Morgunblaðið - 15.02.2003, Qupperneq 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
REKSTUR Bakkavarar gekk mjög
vel á síðasta ári og sagði Ágúst Guð-
mundsson, stjórnarformaður fyrir-
tækisins, á aðalfundi þess í gær, að
enn væru tækifæri til enn meiri
vaxtar.
Bakkavör skilaði methagnaði á
síðasta ári eða um 2,1 milljarði
króna fyrir skatta sem er 332%
aukning frá árinu 2001. Fyrirtækið
seldi afurðir fyrir um 18,3 milljarða
króna sem er 226% söluaukning frá
árinu 2001 og hefur velta þess tvö-
hundruðfaldast frá árinu 1997. Innri
vöxtur félagsins var á síðasta ári
21,2%.
Bakkavör rekur starfsemi á sjö
stöðum í heiminum og skiluðu öll
dótturfélög methagnaði á síðasta ári
nema dótturfélagið í Póllandi. Starf-
semi félagsins í þessum heimshluta
hefur nú verið hætt.
Stefnt að því að kaupa
önnur fyrirtæki
Ágúst sagði bjart framundan í
rekstri félagsins á árinu 2003. Því
væri spáð að markaður fyrir kæld
matvæli í Bretlandi myndi halda
áfram að vaxa með sama hraða
næstu 5 árin og hann hefur gert á
undanförnum 5 árum. Framtíðar-
markmið fyrirtækisins væri að vaxa
áfram um 20–30% á ári og til að ná
því markmiði væri fyrirtækið opið
fyrir því að kaupa önnur fyrirtæki
sem falla vel að framtíðarsýn
Bakkavarar. Þá yrði áhersla lögð á
þá hluta markaðarins sem eru í hvað
örustum vexti í fyrirsjáanlegri fram-
tíð. Markaðurinn væri þó síbreyti-
legur og tískusveiflur miklar. Því
yrði áfram lögð áhersla á öfluga
vöruþróun í samvinnu við helstu við-
skiptavini, sem eru stórmarkaðs-
keðjurnar í Bretlandi. Ágúst benti á
að stórmarkaðskeðjan Tesco, sem
kaupir um 45% af framleiðslu
Bakkavarar, hafi styrkt stöðu sína á
breska markaðnum og það muni
skapa tækifæri fyrir Bakkavör.
75% af sölu Bakkavarar er í Bret-
landi en Ágúst sagði að stefnt væri
að því að efla starfsemi á öðrum
mörkuðum. Tækifærin væru mikil
þó enginn markaður væri enn eins
þróaður og Bretlandsmarkaður á
sviði kældra matvæla og víða mætti
merkja mikinn áhuga á þeim vörum
sem nú eru í boði á breska mark-
aðnum.
Aðalfundurinn samþykkti tillögu
stjórnarinnar um að hluthöfum yrði
ekki greiddur arður fyrir rekstrar-
árið 2002, enda hafi hagnaði ársins
verið varið til að styrkja innri vöxt
félagsins. Stjórn Bakkavarar var
endurkjörin á fundinum.
Aðalfundur Bakkavarar
Mörg tækifæri
til enn meiri
vaxtar á árinu
Morgunblaðið/Kristinn
Ágúst Guðmundsson, stjórnarformaður Bakkavarar.
Pétur Björns-
son, stjórnar-
formaður Ís-
fells-Neta-
sölunnar ehf.,
var kjörinn
formaður
Samtaka versl-
unarinnar á
aðalfundi samtakanna í gær.
Pétur stofnaði og var for-
stjóri Ísberg Limited í Hull frá
1986 til 1998. Hann hefur verið
stjórnarformaður og eigandi
síðan.
Árið 1992 stofnaði Pétur
ásamt fleirum Ísfell ehf. sem
stundar innflutning og sölu á
veiðarfærum. Ísfell ehf. var
sameinað Netasölunni ehf. í
september 2001 og heitir síðan
Ísfell-Netasalan ehf. Fyrirtæk-
ið var sameinað Icedan Holding
ehf. um síðustu áramót og kem-
ur sameinað fyrirtæki til með
að bera nafnið Ísfell ehf.
Þá er Pétur stjórnarformað-
ur og aðaleigandi að Ísfélagi
Þorlákshafnar sem á og rekur
ísverksmiðju, frystigeymslu og
skipaafgreiðslu í Þorlákshöfn.
Nýr for-
maður SV
Pétur Björnsson
HAUKUR Þór Hauksson, fráfarandi
formaður Samtaka verslunarinnar,
ávarpaði aðalfund samtakanna í
fjórða og síðasta sinn á Grand hóteli í
gær. Hann sagði að sér væri efst í
huga „sú mikla bót sem náðst hefur í
rekstrarskilyrðum fyrirtækjanna í
landinu á síðustu árum. Fyrirtækin
búa að mörgu leyti við betri skilyrði
en almennt tíðkast í nágrannalöndum
okkar, ekki síst í skattamálum.“
Þá sagði Haukur að árangur nú-
verandi ríkisstjórnar í einkavæðingu
ríkisfyrirtækja væri sérstakt fagnað-
arefni. „Það hefur verið ofarlega á
stefnuskrá þessara samtaka, allt frá
því er þau voru stofnuð árið 1928, að
berjast gegn afskiptum hins opinbera
af atvinnulífinu,“ sagði hann í ræðu
sinni.
Hugsjónir Jóns forseta
gleymdar
Haukur sagði, að Íslendingar
hefðu furðu fljótt gleymt hugsjónum
Jóns Sigurðssonar, um mikilvægi
frjálsrar verslunar. Tekið hafi verið
upp kerfi opinberra hafta og skammt-
ana, strax í lok annars áratugs tutt-
ugustu aldar. „Í dag eru ekki liðin
nema tæp 60 ár frá fullu sjálfstæði Ís-
lands, en svo furðu fljótt er risin ný
stétt manna sem telja að Íslendingar
eigi enga valkosti aðra en að ganga í
Evrópusambandið og afsala sér sjálf-
stæði þjóðarinnar.“
Annar framsögumaður aðalfundar-
ins, Jafet Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Verðbréfastofunnar, hélt erindi
sem hann kallaði „Breytingar í kjöl-
far einkavæðingar ríkisfyrirtækja“.
Hann rakti röksemdir fyrir einka-
væðingu ríkisfyrirtækja og sagði að
fyrirtækjum hefði vegnað vel frá
einkavæðingu. Hann sagði að einn
helsti kostur einkavæðingar væri að
opinberum afskiptum linnti að mestu,
en það hefði þó ekki gerst að öllu leyti
hér á landi. Stjórnmálamenn yrðu að
hafa varann á í yfirlýsingum um fyr-
irtæki, því þær gætu skaðað hags-
muni þeirra erlendis.
Þjóðir ríkar vegna
frjálsra viðskipta
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
prófessor í stjórnmálafræði við Há-
skóla Íslands, sagði í ræðu sinni að
greinileg fylgni væri með frelsi í at-
vinnulífi og betri lífskjörum almenn-
ings. Þótt atvinnulífið væri skipulegt,
þyrfti það ekki að vera skipulagt.
Hann benti á að þjóðir væru ríkar
vegna þess að þær nýttu sér verka-
skiptingu og stunduðu frjáls við-
skipti.
Hannes sagði að atvinnufrelsi ríkti
nú á ný á Íslandi, eftir áratuga haf-
tabúskap og verðbólguár. Ýmsir sjóð-
ir tengdir atvinnulífinu hefðu verið
lagðir niður, stöðugt verðlag ríkti
ásamt festu í ríkisfjármálum og
einkavæðing hefði sitt að segja.
Framtíð landsins væri björt. Hann
sagði að Íslendingar ættu gjöful fiski-
mið, vatnsafl og jarðvarma, lega
landsins væri heppileg og þjóðin vel
menntuð. Á Íslandi væru því góð skil-
yrði fyrir alþjóðlega fjármálamiðstöð.
Betri skilyrði fyrirtækja
en í nágrannalöndum
Morgunblaðið/Golli
Haukur Þór Hauksson lét af störfum sem formaður Samtaka verslunar-
innar-Félags íslenskra stórkaupmanna á aðalfundi samtakanna í gær.
STJÓRNIR SH hf. og SÍF hf. hafa
fengið afhent gögn frá Landsbanka
Íslands hf. og Íslandsbanka hf. um
rekstrar- og eignarvirði SH hf. og
SÍF hf., ásamt tillögum um skipta-
hlutföll. Á fundum stjórnanna var
rætt um málið og ákveðið að fara
fram á viðbótarupplýsingar um
rekstur og efnahag hvors félags fyrir
sig.
Bæði félögin hafa skipað viðræðu-
nefndir og eru því formlegar viðræð-
ur félaganna hafnar. Leitast verður
við að hraða þeim viðræðum eftir
föngum, að því er fram kemur í til-
kynningu frá félögunum. Í viðræðu-
nefndunum sitja fyrir hönd SÍF þeir
Friðrik Pálsson, stjórnarformaður
SÍF, Aðalsteinn Ingólfsson, stjórn-
armaður og Þórður Már Jóhannes-
son framkvæmdastjóri Fjárfestinga-
félagsins Straums hf. Fyrir SH eru
þau Róbert Guðfinnsson, stjórnar-
formaður SH, Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson, stjórnarmaður, Þor-
steinn Vilhelmsson, stjórnarmaður
og Rakel Olsen, stjórnarmaður. For-
svarsmenn félaganna vildu í gær
ekki tjá sig um viðræðurnar að svo
stöddu.
SÍF og SH hefja formlegar
samrunaviðræður