Morgunblaðið - 05.12.2002, Page 14
FRÉTTIR
14 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SVO virðist sem virkni ákveðinna ens-íma sem tengjast hvörfum súrefnis ogorkunámi sé minnkuð í sauðfé semgrunur leikur á að sé smitað riðuveiki.
Verði truflun á orkunámi frumna þegar súr-
efni hvarfast við fæðuefni er hætta á að súr-
efnið geti skemmt líkamsvefi. Til að koma í veg
fyrir slíkar skemmdir ræður líkaminn yfir ens-
ímum sem nefnast einu nafni oxavarnarensím.
Með mælingu á virkni þessara ensíma er hugs-
anlegt að greina megi riðusmit fyrr en verið
hefur til þessa.
Þetta er meðal niðurstaðna Þorkels Jóhann-
essonar, fyrrverandi prófessors á rann-
sóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, og Sig-
urðar Sigurðarsonar, dýralæknis á
Tilraunastöðinni á Keldum, við rannsóknir
þeirra og félaga á sauðfjárriðu í íslensku
sauðfé. Greina þeir frá þessu í grein í nýlegu
tölublaði Freys. Fyllri grein verður síðan gerð
fyrir þessum rannsóknum í erlendu vísinda-
tímariti svo og væntanlega í Læknablaðinu.
Rannsóknirnar eru unnar í nánu samstarfi við
Halldór Runólfsson yfirdýralækni.
Alþjóðlegur rannsóknarhópur
Þeir Þorkell og Sigurður eru ásamt fleirum í
rannsóknarhópi sem fengið hefur styrk frá
Evrópusambandinu uppá 1,7 milljónir evra
eða um 140 milljónir króna. Verður um 17
milljónum af þeirri upphæð varið til rannsókna
hérlendis. Rannsóknirnar fara fram í Bret-
landi, Þýskalandi, Frakklandi og á Ítalíu auk
Íslands. Rannsóknarhópurinn er í heild undir
stjórn Kristínar Völu Ragnarsdóttur, prófess-
ors við Háskólann í Bristol.
Í samtali við Morgunblaðið segja þeir Sig-
urður og Þorkell að frekari rannsóknir séu
nauðsynlegar til að skýra þetta hugsanlega
samband. Vitað er að riða hefur valdið miklum
usla í íslenskum landbúnaði og segja þeir að
riða gæti komið upp hvar og hvenær sem er
nema fyllsta aðgát sé höfð. „Við vitum, meðal
annars eftir sýkingartilraunir í músum, að
truflun á þessum oxavarnarensímum gæti leg-
ið að baki þeim breytingum sem sjá má í heila
riðuveikra kinda. Eftir rannsóknir okkar höf-
um við komist að þeirri niðurstöðu að hugs-
anlegt sé að nota mætti ákvarðanir á virkni
þessara ensíma í blóði til að skima fyrir út-
breiðslu sýkingarinnar,“ segir Þorkell.
Rannsóknirnar fólust í því að taka blóðsýni
úr 140 tveggja til fimm ára ám á 14 býlum og
töldust þær allar vera heilbrigðar. Bæjunum
var skipt í flokka eftir því hvort þar hafði
greinst riða eða ekki og hversu langt var síðan
það var. Tekin voru sýni í september 2001 og
aftur í mars á þessu ári til að kanna hvort með-
ganga hefði áhrif á mælingagildin. Kopar,
mangan, selen og fleiri málmar voru einnig
ákvarðaðir í blóðsýnunum. Jafnframt voru
tekin til málmrannsókna sýni úr jarðvegi,
vatni, ull og grasi eða heyi og nokkur sýni úr
heila úr fé frá hlutaðeigandi bæjum voru tekin
í sláturhúsum.
Nýjar aðferðir eiga rétt á sér
Þeir Sigurður og Þorkell segja að nýjar að-
ferðir, sem auðveldað gætu greiningu á riðu og
jafnvel sagt fyrir um hættu á því að hún komi
upp, eigi fullan rétt á sér og því hefðu þeir far-
ið út í þessar rannsóknir. Niðurstöðurnar gefi
til kynna að ef til vill mætti nota ákvarðanir á
virkni áðurnefndra ensíma í blóði til að skima
fyrir útbreiðslu sýkingarinnar.
Þorkell Jóhannesson segir að rannsóknir á
hrörnunarsjúkdómum í heila manna, svo sem
Alzheimer- og Parkinson-sjúkdómum og fleir-
um, bendi til þess að þeir séu af sömu eða svip-
aðri rót og sauðfjárriða. Greina megi svipaðar
truflanir á starfi ensíma í blóði sjúklinga sem
haldnir eru þessum sjúkdómum og í fé sem
liggur undir grun um að vera riðusmitað. Hef-
ur hann unnið að rannsóknum á þessum sjúk-
dómum ásamt Jakobi Kristinssyni dósent og
Jóni Snædal yfirlækni og fleirum. Þá hefur
Guðlaug Þórsdóttir læknir einnig starfað með
þeim en hún hefur nýlega fengið samþykkta til
doktorsnáms rannsókn á truflun á virkni oxa-
varnandi koparensíma í hrörnunarsjúkdómum
í miðtaugakerfi í mönnum.
Meðal niðurstaðna Þorkels og samstarfs-
manna hans varðandi Alzheimer-sjúkdóm er
að greina megi truflanir á starfi oxavarnandi
koparensíma í blóði sem ekki sé unnt að rekja
til skorts á kopar. Svipaðar breytingar á starfi
þessara ensíma megi sömuleiðis sjá hjá sjúk-
lingum með Downs-heilkenni sem orðnir séu
fullorðnir og komnir með alzheimerlík heilabil-
unareinkenni. Einnig koma fram sams konar
breytingar varðandi Parkinson-sjúkdóm og
hreyfitaugungasjúkdóm, þ.e. að vísbendingar
séu um truflun á starfi oxavarnarensíma í
blóði, sem innihalda kopar, þótt koparmagn sé
eðlilegt.
Lyf sem efla oxavarnir
möguleg leið
Þorkell segir að reynist það rétt að ákvarð-
anir á oxavarnarensímum í blóði hafi gildi við
greiningu á hrörnunarsjúkdómum í mið-
taugakerfinu sé líklegt að sjúkdómarnir séu
ekki eingöngu bundnir við miðtaugakerfið.
Einkennin séu þó nær eingöngu bundin við
miðtaugakerfið en það útiloki alls ekki að trufl-
anir á oxavörnum megi finna í flestum vefjum.
„Ef bilaðar oxavarnir eru þáttur í tilkomu
hrörnunarsjúkdóma í miðtaugakerfinu er lík-
legt að um arfbundnar breytingar sé að ræða í
sumum tilvikum en öðrum ekki,“ segir Þorkell
og bætir við að hér sé mikið rannsóknarstarf
óunnið. „En hvernig sem því er varið og hvern-
ig sem á er litið hlýtur framleiðsla lyfja sem
efla oxavarnir líkamans samt að vera leið sem
skoða verður til fullnustu við meðferð á hrörn-
unarsjúkdómum í miðtaugakerfinu.“ Í lokin
bendir Þorkell á mikilvægi rannsóknanna í því
sambandi að auðveldari greining sjúkdóma
bjóði ein og sér uppá betri tök á forvörnum og
ýmsum meðferðarúrræðum með eða án lyfja.
Þess skal getið að rannsóknir Þorkels og fé-
laga hafa m.a. verið rækilega styrktar af Minn-
ingarsjóði Helgu Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánssonar og af framlögum vegna átaks
til útrýmingar riðuveiki fyrir atbeina Guðna
Ágústssonar landbúnaðarráðherra.
Rannsaka hvort
greina megi
smit með nýjum
aðferðum
Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor í Bristol, situr við hlið Þorkels Jóhannessonar prófess-
ors. Fyrir aftan standa frá vinstri Jakok Kristinsson dósent, Halldór Runólfsson yfirdýralæknir
og Sigurður Sigurðarson dýralæknir. Með þeim vann einnig bandaríski læknastúdentinn og
Fulbright-styrkþeginn Jed Barash.
Alþjóðlegur rannsóknahópur hefur fengið um 140 millj-
óna króna styrk til rannsókna á sauðfjárriðu. Um 17
milljónum af þeirri upphæð verður varið til rannsókna
hérlendis. Jóhannes Tómasson ræddi við Sigurð Sig-
urðarson og Þorkel Jóhannesson um rannsóknirnar.
Þorkell Jóhannesson fer fyrir rannsóknahópum um sauðfjárriðu og hrörnunarsjúkdóma í heila manna
joto@mbl.is
RIÐA í sauðfé og geitum er einn svo-
kallaðra príonsjúkdóma. Þeir leggjast
á miðtaugakerfi manna og dýra og
valda undantekningalaust hrörnun og
dauða. Aðrir príonsjúkdómar í búfé
eru til dæmis kúariða en í mönnum er
Creutzfeldt-Jakobs-sjúkdómur þekkt-
astur. Alzheimer- og Parkinson-
sjúkdómar eru algengastir hrörn-
unarsjúkdóma í miðtaugakerfi manna.
Þeir eru ekki smitandi og teljast ekki
til príonsjúkdóma. Algengi þessara
sjúkdóma eykst hins vegar mjög með
hækkandi aldri og þeir eru því ört vax-
andi vandamál á Vesturlöndum og víð-
ar.
Príonsjúkdómar eru að því leyti sér-
stakir meðal hrörnunarsjúkdóma í mið-
taugakerfi að þeir geta smitast innan
sömu tegundar og stundum milli teg-
unda. Ekki eru þó vísbendingar um að
sauðfjárriða hafi nokkru sinni borist í
menn.
Sauðfjárriða barst til Íslands með
hrút af ensku kyni seint á 19. öld að
því er best er vitað. Var hún lengi
bundin við Norðurland en breiddist út
um mestan hluta landsins árin 1950 til
1985. Viðnámsaðgerðir hófust árið
1978 og vel skipulagðar og árangurs-
ríkar aðgerðir árið 1986. Þær hafa
skilað þeim árangri að útbreiðsla veik-
innar til nýrra svæða hefur vænt-
anlega stöðvast. Hefur veikin ekki
fundist á nýjum varnarsvæðum í rúm-
an áratug. Ný riðutilvik eru 1–2 á ári
en þekktir riðubæir voru á annað
hundrað fyrir hálfum öðrum áratug.
Riða hefur ekki verið staðfest hér-
lendis í öðrum dýrum en sauðfé.
Eitt til tvö riðu-
tilfelli á ári
DANSPARIÐ Karen Björk Björg-
vinsdóttir og Adam Reeve úr ÍR,
sem keppa í flokki atvinnumanna
fyrir Ísland, náðu þeim árangri
að vinna til bronsverðlauna í
Heimsmeistarakeppni atvinnu-
manna í 10 dönsum, þ.e. keppt er
bæði í latin- og standard-dönsum.
Keppnin fór fram í Düsseldorf í
Þýskalandi sl. föstudags- og laug-
ardagskvöld fyrir fullu hús áhorf-
enda. Þetta var mjög hörð og
spennandi keppni en þrjú efstu
pörin voru öll jöfn að stigum,
samtals með 22 stig hvert par, og
nota varð ákveðnar reglur við út-
reikning til að skera úr um úr-
slitin. Dómarar dæmdu Karen og
Adam 2. sæti í öllum dönsum í
stigagjöf, þannig að í lokin urðu
úrslitin sem hér segir: Í 1. sæti
varð par frá Kanada sem hefur
hlotið titilinn sl. 4 ár, par frá
Ítalíu hafnaði í 2. sæti og Karen
og Adam í því 3. Alls tóku þátt 37
pör.
Karen og Adam hafa stöðugt
verið að bæta sig á alþjóðlegum
mótum síðustu ár og hampa m.a.
Evrópumeistaratitli í 10 dönsum
og eru í hópi bestu atvinnudans-
ara heims. Þau eru að fara til
Ástralíu en Adam er Ástrali og
munu þau keppa fyrir Íslands
hönd í Opna ástralska meist-
aramótinu sem fram fer í Mel-
bourne um miðjan desember en
þau unnu til gullverðlauna í
standard-dönsum á því móti í
fyrra, segir í fréttatilkynningu.
Karen Björk og
Adam unnu brons-
verðlaun á HM
Efnahagsráð-
gjafi í forsætis-
ráðuneytinu
GUNNAR Ó. Haraldsson hag-
fræðingur hefur tekið við stöðu
efnahagsráðgjafa í forsætisráðu-
neytinu og er um nýja stöðu að
ræða til að sinna tilteknum verk-
efnum sem ráðuneytinu er ætlað
að sinna, en þessi verkefni hafa að
mestu leyti verið á höndum ráðu-
neytisstjóra í meira en áratug.
Halldór Árnason, skrifstofu-
stjóri í forsætisráðuneytinu, segir
að lengi hafi staðið til að ráða í
þetta starf, en áður en Davíð
Oddsson varð forsætisráðherra
hafi verið starfandi sérstakur
efnahagsráðsgjafi í ráðuneytinu.
Síðan hann hætti hafi þessi mál
einkum verið á borði ráðuneytis-
stjórans, Ólafs
Davíðssonar,
sem sé reyndar
vel menntaður
hagfræðingur.
Að sögn
Halldórs er
starfið hugsað
sem tengiliður
við ýmsa aðila
eins og til
dæmis fjár-
málaráðuneytið, sem sjái um þjóð-
hagsspána og tekjuáætlun fjár-
laga, Hagstofuna, sem sjái um alla
tölfræði, og Samtök atvinnulífs-
ins, sem sinni efnahagsumhverf-
inu.
Gunnar Ó.
Haraldsson