Morgunblaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÚARFOSS, skip Eimskipa-
félagsins sem var að lesta við Binna-
kant í Vestmannaeyjum sl. fimmtu-
dagskvöld, slitnaði frá bryggjunni
vegna mikils sogs í höfninni og tölu-
verð hætta var á ferðum um tíma.
Það var kl. 18.30 í kjölfar þess að
mikil suðvestanátt rauk upp við
Vestmannaeyjar og ölduhæð við
Surtsey fór í tæpa 9 metra og sjór-
inn vestan við Eyjar rauk upp í
mikla brimskafla að mikið sog
myndaðist í Vestmannaeyjahöfn.
Brúarfoss var að lesta gáma þegar
fangalínur að framan slitnuðu og
skipið tók á rás afturábak, land-
gangurinn slitnaði frá og hvarf í sjó-
inn. Þá tók skipið á rás áfram og
aftasti spottinn hélt en klippti í
sundur bryggjupolla. Til að minnka
ferðina á skipinu voru bæði anker
þess látin falla. Fangalínur af þess-
ari gerð þola 700 tonna átak að sögn
Sveins Halldórssonar hafnarvarðar.
Fólk var í hættu
Pollinn skaust með ógnar krafti í
skipið aftanvert og dældaði það
töluvert, og að sögn Sveins hefði
pollinn farið í gegnum lunninguna ef
fangalínan hefði ekki verið á milli.
Frá skipinu þeyttist pollinn í frysti-
gám sem átti fara um borð og kom á
hann gat. Þaðan skaust pollinn eina
70 metra eftir bryggjunni þar sem
starfsmenn Eimskips í Vestmanna-
eyjum voru í töluverðri hættu, en
pollinn staðnæmdist á miðri bryggj-
unni.
Hafnarverðir og hafnsöguskipið
Lóðsinn voru ræstir út til aðstoðar.
Fljótlega tókst að koma skipinu á
sinn stað og Lóðsinn varð að beita
öllu vélarafli sínu til að ýta skipinu
að bryggjunni til að halda því stöð-
ugu þar. Að sögn Ólafs M. Krist-
inssonar hafnarstjóra eru tilvik sem
þetta afar sjaldgæf í Eyjum en
vissulega hafi verið mikil hætta á
ferð að hans sögn en betur farið en
á horfðist.
Brúarfoss hélt frá Vestmannaeyj-
um til Englands kl. 2 aðfaranótt
föstudags.
Gríðarlegt sog myndaðist í Vestmannaeyjahöfn
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Bryggjupollinn sést hér á miðri bryggjunni eftir að hafa smollið í gámi og spýst af honum eina 70 metra þar sem
starfsmenn Eimskips voru við vinnu. Þykir mesta mildi að ekki skuli hafa orðið slys á mönnum.
Brúarfoss slitnaði
frá Binnakanti
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
„ORUSTUÞOTUR, skriðdrekar,
efnavopn eða kjarnorkusprengj-
ur!!! Hver her hefur sína sérstöðu!
Frábær nýr grafíkvél, frábær spil-
un... frábær leikur!“ Svona hljóm-
ar auglýsing á nýjum tölvuleik
sem BT-verslanirnar hafa auglýst
til sölu. Leikurinn mun hafa rokið
út eins og heitar lummur, en 15
ára aldurstakmark er sett á leik-
inn.
Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís-
lands, segir hætt við að stríðs-
leikur á borð við þennan valdi
veruleikafirringu hjá ungum börn-
um og geri stríð að spennandi leik.
„Börn hafa alltaf leikið sér að
dátum en þetta er eitthvað allt
annað. Þarna er um að ræða tól
sem eru þvílík eftirlíking af raun-
veruleikanum að það skilur ekkert
eftir fyrir ímyndunaraflið. Hættan
við allt þetta er að sjálfsögðu að
börn sjái ofbeldi sem leik og venj-
ist því að gleypa hrátt það sem
maður sér gjarnan í fréttum þegar
fjallað er um stríðsátök og skot-
mörk eru sögð hernaðarlega mik-
ilvæg. Það gleymist að það er
venjulegt fólk sem um fram allt
verður fyrir barðinu á þessum tól-
um og tækjum. Það er fólk eins og
við sem líður fyrir stríðsátök, sak-
laust fólk sem bíður þess aldrei
veður uppi og er markaðssett með-
al ungs fólks. Dýrkun á ofbeldi og
hörku sem ég er sannfærður um
að setur sín spor í ómótað sálarlíf.
Það sem við þurfum á að halda er
uppeldi til friðar, uppeldi sem
kennir fólki að leysa sín mál með
friðsömum hætti,“ segir Karl.
Sævaldur Gunnarsson, sölumað-
ur í tölvuleikjadeild BT, segir að
40 eintök af leiknum hafi borist í
búðina á miðvikudag og þau séu
öll seld. Aðspurður
hvort hann teldi
tölvuleikinn
gott
þroska-
leikfang
fyrir
ung-
linga
sagð-
ist
Sæ-
valdur per-
sónulega ekki
hafa áhyggjur af
því að leikurinn
gæti skaðað óhörðn-
uð ungmenni.
„Kannski hafa bandarískir
unglingar minna veruleikaskyn, en
ég held að íslenskir krakkar átti
sig alveg á þessu,“ sagði Sævaldur.
Hætt við firringu sé
stríð gert spennandi
Efnavopn og
kjarnorku-
sprengjur í tölvu-
leik fyrir unglinga
bætur. Svona stríðsleikföng
brengla þessa mynd. Gera stríð að
spennandi leik, en mannlegi þátt-
urinn gleymist,“ segir Karl.
Þurfum uppeldi til friðar
Hann segir að marg-
oft hafi verið sýnt
fram á að bein
tengsl séu á milli
ofbeldis og vald-
beitingar hjá
börnum og full-
orðnum og of-
beldisfullum
tölvuleikjum og
ofbeldismyndum.
„Þessi miðill er svo
öflugur að það er auð-
velt að brengla dóm-
greind og veikla þá þrösk-
ulda sem hamla gegn því að maður
beiti slíkum ráðum sjálfur,“ segir
Karl.
„Ég hef áhyggjur af þessari
skefjalausu ofbeldisdýrkun sem
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær rúmlega tvítugan karl-
mann í 15 mánaða fangelsi fyrir að
nauðga 16 ára unglingsstúlku í
tjaldi á Eldborgarhátíðinni sem
haldin var um verslunarmannahelg-
ina árið 2001. Honum var auk þess
gert að greiða stúlkunni 700 þúsund
krónur í miskabætur.
Stúlkan lýsti atburðum svo að
hún hefði farið inn í tjald sitt að-
faranótt sunnudagsins 5. ágúst og
maðurinn komið inn strax á eftir.
Hún hafi beðið hann um að fara út
en hann hafi ekki sinnt því heldur
ráðist á hana og gripið um háls
hennar. Hún hafi barist á móti og
öskrað á hjálp en manninum hafi
tekist að nauðga henni.
Maðurinn neitaði ávallt sök. Við
fyrstu yfirheyrslu sagðist hann
muna atburði næturinnar vel en
hann breytti framburði sínum eftir
að honum voru kynntar niðurstöður
DNA-rannsóknar sem leiddi í ljós
að munnvatn úr honum var á hálsi
stúlkunnar. Einnig fannst veski
mannsins í tjaldi stúlkunnar. Kvaðst
maðurinn þá hafa verið minnislaus
sökum ölvunar og fíkniefnaneyslu.
Þegar stúlkan leitaði til neyðarmót-
töku var hún með áverka og hafði
greinilega verið beitt líkamlegu of-
beldi. Taldi dómurinn sannað, m.a. á
grundvelli framburðar vitna, að
maðurinn hafi gert sekur um það
brot sem hann var ákærður fyrir.
Segir í dómnum, að brotið sé alvar-
legt og hafi beinst gegn kynfrelsi
stúlkunnar, sem var mjög ung. Því
hafi brotið verið til þess fallið að
færa líf hennar úr skorðum eins og
raunin varð.
Dóminn kváðu upp Guðjón St.
Marteinsson sem dómsformaður,
Hördís Hákonardóttir og Friðgeir
Björnsson, dómstjóri. Kolbrún Sæv-
arsdóttir, fulltrúi ríkissaksóknara,
sótti málið en Guðjón Ármann Jóns-
son hrl. var skipaður verjandi.
Í fangelsi fyrir
nauðgun á Eld-
borgarhátíð
HAFRANNSÓKNASTOFNUN
áformar að fara í loðnuleiðangur á
rannsóknaskipinu Árna Friðriks-
syni um eða eftir helgi, eða um leið
og færi gefst til mælinga.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunarinnar, segir
að ná þurfi mælingu á smáloðnu
vegna tillögugerðar um upphafs-
aflaheimildir á næsta fiskveiðiári,
auk þess sem farið verði yfir miðin
fyrir austan land þar sem loðnan er
að safnast saman áleiðis til hrygn-
ingar.
Mælingum lauk á loðnustofninum
í janúar sl. sem gaf heldur minna
magn en væntingar stóðu til því
ástand stofnsins hafði verið gott. Í
kjölfarið ákvað sjávarútvegsráð-
herra að auka aflaheimildir fyrir
loðnu úr 690 þúsund tonnum í 910
þúsund tonn á yfirstandandi vertíð.
Sökum þess hve vel veiðin hefur
gengið undanfarið eru mörg loðnu-
skip annaðhvort búin með kvótann
eða langt komin með hann.
Jóhann segir erfitt að meta á
þessari stundu hvort stofnunin
muni leggja til aukinn loðnukvóta,
það fari eftir niðurstöðum leiðang-
ursins. Ástæða hafi verið talin til að
fara yfir miðin á ný. Það fer svo
eftir veðri og fregnum af loðnumið-
unum hvenær nákvæmlega Árni
Friðriksson leggur af stað í leiðang-
urinn og mælingum lýkur.
Loðnu verður
leitað eftir helgi