Morgunblaðið - 15.02.2003, Page 26
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
26 LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FORELDRAR allra nemenda í
grunnskólum Mosfellsbæjar hafa
tekið höndum saman og rölta nú
um bæinn um helgar og spjalla við
unglinga á förnum vegi. For-
eldraröltið er samstarfsverkefni fé-
lagsmálanefndar Mosfellsbæjar,
lögreglunnar, Kjósarýsludeildar
Rauða kross Íslands og foreldra-
félaga Varmár- og Lágafellsskóla.
„Úr þessu samstarfi hefur mynd-
ast hópur fólks sem mun standa að
foreldraröltinu,“ segir Hafdís
Rudolfsdóttir hjá Rauða kross-
inum. „Hlutverk foreldranna er að
rölta um bæinn um helgar, lög-
reglan verður þeim til aðstoðar og
Rauði krossinn heldur utan um
röltið, lánar húsnæði og safnar
saman upplýsingum.“
Foreldrar elstu barnanna hófu
foreldraröltið um síðustu helgi en
þar sem margir munu taka þátt í
því er líklegt að hvert foreldri þurfi
aðeins að taka að sér foreldrarölt
eitt kvöld á ári.
„Foreldrar hafa tekið þessu mjög
vel,“ segir Hafdís. „Þeim er skipt í
hópa og leggja hóparnir af stað frá
Rauðakrosshúsinu í Mosfellsbæ, að
Urðarholti 4, klukkan tíu á föstu-
dags- og laugardagskvöldum. Þeir
munu leita uppi þá staði þar sem
hópamyndanir eru. Hugmyndin er
sú að foreldrarnir eigi að vera til
staðar fyrir unglingana ef eitthvað
skyldi koma upp á. Við erum ekki
þarna til að segja öllum að fara
heim eða eitthvað slíkt, heldur
frekar brýna fyrir þeim að það sé
kannski ekkert sniðugt að vera úti
eftir að útivistartíma lýkur.“
Hafdís segir að foreldraröltið
skili sér einnig á þann hátt að for-
eldrar verði meðvitaðri um útivist-
artíma unglinga. „Þetta skýrir
frekar skilaboðin um nauðsyn þess
að virða útivistartímann, bæði fyrir
foreldrum og börnum.“
Hefur skilað góðum árangri
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
efnt er til foreldrarölts í Mos-
fellsbæ. „Það var síðast fyrir um
tveimur árum og af því var mjög
góður árangur. Það hefur mikið
gerst síðan það hætti og þess vegna
sá félagsmálasvið bæjarins sig knú-
ið til að gera eitthvað í málinu.“
Herdís Sigurjónsdóttir, formað-
ur félagsmálanefndar Mosfells-
bæjar, segir reynsluna af fyrsta
foreldraröltinu um síðustu helgi
hafa verið mjög góða. „Það hefur
ýmislegt verið í gangi í bænum sem
við viljum fylgjast með,“ segir Haf-
dís og bendir á að unglingar hafi
verið uppvísir að notkun fíkniefna.
„Foreldrar fundu t.d. í röltinu um
síðustu helgi hasspípu á víða-
vangi.“
Hún segir mikið öryggi í því að
lögreglan sé á bakvakt meðan á
foreldraröltinu stendur. „Við höf-
um verið að berjast fyrir því að fá
lögreglu til að vera í bænum um
helgar en eins og staðan er í dag er
aðeins lögregluvakt í Mosfellsbæ á
föstudagskvöldum. Annars erum
við aðeins með bakvaktarbíl úr
Reykjavík en við viljum að þessi
þjónusta verði bætt.“
Morgunblaðið/Kristinn
Hópurinn sem hóf foreldraröltið um síðustu helgi var skipaður foreldrum barna elstu bekkja grunnskóla bæjarins.
Vilja lögreglu í
bænum um helgar
Mosfellsbær
Foreldrarölt skilar góðum árangri
ÁÆTLAÐ er að skuldir Mosfells-
bæjar lækki um 110 þúsund krón-
ur á hvern íbúa eða um 22% á
tímabilinu 2004–2006. Þetta kemur
fram í þriggja ára fjárhagsáætlun
bæjarins sem afgreidd var á fundi
bæjarstjórnar síðastliðinn mið-
vikudag. Samhliða skuldalækkun
eru áform um talsverða uppbygg-
ingu í bæjarfélaginu.
Segir í fréttatilkynningu að
áætlunin byggist á því megin-
markmiði meirihluta sjálfstæðis-
manna „að bæta fjárhagsstöðuna,
lækka hlutfall rekstrarkostnaðar
af skatttekjum, lækka skuldir og
tryggja ráðdeild í meðferð fjár-
muna bæjarins.“
Á tímabilinu verður þó ráðist í
framkvæmdir á skóla- og íþrótta-
mannvirkjum og uppbyggingu
íbúða- og atvinnusvæða. Er gert
ráð fyrir að annar áfangi Lága-
fellsskóla verði byggður og
kennslurýmið verði tekið í notkun
haustið 2004. Árið síðar verði
íþróttahús skólans tilbúið. Sömu-
leiðis er fyrirhugað að byggja nýj-
an sex deilda leikskóla sem verði
lokið á næsta ári.
Þá er fyrirhugað að taka í notk-
un nýja innisundlaug árið 2006
samhliða því sem framkvæmdir við
útisundlaug verði hafnar.
Áfram verður haldið við upp-
byggingu íþróttasvæðisins á
Tungubökkum og við íþróttamið-
stöðina að Varmá. Er gert ráð fyr-
ir fjármunum til byggingar 18
holna golfvallar á vestursvæði
hennar.
Stefnt er að uppbyggingu hjúkr-
unarheimilis sem verði lokið árið
2006 auk þess sem fjármunir verða
settir í hönnun menningarhúss á
tímabilinu.
Loks er áformað að hefja upp-
byggingu nýs íbúðarhverfis við
Teiga á þessu ári auk athafna-
svæðis þar í nánd.
Lækkun skulda
samfara
uppbyggingu
Þriggja ára fjárhagsáætlun
samþykkt á miðvikudag
Mosfellsbær
STEFNT er að því að hefja á þessu
ári framkvæmdir við nýja félags- og
búningaaðstöðu HK á svæði félags-
ins í Fossvogsdal. Er áætlað að hús-
ið verði tilbúið á næsta ári. Formað-
ur HK segir nýju aðstöðuna bylt-
ingu fyrir félagsmenn.
Að sögn Þórarins Hjaltasonar
bæjarverkfræðings var samþykkt
35 milljóna króna fjárveiting til
verkefnisins á fjárhagsáætlun bæj-
arins fyrir yfirstandandi ár. Um sé
að ræða 700 fermetra hús á tveimur
hæðum sem muni hýsa 6 búnings-
klefa á neðri hæðinni og félagsað-
stöðu HK á þeirri efri.
Hönnun byggingarinnar er nú á
lokastigi að hans sögn en ekki hefur
verið tekin ákvörðun um hvenær
framkvæmdum eigi að vera lokið.
Þó sé stefnt að því að hefja fram-
kvæmdir á þessu ári. „Ég býst við
því að það sé verið að tala um að
þeim verði lokið fyrri hluta næsta
árs,“ segir Þórarinn.
Endanleg kostnaðaráætlun ligg-
ur ekki fyrir að hans sögn. „Hins
vegar er ljóst að hús af þessari
stærð kostar um eða yfir 100 millj-
ónir fullklárað.“
Mikil bylting fyrir félagið
Þorsteinn Einarsson, formaður
HK, segir byggingu hússins gífur-
lega mikilvæga fyrir félagið sem
fékk úthlutað svæðinu fyrir rúmum
10 árum. „Þarna er búið að byggja
upp stórt æfingasvæði og keppnis-
völl fyrir yngri flokkana. Í fyrra tók-
um við nýjan malarvöll í gagnið sem
verður breytt í gervigrasvöll eftir
tvö ár þegar hann er búinn að síga.
Síðan verður farið í viðbótarvelli á
næstu tveimur árum.“
Hann segir að þrátt fyrir þessa
uppbyggingu hafi félagið einungis
verið í bráðabirgðahúsnæði með
búningsaðstöðu hingað til auk þess
sem það hafi fengið að nýta íþrótta-
hús Snælandsskóla. „Samt er þetta
löngu sprungið vegna þess að knatt-
spyrnudeildin okkar hefur stækkað
svo mikið að hún er orðin ein af
stærstu knattspyrnudeildum á
landinu. Þannig að það verður mikil
bylting að fá þessa aðstöðu þarna.“
Þorsteinn bendir þó á að í raun sé
aðeins um fyrsta áfanga að ræða.
„Við eigum eftir að byggja tengi-
byggingu og aukahús með fjórum
klefum til viðbótar auk meiri fé-
lagsaðstöðu því framtíð félagsins er
á þessu svæði.“ Þá segir hann gert
ráð fyrir stóru íþróttahúsi í framtíð-
inni á svæðinu. „Þannig getum við
komið allri starfseminni fyrir á ein-
um stað sem er gífurlegt atriði fyrir
svona félag.“
Suðurhlið byggingarinnar eins og hún mun að öllum líkindum líta út. Hönnun hennar var í höndum Vektors ehf.
HK fær félags- og
búningsaðstöðu
Framkvæmdir hefjast á þessu ári
Kópavogur
SKÝRSLA um mat á umhverfis-
áhrifum Arnarnesvegar milli
Reykjanesbrautar og Breiðholts-
brautar og tengibrautar um Hörðu-
velli hefur verið lögð fram til kynn-
ingar hjá Skipulagsstofnun.
Skýrslan verður í kynningu frá og
með gærdeginum til 28. mars næst-
komandi.
Matsskýrslan verður aðgengileg
almenningi á heimasíðu Vegagerð-
arinnar, www.vegegerdin.is, og
heimasíðu VSÓ-ráðgjafar, www.-
vso.is, auk þess sem hún liggur
frammi á Bókasafni Kópavogs,
Borgarbókasafninu í Gerðubergi, í
Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipu-
lagsstofnun.
Athugasemdum skal skila skrif-
lega til Skipulagsstofnunar í síðasta
lagi 28. mars næstkomandi.
Í kynningu
til 28. mars
Arnarnesvegur
lagsnefndar Garðabæjar á dög-
unum. Var það í fyrsta skipti sem
skipulagsyfirvöld sveitarfélaganna
funda saman en þau hafa sam-
eiginlegra hagsmuna að gæta í
skipulagsmálum á ákveðnum svæð-
um.
Þetta kemur fram í frétt á
heimasíðu Hafnarfjarðar. Á fund-
inum voru m.a. umræður um of-
anbyggðarveg, innkeyrslu við
Hrafnistu, fráveitumál og fram kom
áhugi um að ljúka gerð hjóla- og
göngustíga á milli bæjanna.
Samstarfshópurinn verður sam-
kvæmt tillögunni skipaður tveimur
fulltrúum frá skipulags- og bygg-
ingarráði Hafnarfjarðar, tveimur
fulltrúum frá skipulagsnefnd
Garðabæjar auk embættismanna
sem fari yfir sameiginleg málefni
sveitarfélaganna.
STOFNAÐUR verður samstarfs-
hópur til að fara yfir sameiginleg
málefni Garðabæjar og Hafnar-
fjarðar. Tillaga þess efnis var sam-
þykkt á fundi skipulags- og bygg-
ingaráðs Hafnarfjarðar og skipu-
Samstarfshópur
verður stofnaður
Hafnarfjörður/Garðabær
Fundað um sameiginleg
skipulagsmál sveitarfélaganna
♦ ♦ ♦