Morgunblaðið - 05.12.2002, Qupperneq 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 31
SÍÐUSTU daga hafa staðið yfir íslenskirmenningardagar í Bonn í Þýskalandi í til-efni af fimmtíu ára stjórnmálasambandi
Íslands og Þýskalands og hundrað ára afmæli
Halldórs Laxness. Tónleikar hafa verið haldnir,
lesið úr íslenskum bókmenntum og myndlist-
arsýning opnuð að viðstöddum ráðamönnum í
Bonn og fylkinu Nordrhein-Westfalen, og for-
seta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni.
Í kammermúsíksal Beethoven-hússins, fæð-
ingarstaðar Ludwig van Beethoven, mættust
þýsk og íslensk tónlist. Þýsk söngkona flutti
sönglög þriggja kvenna frá 19. öld, Fanny
Hensel-Mendelssohn, Josphine Lang og Clara
Schumann, og Finnur Bjarnason tenór og Örn
Magnússon píanóleikari sönglög eftir Jón Leifs
við góðar undirtektir.
Í fyrirlestrarsal Listasafns Bonn var haldin
bókmenntahátíð í tilefni af aldarafmæli Hall-
dórs Laxness. Uppselt var á dagskrána fyrr um
daginn og urðu margir frá að hverfa. Forseti
Íslands flutti ávarp og fjallaði um bókmenntir
og menningu á Íslandi. Halldór Guðmundsson
bókmenntafræðingur flutti erindi um Laxness
en fyrir nokkru kom út á þýsku bók eftir hann
um nóbelsskáldið. Halldór kynnti síðan íslensku
rithöfundana sem lásu úr verkum sínum og
ræddu viðgesti, þau Thor Vilhjálmsson, Einar
Má Guðmundsson, Steinunni Sigurðardóttur og
Arnald Indriðason. Lestri höfundanna var afar
vel tekið og að dagskrá lokinni þyrptust gestir
að höfundunum og sóttust eftir áritun á bækur
sínar.
Þá var opnuð í safninu sýning á ljósmyndum
eftir Einar Fal Ingólfsson en hún nefnist Sögu-
staðir og þar gefur að líta myndir af stöðum og
ábúendum á bæjum sem koma fyrir í Njáls-
sögu.
Lokaviðburður hátíðarinnar verður flutn-
ingur Sinfóníuhljómsveitar Háskólans í Bonn á
verki Jóns Nordals, Adagio, undir stjórn Guð-
mundar Emilssonar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Thor Vilhjálmsson ávarpar gesti á íslensku bókmenntahátíðinni í Listasafni
Bonn. Uppselt var á viðburðinn fyrr um daginn og varð fólk frá að hverfa.
Morgunblaðið/Einar Falur
Finnur Bjarnason og Örn Magnússon í garðinum við fæðingarstað
Beethovens. Þeir héldu tónleika í Beethoven-salnum, sem er fyrir aftan
þá, og fluttu sönglög Jóns Leifs við góðar undirtektir.
Fjölsóttir viðburðir á íslensk-
um menningardögum í Bonn
Stúdentakjallarinn Eistneski ten-
ór saxafónleikarinn Siim Aimla held-
ur tónleika kl. 22. Með Siim leika
þeir Ólafur Stolzenwald á bassa og
Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari.
Á efnisskránni verða lög eftir John
Coltrane, Thelonius Monk og John
Scofield. Siim er staddur hér á landi
sem skiptinemi í tónlistarskóla FÍH
og hann kemur úr finnskum tónlist-
arháskóla.
Kaffileikhúsið í Hlaðvarpanum
Ingólfur Steinsson fagnar með tón-
leikum útgáfu geislaplötunnar
Kóngsríki fjallanna kl. 20.30. Ing-
ólfur syngur og leikur á gítar og
munnhörpu lög við eigin texta og
annarra íslenskra skálda, þ. á m.
Snorra Hjartarsonar, Steins Stein-
ars, Jóns Helgasonar, Þorsteins Er-
lingssonar og Davíðs Stefánssonar.
Súfistinn, Laugavegi 18 Lesið
verður úr nýjum bókum kl. 20. Pétur
Gunnarsson les úr bók sinni Leiðin
til Rómar, Thor Vilhjálmsson les úr
bók sinni Sveigur og Einar Kárason
les úr ævisögu Kristjáns Kristjáns-
sonar: KK – þangað sem vindurinn
blæs, sem hann skrásetti.
Þá leikur KK tónlist af nýjum geisla-
diski sínum Paradís.
Jólasýning Handverks og hönn-
unar, Aðalstræti 12, verður opnuð
12. Hún stendur til 22. desember og
er opin alla daga kl. 12-17, um helgar
kl. 14-18.
Þjóðarbókhlaða, kaffistofa
Kvöldvaka Kvennasögusafnsins
verður kl. 20.30. Forstöðumaður
safnsins flytur ávarp. Helga Kress,
prófessor, flytur erindi um barnalýs-
ingar í verkum Halldórs Laxness.
Guðrún Edda Gunnarsdóttir syngur
tvö ljóð eftir Halldór og tvo gamla
sálma. Björg Einarsdóttir flytur er-
indi um kvenfélagið Hringinn sem
stofnað var í Reykjavík árið 1904.
Kaffi Mílanó Ingvar Þorvaldsson
sýnir olíumálverk út desember.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is