Morgunblaðið - 19.02.2003, Qupperneq 20
AKUREYRI
20 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Umsóknarfrestur um þátttöku á Listasumri 2003
hefur verið framlengdur til 1. mars 2003.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á
heimasíðu Gilfélagsins www.listagil.is
undir hnappnum LISTASUMAR.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Gilfélagsins
í síma 466 2609.
UMSÓKN UM ÞÁTTTÖKU Á LISTASUMRI
2003
Samvera
eldri borgara
verður í kirkjunni n.k. fimmtudag 20. febrúar kl. 15.00
Gestur samverunnar verður Aðalsteinn Bergdal leikari og mun
hann ræða um „lífsins list“.
Kór eldri borgara syngur undir stjórn Guðjóns Pálssonar.
Að venju verður helgistund í upphafi og léttar veitingar í
safnaðarsal.
Allir velkomnir.
HÖRGÁ flæddi yfir bakka sína í
hlákunni í fyrrinótt vegna klaka-
stíflu sem myndaðist í ánni í beygju
við svokallað Möðruvallanes. Vatn
flæddi um stórt svæði neðan við
brúna yfir Hörgá á Ólafsfjarðarvegi
og klaki dreifðist yfir þó nokkurt
svæði. Þá var stæða af heyrúllum
umflotin vatni skammt frá árbakk-
anum.
Stefán Halldórsson bóndi á Hlöð-
um sagðist hafa séð meira vatns-
magn við aðstæður sem þessar og
hann sagði að klakastífla gæti
myndast hvar sem er í ánni í jafn
mikilli hláku og var í fyrrinótt og
gærmorgun. Stefán sagði að flóðið
hefði náð hámarki í gærmorgun en
þá var þarna um 10 stiga hiti en að
mjög hefði dregið úr flóðinu þegar
á daginn leið og veður fór kólnandi.
Hann sagði viðbúið að slægjuland
sitt við árbakkann yrði fyrir
skemmdum þar sem jafnan bærist
mikið af sandi og grjóti á land með
klakanum. Það kæmi þó ekki í ljós
fyrr en klakinn bráðnaði. Stefán
sagði líklegt að neðstu heyrúllurnar
sem voru umflotnar vatni í Möðru-
vallalandi vestan árinnar hefðu
blotnað en hann sagði að það þyrfti
meira til að rúllurnar færðust úr
stað.
Morgunblaðið/Kristján
Vatn flæddi yfir stórt svæði neðan við bæinn Hlaðir vegna klakastíflunnar sem myndaðist í Hörgá. Stæða af hey-
rúllum var umflotin vatni og klaki dreifðist yfir nokkurt svæði.
Hörgá flæddi yfir bakka
sína vegna klakastíflu
UNNIÐ er við dýpkun í Krossanesi
þar sem ný löndunarbryggja verð-
ur byggð og er dæluskipið Perla
notað til verksins. Í Krossanesi er
gömul trébryggja en í stað hennar
verður byggð stálþilsbryggja með
steyptri þekju og 80 metra viðlegu-
kanti. Nýja löndunarbryggjan fyrir
Krossanesverksmiðjuna verður að-
eins sunnar en sú gamla og slitin
frá olíubryggjunni. Ráðgert er að
dýpka niður á 10 metra við nýju
bryggjuna. Stálþilið verður svo
rekið niður í sumar og haust og
þekjan steypt á næsta ári.
Morgunblaðið/KristjánUnnið við dýpkun við væntanlega löndunarbryggju í Krossanesi.
Unnið við
dýpkun í
Krossanesi
Í LOK síðasta mánaðar voru 336
manns á atvinnuleysisskrá á Akur-
eyri, samkvæmt yfirliti frá Vinnu-
málastofnun, 204 karlar og 132 kon-
ur. Atvinnlausum fjölgaði um 57 frá
því í lok desember sl. og um 24 frá
lokum janúar á síðasta ári. Á Norður-
landi eystra voru 546 manns á at-
vinnuleysisskrá um síðustu mánaða-
mót, 301 karl og 245 konur. Frá þeim
tíma hefur atvinnulausum fjölgað
jafnt og þétt og í gær, 18. febrúar,
voru 622 á skrá í kjördæminu og hafði
fjölgað um 76 manns frá síðustu mán-
aðamótum.
Í Dalvíkurbyggð voru 24 á atvinnu-
leysisskrá í lok janúar sl., 16 karlar
og 8 konur og fjölgaði um þrjá frá
mánuðinum á undan og um 6 frá
sama tímabili í fyrra. Á Ólafsfirði
voru 30 manns á atvinnuleysisskrá í
lok síðasta mánaðar, 13 karlar og 17
konur og fjölgaði um þrjá á atvinnu-
leysisskránni frá mánuðinum á und-
an. Hins vegar fækkaði um 29 á at-
vinnuleysisskrá á Ólafsfirði miðað við
sama tímabil árið 2002 og er fækk-
unin á milli ára mest hjá körlum.
Sem fyrr mælist ekkert atvinnu-
leysi í Grímsey og atvinnlausum
fækkaði á milli mánaða í Hrísey og
Grýtubakkahreppi.
Atvinnulausum
fjölgar jafnt og þétt
SVÆÐISVINNUMIÐLUN og
Menntasmiðjan á Akureyri hafa
gert með sér samstarfssamning
um úrræði fyrir fólk á atvinnu-
leysisbótum fyrir árið 2003. Um
er að ræða rekstur vinnuklúbbs,
menntasmiðju kvenna og
menntasmiðju unga fólksins.
Árið 1998 hófst samstarf þess-
ara tveggja aðila með því að
konum á atvinnuleysisbótum var
gert kleift að sækja nám í dag-
skóla Menntasmiðju kvenna, að
uppfylltum ákveðnum skilyrð-
um, og menntasmiðjan tók að
sér að reka vinnuklúbb fyrir
fólk á atvinnuleysisbótum. Árið
2002 bættist svo menntasmiðja
unga fólksins við.
Tilgangurinn með úrræði
Menntasmiðju kvenna er að
gera konur hæfari og virkari í
atvinnuleit, á vinnumarkaðinum
o.s.frv. og skuldbindur mennta-
smiðjan sig til að leggja áherslu
á atvinnuleitarþáttinn. Mark-
miðið er að konurnar fái fasta
ótímabundna vinnu á hinum al-
menna vinnumarkaði eða fari í
frekara nám. Námið er þríþætt,
sjálfstyrking og samskipti, hag-
nýtt bók- og verknám og menn-
ing kvenna og listsköpun. Það
er sérstaklega sniðið að þörfum
kvenna og miðar að því að auka
lífshæfni þeirra. Í vinnuklúbbn-
um er farið í alla grunnþætti at-
vinnuleitar. Markmiðið með
vinnuklúbbnum er að aðstoða
atvinnuleitendur við leit að
starfi og er hugað að þeim þátt-
um sem skipta mestu máli við
atvinnuumsókn. Þátttakendur fá
kerfisbundna þjálfun í þeirri
tækni sem þarf að beita í at-
vinnuleit. Takmarkið með vinnu-
klúbbnum er aðeins eitt og það
er að fá vinnu. Þátttakendur út-
búa atvinnuumsóknir og feril-
skýrslur sem þeir geta nýtt sér
við atvinnuleitina.
Menntasmiðja unga fólksins
er sérstakt úrræði fyrir ungt
fólk á aldrinum 17–25 ára sem
hefur átt erfitt með að fóta sig í
atvinnulífinu og lífinu almennt.
Tilgangurinn með úrræðinu er
að gera ungt atvinnulaust fólk
hæfara og virkara í atvinnuleit,
virkara á vinnumarkaðinum
o.s.frv. og skuldbindur mennta-
smiðjan sig til að leggja áherslu
á atvinnuleitarþáttinn með efni
sniðið að þörfum vinnuklúbbsins
og einnar til tveggja vikna
starfskynningu í ákveðnum fyr-
irtækjum. Markmiðið er að
unga fólkið fái fasta ótíma-
bundna vinnu á hinum almenna
vinnumarkaði eða fari í frekara
nám. Þetta kemur fram á
heimasíðu Vinnumálastofnunar.
Svæðisvinnumiðlun og Mennta-
smiðjan á Akureyri
Samningur um úr-
ræði fyrir fólk á
atvinnuleysisbótum