Morgunblaðið - 19.02.2003, Síða 27
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 27
TALSVERÐ umræða hefir orðið
vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinn-
ar um að gera á næstu misserum
verulegt viðbótarátak í vegamálum
og nokkrum öðrum þjóðþrifamálum
með hluta þess fjár, sem ríkið átti
áður bundið í bankastarfsemi o.fl.
Eðlilegt er að menn hafi á því
margbreytilegar skoðanir, hvernig
verja skuli mörgum milljörðum
króna á næstu misserum ýmsum
góðum málum til framdráttar. Hér á
eftir verður aðeins minnst á einn
þátt, sem mér hefir fundist lítið fara
fyrir í umræðunni, en sem viðkemur
vexti og viðgangi ferðaþjónustunn-
ar.
Ekki þarf að fara um það mörgum
orðum, að án endurbóta á núverandi
vegakerfi verður þrjóun ferðaþjón-
ustunnar miklu hægari en ella. Það
er athyglisvert, hve miklu fé nú á að
verja til úrbóta á vegakerfinu á
Vestfjörðum og á Norð-Austurlandi.
Hversvegna?
Eftir því sem árin líða fjölgar
þeim ferðamönnum, sem hafa komið
til Íslands margoft áður. Með til-
komu nýju ferjunnar Norrænu fjölg-
ar erlendum ferðamönnum mikið í
einkabílum á vegum landsins. Það er
því ákaflega hyggileg ráðstöfun af
opinberri hálfu að bæta vegakerfið
verulega utan hringvegarins. Það
stuðlar að bættri nýtingu landsins
alls í þágu ferðaþjónustunnar og til
lengri tíma litið skapast ný atvinnu-
tækifæri á ýmsum stöðum í dreifbýli
landsins. Þeir sem oft hafa komið
hingað þurfa beinlínis á því að halda,
sem viðskiptamenn okkar á ferða-
þjónustusviðinu að geta ferðast á
nýjum slóðum.
En svo er önnur hlið á þessu máli.
Það er nánast ógerningur að hugsa
sér að einstaklingar og fyrirtæki
leggi í verulegar fjárfestingar í
ferðaþjónustu fyrr en góðir heilsárs-
vegir eru fyrir hendi. Enn um stund
verður vafalítið erfitt að reka góð og
nógu stór hótel á Vestfjörðum og á
Norð-Austurlandi og það er undir
öllum kringumstæðun nánast útilok-
að til slíks að hugsa fyrr en vega-
kerfið er viðunandi.
Eðli málsins samkvæmt mun það
taka mörg ár að ljúka þeim vega-
framkvæmdum, sem nú eru
ákveðnar. Hér er um langtíma verk-
efni á mörgum sviðum að ræða, en
þó munu þeir einstaklingar og fyr-
irtæki, sem þegar hafa fjárfest í
ferðaþjónustunni á Vestfjörðum og á
Norð-Austurlandi tiltölulega fljótt
byrja að njóta góðs af bættu vega-
kerfi.
Fyrir utan það að útlendingar,
sem hingað koma þurfa á nýjum
ferðamöguleikum að halda er vert að
hafa það í huga, að því fylgja ótví-
ræðir kostir að dreifa vaxandi ferða-
þjónustu um landið. Vitanlega njóta
landsmenn allir bættra vega bæði
beint og líka óbeint. Með endurbót-
um á vegakerefinu á Vestfjörðum
öllum og á Norð-Austurlandi fjölgar
ferðamönnum til landsins þegar veg-
irnir á þeim slóðum batna. Öll ferða-
þjónustan í landinu mun þannig,
þegar fram líða stundir, njóta góðs
af þeim vegaframkvæmdum, sem nú
eru ákveðnar, að ógleymdum mikl-
um fjölda landsmanna sjálfra.
Vegna þess að þjónustan við er-
lenda ferðamenn hefir batnað mjög
mikið á ýmsum sviðum á seinni árum
er eðlilegt að útlendingar, sem hing-
að koma, geri ráð fyrir því, að vegir í
landinu séu í samræmi við aðra þjón-
ustu og það sem menn eiga að venj-
ast í nærliggjandi löndum. Eftir því
sem erlendum ferðamönnum fjölgar
á vegum landsins verður auk alls
annars enn meiri nauðsyn á góðu og
öruggu vegakerfi um gjörvallt land-
ið.
Vegaframkvæmdir
og ferðaþjónusta
Eftir Birgi Þórhallsson „Eftir því
sem erlend-
um ferða-
mönnum
fjölgar verð-
ur enn meiri nauðsyn
á góðu og öruggu
vegakerfi um gjörvallt
landið.“
Höfundur er fv. framkvæmdastjóri.
HÁSKÓLI Íslands á í samkeppni
bæði innan lands og utan. Í þessari
samkeppni er mikilvægt að marka
skýra stefnu og nýta jákvæð áhrif
hennar eins mikið og kostur er.
Vaka vill að skólar á háskólastigi
aðgreini sig eftir þeirra sérstöðu og
tryggi þannig að ungt fólk, í leit að
framhaldsmenntun, hafi skýra val-
kosti. Háskóli Íslands á að bjóða
upp á nálægð við frábæra vísinda-
menn og rannsóknir og skilgreina
viðmið sín við bestu háskóla erlend-
is. Skerpa þarf háskólahugtakið og
gera auknar kröfur til skóla á há-
skólastigi, bæði þjóðinni og stúd-
entum til hagsbóta.
Öllum opinn – óháð efnahag
Huga þarf að sérstöðu Háskóla
Íslands og leggja áherslu á að
vekja athygli á henni. Í fyrsta lagi
býður HÍ upp á möguleika á þver-
faglegu námi og þar vinna sérfræð-
ingar við mörg ólík fræðasvið. Í
öðru lagi býr mikil reynsla í starf-
semi skólans sem nýtist í kennslu
og rannsóknavinnu og síðast en
ekki síst stendur Háskóli Íslands
öllum opinn óháð efnahag. Þessari
sérstöðu vill Vaka halda og því er
félagið á móti skólagjöldum við Há-
skóla Íslands.
Vaka vekur þó athygli á að leið-
rétta þarf samkeppnisstöðuna og
gera ráð fyrir kennslu fámennra
fræðasviða. Reiknilíkanið, sem
menntamálaráðuneytið notar til að
reikna fjárframlög til skólanna,
miðar við 30 nemendur í bekkj-
ardeild en í Háskóla Íslands eru að
meðaltali 20 nemendur í hverju
námskeiði. Háskólinn hefur litið á
það sem sitt hlutverk að kenna
mikilvægar en fámennar greinar,
s.s. tungumál, guðfræði og stærð-
fræði. Þessar greinar falla ekki að
líkaninu, en eru engu að síður mik-
ilvægar og því verður að gera ráð
fyrir raunverulegum kostnaði við
kennslu þeirra.
Styrkja þarf samkeppnishæfni
Samkeppnishæfni Háskóla Ís-
lands skiptir miklu máli fyrir stúd-
enta. Þeir verða að geta treyst því
að menntun þeirra verði metin að
verðleikum í framtíðinni. Því er
mikilvægt að sú bjartsýni, frum-
kvæði og samstaða sem einkennt
hefur Stúdentaráð á síðasta ári, fái
að ráða ríkjum í starfi ráðsins á því
næsta. Því er mikilvægt að stúd-
entar styrki stöðu Háskóla Íslands
í samkeppni skóla á háskólastigi og
veiti Vöku umboð til að leiða starf
Stúdentaráðs með því að setja X
við A kjördagana 26. og 27. febrúar.
Viðmiðin eru bestu
háskólarnir erlendis
Eftir Óskar Hafnfjörð
Auðunsson og Stein-
unni Völu Sigfúsdóttur
„Bjartsýni, frumkvæði
og samstaða hefur ein-
kennt Stúdentaráð á
síðasta ári.“
Óskar er stærðfræðinemi og skipar
3. sæti á lista Vöku og Steinunn situr
í Stúdentaráði fyrir Vöku.
Steinunn Vala
Sigfúsdóttir
Óskar Hafnfjörð
Auðunsson
KOSNINGAR til Stúdentaráðs Há-
skóla Íslands og Háskólafundar verða
haldnar hinn 26. og 27. febrúar nk. Í
þessum kosningum mun Röskva
leggja megináherslu á þrjú mál. Það
eru atvinnumál stúdenta, lánasjóðs-
mál og menntamál. Þessir þrír mála-
flokkar tengjast allir framtíðarhorfum
stúdenta og eru í raun þrjár megin-
stoðir menntakerfisins.
Samkeppnishæft nám
Við erum í háskólanámi til að búa
okkur undir framtíðina. Það er því
fyrsta krafa stúdenta í Háskóla Ís-
lands að í boði sé menntun sem er
samkeppnishæf. Í vetur hefur verið
mikil umræða um samkeppni á há-
skólastigi og þar hefur komið berlega í
ljós að mikið skortir á að gerður sé
greinarmunur á mismunandi mennta-
stofnunum á háskólastigi. Háskólar
eru annaðhvort rannsóknar- og
kennsluháskólar eða einungis
kennsluháskólar. Mikilvægt er að
greina þarna á milli og að það sé skýrt
hvaða skilyrði menntastofnun þarf að
uppfylla til að geta kallast rannsókn-
arháskóli.
Röskva vill að skýr stefna sé mótuð
í menntamálum. Á kosningaári hafa
allir flokkar tækifæri til að kynna vel
stefnu sína í þessum efnum og Röskva
hefur hvatt flokkana til þess að setja
menntamál og málefni ungs fólks í
öndvegi. Lánasjóðurinn er mikilvæg
forsenda margra til að geta stundað
nám. Röskva krefst hækkunar á
grunnframfærslu, frítekjumarki og
leiðréttingu á hlut þeirra nemenda
sem koma úr námshléi en staða þeirra
versnaði mikið við síðustu endurskoð-
un úthlutunarreglnanna þegar núver-
andi meirihluti sá um samningavið-
ræður við LÍN. Röskva vill að náms-
framboð í framhaldsnámi sé aukið.
Röskva mun einnig beita sér fyrir efl-
ingu Atvinnumiðstöðvar stúdenta, að
þar verði fjölgun verkefna og að At-
vinnumiðstöðin hafi burði til að veita
meiri þjónustu en nú er gert.
Stúdentaráð þarf að vera
öflugt og sýnilegt
Stúdentar við Háskóla Íslands og
Stúdentaráð sem málsvari þeirra hef-
ur mikilvægu hlutverki að gegna í allri
umræðu um hagsmuni stúdenta. Mikil
umræða er nú um stöðu Háskóla Ís-
lands í samkeppni við aðra skóla á há-
skólastigi og háværar raddir eru farn-
ar að boða skólagjöld. Atvinnuhorfur
háskólamenntaðs fólks hafa heldur
sjaldan verið verri en nú og því þurfa
stúdentar að láta vel í sér heyra og
koma hugmyndum að úrbótum á
framfæri. Á þessum tímum er sérstak-
lega mikilvægt að stúdentar eigi sér
öflugan málsvara í Stúdentaráði og
Röskva hefur sýnt það í gegnum árin
að hún hefur þor og dug til að berjast
af alefli fyrir hagsmunum stúdenta.
Röskva er öflugur
málsvari stúdenta
Eftir Valgerði B.
Eggertsdóttur
Höfundur er laganemi og leiðir
framboðslista Röskvu til
Stúdentaráðs.
„Röskva
hefur dug
og þor til að
berjast af
fullum krafti
fyrir hagsmunum
stúdenta við HÍ.“
HEILSUHRINGURINN
VILT ÞÚ FRÆÐAST?
Tímarit um holla næringu og
heilbrigða lífshætti.
Áskriftarsími 568 9933
Síðumúla 27 • 108 Rvík
Veffang: http:www.simnet.is/heilsuhringurinn/
Heimsmeistarinn!
blandarinn,
sá öflugasti og
ímynd þess besta!
Fæst í ýmsum litum. Verð
frá kr. 11.970 stgr.
Gullverðlaunahafar íslenska
landsliðsins í matreiðslu
nota eingöngu KitchenAid
blandara og hrærivélar.
Gerðu líka kröfur
- veldu KitchenAid!
552 7901 og 520 7900
998.-
tilboðaðeins kr.
Verð
kr.1.690.-