Morgunblaðið - 05.12.2002, Page 20
HUGMYNDIR um uppbyggingu sjóminjasafns í
Reykjavík voru kynntar í borgarráði í síðustu
viku. Gera þær ráð fyrir tólf efnisflokkum sem
safnið myndi gera skil. Þá var lögð fram tillaga
um að stofnuð yrði sjálfseignarstofnun um safnið.
Í skýrslu, sem starfshópur um stofnun sjó-
minjasafns kynnti ráðinu, kemur fram að gert sé
ráð fyrir þrenns konar sýningum í safninu;
grunnsýningu sem stæði í 10–15 ár, sérsýningum
sem stæðu í eitt ár og farandsýningum sem stæðu
í nokkrar vikur. Taka þyrfti tillit til þessa við val
og skipulag á húsnæði fyrir safnið, sem í skýrsl-
unni gengur undir nafninu Víkin.
Segir að grunnsýningin muni samanstanda af
munum, myndum og textum, skjölum, líkönum,
kortum, teikningum, myndbandsefni, tónlist og
fleiru. „Leggja ber áherslu á upplifun fremur en
beina fræðslu. Gera má ráð fyrir að grunnsýning,
að mestu óbreytt í 10–15 ár, sé í 70–80% sýning-
arrýmis. Hinn partur rýmisins verði fyrir sýn-
ingar sem stæðu í hálft til eitt ár og viðburði.“
Þá kemur fram að gera megi ráð fyrir að sjó-
minjasafn í Reykjavík geri skil sögu landsins alls
á ýmsum sviðum enda sé í höfuðborginni fjöldi
stofnana og fyrirtækja sem starfi á landsvísu. All-
ar líkur séu á að Sjóminjasafni Íslands, sem nú er
í Hafnarfirði, verði lokað í núverandi mynd og
Reykjavík muni bjóðast munir sem það á.
Talsvert til af munum
Segir í skýrslunni að ekki sé óvarlegt að áætla
að 50 þúsund manns muni heimsækja reykvíska
sjóminjasafnið Víkina árlega og að líkindum muni
gestirnir skiptast í fjóra hópa: fólk tengt sjónum,
Áætlað að 50 þúsund gestir
heimsæki sjóminjasafn árlega
Fyrsta sýning mun
kosta 40–50 milljónir
Hugmynd að því hvernig gæti verið umhorfs inni á safni eins og Víkinni. Hér eru það skútur og skip sem eru í forgrunni.
fjölskyldur, erlendir ferðamenn og skólabörn.
Áhersla er lögð á það í skýrslunni að safn af
þessu tagi verði við gömlu höfnina, helst á Mið-
bakkanum. Gott rými þurfi að vera í því húsnæði
sem safnið yrði starfrækt í og sömuleiðis þurfi
safnið eitthvað rými utandyra.
Kemur fram að Þjóðminjasafn Íslands hafi lýst
yfir vilja sínum til að lána Víkinni muni úr sinni
eigu á sýningar auk þess sem mikið sé til af sjóm-
injum á Minjasafni Reykjavíkur og hjá fyrirtækj-
um. Þannig sé til talsvert af munum þótt átak
þurfi í skráningu og heimildaöflun. Engu að síður
er talið að fremur lítinn undirbúningstíma þurfi til
setja upp sýningu í Reykjavík.
Að sögn Sigrúnar Magnúsdóttur, formanns
starfshóps um stofnun sjóminjasafnsins, hefur
hópurinn haft starfsmann á sínum snærum frá
því í júlí sl. sem hefur safnað munum og unnið að
málinu. Þá hafi hópurinn haft geymsluhúsnæði í
Faxaskála auk þess sem hann hafi verið í sam-
bandi við fjölmargar stofnanir og fyrirtæki sem
tengjast sjómennsku og sjósókn. „Sannast sagna
er okkur mjög vel tekið og það virðist vera tölu-
verður spenningur fyrir því í borgarkerfinu að
svona safni verði komið á laggirnar hérna,“ segir
hún. „Við lögðum til í borgarráði í síðustu viku að
við myndum stofna sjálfseignarstofnun um safnið
en við töldum það farsælla því þá fengjum við
tengingu við aðra aðila sem yrðu með okkur í
þessu.“
Hugsanlega tengt skipulagi
Mýrargötusvæðisins
Að mati Sigrúnar væri athugandi að tengja
uppbyggingu sjóminjasafns samkeppni um skipu-
lag Mýrargötusvæðisins svokallaða þar sem
slippirnir eru meðal annars. „Það væri gríðarlega
skemmtilegt að inn í forsögn að slíku deiliskipu-
lagi kæmi hugmyndin um sjóminjasafn.“ Hún
bendir einnig á að með þessu yrði safnið í nálægð
við önnur söfn á vegum borgarinnar í Hafnarhús-
inu og Grófarhúsinu.
Þá segir hún þá stefnu Þjóðminjasafnsins, að
reka ekki sjálft sjóminjasafn heldur styðja við
bakið á sveitarfélögum sem reka slík söfn víðs
vegar um landið, ýta enn frekar á að ákvarðanir
verði teknar varðandi sjóminjasafn í Reykjavík.
Hvað varðar kostnaðarútreikninga segir Sig-
rún að ekki liggi fyrir nákvæm kostnaðaráætlun.
Hins vegar sé gert ráð fyrir að það myndi kosta á
bilinu 40–50 milljónir að koma upp fyrstu sýning-
unni í safninu en þá væri eftir að taka tillit til
kostnaðar við húsnæðið. „Við leggjum áherslu á
einfalt hús og þetta þarf alls ekki að vera dýr
bygging,“ segir hún.
Reykjavíkurhöfn
Teikning/GIH
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
20 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
PLUS
PLUS
ww
w.
for
va
l.is
ekki séu nægilega margar rusla-
tunnur á svæðinu. Loks hafi kvart-
anir borist frá laxveiðimönnum
um að hundum sé leyft að synda í
ánni.
Samráð við hundaeigendur
Í ljósi þessa leggur garð-
yrkjustjóri til að gerðar verði ráð-
GRIPIÐ verður til ráðstafana, sem
meðal fela í sér að komið verður í
veg fyrir óleyfilegan hringakstur
á Geirsnefi, fáist fjárheimildir til
verkefnisins. Umhverfis- og heil-
brigðisnefnd Reykjavíkur sam-
þykkti þetta á fundi sínum í síð-
ustu viku en þar voru lagðar fram
hugmyndir um úrbætur vegna um-
gengni á Geirsnefi.
Í minnisblaði frá garðyrkju-
stjóra, þar sem hugmyndirnar eru
reifaðar, kemur fram að árið 1999
hafi hringakstri verið lokað, bíla-
stæði gerð og manir með gróðri
settar upp til skjóls.
Þrátt fyrir þetta sé töluvert
kvartað undan hraðakstri og ýms-
um óþarfa akstri t.d. reynsluakstri
frá kaupendum á bílasölum.
„Greinilegt er að þótt ekki sé gert
ráð fyrir að ekið sé hringinn þá er
það gert, það er ekið yfir grasið.
Einnig er ekið út af vegum á fleiri
stöðum, m.a. yfir eina mönina,“
segir í minnisblaðinu.
Sömuleiðis myndist aur í bleyt-
um við bílastæðin syðst á flötinni
þar sem notkunin er mest og
kvartað hafi verið undan því að
stafanir til að loka hringakstri og
öðrum utanvegaakstri eins og
kostur er. Reynt verði að lagfæra
syðstu bílastæðin og ruslatunnum
fjölgað ef ástæða er til.
Þá verði stefnt að því að koma
upp skilti með umgengnisreglum
og haft verði samráð við hunda-
eigendur í því sambandi. Sömu-
leiðis verði komið fyrir skilti á ár-
bakkanum með tilmælum varðandi
hundasund. Loks verði kannaður
möguleiki á lýsingu, t.d. inn við
syðstu flötina.
Sem fyrr segir samþykkti um-
hverfis- og heilbrigðisnefnd að
vísa þessum tillögum til gerðar
fjárhagsáætlunar.
Morgunblaðið/Ingó
Geirsnef er vinsæll staður hjá hundaeigendum til að viðra fjórfætta vini sína en þeir hafa m.a. kvartað undan
óþarfa akstri á nesinu. Hér er Harpa Guðlaugsdóttir að viðra Chihuahua-hundinn sinn Trítil.
Gripið verði
til aðgerða
á Geirsnefi
Elliðavogur
Ráðgjafa-
hópur
vegna
Elliðaánna
stofnaður
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt að setja á laggirnar
ráðgjafahóp vegna Elliða-
ánna. Hópnum er ætlað að
vera Orkuveitu Reykjavíkur
til ráðgjafar um málefni
Elliðaánna og viðkomu laxa-
stofnsins þar.
Svipaðri tillögu var frestað
á fundi borgarráðs fyrir
tveimur vikum þegar fjallað
var um hvað gera mætti til að
koma í veg fyrir að hluti ánna
þornaði upp á stundum.
Samkvæmt samþykktinni
nú er gert ráð fyrir að í hópn-
um sitji þrír fulltrúar, einn frá
Veiðimálastofnun, einn frá
Stangveiðifélagi Reykjavíkur
og einn fulltrúi umhverfis- og
heilbrigðisnefndar borgarinn-
ar. Beindi borgarráð því til
nefndarinnar að skipa hópinn
sem fyrst en hann „fjalli þeg-
ar í stað um rennslismiðlun
vatns í ánum með verndun líf-
ríkis ánna að leiðarljósi“, eins
og segir í greinargerð.
Tillaga borgarráðsfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins þess efn-
is að yfirstjórn Elliðaánna
verði flutt frá Orkuveitunni
yfir á sérstaka þriggja manna
stjórn var felld.
Elliðaárdalur
550 milljóna
króna
tekjuaf-
gangur
GERT er ráð fyrir 550 milljóna
tekjuafgangi fyrir fjármagns-
liði í fjárhagsáætlun bæjar-
sjóðs Hafnarfjarðar fyrir árið
2003. Áætlunin var lögð fram til
fyrri umræðu í bæjarstjórn í
gær. Í fréttatilkynningu segir
að þetta sé nær tvöfalt betri af-
koma en gert hafi verið ráð fyr-
ir á yfirstandandi fjárhagsári.
„Veltufé frá rekstri Hafnar-
fjarðarbæjar verður um 860
milljónir í stað 400 milljóna á
árinu 2002 og handbært fé frá
rekstri um 760 milljónir í stað
370 milljóna á þessu ári. Heild-
arrekstrarniðurstaða Hafnar-
fjarðarbæjar er jákvæð upp á
réttar 300 milljónir,“ að því er
segir í tilkynningu.
Gert er ráð fyrir niður-
greiðslu langtímaskulda og að
ráðast í framkvæmdir við
grunnskóla- og leikskólabygg-
ingar. Þetta er mögulegt með
bættri afkomu, sölu eigna og
aðhaldsaðgerðum, segir í til-
kynningunni.
Hafnarfjörður
Upphafið – Landnám
Sambúðin við hafið
– fornir sjávarhættir
Höfnin – lífæð Reykjavíkur
Skútur og togarar
Sjómannsfjölskyldan
Kaupsiglingar – strandflutningar
Iðnaður og þjónusta í landi
Hafið gaf og hafið tók
– sjóbjörgun
Löggæsla á höfunum
Siglingafræði – vélfræði
– fjarskipti
Þekking á hafinu
Ýmis starfsemi – nútíminn
Tillaga að tólf
efnisflokkum