Morgunblaðið - 05.12.2002, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 05.12.2002, Blaðsíða 41
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 41 VÍSINDAMENN, við Háskóla Ís- lands, hafa brugðist reiðir við vanga- veltum Valgerðar Sverrisdóttur iðn- aðarráðherra um hvort pólitískar skoðanir geti haft áhrif á rannsókn- arniðurstöður í virkjanamálum. „Vís- indaskáldsaga“ sagði einn. „Alvar- legt“ sagði annar. Og stjórnarand- stöðuveslingarnir kveina hástöfum, eins og venjulega. Saka ráðherrann um alls konar óheilindi. Það er eins og stöðuheitið vísindamaður geri allt rétt sem það fólk segir og gerir. En hvað? Eru vísindamenn eitthvað heilagari enn annað fólk? Ég minnist þess þegar Davíð Odds- son, þáverandi borgarstjóri, ákvað að byggja ráðhús í Tjörninni. Þá trylltist vinstri vængurinn og þar á meðal sumir vísindamenn. Þeir héldu því fram, meðal annars, að með þessu væri verið að drepa allt lífríki Tjarn- arinnar. Þetta sögðu þeir í krafti menntunar sinnar og vísinda. Og hvað? Lífríkið er slíkt, í dag, að núver- andi borgarstjóri í Reykjavík ákvað að reyna að svelta hluta af því burt. Brabra. Úti um allan heim eru vinstrisinn- aðir vísindamenn sem berjast hat- ramlega gegn öllum framförum, ef þær snerta lífríki jarðarinnar á ein- hvern hátt. Það gera þeir með góðum stuðningi pólitíkusa af vinstrivængn- um. Meðal þessara vísindamanna eru þeir sem lifa á því góðu lífi að styðja samtök eins og Grænfriðunga í bar- áttu þeirra gegn selveiðum, og hval- veiðum. Og bráðum þorskveiðum. Og yfirleitt öllu því sem úr sjónum kem- ur. Fyrir nokkrum árum sá ég frétta- mynd frá Bandaríkjunum, þar sem bátasjómenn voru að verða gjald- þrota vegna þess að það lágu nokkrir selir á bátabryggjunni þeirra. Sjó- mennirnir máttu ekki stugga við sel- unum, þá hefði þeim verið stungið í steininn. Það mátti ekki reka selina í sjóinn, þar sem þeir eiga heima. Þetta er hluti af vísindum dagsins í dag. Fjöldinn allur af vísindamönnum hefur haft að atvinnu í marga áratugi að spá heimsendi: „Maturinn verður búinn eftir einhverja áratugi, vatnið verður búið eftir einhverja áratugi,“ og þar fram eftir götunum. Allt hefur þetta reynst bull, en sömu vísinda- menn eru enn við sama heygarðs- hornið. Þeir hafa bara fært heims- endaspár sínar nokkra áratugi fram í tímann. Hér á landi er verið að spá heims- endi ef hluti af hálendinu verður tek- inn undir virkjanir. Þá sé verið að leggja í rúst framtíð barna okkar. Það er talað um „stundargróða“ þegar rætt er um virkjanir sem eiga að starfa í áratugi eða jafnvel árhundr- uð, með einhverjum endurbótum. Á þessum áratugum eða árhundruðum munu þessar virkjanir skila hundruð- um milljarða króna í þjóðarbúið. Ætli það sé ekki aðeins meira en þær fáu þúsundir skila í bensínskatt, sem fara upp á hálendið öðru hvoru. Ég var að hluta til alinn upp í sveit. Ég sótti beljurnar austur fyrir Eystri hæð, um mela og móa, og framhjá fal- legum gljúfrum og fossum. Ég elska þetta land. En við eigum tugþúsundir ferkílómetra af melum og móum, og þúsundir gljúfra og fossa. Ég er löngu orðinn afi. Og ég er alveg til í að sökkva einhverjum af þessum melum og móum og gljúfrum og fossum, til þess að afadúllurnar mínar geti átt betra líf. Og börnin þeirra og barna- börnin þeirra líka. Og hvað er eigin- lega svona ljótt við stöðuvötn? Hvað vísindamenn snertir rífast þeir innbyrðist, um sín mál, eins og hundar og kettir og bera verstu sakir og svívirðingar hver á annan. Jafnoft og ekki út af mismunandi pólitískum skoðunum. Er iðnaðarráðherra lýð- veldisins bannað að velta því fyrir sér? Eru vísindamenn heilagir? Eftir Óla Tynes „Ég minnist þess þegar Davíð Odds- son, þáver- andi borg- arstjóri, ákvað að byggja ráðhús í Tjörn- inni. Þá trylltist vinstri vængurinn og þar á meðal sumir vísinda- menn.“ Höfundur er fréttamaður. Ókeypis lögfræðiaðstoð öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012 frá okt.-apríl Orator, félag laganema Kynnum OROBLU jólavörurnar í dag kl 13-17 í Lyfju Lágmúla, á morgun kl. 14-18 í Lyfju Smáralind, laugardag kl. 13-17 í Lyfju Laugavegi. Kaupauki ef verslað er tvennt frá Oroblu. Skrefi framar Sokkar, sokkabuxur, undirföt. oroblu@islensk-erlenda.is www.lyfja.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.