Morgunblaðið - 05.12.2002, Blaðsíða 27
miðlun listaverka í opinberar stofn-
anir og sendiráð erlendis. Kannski
ráð að breyta nafni safnsins í; Leigu-
miðlun ríkisins á listaverkum. Brota-
brot eignarinnar sýnt nokkrum sinn-
um á ári í monthúsinu kæra við
Tjörnina, þá ekki er verið að kynna
erlenda list …
Fölsunarmálið
Væri vel ef ofanskráð opnaði augu
einhverra fyrir því að fölsunarmálið
eitt sér ber ekki höfuðábyrgð á tak-
markaðri og minnkandi sölu á lista-
verkum og jafnframt lækkandi verði
á þeim, ekki síst sígildu módernist-
unum, Ásgrími, Jóni Stefánssyni og
Kjarval, að stórum hluta ógagnsæi
innlendrar myndlistar. Almenningur
hefur enga möguleika á að nálgast
marktæka yfirsýn þróunar hennar á
einum stað, augliti til auglitis, jafnt
verk eldri tímaskeiða, sígildra mód-
ernista og allar götur fram á daginn í
dag. Hins vegar er sem fyrr nóg um
beturvitandi og réttkjörna leiðbein-
endur um hina einu og sönnu tólg í
þeim efnum og fer fjölgandi, for-
sjárhyggjan á fullu. En öll heilbrigð
listmiðlun byggist á fjölbreytni,
sveigjanleika og gagnsæi en síður
miðstýringu, og gild menntun á list-
hugtakið gengur út á margt fleira en
einhverjar afmarkaðar prófgráður úr
skólum þótt þær séu allrar virðingar
verðar. Vel að merkja ekki ein heldur
sex hliðar á teningnum. Fleiri eru
listfróðir en þeir sem skarta sögutitl-
inum, þ.e. listsögufræðingar, til að
mynda próflausir en listlærðir, sem
upp á frönsku hafa hlotið sérheitið
„connaiseur d’art“, sem útleggst
skyngóður maður á hlutina, að ekki
sé minnst á listamennina sjálfa. Skap-
ar ranghugmyndir og jaðrar við föls-
un í jafnóupplýstu þjóðfélagi um
þessi mál að nota fagnafnið listfræð-
ingur og sleppa sögutitlinum, ef sagn-
fræðin er meginás menntunar-
grunnsins. Þegar þeim afmarkaða
grunni sleppir getur yfirsýnin verið
harla lítil.
Listin býður upp á símenntun allt
lífið eigi viðkomandi ekki að staðna,
einkum á tímum hraða og hverfullar
framvindu, veigurinn felst í því að
melta hlutina en láta ekki umskipti og
dægurflugur byrgja yfirsýn. Þótt of-
vöxtur færist í trjástofn, greinar hans
og lauf, er öll framvindan komin und-
ir rótinni og safaríkri grómoldinni,
sem heila sköpunarverkið sækir nær-
ingu til.
Menn stunda ekki falsanir nema
jarðvegur sé fyrir þeim og því frjó-
samari sem hann er má búast við
sýnilegri og umfangsmeiri athöfnum
eins og hér virðist hafa gerst. Má full-
yrða að óvíða á byggðu bóli hafi skil-
yrðin verið betri, grómoldin ríkari af
náttúrulegri virkt en hér á landi. Or-
sökin mikið til náttmyrkur fáfræði í
flestum atriðum sem skara sjón-
menntir, einkum listiðnaði, hönnun,
arkitektúr og myndlist. Mennt-
unargrunni, sem þeir er landinu hafa
stjórnað frá upphafi fullveldis og lýð-
veldis hafa troðið á og vanrækt með
bóknámið eitt að leiðarljósi. Hef áður
skilgreint þetta bak og fyrir í pistlum
mínum og endurtek fæst hér, en hef
sjaldan verið sannfærðari nú er kosn-
ingar eru ekki langt undan. Engir
flokkanna sýna lit í að móta hér nýja
og metnaðarfulla heildarstefnu er
taki mið af þróuninni í Evrópu og öðr-
um heimsálfum, slíkt er andlegt ris
þeirra ekki. Þvert á móti virðast
stjórnmálaflokkarnir hafa blásið til
sóknar með aðför að verðgildi lista-
verka með því að setja samasem-
merki við listaverk, innréttingar og
lausamuni. Hér dugir engan veginn
að þenja raddböndin og tala um
menningarhús á landsbyggðinni, sem
eru jafnlangt undan og fyrir fjórum
árum, né sameining listaskólanna,
dubba í spariföt um leið og fjárveit-
ingar til þeirra munu hafa verið
skornar niður í heildina litið og ýms-
um mikilvægum grunnatriðum sjón-
mennta rutt út af borðinu.
Hið eina sem dugir er að ábyrgir
geri sér grein fyrir að andlega fóðrið,
ekki síst á vettvangi skapandi at-
hafna, telst jafnmikilvægt hinu efn-
islega. Líkast til mikilvægara í ljósi
þróunarinnar, því að öðrum kosti
væri ekkert til sem héti homo sapi-
ens, (dýra)tegundin maður, því síður
homo sapiens sapiens, hinn vitiborni
maður.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 27
V I L A
VERÐUR
OPNUÐ Í DAG
Í SMÁRALIND
FRÁBÆR OPNUNARTILBOÐ
V I L A
SMÁRALIND, 2. hæð,
s. 544 4567
Toppur kr. 1.990
Buxur kr. 3990
INDY SÍÐ SKYRTA kr. 990
FASHION BOLUR kr. 990
EFE BOLUR kr. 990
MIKADO PEYSA kr. 1.490
PRIME BUXUR kr. 1.990
HRAFNHILDUR Arnardóttir er
útskrifuð úr málaradeild MHÍ 1993
og hélt síðan til framhaldsnáms við
School of Visual Arts MFA, New
York þar sem hún er nú búsett og
starfar. Hún hefur tekið þátt í mörg-
um samsýningum og uppákomum en
þetta er þriðja einkasýning hennar.
Viðfangsefni hennar og efniviður hafa
verið af ýmsum toga, 1998 sýndi hún
teikningar af ætt sinni, Laugarvatns-
ættinni, í Nýlistasafninu, nú er hé-
góminn viðfangsefni hennar.
Fáfengileikinn hefur birst í ýmsum
myndum í listasögunni. Páfuglar voru
tákn fáfengileikans á málverkum
fyrri alda og á sautjándu öld í Hol-
landi voru málverk sem kölluð voru
vanitas sérstaklega vinsæl. Það voru
kyrralífsmyndir þar sem hver hlutur
átti að sýna hverfulleika mannlegrar
tilveru, á þeim voru hauskúpur ómiss-
andi þáttur. Nú hefur Hrafnhildur
innréttað Gallerí Hlemm sem Helgi-
dóm hégóma síns, samkvæmt titli
sýningarinnar. Þar hefur hún teppa-
lagt gólf og veggi og sýnir þrjár ljós-
myndir auk teppalagðra sýningar-
stalla og verðlaunagrips.
Ljósmyndirnar sýna loðna ísbjarna-
fætur, hárlausa fótleggi og buxna-
klæddan afturenda og búa yfir
skemmtilegum húmor. Í lítilli sýning-
arskrá er að finna sérstakan og
skemmtilegan texta sem bætir heil-
miklu við verk Hrafnhildar. Hann er
skrifaður af Agga Egga og Sigurdar-
son, frekari grein á þeim sem skrifa
hann eru ekki gerð, hvernig sem á því
stendur því þegar textinn er lesinn á
sýningunni verður hann sterkur og
áhrifamikill þáttur innan hennar.
Hann á þónokkurn þátt í því að skapa
óræðan samruna ytra neyslusam-
félags og innri veraldar sem er sýn-
ingunni mjög til góða. Í textanum er
minnst á fyrirbærið ákafa hégóma-
röskun, eða Intense Vanity Disorder.
Þessi svonefnda hégómaröskun er
hnyttilega til fundin hjá Hrafnhildi,
án efa þjáumst við öll af henni, nafnið
er afar trúverðugt. Upphafsmaður
patafýsiskra fyrirbæra, þ.e. heima-
tilbúinna útskýringa á ýmsum vís-
indalegum fyrirbærum, Alfred Jarry,
hefði verið ánægður með þetta.
Innsetning Hrafnhildar er að
nokkru leyti í anda hugmynda efnis-
hyggjutímabils í listum síðustu aldar,
níunda áratugarins þegar listamenn
eins og Jeff Koons voru stjörnur í list-
heiminum en skúlptúrar hans af lags-
konunni Kikkólínu voru vissulega há-
mark hégómleikans. Hjá Hrafnhildi
er þó einnig að finna aðra hugsun sem
sker sig frá þannig verkum. Samspil
ljósmyndanna og myndefnið búa yfir
þáttum sem ekki liggja í augum uppi
við fyrstu sýn. Það er eitthvað dul-
arfullt við þessa fótleggi á hvolfi í
gryfjunni, tóm sætin umhverfis skapa
andrúmsloft sem minnir á atriði úr
mynd eftir David Lynch, sömuleiðis
eru ísbjarnarfæturnir uppstoppuðu
skringilega dapurlegir. Þessi óræði
þáttur sem myndirnar búa yfir gera
innsetninguna áhugaverða og opna
hana fyrir fleiri túlkunarmöguleikum
en þeim sem titill sýningarinnar gefur
til kynna. Strangflatarrassinn má
einnig skoða á fleiri en einn hátt, til
dæmis með tilliti til þess hversu rass-
inn er oft mikilvægur þáttur í sjálfs-
mynd ungra kvenna, eins minna köfl-
urnar á strangflatarmálverk.
Þessi svonefnda ákafa hégóma-
röskun er frjór jarðvegur fyrir fleiri
verk í þessum dúr og þarna gæti
Hrafnhildur hafa fundið verkum sín-
um ákveðinn farveg, sem vert er að
fylgja eftir.
MYNDLIST
Gallerí Hlemmur
Til 8. desember, sýningin er opin miðviku-
daga til sunnudaga frá kl. 14–18.
BLÖNDUÐ TÆKNI,
HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR
Dýpt
hégómans
Ragna Sigurðardóttir
Ljósmynd á sýningu Hrafnhildar Arnardóttur í Gallerí Hlemmi.
O
GUNNARSSTOFNUN efndi til
ljóðakeppni austfirskra barna í
1.–7. bekk grunnskóla og var þem-
að Grýla. Alls bárust um 260 ljóð en
dómnefnd valdi fjögur til verðlauna
á Grýlugleði sem haldin var á dög-
unum í Gunnarsstofnun.
Verðlaunaskáldin eru: Hrefna
Ingólfsdóttir í 7. bekk Grunnskól-
anum á Breiðdalsvík, Ásta Steinunn
Eríksdóttir í 6. bekk Hafnarskóla,
Steinunn Rut Friðriksdóttir í 4.
Verðlauna-
ljóðin má lesa á
heimasíðu Gunn-
arsstofnunar:
www.skridu-
klaustur.is.
Á myndinni eru
verðlaunahaf-
arnir (f.v): Hrefna
Ingólfsdóttir,
Steinunn Rut
Friðriksdóttir og
Ingibjörg Ýr
Skarphéð-
insdóttir. Ásta
Steinunn Eiríksdóttir var fjarver-
andi er myndin var tekin.
bekk Egilsstaðaskóla og Ingibjörg
Ýr Skarphéðinsdóttir í 7. bekk
Fellaskóla.
Ljóðakeppni
á Grýlugleði