Morgunblaðið - 05.12.2002, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 5 og 10. Vit 461
KRINGLA
Sýnd kl. 5, 7 og 9. Vit 468
KRINGLA
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
RadíóX
DVKvikmyndir.is
HL MBL
4 1 . 5 0 0 G E S T I R Á 1 2 D Ö G U M
Sýnd kl. 8
Roger Ebert
1/2 Kvikmyndir.is
DV
1/2HL MBL
RadíóX
Fortíðin mun tengja þau!
Gwyneth Paltrow og Aaron Eckhart í
dularfullri, rómantískri mynd sem hefur
fengið lof gagnrýnenda um allan heim.
HL. MBLSK RadíóX
ÓHT Rás2
HK
DV
1/2
Kvikmyndir.com
TILRAUNIN
Sýnd kl. 5.50.
Ísl. texti. B.i. 16.
Yfir 53.000 áhorfendur
WITH
ENGLIS
H
SUBTIT
LES
AT 5.4
5
Sýnd kl. 5.45 með enskum texta 8 og 10.10.B.i. 12.
8 Eddu verðlaun
POSSESSION
GWYNETH
PALTROW
AARON
ECHART
JENNIFER
EHLE
JEREMY
NORTHAM
Sýnd kl. 4.50, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
4 1 . 5 0 0 G E S T I R Á 1 2 D Ö G U M
1/2MBL 1/2
Roger Ebert
La grande illusion
Sýnd kl.10.30
JÓN Ólafsson hefur sagt Freist-
ingar vera plötu sem geymir nokkur
af eftirlætislögum sjálfra liðsmanna
Nýrra danskra, lög sem einhverra
hluta vegna féllu ekki eins mikið í
kramið hjá almenningi og þeir höfðu
búist við. Annar góður maður hefur
síðan haldið því fram að það sé slá-
andi hversu lítið skynbragð tónlist-
armenn yfirhöfuð beri á eigin laga-
smíðar. Samkvæmt því ættu
Freistingar því að vera eitthvert
sorglegasta rang-
nefni í sögu ís-
lenskrar dægur-
tónlistar. En því
fer víðs fjarri. Ef
horft er framhjá
því að hér er mest-
megnis um endurvinnslu að ræða þá
verður ekki að annarri niðurstöðu
komist en að út sé komin áheyrileg-
asta plata sem Ný dönsk hafa sent
frá sér á þeim 15 árum sem sveitin
hefur starfað. Og ástæðan fyrir því
er tvíþætt; í fyrsta lagi tvö frábær ný
lög, „Fagurt fés“, sungið og samið af
Daníel Ágústi, fyrrum söngvara
sveitarinnar, og „Faldar hendur“
eftir Björn Jörund og Jón, og í öðru
lagi að þrátt fyrir að sveitin hafi sam-
ið og sent frá sér ógrynni frábærra
laga þá verður að segjast sem er að
þau hafa einhvern veginn aldrei rott-
að sig nægilega vel saman á breið-
skífur sveitarinnar – fyrr en nú.
Valið á endurvinnslulögunum er
með afbrigðum vel til fundið og í nær
öllum tilvikum hefur Jóni „verk-
stjóra“ og félögum tekist að blása í
þau nýju lífi og laða fram alla þeirra
góðu eiginleika, þá sem urðu til þess
að viðkomandi lögum hlotnaðist sá
heiður að ganga í endurnýjun lífdag-
anna. Erfitt er að gera upp á milli
laganna en þó heggur maður sér-
staklega eftir nokkrum sem eiga það
sameiginlegt að hafa aldrei verið í
náðinni hjá mér fram að þessu en
koma ótrúlega sterk inn í nýjum og
langtum betri útgáfum. Þetta eru lög
eins og „Eplatré“ sem upprunalega
var á Ekki er á allt kosið, „Freist-
ingar“ af Himnasendingu, „Frelsið“
af Regnbogalandi og „Flugvélar“ af
síðustu plötu sveitarinnar Pólskipt-
unum. Síðastnefnda lagið er kannski
skýrasta dæmið um hversu vel þess-
ar lýtaaðgerðir hafa tekist, berstríp-
uð útgáfa eins og lagið var þegar Jón
samdi það, einn við píanóið, en það
vekur þægilegar minningar um dú-
ett hans og Stefáns Hjörleifs, Possi-
billies, og hina vanmetnu plötu
þeirra Töframaðurinn frá Riga frá
1990. „Á sama tíma að ári“ hefur mér
aftur alltaf fundist eitt af frambæri-
legustu lögum Björns Jörundar og í
útgáfunni á Freistingum, þar sem
Björn syngur vel til fundinn dúett á
móti Svanhildi Jakobsdóttur, er gott
lag einfaldlega orðið enn betra. Það á
þó því miður ekki við heldur mátt-
lausa útgáfu af „Horfðu til himins“
enda æði erfitt að slá við útsetning-
unni óborganlegu á Himnasendingu
þar sem ensku bakraddasöngkon-
urnar gefa því svo sterk einkenni. Þá
er ekki hægt að fjalla um plötuna án
þess að geta frábærs innleggs blás-
aranna Samúels og Jóels, en leikur
þeirra og látlausar útsetningar eru
kannski einmitt það sem gerir plöt-
una svo heillandi og merkilega heild-
stæða, af safnplötu að vera.
Ég veit að endurvinnsluplötur
þykja ekki merkilegar í heimi popp-
fræðanna en hvað með það, ég ætla
samt að lýsa því yfir að Freistingar
sé sú plata Nýrra danskra sem næst
kemst því að geta talist höfuðverk
sveitarinnar. Í það minnsta er ég
sannfærður um að allir gamlir og
sannir unnendur falla gjörsamlega í
stafi yfir þessum ómótstæðilegu
freistingum og taka þeim opnum
örmum því á plötunni sýna Ný dönsk
allar sínar bestu hliðar. Verst er með
umslagið. Það er afar smekklaust og
auglýsingalegt.
Tónlist
Fjöldi freistinga
Ný dönsk
Freistingar
1001 nótt
Geislaplatan Freistingar með hljómsveit-
inni Nýjum dönskum. Lög og textar eftir
liðsmenn sveitarinnar, þá Björn Jörund
Friðbjörnsson, Jón Ólafsson, Ólaf Hólm
og Stefán Hjörleifsson. Söngur í Fagurt
fés, Horfðu til himins og Mjallhvít Daníel
Ágúst Haraldsson. Söngur í Á sama tíma
að ári Svanhildur Jakobsdóttir. Tenór- og
baritónsaxófónn Jóel Pálsson, básúna
Samúel Jón Samúelsson en báðir sáu að-
allega um blástursútsetningar. Upptöku-
maður og verkstjóri Jón Ólafsson. Hljóð-
blöndun Gunnar Smári Helgason.
Upptökur fóru fram í Eyranu síðsumars
2002.
Skarphéðinn Guðmundsson
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Í umsögn um nýjustu plötu Nýrra danskra kemur m.a. fram að lagavalið sé einstaklega vel heppnað.