu þá. Við vorum 41 talsins sem undirbjuggum okkur þennan vetur fyrir væntanlegt hús- móðurstarf. Ein af þessum ungu stúlkum var Elísabet Ólafsdóttir, eða Ebbil eins og við skólasystur hennar kölluðum hana alltaf. Nú er Ebbil horfin frá okkur og jafnframt búin að fá hvíld frá veikindum þeim sem hún hefur glímt við síðustu ár. ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR ✝ Elísabet Ólafs-dóttir fæddist í Kothvammi í Kirkju- hvammshreppi í V-Hún. 10. júlí 1930. Hún lést 13. október síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Hvammstanga- kirkju 18. október. Ebbil átti gott ævi- starf og hafa aðrir mér fróðari skrifað um það en mig langar til að þakka henni skemmti- lega samveru í Kvennó og öll þau skipti önnur sem við höfum hist. Kvennaskólinn á Blönduósi var heima- vistarskóli, en það seg- ir sína sögu um að nemendur kynnast betur en ella. Okkar hópur hefur að stórum hluta komið saman á nokkurra ára fresti til að rifja upp góðar minningar og fræðast hver um aðra. Síðast þegar við komum saman var nálægt 50 ára afmælinu og hittumst við rúm- lega 20 talsins í Borgarfirði síðast í apríl árið 2000. Ebbil kom eins og alltaf ef hún mögulega gat. En hún sagði við mig: Ása, heldur þú að við eigum eftir að koma svona saman aftur? Kannski hefur hún fundið meira fyrir veikindum sínum sem þá voru byrjuð. Það var oft glatt á hjalla í Kvennaskólanum. Eflaust höfum við tekið námið nokkuð alvarlega, en það var samt alltaf tími til að huga að einhverju léttara. Eitt af því var að við mynduðum sjö saman svolítinn sönghóp. Þar var Ebbil auðvitað með. Það voru reyndar ekki allar sammála á æfingunum hvorki með lagaval né nafn á hóp- inn en allar sáttar við nafnið „Sjö- stjarnan“ þegar stungið var upp á því. Við sungum við öll tækifæri sem gáfust innan skólans og jafnvel ut- an en oftast var þó mest gaman á æfingunum sjálfum. Ebbil var alltaf svo glöð og já- kvæð og smitaði út frá sér. Blessuð sé minning hennar. Nú gengur hún á vit nýrra heima og mætir þar þeim skólasystrum okkar sem þangað eru farnar á undan henni. Blessuð sé minning þeirra allra. Frá okkur öllum skólasystrunum sem eftir lifa kemur þakklæti fyrir alla samveru efst upp í hugann. Við sendum Jakobi, börnunum þeirra og fjölskyldum innilegar samúðarkveðjur. Ása Marinósdóttir. Lítill heilbrigður drengur í móðurkviði bíður þess að líta aug- um hinn stóra heim. Eftir aðeins mánuð mun hann í heiminn borinn, jólabarn foreldra sinna og verðandi litli bróðir tveggja bræðra sem bíða spenntir eftir að líta hann augum. Til að allt sé öruggt mætir móðirin í reglubundna skoðun. En hörmuleg mistök verða við skoð- unina og af þeim sökum verður nauðsynlegt að fjarlægja barnið úr móðurkviði. Við tekur barátta lítils magnvana líkama upp á líf og dauða. Baráttan er tvísýn, gefnar eru vonir sem síðar verða að engu. Örstutt ævi sem markaðist af baráttu upp á líf og dauða er töpuð. Dauðinn hefur hrifið á brott lítinn augastein sem fengið hafði nafnið Hermann Kári, skírður í höfuðið á afa sem átti 12 barna láni að fagna sem öll lifa. Eftir situr fjölskyldan harmi slegin í sorg sinni. Tilhlökkun og eftirvænting horfin. Sorgin situr eftir. Biturleiki og óteljandi spurningar einnig. Hér hefur orðið óbætanlegur skaði. Það verður aldrei hægt fyrir fjölskyld- una að sætta sig við það sem gerðist. Hvernig gat svona nokkuð gerst á einu fullkomnasta sjúkrahúsi Ís- lendinga? Bestu tæki og færustu læknar duga skammt þegar hand- vömm verður. Í þessu máli er eng- inn að skorast undan ábyrgð. En hver er ábyrgðin í raun? Hver er ábyrgð læknanna? Og hvað tekur við? Mér er til efs að nokkrir foreldrar HERMANN KÁRI HELGASON ✝ Hermann KáriHelgason fædd- ist á LSH við Hring- braut í Reykjavík 8. nóvember síðastlið- inn. Hann andaðist á sama stað 12. nóvem- ber og var útför hans gerð í kyrrþey 20. nóvember. myndu láta við slíkt sitja öðruvísi en að leita réttar síns. En hver er hann? Jú, að kæra til landlæknis- embættis en þar bíða um hundrað mál af- greiðslu. Framundan er því ekki aðeins að reyna að vinna úr gríð- arlegri sorg, heldur einnig að leita réttar síns í frumskógi lag- anna. Því mun fylgja síendurtekin upprifjun á því sem gerðist og aldrei átti að gerast. Okkur er kennt að allt í lífinu eigi sinn tilgang. Oft getur manni orðið erfitt að skilja hann, sérstaklega við ótímabær dauðsföll og sér í lagi þeg- ar börn eru hrifin úr faðmi foreldra. En það er sama hvernig maður reynir, manni er útilokað að sjá nokkurn tilgang í mjög svo ótíma- bærum dauða þessa litla drengs. Ég bið þess að fjölskyldan, Helgi og Björk og synirnir, Ólafur Örn og Guðbrandur Óli, fái styrk til að tak- ast á við þessa erfiðu sorg. Enn fremur vil ég beina því til þeirra sem valda svo hörmulegu slysi að þeir leitist við að rannsaka hvað fór úrskeiðis og hvers vegna. Svona má aldrei gerast aftur. Ef tryggt væri að slíkt gerðist aldrei aftur, má a.m.k. finna þann tilgang með hetjulegri baráttu þessa litla manns á hans örstuttu ævi. Eyþór Eðvarðsson. MINNINGARGREINUM þarf að fylgja formáli með upp- lýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi að- eins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinun- um sjálfum. Formáli minn- ingargreina AFMÆLIS- og minningar- greinum er hægt að skila í tölvupósti (netfangið er minn- ing@mbl.is, svar er sent sjálf- virkt um leið og grein hefur borist), á disklingi eða í vélrit- uðu handriti. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að síma- númer höfundar og/eða send- anda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Bréfsími fyrir minn- ingargreinar er 569 1115. Ekki er tekið við handskrifuðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfi- legri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmark- ast við eitt til þrjú erindi. Einn- ig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5– 15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina Eiginmaður minn og vinur, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURLINNI SIGURLINNASON, verður jarðsunginn frá Garðakirkju á morgun, föstudaginn 6. desember, kl. 13.30. Jarðsett verður að Görðum. Ingibjörg Einarsdóttir, Sigurlinni Sigurlinnason, Jóhanna Kondrup, Þórhildur Ólafs, Gunnþór Ingason, Finnur Þ. Gunnþórsson, Þórður Þ. Gunnþórsson, Bergur Þ. Gunnþórsson og aðrir vandamenn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ARTHUR V. O'BRIEN, Klapparstíg 1, Reykjavík, sem lést mánudaginn 25. nóvember, verður jarðsunginn frá Landakotskirkju föstudaginn 6. desember kl. 13.30. Sigríður O'Brien, Richard O'Brien, Guðrún Ottósdóttir, Theresa A. O'Brien, Sigfús Jóhannesson og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín, dóttir, móðir, tengda- móðir og amma, ANNA SIGURVEIG ÓLADÓTTIR, Háaleitisbraut 18, Reykjavík, lést á Landspítalanum Hringbraut þriðjudaginn 19. nóvember. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. Sveinn B. Sigurgeirsson, Óli A. Guðlaugsson, Sólveig Jónsdóttir, Birgir Óli Sveinsson, Rósa Símonardóttir, Gunnar Örn, Sveinn Óli, Hrannar Marel, Birgir Snær, Óttar Sindri. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, KRISTRÚN KARLSDÓTTIR, Litlahvammi 2, Húsavík, sem lést þriðjudaginn 26. nóvember, verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 7. desember kl. 14.00. Ásmundur Bjarnason, Karl Ásmundsson, Bergþóra Guðbjörnsdóttir, Bergþóra Ásmundsdóttir, Arnar Guðlaugsson, Bjarni Ásmundsson, Jóhanna Ásmundsdóttir, Erling Ó. Aðalsteinsson, Anna Ásmundsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Sigrún Ásmundsdóttir, Kjartan Ásmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐLAUGUR GUÐMUNDSSON kaupmaður, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju mánu- daginn 9. desember kl. 13.30. Kristín Þorsteinsdóttir, Margrét Guðlaugsdóttir, Friðgeir Björnsson, Sigrún Guðlaugsdóttir, Gunnlaugur Gunnarsson, Guðmunda Hrönn Guðlaugsdóttir, Kristín, Guðlaug og Hulda Margrét.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.