Morgunblaðið - 19.02.2003, Page 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 13
starfinu við stofurnar. Síminn
leggur mikla áherslu á gott sam-
starf markaðssviðs við auglýs-
ingastofurnar þannig að há-
marksárangur sé tryggður af
auglýsinga- og kynningarstarfi.
Nonni & Manni/Ydda hefur þjón-
að Símanum nokkur undanfarin
ár og nú bætist Gott fólk
McCann-Erikson í hópinn,“ segir
Katrín Olga Jóhannesdóttir,
framkvæmdastjóri markaðssviðs
Símans, í fréttatilkynningu.
SÍMINN hefur undirritað sam-
starfssamninga við þær tvær aug-
lýsingastofur, Nonna & Manna/
Yddu og Gott fólk McCann-
Erikson, sem hlutskarpastar urðu
í vali sem fór fram milli fjögurra
stofa síðastliðið haust.
Markmiðið með valinu var að
efla markaðsstarf Símans og gera
það hagkvæmara og skilvirkara,
að því er segir í fréttatilkynn-
ingu.
„Síminn væntir mikils af sam-
Síminn semur við
auglýsingastofur
Jón Sæmundsson, framkvæmdastjóri Nonna & Manna/Yddu, Katrín Olga
Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri markaðssviðs Símans, og Gunnlaugur
Þráinsson, framkvæmdastjóri Góðs fólks-McCann-Erikson.
ÁVÖXTUN samtryggingarsjóðs Líf-
eyrissjóðsins Framsýnar nam 0,8%
árið 2002 og jukust hreinar eignir
samtryggingarsjóðsins því um rúm-
lega einn milljarð króna. Alls námu
eignir samtryggingarsjóðs 53,5 millj-
örðum króna í lok síðasta árs en 52,4
milljörðum í árslok 2001. Heildar-
ávöxtun séreignarsjóðs var rúmlega
9,4% og jókst hrein eign sjóðsins um
171 milljón króna eða 179%.
Í fréttatilkynningu sjóðsins um af-
komu síðasta árs segir að alls hafi líf-
eyrisgreiðslur á síðasta ári numið
tæpum 2 milljörðum króna sem er
10,7% aukning miðað við árið á und-
an. Samtals var greiddur lífeyrir til
um 9.000 einstaklinga og nemur
fjölgun lífeyrisþega um 4,2% milli
ára.
„Raunávöxtun séreignarsjóða nam
tæplega 7,3% árið 2002 en lækkandi
gengi hlutabréfa á erlendum mörk-
uðum olli því að raunávöxtun sam-
tryggingarsjóðs var neikvæð um tæp
1,2% á árinu. Veruleg hækkun á
verði innlendra hlutabréfa árið 2002
vó hins vegar að nokkru leyti upp á
móti áhrifum af lækkandi gengi er-
lendra hlutabréfa. Þá skiluðu innlend
skuldabréf í eigu sjóðsins mjög góðri
ávöxtun á árinu,“ segir í fréttatil-
kynningu sjóðsins.
Þá segir að gripið hafi verið til sér-
stakra ráðstafana á síðasta ári til að
koma í veg fyrir neikvæð áhrif af
styrkingu krónunnar á erlendar eig-
ur Lífeyrissjóðsins Framsýnar sem
skiluðu honum um 510 milljónum
króna.
Stjórn Lífeyrissjóðsins Framsýn-
ar hefur ákveðið að lækka vexti sjóð-
félagalána frá og með 1. mars nk. úr
6,2% í 5,8%. Vaxtalækkunin mun
hafa áhrif á öll sjóðfélagalán, bæði
gömul og ný. Á síðasta ári tóku 403
sjóðfélagar lán og nam fjárhæð
þeirra 807 milljónum króna.
Alls greiddu 31.168 sjóðfélagar ið-
gjöld til sjóðsins á árinu 2002 en sjóð-
félagar eru nú samtals 136.038.
Starfsmenn sjóðsins voru alls 13 á
síðasta ári.
Ávöxtun
Framsýn-
ar 0,8%
árið 2002
Vextir sjóðfélagalána
lækkaðir
● FJÖLMIÐLAFYRIRTÆKIÐ Reuters
hefur tilkynnt um uppsagnir 3.000
starfsmanna í kjölfar mesta taps á
rekstri fyrirtækisins frá stofnun en
Reuters, sem er helsta viðskipta-
fréttaveita heims, hefur farið sérlega
illa út úr slæmu árferði á hlutabréfa-
mörkuðum.
Tap félagsins á árinu 2002 nam
661 milljón Bandaríkjadala sem er
mesta tap félagsins frá því það var
stofnað fyrir 150 árum.
Að auki segja menn að ekki sjái
fyrir endann á hinu slæma ástandi á
mörkuðum.
Reuters segir að sala muni
minnka um að minnsta kosti 9% á
fyrstu þremur mánuðum þessa árs
og jafnvel meira á næsta ársfjórð-
ungi.
Reuters var fyrir í miðju endur-
skipulagningarferli sem hefur innifal-
ið m.a. fækkun starfsmanna upp á
2.500 manns, eða meira en 10% af
starfsfólki fyrirtækisins. Uppsagn-
irnar 3.000 koma þessu til viðbótar
og eiga allar að vera komnar til fram-
kvæmda árið 2006.
Verð hlutabréfa Reuters féll um-
talsvert á markaði í gær en verð bréf-
anna hefur lækkað um 70% á einu
ári.
Þrátt fyrir uppsagnirnar hefur fyrir-
tækið tilkynnt um kaup á Multex fyrir
195 milljónir dollara í reiðufé, eða
rúma 15,2 milljarða króna, en Mult-
ex gefur út hagnaðarspár fyrir meira
en 16.000 fyrirtæki um allan heim.
Reuters segir upp
3.000 manns
♦ ♦ ♦