Morgunblaðið - 05.12.2002, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 05.12.2002, Qupperneq 51
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2002 51 KNICKERBOX Laugavegi 62, sími 551 5444 KNICKERBOX Kringlunni, sími 533 4555 J ó l i n e r u k o m i n í K N I C K E R B O X — Munið gjafakortin — — Sendum í póstkröfu — Silkikjóll 5.699,- Silkisloppur 8.299,- Flísnáttfötin og -slopparnir eru komnir Buxur 3.299,- Toppur 1.499,- Buxur 3.899,- væntanlegt í næstu viku Toppur 2.399,- Brjóstahaldarai 4.699,- Nærbuxur 1.999,- JÓLAGETRAUN fyrir 1.–5. bekk grunnskóla hefur verið send öllum grunnskólanemendum á þeim aldri á landinu. Rúmlega 22 þúsund börn fengu hana senda og leysa hana með aðstoð foreldra eða kennara. Á ferð og flugi með jólakettinum er yfirskrift getraunarinnar að þessu sinni, en hún byggist á sögu í átta stuttum köflum og spurn- ingum tengdum söguþræðinum. Höfundur texta er Sigríður Ólafs- dóttir, teikningar eru eftir Jón Ágúst Pálmason, en hönnuður verkefnisins var Hilmar Þorsteinn. Getraunin er unnin í samstarfi Um- ferðarstofu, embættis ríkislög- reglustjóra og lögreglumanna sem annast umferðarfræðslu í skólum og er hún kostuð að talsverðum hluta af sveitarfélögunum. Veitt eru verðlaun og afhendir lögregla þau í flestum tilvikum rétt fyrir jólahátíðina. Mismunandi er hvenær gert er ráð fyrir að börnin skili lausnum sínum en gert ert ráð fyrir að börn í Reykjavík hafi skilað í síðasta lagi föstudaginn 6. desember nk., en miðað er við að réttar lausnir verði birtar á vefsíðu ríkislögreglu- stjóra, www.rls.is, og Umferð- arstofu, www.us.is, 16. desember nk., segir í fréttatilkynningu. Jólagetraun fyrir grunn- skólanem- endur 2.000, ekki 200 Leiðindavilla slæddist í viðtal við Kristínu Indriðadóttur, fram- kvæmdastjóra Menntasmiðju Kenn- araháskóla Íslands, á blaðsíðu átta í Morgunblaðinu í gær. Stóð þar að nemendur við KHÍ væru 200, en þar vantaði eitt núll, talan átti að vera 2.000. Þetta leiðréttist hér með og eru hlutaðeigendur beðnir velvirðingar. LEIÐRÉTT TÍMARITIN Sumarhúsið og garð- yrkjuritið Við ræktum hafa verið sameinuð undir heitinu Sumarhúsið og garðurinn. Útgefandi er Rit og rækt ehf. í Mosfellsbæ sem gaf út bæði ritin áður. Ráðgert er að gefa út fimm tölu- blöð á næsta ári, það fyrsta í mars og síðan á tveggja mánaða fresti. Tíma- ritið verður bæði selt í áskrift og lausasölu. Ritstjórar eru Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur og Páll Pétursson, sem annast myndvinnslu og uppsetningu blaðsins ásamt ljós- myndun. Rit og rækt ehf. stóð á árinu fyrir sýningunni Sumarhúsið og garður- inn og verður hún haldin dagana 15. til 18. maí á næsta ári. Tvö tímarit sameinuð BENEDIKT Jónsson, sendiherra, hefur afhent trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Túrkmenistan. Hann hefur aðsetur í Moskvu. Afhenti trúnaðarbréf LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir vitnum að tveimur umferðaróhöppum miðvikudaginn 27. nóvember sl. Hið fyrra varð á bílastæði sunnan við Hólagarð í Lóuhólum, á tímabilinu 12–19. Þar var ekið utan í bifreiðina UF-476, sem er rauð Toyota Corolla, og síðan ekið af vettvangi. Seinna óhappið varð á bílastæði við Hverf- isgötu 56, á tímabilinu 20–22:10. Þar var ekið utan í bifreiðina RP-480 af gerðinni Toyota Corolla, gráa að lit, og síðan ekið af vettvangi. Þeir sem geta veitt upplýsingar varðandi málin eru vinsamlega beðnir að hafa sam- band við lögregluna í Reykjavík. Lýst eftir vitnum Jólaskemmtun Dansráðs Íslands verður á Broadway sunnudaginn 8. desember kl. 13, en húsið er opnað kl. 12. Að sýningu lokinni mun jóla- sveinninn koma, dansa í kringum jólatré og skemmta gestum. Dans- atriði verða sýnd frá eftirtöldum að- ilum: Dansskóla Heiðars Ástvalds- sonar, Danssmiðjunni, Danshúsinu Kópavogi, Dansskóla Jóns Péturs og Köru, Dansíþróttafélagi Hafn- arfjarðar og Jazzballettskóla Báru. Dansráð Íslands er fagfélag dans- kennara á Íslandi, í félaginu eru starfandi kennarar í dans- og grunn- skólum landsins. Forsala og borð- apantanir eru hjá Dansrækt JSB, Lágmúla 9 Rvk dagana til 7. desem- ber. Einnig er selt inn við inngang- inn. Miðaverð er kr. 700, frítt fyrir 5 ára og yngri og eldri borgara. Á NÆSTUNNI Jólafundur Félags nýrnasjúkra verður í kvöld, fimmtudaginn 5. des- ember, kl. 20 í Áskirkju v/Vest- urbrún. Bragi Skúlason flytur hug- vekju, Auður Haralds verður með gleðiávarp og söngnemendur Signýj- ar Sæmundsdóttur syngja nokkur lög. Kaffihlaðborð og allir koma með lítinn jólapakka. Tourette-samtökin verða með opið hús í kvöld, fimmtudagskvöldið 5. desember, kl. 20.30 í Hátúni 10b (austasta ÖBÍ blokkin), í kaffiteríunni á jarðhæðinni. Jólakort samtakanna verða til sölu. Opin hús eru mán- aðarlega að vetrinum, þar sem haldn- ir eru fyrirlestrar, kynningar o.fl. Í DAG KIRKJUGARÐAR Reykjavíkurpró- fastsdæma í samstarfi við Arkitekta- félag Íslands hafa ákveðið að efna til samkeppni um útlitshönnun land- svæðis í Leynimýri við Öskjuhlíð vegna kirkjugarðs fyrir duftker sem þar er á samþykktu aðalskipulagi Reykjavíkur. Jafnframt er ákveðið að efna til samkeppni um útlitshönnun landsvæðis og gerð byggingateikn- inga vegna framkvæmda í Hallsholti við Gufuneskirkjugarð. Á Hallsholti, sunnan við Gufunes- kirkjugarð, verður byggð þjónustu- miðstöð. Í henni verða skrifstofuhús- næði, starfsmannaaðstaða, líkhús, kapella o.fl. Byrjað verður á byggingu skrifstofuhúsnæðis og starfsmanna- aðstöðu á næsta ári og síðan verður bætt við húsnæðið eftir þörfum. Duftgarðurinn í Leynimýrinni kemur til með að ná yfir rúmlega þriggja hektara land. Í samstarfi við samkeppnisnefnd Arkitektafélags Ís- lands verður fyrirkomulag sam- keppni um duftgarðinn og uppbygg- inguna í Gufuneskirkjugarði mótuð nú á næstu vikum og síðan verður auglýst í samræmi við niðurstöður. Framkvæmdaáætlun Kirkjugarð- anna gerir ráð fyrir að landið verði ræst fram á næsta ári og hafist verði handa við gerð duftgarðs þegar land- ið hefur verið ræst fram. Markmiðið með þátttöku arkitekta og myndlistarmanna í slíkri sam- keppni er að tryggja að kirkjugarðar framtíðarinnar verði mótaðir af nýj- ustu hugmyndum varðandi skipulag, fagurfræðilegt útlit og byggingalist. Duftgarðurinn austan við Foss- vogskirkju er nú nær fullsettur og er því orðin brýn þörf á nýjum duftgarði í Fossvogi. Kirkjugarðarnir efna til samkeppni MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun sam- eiginlegs félagsfundar Drífanda stéttarfélags, Sveinafélags járn- iðnaðarmanna, Sjómannafélags- ins Jötuns og Verslunarmanna- félags Vestmannaeyja sem haldinn var í Alþýðuhúsinu 2. desember sl.: „Fundurinn lýsir yfir þungum áhyggjum af ástandi og þróun atvinnumála í Vestmannaeyjum. Sífelld fækkun starfa í fisk- vinnslu og brottflutningur fólks frá Eyjum er stéttarfélögunum mikið áhyggjuefni. Kvótasetning nokkurra tegunda verði afnumin Fundurinn krefst þess að þingmenn Suðurlands beiti sér fyrir því að sjávarútvegsráð- herra afnemi kvótasetningu á keilu, löngu, skötusel og kol- munna. Enda eru engin vísinda- leg rök fyrir þeim gjörningi. Fundurinn lýsir stuðningi við umsókn bæjarstjórnar um byggðakvóta og hvetur útgerð- armenn og fiskvinnslufyrirtæki til að láta skip sín landa meiri afla til vinnslu hér í Vestmanna- eyjum. Atvinnuleysi og brottflutning- ur fólks sýna að óbreytt fisk- veiðistefna er ekki til þess fallin að bæta lífskjör sjávarbyggða sem eiga undir högg að sækja. Fundurinn mótmælir harðlega þeim verðhækkunum sem nú dynja yfir og minnir á þjóðarsátt um að halda verðbólgu niðri. Fundurinn hvetur stjórnvöld til að taka höndum saman við stéttarfélög og atvinnurekendur í Eyjum til lausnar þessum mikla vanda er steðjar að byggð- arlaginu.“ Áhyggjur af atvinnu- ástandi í Eyjum OPIN kerfi hf. styrktu Stefán Karl Stefánsson leikara í baráttu hans við einelti og til að stofna samtökin Regnbogabörn í stað þess að senda út jólakort í ár til viðskiptavina. Regnbogabörnum er ætlað að berj- ast með félagslegum verkefnum í samfélaginu, í víðasta skilningi þess orðs, eins og Stefán Karl orðar það, en þar á meðal er baráttan gegn einelti. Opin kerfi höfðu í október gefið Stefáni Karli ýmsan HP búnað, en nú fékk hann einnig jólakortastyrk- inn til stuðnings Regnbogabörnum, segir í fréttatilkynningu. Stefán Karl Stefánsson, leikari og forgöngumaður að stofnun Regnboga- barna (t.v.), og Gylfi Árnason, framkvæmdastjóri Opinna kerfa hf. Regnbogabörn styrkt í stað jólakorta
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.