Morgunblaðið - 15.02.2003, Side 24
ERLENT
24 LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞESSI ljósmynd Georges Gobet
fyrir frönsku fréttastofuna AFP
telst fréttamynd ársins, en niður-
staðan í hinni virtu ljósmynda-
keppni World Press Photo var
kunngjörð í gær. Myndina tók
Gobet á Fílabeinsströndinni, þar
sem geisað hefur borgarastríð und-
anfarin misseri, í september eða
október í haust.
Reuters
Fréttamynd ársins
FIMMTÁN manns biðu bana og
þrjátíu til viðbótar særðust þegar
sprengja sprakk í íbúðarhverfi í
borginni Neiva í Kólumbíu í gær.
Lögregla telur að FARC-samtök-
in, stærsta skæruliðahreyfing
landsins, beri ábyrgð á sprenging-
unni en hún átti sér stað einum
degi áður en von var á Alvaro
Uribe, forseta Kólumbíu, í heim-
sókn til Neiva. Meðal þeirra sem
féllu í sprengjutilræðinu voru
fimm ára gamalt barn og níu lög-
reglumenn. Miklar skemmdir
urðu á byggingum í nágrenni þess
staðar, þar sem sprengjan sprakk.
Neiva er 325 km suðvestur af
Bogota, höfuðborg Kólumbíu.
Sprakk sprengjan í úthverfi borg-
arinnar einmitt þegar lögreglan
var þar í rannsóknarleiðangri
vegna fyrirhugaðrar heimsóknar
Uribes forseta. Átti að tryggja að
honum væri örugglega óhætt að
heimsækja borgina.
Meira en 200.000 manns hafa
fallið í borgarastríðinu í Kólumb-
íu, sem staðið hefur síðan 1975.
Þar berjast nokkrar hreyfingar
vinstrisinnaðra skæruliða við
stjórnarher landsins, sem og við
sveitir hægrisinnaðra öfgamanna.
15 féllu í sprengju-
tilræði í Kólumbíu
Bogota. AFP.
YASSER Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, kvaðst í gær hafa samþykkt
að skipa forsætisráðherra eins og
Bandaríkjastjórn og Evrópusam-
bandið hafa krafist í marga mánuði í
von um að það geti greitt fyrir frið-
arviðræðum við Ísraela. Arafat sagði
hins vegar ekkert um hver yrði skip-
aður í embættið, hvenær það yrði
gert eða hversu mikil völd forsætis-
ráðherrann ætti að fá.
Arafat skýrði frá ákvörðun sinni á
blaðamannafundi í Ramallah eftir
fund með embættismönnum frá Evr-
ópusambandinu, Sameinuðu þjóðun-
um og Rússlandi. Hann kvaðst ætla
að boða fund um málið á palestínska
þinginu og í miðstjórn Frelsissam-
taka Palestínumanna, PLO.
„Mun taka nokkurn tíma“
Terje Rød-Larsen, sendimaður
Sameinuðu þjóðanna, sem var á
fundinum, sagði að forsætisráðherra
yrði líklega skipaður á næstu dögum
og Arafat hefði ekki sett nein skil-
yrði fyrir nýja embættinu.
Saeb Erekat, aðalsamningamaður
Palestínumanna sem var einnig á
fundinum, sagði hins vegar að það
gæti tekið nokkurn tíma að stofna
embættið. „Allt þetta mál tengist
framkvæmd friðaráætlunarinnar,“
sagði hann og skírskotaði til áætl-
unar „kvartettsins“ svokallaða, Sam-
einuðu þjóðanna, Bandaríkjanna,
Evrópusambandsins og Rússlands.
Háttsettir palestínskir embættis-
menn sögðu í fyrradag að Arafat
myndi samþykkja að forsætisráð-
herra yrði skipaður „þegar Palest-
ínuríki yrði stofnað og stjórnarskrá-
in samþykkt“.
Ziad Abu Amr, formaður stjórn-
málanefndar palestínska þingsins,
sagði að verið væri að leggja drög að
stjórnarskrá en hún myndi gilda í
Palestínuríki sem hefur ekki enn
verið stofnað. „Palestínska heima-
stjórnin starfar samkvæmt lögum
þar sem ekki er gert ráð fyrir for-
sætisráðherra,“ sagði hann. „Þess
vegna þarf þingið að fá upplýsingar á
næsta fundi um hversu mikil völd
heimastjórnin vill veita forsætisráð-
herranum og við þurfum síðan að
bæta við grein um það í lögin. Og það
mun taka nokkurn tíma.“
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, og talsmenn hans sögðu ekk-
ert um ákvörðun Arafats en Shimon
Peres, fyrrverandi utanríkisráð-
herra Ísraels, lýsti henni sem „skrefi
í rétta átt“. Ehud Olmert, borgar-
stjóri Jerúsalem og einn af frammá-
mönnum Likud-flokksins, var hins
vegar efins um að Arafat myndi fall-
ast á að deila völdunum með for-
sætisráðherra og lýsti honum sem
„sjónhverfingameistara“.
Arafat fellst á að skipa
forsætisráðherra
Reuters
Yasser Arafat ræðir við blaðamenn
á fundi í borginni Ramallah í gær.
Ramallah. AFP, AP.
Óljóst hvenær
nýja embættið
verður stofnað
TALIÐ er víst, að ofurheitt loft,
um 1.100 gráður á celsíus, hafi
streymt inn um sprungu í vinstri
væng geimferjunnar Kólumbíu,
hugsanlega í holrúmi fyrir hjóla-
búnaðinn, þegar hún kom inn í
gufuhvolf jarðar. Eru þetta fyrstu
ályktanir sérstakrar nefndar, sem
skipuð var til að rannsaka slysið,
en hún telur, að skemmdir á hita-
hlífum séu ekki einhlít skýring á
þeirri miklu hitaaukningu, sem
varð í ferjunni.
Nefndin upplýsti einnig í fyrra-
kvöld, að erfiðleikarnir, þar á með-
al hitaaukning í vinstra væng,
hefðu byrjað töluvert áður en ferj-
an kom yfir Kaliforníuströnd eða
miklu vestar en áður var talið.
Hitaaukningin inni í ferjunni er
rakin til rafgass, ofurheits lofts,
sem myndast vegna viðnámsins
þegar ferjan kemur inn í gufu-
hvolfið, og er nú verið að rannsaka
hvar hugsanlegt gat eða sprunga
hafi verið. Ekkert var hins vegar
sagt um það hvort hún kunni að
hafa stafað af tæringu í álburð-
arvirki ferjunnar eða af einhverj-
um aðskotahlutum, sem lent hafi á
henni. Þá var heldur ekkert um
það sagt hvenær líklegt væri, að
ferjan hefði orðið fyrir skaða í 16
daga ferð sinni.
Til að byrja með beindist rann-
sóknin helst að óvanalega stórum
einangrunarbút, sem brotnaði af
eldsneytisgeymi í flugtaki 16. jan-
úar. Myndbandsupptökur sýna, að
búturinn, sem var blýbryddaður,
lenti á vinstri vængnum og á hita-
hlífum á hlera fyrir hjólabúnaðar-
rými. Nú hafa hins vegar vaknað
grunsemdir um, að einhver önnur
og meiriháttar bilun hafi orðið í
hjólabúnaðarrýminu sjálfu.
Allstórt gat á vængnum?
Þessar ályktanir nefndarinnar
koma ekki á óvart þeim sérfræð-
ingum, sem telja, að ofurheitt raf-
gas sé skýringin á því, að hita-
skynjarar í vinstra væng Kólumbíu
þögnuðu hver á fætur öðrum. Einn
þeirra, Steven P. Schneider, að-
stoðarprófessor við geimrann-
sóknadeild Purdue-háskóla, segir,
að líklega hafi verið allstórt gat á
vængnum. Nefndin telur aftur á
móti, að gatið þurfi ekki að hafa
verið stórt. Jafnvel örlítið gat hefði
nægt til að valda slysinu.
Nefndin vísaði á bug tilgátum
um, að vinstri lendingarbúnaður
ferjunnar hefði verið gerður klár
er hún geystist inn í gufuhvolfið á
um 20.000 km hraða en hefði verið
um það að ræða, hefði það nægt til
að tortíma henni. Raunar komu
þau boð frá einum skynjara, að svo
hefði verið, en NASA, bandaríska
geimvísindastofnunin, telur, að
boðin hafi verið röng. Tveir aðrir
skynjarar sýndu, að allt var með
felldu að þessu leyti. Reglan er sú,
að hjólabúnaðurinn er innfelldur
þar til ferjan er í 60 metra hæð yf-
ir flugbrautinni og á 555 km hraða.
Streymdi ofurheitt
rafgas inn um sprungu?
Washington. AP.
KIM Dae-Jung, fráfarandi forseti
Suður-Kóreu, bað í gær landa sína
afsökunar á því, að Norður-Kóreu-
stjórn hefðu með leynilegum hætti
verið greiddar 200 milljónir dollara,
rúmlega 15 milljarðar íslenskra
króna. Hann neitaði hins vegar, að
um hefði verið að ræða mútur til að
tryggja sögulegan fund leiðtoga
ríkjanna í Pyongyang, höfuðborg
N-Kóreu, fyrir tveimur árum.
Í sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar
sagði Kim, að Hyundai-samsteypan
hefði reitt féð af hendi skömmu fyrir
leiðtogafundinn og með vitund
S-Kóreustjórnar.
„Ég harma það, sem gerðist, og
axla alla ábyrgð á því. Ég bið ykkur
samt að skilja, að þetta var gert í
þágu friðar og hagsmuna þjóðarinn-
ar,“ sagði Kim en hann fékk friðar-
verðlaun Nóbels fyrir starf sitt að
sáttum milli kóresku ríkjanna og þar
með fyrir fundinn í Pyongyang.
Greiðslan til N-Kóreustjórnar
stríðir beint gegn s-kóreskum lögum
en Kim sagði, að fyrir Hyundai hefði
vakað að tryggja framgang sjö verk-
efna í N-Kóreu, þar á meðal lagn-
ingar járnbrauta, byggingar raf-
orkuvers og fjarskiptakerfis og
uppbyggingar ferðaþjónustu og sér-
staks iðnaðarsvæðis. Fram kom þó
að s-kóreska leyniþjónustan hefði
aðstoðað Hyundai við yfirfærsluna.
Stjórnarandstaðan vísar afsökun-
arbeiðni Kims á bug og vill að sér-
stök rannsókn verði gerð á málinu.
Forseti Suður-Kóreu biðst afsökunar
N-Kóreustjórn
var ekki mútað
Seoul. AFP.
bílar
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM
SMÁAUGLÝSING
AÐEINS 995 KR.*
Áskrifendum Morgunblaðsins
býðst smáauglýsing fyrir aðeins 995 kr.*
Pantanafrestur er til kl. 12 á þriðjudögum.
* 4 línur og mynd.
HAFÐU SAMBAND!
Auglýsingadeild Morgunblaðsins sími 569 1111 eða augl@mbl.is