Morgunblaðið - 05.12.2002, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 05.12.2002, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 55 DAGBÓK Glæsilegur sparifatnaður Opið laugardag frá kl. 10-16, sunnudag frá kl. 13-17. Peysur og pils Bankastræti 11 • sími 551 3930 20% afsláttur af öllum yfirhöfnum VINNUFATABÚÐIN Laugavegi 76, s. 551 5425 Kynning í dag, fimmtudag 5. desember frá kl. 14-18 í Grafarvogsapóteki og Snyrtivöruversluninni Gullbrá, Nóatúni 17. Mikið úrval af vönduðum ítölskum bolum úr ull-silki, ull-bómull og ull-microfibra frá Vajolet. Einnig gott úrval af frábærum Vajolet nærfatnaði úr bómull og microfibra. 20% kynningarafsláttur STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake BOGMAÐUR Afmælisbörn dagsins: Þú ert glaðlyndur og vina- margur en hættir til að vera með of mörg járn í eldinum í einu. Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Einhver ættingi þinn bank- ar upp á og er stútfullur af nýjum og spennandi frétt- um. Þú kemst að leyndar- málum í dag. Naut (20. apríl - 20. maí)  Sýndu þolinmæði og þá mun allt leysast farsæl- lega. Það á jafnt við um persónuleg mál sem önnur. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú skalt leggja harðar að þér í vinnu til þess að geta slakað betur á þegar heim er komið. Nýttu tækifærið. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þótt vinir þínir vilji ekki umsvifalaust fallast á rök- semdir þínar er engin ástæða fyrir þig til að bregðast illa við. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ert friðsæll og í góðu jafnvægi og hefur því góð áhrif á alla í kringum þig. Umburðarlyndi þitt hefur aukist og þú finnur til vel- vildar í garð annarra. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú verður að létta ein- hverjum verkefnum af þér, ef ekki á illa að fara. Veldu þér því góða samstarfs- menn ef þú vilt ná ein- hverjum árangri. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú ættir að setjast niður með þínum nánustu og fara í gegn um málin, sérstak- lega hvaða væntingar þið hafið hvert um annað. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Óvænt rómantískt daður við einhvern leiðir þig í vandræði. Leitaðu þér hjálpar svo þú megir kom- ast aftur á þinn stað í líf- inu. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Sköpunarhæfileikar þínir eru í hámarki og þú þarft að finna þeim útrás. Gefðu þér tíma til þess. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú mátt ekki missa móð- inn, þótt eitthvað blási á móti. Þú getur komið ýmsu í verk ef þú bara hefur áhuga á því. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Láttu ekki aðra hrifsa til sín það sem í raun er þinn hlutur. Ekki lána peninga eða persónulega hluti í dag. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það kemur upp ágreining- ur milli ástvina sem þarf að leysa hið snarasta. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Árnað heilla 60 ÁRA afmæli. Laugar-daginn 7. desember verður Guðmundur Hall- varðsson, alþingismaður og formaður Sjómannadags- ráðs, sextugur. Af því tilefni taka hann og eiginkona hans, María Óladóttir, á móti gest- um í Ými, Félagsheimili Karlakórs Reykjavíkur við Skógarhlíð, á afmælisdaginn 7. des. kl. 17–19. 90 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 5. des- ember, er níræð Laufey Stefánsdóttir frá Munka- þverá, Dvalarheimilinu Hlíð, Austurbyggð 17, Ak- ureyri. Í tilefni af því býður hún ættingjum og vinum í kaffi í hátíðarsalnum á Hlíð laugardaginn 7. desember nk. frá kl. 15-17. Ljósmynd: Sigríður Bachmann. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 31. ágúst sl. í Lága- fellskirkju af sr. Guðnýju Hallgrímsdóttur þau Hug- rún Ósk Ólafsdóttir og Rún- ar Gíslason, til heimilis að Klapparhlíð 24, Mosfellsbæ. Ljósmynd: Sigríður Bachmann. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 17. ágúst í Akranes- kirkju af sr. Eðvarði Ing- ólfssyni þau Kristín Sveins- dóttir og Einar Viðarsson, til heimilis að Háholti 32, Akranesi. 1. c4 c6 2. e4 d5 3. exd5 Rf6 4. Da4 e6 5. dxe6 Bc5 6. Rf3 Rg4 7. d4 Bxd4 8. Rxd4 Dxd4 9. Dc2 Ra6 10. Ra3 Bxe6 11. h3 Rb4 12. Dd2 De4+ 13. Be2 Dxg2 14. Hf1 Rh2 15. Dxb4 O- O-O 16. Rb5 cxb5 17. Bf4 Staðan kom upp á þýska meistaramótinu sem er nýlokið. Thomas Luther (2538) hafði svart gegn Ro- bert Huebner (2640). 17... Dxf1+! 18. Bxf1 Rf3+ 19. Ke2 Rd4+ 20. Kd2 20. Ke1 var enn verra vegna 20...Rc2+ og svartur verður hróki yfir. Í framhaldinu fær svartur einnig gjörunnið tafl. 20... Rc6+ 21. Dd6 Hxd6+ 22. Bxd6 Bxc4 23. Kc3 Hd8 24. Bf4 Bxf1 25. Hxf1 b4+ 26. Kc2 Hd5 27. Be3 Kd7 28. Hg1 g6 29. Hg4 a5 30. Hh4 h5 31. Hf4 f5 32. h4 b5 33. Hf3 Rd4+ 34. Bxd4 Hxd4 35. Hd3 Hxd3 36. Kxd3 g5 37. hxg5 h4 38. Ke2 f4 39. f3 Ke6 40. Kf2 Kf5 41. Kg2 Kxg5 42. Kh3 Kh5 43. Kg2 Kg6 44. Kh2 Kf6 45. Kh3 Ke5 46. Kxh4 Kd4 og hvítur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Í BRIDSSÖGUNNI er að finna margar atlögur að sterkum þrílita höndum, enda eru þess háttar spil erfið til frásagnar í flestum kerfum. Ítalir riðu á vaðið með því að taka tvær opn- anir í Roman-kerfinu undir þrílita hendur, bæði tvö lauf og tvo tígla. Í sumum út- gáfum af Precision er að finna sérhannaðar leiðir til að sýna 4-4-4-1 eftir sterka laufopnun, og á árum áður var algengt að Standard- spilarar nýttu Multi tveggja tígla opnunina í þeim til- gangi. Nú til dags eru menn hagsýnni og bjarga sér á nefinu þá sjaldan þeir standa frammi fyrir vanda- máli eins og þessu: Suður gefur; NS á hættu: Norður ♠ D ♥ D87 ♦ 1093 ♣1087642 Vestur Austur ♠ 1053 ♠ 98762 ♥ ÁG942 ♥ K653 ♦ 872 ♦ G65 ♣93 ♣G Suður ♠ ÁKG4 ♥ 10 ♦ ÁKD4 ♣ÁKD5 Spilið er frá afmæliství- menningi BR á laugardag- inn. Suður er með 26 punkta og þarf ekki mikla hjálp frá makker sínum til að vinna slemmu. En vandinn er að halda sögnum gangandi. Guðlaugur R. Jóhannsson og Örn Arnþórsson hafa spilað Bláa laufið frá fornu fari. Örn vakti á sterku laufi, Guðlaugur afmeldaði með einum tígli, og nú sagði Örn rólega EINN spaða. Hann gat verið skilinn þar eftir á vondum degi, en Guðlaugur reyndi að komast í betri bút og sagði tvö lauf. Skömmu síðar varð Örn sagnhafi í sex laufum. Standardspilarar vöktu á alkröfunni tveimur laufum og fengu svarið tvo tígla. Nú kemur vel út að segja tvo spaða, en a.m.k. einn spilari kaus að stökkva beint í þrjú grönd. Út kom hjarta og sagnhafi sá að hann var um það bil að fara niður á þrem- ur gröndum þegar sex lauf voru á borðinu. En hjartatí- an var öflug og suður fékk óvænt að eiga fyrsta slag- inn: 720, en undir meðal- skor, því meirihluti NS-par- anna komst í sex lauf. Fjörutíu pör tóku þátt í tvímenningnum, sem lyktaði með sigri Jóns Baldursson- ar og Þorláks Jónssonar. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT JARLSNÍÐ Jólaveizla var á Hlöðum, var þar gesta margt, aðkomandi úr ýmsum stöðum; allt var glatt og bjart; utar stendur stafkarl ljótur, stór, með loðnar brýr, illar eru augna gjótur, yfir hverju sem hann býr. Heimtar mat og hít hann fyllir hortugur við menn; „Hrotti!“ kallar Hákon illi, „hvassar áttu tenn; sé þér einhver önnur lagin íþrótt, láttu sjá!“ „Þegar fullur minn er maginn, mun ég lýðum skemmta þá. - - - Grímur Thomsen. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúð- kaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrir- vara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudags- blað. Samþykki af- mælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.