Morgunblaðið - 15.02.2003, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 67
DAGBÓK
90ÁRA afmæli. Þriðju-daginn 18. febrúar
nk. verður níræður Ólafur
Þorláksson, bóndi, Hrauni,
Ölfusi. Ólafur bóndi og kona
hans, Helga S. Eysteins-
dóttir, ætla að halda afmæl-
isveislu á heimili Þórhildar
og Hannesar á Hrauni
sunnudaginn 16. febrúar, frá
kl. 15, og vilja gjarnan sjá
sem flesta ættingja og vini.
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 16. febrúar, verður
fimmtug Guðleif Bender
sjúkraliði, Rjúpnasölum 6,
Kópavogi. Eiginmaður
hennar er Guðmundur A.
Gunnarsson.
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3
Bg7 4. e4 d6 5. Rf3 O-O 6.
Be2 e5 7. O-O Ra6 8. Be3
Rg4 9. Bg5 De8 10. dxe5
dxe5 11. h3 f6 12. Bd2 Rh6
13. c5 c6 14. Bxa6 bxa6 15.
Da4 Rf7 16. Had1 Kh8 17.
Hfe1 Hg8 18. Be3 Hb8 19.
b3 Hb7 20. Rd2 f5 21. f4 g5
22. exf5 gxf4 23. Bxf4 Bxf5
24. Be3 De6 25. Dh4 Bf6 26.
Dc4 Dc8 27. Rde4 Be6 28.
Df1 Bh4 29. Bf2
Bxf2+ 30. Dxf2
Bxh3 31. Df6+
Hg7
Staðan kom upp
í A-flokki al-
þjóðlega mótsins í
Bermúda sem lauk
fyrir skömmu. Al-
exander Shabalov
(2.613) hafði hvítt
gegn Andrei Vol-
okitin (2.565). 32.
Rg5! h6 32... Rxg5
gekk að sjálfsögðu
ekki upp vegna 33.
Hd8+ og hvítur
vinnur drottn-
inguna. 33. Rxh3 Dg4 34.
He2 Hb5 35. Hd3 Hxc5 36.
Df2 Db4 37. He4 Da3 38.
Kh2 Ha5 39. Hd7 Df8 40.
Df6 Hc5 41. Hg4 Hxc3 42.
Hd8 og svartur gafst upp
saddur lífdaga. 6. skák Olís-
einvígisins hefst kl. 17.00 í
höfuðstöðvum Olís, Sunda-
görðum 2. Friðrik Ólafsson
verður með skákskýringar
á skákstað. Áhorfendur eru
hjartanlega velkomnir en
Guðmundur Arason styrkir
þessa skákveislu ásamt
Olís.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Sérgrein: Kvensjúkdómar og fæðingarhjálp
Tímapantanir daglega frá kl. 9-17
Hef opnað læknastofu
Vilhjálmur Kr. Andrésson
Domus Medica • Egilsgötu 3 • 101 Reykjavík
sími 563 1053
CRANIO-NÁM • 2003-2004
A stig 22.-27. febrúar
Námsefni á íslensku, íslenskir leiðbeinendur.
Upplýsingar og skráning hjá Gunnari í síma 564 1803 og 699 8064.
C.C.S.T College of Cranio-Sacral Therapy. www.cranio.cc
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð jarðbundin,
skapandi og forvitin í eðli
ykkar. Á þessu ári fáið þið
krefjandi tækifæri sem geta
bætt líf ykkar.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þið eruð létt í lund og ættuð
að gefa ykkur tíma til að
gera það sem ykkur finnst
skemmtilegt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þið ættuð að beina athygli
ykkar að fjölskyldu ykkar
og heimili. Þið ættuð að
ganga frá lausum endum til
að ykkur líði betur á heim-
ilinu. Þið hafið ánægju af
því að gera ferðaáætlanir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Dagurinn hentar vel til inn-
kaupa og ferðalaga. Látið
eftir ykkur að skoða heim-
inn í kringum ykkur. Gildi
fegurðarinnar felst í því að
kunna að meta hana.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ættir að veita samtölum
um fjármál og fjáröfl-
unarhugmyndum sérstaka
athygli. Þú ert skýr í hugs-
un og það á ekki síst við í
fjármálum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Tunglið er í merkinu þínu
og það veitir þér aukið að-
dráttarafl. Njóttu þess að
tala við samstarfsmenn þína
og félaga.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þið hafið verið mjög upp-
tekin og skipulögð en nú
þurfið þið á hvíld að halda.
Gefið ykkur svolítinn tíma
til að sinna sjálfum ykkur.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Reynið að njóta samvista
við vini ykkar í dag. Farið á
kaffihús eða bjóðið vinum
ykkar heim. Það verður líka
til þess að þið takið til.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þið njótið þess að tala við
foreldra ykkar eða yfirboð-
ara. Þið viljið ganga frá
ákveðnum fjölskyldumálum
og þetta er góð leið til þess.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þið eruð landkönnuðir í eðli
ykkar. Reynið að gera eitt-
hvað nýtt í dag sem opnar
ykkur nýja sýn á umhverfið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Dagurinn hentar vel til fjár-
mála- og samninga-
viðræðna. Notið tækifærið
og talið við aðra um sameig-
inlegar eignir og leiðir til
úrbóta.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Tunglið er andstætt merki
ykkar í dag og því verðið þið
að sýna þolinmæði. Hlustið
á aðra og reynið að vera eft-
irgefanleg í afstöðu ykkar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þið eruð óvenju afkastamik-
il og ættuð að reyna að nota
tækifærið til að koma skipu-
lagi á hlutina. Hendið a.m.k.
fimm hlutum sem þið notið
ekki lengur.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
STEFJAHREIMUR
Mitt verk er, þá ég fell og fer,
eitt fræ, mitt land, í duft þitt grafið,
mín söngvabrot, sem býð ég þér,
eitt blað í ljóðasveig þinn vafið.
En innsta hræring hugar míns,
hún hverfa skal til upphafs síns
sem báran, – endurheimt í hafið.
Einar Benediktsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
DÁLKAHÖFUNDUR hef-
ur lengi fengist við að segja
byrjendum til í brids. Lín-
urnar eru lagðar strax í
fyrstu kennslustund: „Það
þarf 12 punkta til að opna.“
Reglan hljómar skyn-
samlega, en þó er vitað um
tvo menn í bridsheiminum
sem eru á öðru máli. Báðir
eru að spila á bridshátíð-
inni sem nú stendur yfir á
Hótel Loftleiðum. Annar er
danski landsliðsmaðurinn
Lars Blakset, en hinn er
Gylfi Baldursson, formaður
Bridsfélags Reykjavíkur. Í
þeirra bókum er skemmti-
legast að opna með 0–5
punkta.
Suður gefur; AV í hættu.
Norður
♠ G43
♥ Á85
♦ Á10972
♣K2
Vestur Austur
♠ 8765 ♠ ÁKD109
♥ KD102 ♥ G74
♦ D3 ♦ KG
♣ÁG10 ♣D65
Suður
♠ 2
♥ 963
♦ 8654
♣98743
Við erum að tala hér um
hugarfóstur Blaksets, þar
sem opnun á tveimur spöð-
um segir skýrt og skorinort
frá 0–5 punktum og a.m.k.
einum fjórlit! Blakset hefur
varann á að notar þessa
„opnun“ aðeins utan hættu,
en ekki eru allir svo var-
kárir. Í þessu spili er suður
gjafari og ef Blakset-
sagnvenjan er í vopna-
búrinu er þetta rakin
tveggja spaða opnun:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 2 spaðar
Pass Pass Pass
Vestur getur varla
blandað sér í sagnir, og
ekki er gott að meta hvern-
ig austur eigi að bregðast
við þessari ósvífni. Ef hann
kýs að passa er uppskeran
250 fyirr fimm niður utan
hættu, sem er heldur lítið
upp í geimið sem AV eiga í
spaða (620). Í þessu tilfelli
þýðir lítið að beita refsi-
vendinum, því NS eiga
ágæta tígulsamlegu og
sleppa einn niður í þremur
tíglum. Þetta spil er því
sigur fyrir Blakset-
sagnvenjuna.
Á bridshátíð fyrir ein-
hverjum árum lenti Gylfi
Baldursson í andstöðunni
við Blakset og vakti á Blak-
set tveimur spöðum. Þetta
var í tvímenningnum og
kerfiskortin löngu týnd,
svo Lars spurði um merk-
ingu sagnarinnar. Og Gylfi
svaraði: „Þú hefur vafa-
laust aldrei heyrt á þetta
minnst, en við notum þetta
til að sýna 0–5 punkta og
þrettán spil.“
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
MEÐ MORGUNKAFFINU
Nú, ert þú yfirmað-
urinn hans Halla?!
Ég hef heyrt svo
margar sniðugar
sögur um þig …
Framvegis vil
ég ekki fá egg á
morgnana …
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is. Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
FRÉTTIR
MANNRÉTTINDASAMTÖKIN
Amnesty International hafa hafið
undirskriftaherferð vegna yfirvof-
andi innrásar í Írak og afleiðinga
slíkrar innrásar á almenning í
landinu.
Fólk getur tekið þátt í átaki
samtakanna á heimasíðu Amnesty
International http://www.amn-
esty.org/go/iraq
Samtökin fara fram á að örygg-
isráð Sameinuðu þjóðanna fram-
kvæmi ítarlega athugun á af-
leiðingum slíkrar innrásar.
Niðurstöður slíkrar athugunar
þarf að bera saman við þá hættu
við frið og öryggi í heiminum sem
haldið er fram að stafi af Íraks-
stjórn.
Amnesty International hefur
miklar áhyggjur af því að í kjölfar
innrásar aukist til muna hætta á
mannréttindabrotum í Írak bæði
af hálfu þarlendra yfirvalda, svo
og vopnaðra andspyrnuhópa, og
annarra sem hlut eiga að hern-
aðaraðgerðum.
Samtökin fara fram á að sú at-
hugun fari fram á opnum fundi ör-
yggisráðsins sem öll aðildarríki
Sameinuðu þjóðanna eigi aðgang
að, segir í fréttatilkynningu.
Undirskriftaher-
ferð Amnesty