Morgunblaðið - 19.02.2003, Qupperneq 18
ERLENT
18 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ALVARLEGUR kennaraskortur er í
Kína og ljóst þykir, að ástandið muni
stórum versna á næstu árum vegna
fyrirsjáanlegrar fjölgunar nemenda
í framhaldsskólum og háskólum.
Kínverska fréttastofan Xinhua
sagði í gær, að 2005 myndi vanta
1,16 milljónir menntaskólakennara
og 110.000 háskólakennara. Er þá
miðað við, að 60% kínverskra ung-
menna fái notið framhaldsskóla-
menntunar og hlutfallið milli kenn-
ara og nemenda verði 1 á móti 18. Á
háskólastigi er miðað við einn kenn-
ara á móti 15 nemendum. Áætlað er,
að 75,87 milljónir ungmenna stundi
menntaskólanám á næsta ári en há-
skólastúdentar verði flestir 2008 eða
124 milljónir.
Að sögn fréttastofunnar er það
kennaraskortur og ýmiss konar að-
stöðuleysi, sem helst stendur auk-
inni menntun þjóðarinnar fyrir þrif-
um.
ReutersKínverskir öryggisverðir halda aftur af fólki fyrir utan vinnumiðlun í borginni Xian.
Vantar 1,2 millj. kennara
124 millj.
háskólanema í
Kína eftir fá ár
Peking. AFP.
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti hyggst láta á það reyna í að
minnsta kosti hálfan mánuð til við-
bótar hvort samkomulag næst í
Íraksdeilunni áður en hann tekur
lokaákvörðun um hvort hefja eigi
hernað í Írak, að sögn bandarískra
embættismanna. Þeir segja að Bush
kunni að samþykkja að stjórn Sadd-
ams Husseins verði gefinn lokafrest-
ur til að eyðileggja efna- og sýkla-
vopn sín.
Heimildarmenn The Washington
Post segja líklegt að Bandaríkja-
menn og Bretar beiti sér fyrir því að
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykki í vikunni nýja ályktun um
afvopnun Íraka. Einn þeirra sagði að
meðal annars kæmi til greina að ör-
yggisráðið krefðist þess að Írakar af-
vopnuðust innan ákveðins tíma.
„Sagt yrði við þá: þetta er síðasta
tækifæri ykkar.“
Kann að ráðast 28. febrúar
Embættismenn í Washington og
London ræða nú hvernig koma eigi
skriði aftur á tilraunir þeirra til að fá
öryggisráðið til að samþykkja nýja
ályktun eftir að Hans Blix, yfirmað-
ur vopnaeftirlitsmanna Sameinuðu
þjóðanna, sagði ráðinu á föstudaginn
var að nokkur árangur hefði náðst,
þótt Írakar hefðu ekki enn fullt sam-
starf við eftirlitsmennina. Meirihluti
aðildarríkja ráðsins, þeirra á meðal
Frakkland, Rússland, Kína og
Þýskaland, sögðu þá að eftirlits-
mennirnir ættu að fá meiri tíma til að
ganga úr skugga um hvort Írakar
ættu gereyðingarvopn áður en ráðið
íhugaði valdbeitingu.
Blix á að gefa öryggisráðinu nýja
skýrslu um málið 28. þessa mánaðar
og Condoleezza Rice, þjóðarörygg-
isráðgjafi Bandaríkjaforseta, gaf til
kynna á sunnudag að þá gæfist
ráðinu síðasta tækifærið til að leiða
deiluna til lykta. Hún hafnaði tillögu
Frakka um að öryggisráðið fjallaði
aftur um málið 14. mars.
Búist er við að Bandaríkjamenn
og Bretar hafi meira en nægan her-
afla á Persaflóasvæðinu til að ráðast
inn í Írak í byrjun mars. Embætt-
ismenn bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins hafa sagt að hersveitirnar
geti beðið á svæðinu „í mánuði“ en
erfiðara verði að heyja stríð í Írak
eftir mars vegna mikils hita, þótt það
sé ekki ómögulegt.
Bandaríkjastjórn hefur alltaf sagt
að öryggisráðið þurfi ekki að sam-
þykkja nýja ályktun til að hægt verði
að hefja hernað í Írak en hún féllst á
að láta reyna á það hvort samkomu-
lag næðist í öryggisráðinu að beiðni
Breta og Spánverja, helstu stuðn-
ingsmanna hennar í ráðinu. Tugir
annarra ríkja, sem styðja Banda-
ríkjastjórn í Íraksmálinu, vilja einn-
ig að reynt verði að fá samþykki ör-
yggisráðsins.
Írakar verði lýstir brotlegir
Að sögn CNN-sjónvarpsins í gær
eru Bandaríkjamenn og Bretar að
leggja drög að nýrri ályktun þar sem
því yrði lýst yfir að Írakar hefðu
gerst sekir um skýlaus brot á síðustu
ályktun öryggisráðsins, nr. 1441.
Einn heimildarmanna sjónvarpsins
sagði að í nýju ályktuninni yrði lögð
áhersla á að í ályktun 1441 hefðu
Írakar verið varaðir við því að brot á
afvopnunarskilmálunum myndu hafa
„alvarlegar afleiðingar“ fyrir þá.
Bandaríkjamenn telja að þetta orða-
lag jafngildi heimild til að hefja hern-
að.
Jacques Chirac Frakklandsforseti
sagði í fyrradag að Frakkar, sem eru
með neitunarvald í öryggisráðinu,
ættu einskis annars úrkosti en að
leggjast gegn slíkri ályktun.
Heimildarmenn CNN sögðu að ef
öryggisráðið samþykkti ekki nýja
ályktun innan hálfs mánaðar tæki
Bush ákvörðun um hvort hefja ætti
hernað án stuðnings ráðsins. Banda-
ríkjamenn og Bretar hygðust nota
þennan tíma til að „herða að“ örygg-
isráðinu og hvetja Blix til að knýja
Íraka til að verða við ákveðnum kröf-
um sem þeir hafa ekki enn sam-
þykkt.
Að sögn The Washington Post
kemur meðal annars til greina að í
nýju ályktuninni verði Írökum gef-
inn lokafrestur til að verða við sér-
stökum kröfum, til að mynda að þeir
heimili eftirlitsmönnum að yfirheyra
íraska vopnasérfræðinga utan Íraks.
Nokkrir heimildarmanna blaðsins
létu þó í ljósi efasemdir um þessa að-
ferð og sögðu að hún gæti komið
Bush í vanda ef Saddam yrði við
þessum tilteknu kröfum. Stjórn
Bush óttast að gefi Saddam aðeins
lítillega eftir til að láta líta út fyrir að
hann hafi orðið við kröfunum verði
það álitið renna stoðum undir rök-
semdir þeirra ríkja í öryggisráðinu
sem segja að vopnaeftirlitið beri ár-
angur.
„Mjög skammur tími til stefnu“
Embættismenn í Hvíta húsinu
hafa sagt að samstarf Íraka hafi til
þessa einkum snúist um framkvæmd
eftirlitsins, þeir hafi til að mynda
veitt aðgang að stöðum sem eftirlits-
mennirnir vilja rannsaka. Banda-
ríkjastjórn vilji hins vegar raunveru-
legan árangur í meginatriðunum, til
að mynda að Írakar láti vopn sín af
hendi eða sanni að þeir hafi eyðilagt
gereyðingarvopn sín.
Embættismennirnir óttast að
verði lagður fram nýr listi yfir kröfur
á hendur Írökum geti þeir nýtt sér
hann til að draga málið á langinn.
„Spurningin er hvort þeir geti gert
nóg til að láta líta út fyrir að þeir hafi
orðið við kröfunum ... og reyni síðan
að tefja þetta í marga mánuði?“ sagði
einn embættismannanna.
Aðstoðarmenn Bush segja að
hann ætli ekki að hægja á hernaðar-
undirbúningnum þrátt fyrir andstöð-
una innan öryggisráðsins og fjölda-
mótmælin víða í heiminum um
síðustu helgi.
Vaira Vike-Freiberga, forseti
Lettlands, sagði eftir fund með Bush
í Hvíta húsinu í fyrradag að „mjög
skammur tími“ væri til stefnu. „Bush
telur að Bandaríkjunum beri skylda
til að tryggja að Saddam Hussein
verði afvopnaður,“ sagði lettneski
forsetinn. „Og hann sagði: við mun-
um sjá til þess. Við munum gera
það.“
Bush hyggst einnig ræða málið í
dag við George Robertson, fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbanda-
lagsins, og við Jose Maria Aznar, for-
sætisráðherra Spánar, á laugardag.
„Aðeins draumur“
Fréttaskýrandi BBC, Paul Reyn-
olds, segir að tillagan um að lagður
verði fram nýr listi yfir skilyrði sem
Írakar verði að fullnægja sýni að
Bandaríkjamenn og Bretar eigi nú
mjög undir högg að sækja vegna
andstöðunnar innan öryggisráðsins
og fjöldamótmælanna um helgina.
„Stjórnvöld í Washington og London
höfðu frekar búist við því að fá nýja
ályktun sem heimilaði sérstaklega
valdbeitingu. Þetta varð síðan að
von. Nú er það aðeins draumur.“
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, kvaðst í gær vilja að ör-
yggisráðið samþykkti nýja ályktun
áður en ákvörðun yrði tekin um
hernað. Hann setti nýlega tvö skil-
yrði fyrir því að hefja stríð í Írak án
stuðnings öryggisráðsins. Hann
sagði að slíkur hernaður kæmi til
greina ef yfirmenn eftirlitsmann-
anna legðu fram „neikvæða skýrslu“
um Írak eða ef ný ályktun sem heim-
ilaði valdbeitingu yrði hindruð „með
ósanngjörnum hætti“ í öryggis-
ráðinu.
Boða ákvörðun
um hernað eftir
hálfan mánuð
AP
Námsmenn frá mörgum löndum söfnuðust saman við skrifstofu Þróun-
arhjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) í Bagdad í gær til að mótmæla
hugsanlegu stríði í Írak.
Bush sagður íhuga að gefa Írak lokafrest til að afvopnast
’ Chirac segir aðFrakkar eigi einskis
annars úrkosti en að
hafna ályktun sem
heimili hernað. ‘
BANDARÍKJAMENN hyggjast
gera Ahmed Chalabi, leiðtoga Íraska
þjóðarráðsins (INC), að bráðabirgða-
forseta Íraks eftir að Saddam Huss-
ein, forseta landsins, hefur verið rutt
úr veginum. Chalabi, sem er 57 ára,
er shíta-múslimi sem flúði Írak ásamt
fjölskyldu sinni árið 1956. Hann er nú
staddur í Kúrda-héruðunum í Norð-
ur-Írak og er sagður ætla að halda
þar kyrru fyrir uns hernaðaríhlutun
Bandaríkjamanna er hafin.
Frá þessu er sagt í The Daily Tele-
graph en heimildarmaður blaðsins er
háttsettur bandarískur embættis-
maður. Hann tók þó fram að engin
formleg ákvörðun hefði verið tekin;
slíkt væri ekki tímabært fyrr en hern-
aðaraðgerðum í Írak er lokið.
Gengið er út frá því að Tommy
Franks, hershöfðingi í Bandaríkja-
her, verði eiginlegur stjórnandi Íraks
eftir að stríði lýkur en Bandaríkja-
menn stefna að því að tilnefna Chal-
abi sem forseta til bráðabirgða; síðan
staðfesti þing íraskra stjórnarand-
stæðinga, sem nú eru í útlegð, skipan
hans. Yrði þetta sambærilegt við það
er Hamid Karzai tók við völdum í
Afganistan, eftir að talibanastjórnin í
landinu hafði verið hrakin frá völdum.
Chalabi flúði Írak tólf ára, sem fyrr
segir, oh gekk í barnaskóla í Bret-
landi. Hann stundaði síðan nám við
Massachusetts Institute of Techno-
logy í Bandaríkjunum og hefur dokt-
orsgráðu í stærðfræði frá háskólan-
um í Chicago.
Íraska þjóðarráðið hefur bæki-
stöðvar í London,
en samtökin voru
stofnuð 1992 og
eru stærst sam-
taka íraskra út-
laga. Árið 1996
gerðu samtökin
tilraun til að efna
til uppreisnar
gegn Saddam í
Kúrdahéruðum
Íraks en áætlanir Chalabis fóru út um
þúfur eftir að ljóst varð að Banda-
ríkjastjórn ætlaði ekki að styðja upp-
reisnarmennina. Saddam lét til skar-
ar skríða gegn stjórnarandstæð-
ingunum og hundruð manna féllu í
aðgerðum forsetans.
Nýtur ekki óskoraðs trausts
Nú er Chalabi kominn á stjá í Írak
á ný og ræddi við vestræna frétta-
menn í vikunni. Sagðist hann vissu-
lega bandamaður Bandaríkjanna,
hvað varðaði það verkefni að koma
Saddam frá völdum, en tók fram að
hann væri ekki útsendari þeirra.
Chalabi er sagður njóta stuðnings
háttsettra aðila í bandaríska varnar-
málaráðuneytinu en í utanríkisráðu-
neytinu eru menn ekki eins hrifnir.
Telja þeir ólíklegt að maður, sem svo
lengi hefur verið í útlegð, nái að fylkja
írösku þjóðinni á bak við sig. Þá saka
sumir Chalabi um spillingu, en hann
var árið 1992 fundinn sekur um
bankamisferli fyrir rétti í Jórdaníu.
Chalabi hafði hins vegar flúið landið,
áður en málið var tekið fyrir.
Sulaymaniya í Írak. AFP.
Ahmed Chalabi
Verði forseti að
Íraksstríði loknu