Morgunblaðið - 19.02.2003, Blaðsíða 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 7
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
S
PA
2
02
59
02
/2
00
3
Lífeyrissparnaður er fjölskyldumál www.spar.is
*m.v. 4% lífeyrissparnað, mánaðartekjur 175.000 kr. og 6% ávöxtun.
21.365.990 kr.
Ef ƒú ert í lífeyrissparnaði Sparisjóðsins
og byrjar að spara 25 ára átt ƒú
21.365.990 kr. við 65 ára aldur.*
Farðu á www.spar.is og reiknaðu út lífeyrinn ƒinn
í reiknivél Sparisjóðsins.
Tryggðu ƒér og ƒínum fjárhagslegt öryggi í framtíðinni.
Hafðu samband við ƒjónustufulltrúa í Sparisjóðnum ƒínum.
Í NIÐURSTÖÐUM fyrstu könnunar
umboðsmanns barna, Þórhildar Lín-
dal, í tilraunaverkefninu Ráðgjafar-
bekkir umboðsmanns barna kemur
fram að almennt eru ráðgjafar um-
boðsmanns ánægðir í skólanum,
hlakka til að mæta og hitta vini sína.
Þá eiga verklegar greinar og íþróttir
mjög upp á pallborðið hjá börnunum.
Í verkefninu, sem byggt er á nor-
rænni fyrirmynd, er leitað eftir skoð-
unum grunnskólabarna á málefnum
sem á þeim brenna. Ráðgjafarbekk-
irnir eru 18 og ráðgjafarnir 308 á
aldrinum 10–12 ára. Könnunin var
gerð í desember í fyrra og var leitað
eftir skoðunum ráðgjafanna á aðbún-
aði á vinnustað þeirra, í skólanum.
Þrátt fyrir að börnin virtust almennt
ánægð í skólnum voru vísbendingar
um að ríflega fimmtungi ráðgjafanna
þætti óþægilegt að dvelja í skólastof-
unni og virtist orsökin vera hávaði og
skortur á vinnufriði. Niðurstöðurnar
gáfu ennfremur vísbendingar um að
drengjum líði verr en stúlkum í skóla-
stofunni.
Vont að bíða úti í myrkrinu
Flestum ráðgjafanna líður vel í frí-
mínútum en þó töldu 16% þeirra
skólalóðina vera óöruggan stað.
Drengir eru óöruggari en stúlkur og
yngri nemendur óöruggari en þeir
eldri og segir í tilkynningu umboðs-
manns barna að það sé vísbendingar
um að eftirliti á skólalóðum kunni að
vera ábótavant.
Ráðgöfunum þótti slæmt að þurfa
að mæta í svarta myrkri um kl. 8 á
morgnana og þurfa jafnvel að bíða ut-
andyra eftir kennaranum í hvaða
veðri sem er. Ráðgjafarnir leggja til
að tekin verði upp ný stefna í þessum
efnum þar sem tekið verði mið af veð-
urfari og skammdeginu á Íslandi.
Stærstur hluti ráðgjafanna, eða
62%, borðar í skólastofunni, þ.e. þar
sem börnin eyða mestum hluta skóla-
dagsins og þar sem um 22% þeirra
líður illa. Telur umboðsmaður það
vera umhugsunarefni.
Börnin al-
mennt ánægð
í skólanum
að ræða og umrædd samvinna félaganna ekki til
þess fallin að raska samkeppni, að mati sam-
keppnisráðs. Ráðið hafnar sömuleiðis því kvört-
unarefni að það raski samkeppni verulega að
bæði Íslandsflug og Flugfélag Íslands njóti ríkis-
styrkja í sínum rekstri. Jórvík taldi óeðlilegt að
flugvél sú sem notuð var til flugs til Vestmanna-
eyja væri eingöngu til staðar vegna ríkisstyrkja,
þ.e. styrkja til að fljúga á Bíldudal, Gjögur, svo
og vegna samnings um sjúkraflug á Vestfjörðum.
SAMKEPPNISRÁÐ telur ekki ástæðu til að að-
hafast neitt í máli er varðar kæru Flugfélagsins
Jórvíkur yfir meintum samkeppnishindrunum á
flugmarkaðnum vegna ríkisstyrkja sem Flug-
félag Íslands og Íslandsflug þiggja en Jórvík
ekki.
Jórvík kvartaði í byrjun síðasta árs til sam-
keppnisráðs vegna samstarfs Íslandsflugs og
Flugfélagsins. Meðal annars samdi fyrrnefnda fé-
lagið við það síðara um afgreiðslu flugvéla sinna á
Reykjavíkurflugvelli og aðgang að bókunarkerfi.
Það samstarf taldi Jórvík hugsanlega fela í sér
brot á samkeppnislögum.
Samkeppnisstofnun segir að félögin hafi gert
með sér tvo samninga. Annar snúi að umboði
Flugfélagsins til að selja farþega- og fraktflutn-
inga í áætlunarflugi Íslandsflugs innanlands og
hinn snýr að afgreiðslu í Reykjavík og Vest-
mannaeyjum. Efni og ákvæði samninganna bera
ekki með sér að um brot á samkeppnislögum sé
Úrskurður felldur um samstarf Íslandsflugs og Flugfélags Íslands
Hindrar ekki samkeppni
að mati samkeppnisráðs
BROTIST var inn í skóla Ísaks Jóns-
sonar í Bólstaðarhlíð í fyrrinótt.
Skemmdir voru ekki teljandi og
fljótt á litið virtist sem litlu hafi verið
stolið. Skólastjórinn segir að svo
virðist sem sá sem braust inn hafi
ekki fylgst með fréttum um slæma
fjárhagsstöðu skólans.
Edda Huld Sigurðardóttir skóla-
stjóri segir að gluggi hafi verið
spenntur upp og þjófurinn síðan far-
ið um allan skólann í leit að verð-
mætum – sem hann fann ekki, því að
sögn Eddu var afar litlu stolið. „Það
er nú það skrýtna, það var engu stol-
ið en ofsalega mikið leitað og rótað í
öllu,“ segir hún. Hvolft var úr skúff-
um og rutt úr skápum, bæði nem-
enda og kennara. „En viðkomandi
hefur greinilega ekki heyrt fréttir af
fjárhagsstöðu skólans,“ sagði hún í
léttum dúr en eins og hjá flestum
öðrum einkaskólum í borginni er
skólasjóðurinn rýr.
„Það er auðvitað lán í óláni að litlu
sem engu var stolið, en það er
kannski til marks um það hversu allt
er orðið gamalt hjá okkur.“ Lagt var
fyrir þjófavarnakerfi í Ísaksskóla en
Edda segir að skólinn hafi ekki átt
peninga til að kaupa sjálft kerfið.
Fyrsti kennari sem mætti til vinnu
í gærmorgun var Ásthildur Sigur-
jónsdóttir og uppgötvaði hún inn-
brotið. Með henni í för var eiginmað-
ur hennar, Bjarki Elíasson, fyrr-
verandi yfirlögregluþjónn í
Reykjavík, og segir Edda að málið
hafi frá upphafi verið í öruggum
höndum. Lögreglan rannsakar nú
innbrotið.
Innbrot í Ísaksskóla
Þjófurinn
óupplýstur
um fjárhags-
stöðu skólans
♦ ♦ ♦