Morgunblaðið - 19.02.2003, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 19.02.2003, Qupperneq 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 33 voruð þið öll saman og þá var alltaf viðkvæðið hjá ykkur að hugleiða hvað þið gætuð gert fyrir börnin en þau náðu svo vel saman. Valdi minn, þú varst svo hjálpleg- ur, það var alveg sama hvað við báðum þig um að gera, alltaf varst þú tilbúinn til þess að veita hjálp. Til dæmis þegar við keyptum inn- réttinguna í eldhúsið, þá varst þú allan tímann með okkur að setja hana upp, þú varst svo sérstaklega handlaginn. Fráfall þitt verður erf- itt fyrir litlu fjölskylduna þína, því svo mikið sakna þau þín. Maður spyr, hver er tilgangur- inn? Þið voruð búin að finna hvort annað og svo ert þú bara tekinn frá henni. Þið sem áttuð svo vel saman og sýnduð hvort öðru svo mikla ást- úð. Það var ávallt svo gott að koma til ykkar og einnig að fá ykkur í heimsókn. Þið fóruð til mömmu og pabba í Hafnarfirði og þau voru bæði svo góð og indæl við Dísu og Karen Sif. Það sáu allir hvað þeim leið vel hjá þér enda geislaði af þeim gleðin. Þú varst ávallt svo góður við þær. Við getum endalaust haldið áfram, minningarnar um þig eru margar og góðar og okkur ógleymanlegar. Megi góður Guð styrkja Dísu, Karen Sif, Axel, Siggu og Gunna, Daða og alla aðra sem nú eiga um sárt að binda. Guð geymi þig, Valdi. Þín, Erna og Benedikt. Það sat lítill drengur við eldhús- borðið hjá okkur og talaði. Hann hafði svo mikið að segja og um svo margt að spyrja. Hann talaði hratt og spurningarnar komu hver yfir aðra og mörgum er ósvarað enn í dag. Hann talaði um mömmu og pabba sem voru svo góð, hann tal- aði um litla bróður sem var örlítið óþekkur en samt svo kær. Hann talaði um dýrin, skólann, Guð og allt annað sem þurfti að gera skil með orðum. Við hlustuðum, brostum og reyndum að svara einhverju af spurningum hans en þær komu bara svo ört. Hann skrapp út í sólina og lék um stund við heimabörnin, hundana og heimalningana, kom svo inn aft- ur til að tala meira við okkur. Þetta voru bjartir dagar sem við munum alltaf minnast með hlýju og þakklæti. En tíminn leið og snáðinn óx hratt. Hann flutti úr sveitinni og við hittumst sjaldnar, en síminn hélt við samtölunum. Það er oft erfitt að kljást við ung- lingsárin og á því fékk Valli að kenna. Þetta er harður heimur sem við búum í. En oftast er eitthvað til bjargar. Lítill sonur, styrkur trúar og hjálparhendur ættingja og vina gerðu kraftaverk og aftur birti til. Og enn fjarlægðist hann okkur í sveitinni er hann flutti til Danmerk- ur og bjó þar nokkur ár. Það var ómetanlegur styrkur fyrir hana Hrafnhildi okkar að eiga hann að þegar hún fór út, öllu ókunnug. Þegar við fórum til Kaupmanna- hafnar haustið 2000 áttum við góðar stundir saman. Við heimsóttum Valla, fórum saman út að borða og hann var hlýr og brosleitur alveg eins og við eldhúsborðið heima tæp- um tuttugu árum fyrr, faðmaði okk- ur og kyssti þegar við komum og fórum. Það er svo gott að muna þessar stundir og vita að þær verða ekki frá okkur teknar, nú þegar Valli er okkur horfinn. Guð blessi ljúfan dreng sem skil- ur eftir svo margar góðar minn- ingar og lítinn fallegan son sem minnir svo mikið á hann pabba sinn þegar við hittum hann fyrst. Elskulegu vinir. Engin orð geta bætt missi ykkar. En við vonum að umhyggja og ást vina ykkar hjálpi til að takast á við framtíðina. Guð veri með ykkur. Kærar kveðjur og þakkir, fjölskyldan í Hvammi. Þriðjudaginn 11. febrúar fengum við þær sorglegu fréttir að Valli frændi okkar hefði látist af slysför- um aðeins mánuði fyrir þrítugsaf- mælið sitt. Við minnumst Valla okk- ar sem fjörugs og uppátækjasams drengs, en jafnframt blíðs og góðs sem vildi allt fyrir alla gera. Við minnumst allra skemmtilegu ferða- laganna sem við fórum með ömmu og afa á Skodanum þar sem ým- islegt var brallað og allra góðu stundanna á Hringbrautinni hjá þeim. Þó svo að tónlistarsmekkur Valla og tónlist sú sem hljómsveit- irnar hans spiluðu félli ekki alltaf að tónlistarsmekk okkar systranna var alltaf fylgst með hvernig gengi. Einnig munum við eftir þegar Valli var yngri og fór í bíó en það þýddi yfirleit að aðrir fjölskyldumeðlimir þurftu ekki að sjá myndina enda var hún leikin frá upphafi til enda fyrir okkur systurnar og óþarfi að sjá hana eftir það. Þó svo að samverustundum síð- ustu ár hafi farið fækkandi, enda bjó Valli um tíma í Danmörku, voru þær ekki margar veislurnar sem hann sleppti enda fjöldskyldubönd- in sterk og ekki var verra að Valli var mikill matmaður og ekki marg- ar sortir í veislum sem ekki voru prufaðar og stærstu diskarnir vald- ir. Margar fleiri minningar streyma fram í huga okkar systranna við gerð þessarar greinar, m.a. frá því þegar Valli varð stoltur pabbi og þegar hann olli foreldrum sínum miklum áhyggjum með að heimta að fermast í jogginggalla en náðist að semja um á síðustu stundu með jakkafötum en strigaskórnir voru lengi inni. Elsku Sigga, Gunni, Daði, Axel og Dísa. Við systurnar sendum ykk- ur innilegar samúðarkveðjur með vissu um að minningin um góðan dreng mun lifa. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgr. Pétursson.) Blessuð sé minning Valdimars Gunnarssonar. Ásdís, Þórhildur og Guðný Hrund. Ég minnist þín í vorsins bláa veldi, er vonir okkar stefndu að sama marki, þær týndust ei í heimsins glaum og harki, og hugann glöddu á björtu sumarkveldi. Þín sál var öll hjá fögrum lit og línum, og ljóðsins töfraglæsta dularheimi. Þú leiðst í burt frá lágum jarðarseimi, í ljóssins dýrð, á hugar-vængjum þínum. Ég sakna þín, ég syrgi farinn vin, í sálu þinni fann ég dýpsta hljóminn, er hóf sig yfir heimsins dægur-glys. Á horfna tímans horfi ég endurskin, ég heyri ennþá glaða, þýða róminn, frá hreinni sál með hárra vona ris. (Steinn Steinarr.) Með þökk fyrir allt. Lára Kristín. Valli er dáinn. Harmafregn sem nístir meira en orð fá lýst. Við kynntumst honum þegar hann var smápjakkur í skóla á Varmalandi í Borgarfirði. Hann var lítill eftir aldri, ljóshærður með geislandi bros og hann bjargaði sér alltaf á léttri lund og mikilli mælsku þegar syrti í álinn og skólafélagarnir allir miklu stærri og sterkari. Og minningarbrotin hrannast upp: Við Valli á leiðinni upp í Borg- arfjörð, hann kannski 11-12 ára gamall og talaði alla leiðina. Það truflaði hann ekkert þó við stopp- uðum og tækjum bensín eða fengj- um okkur að borða, hann tók upp þráðinn að því er virtist í miðri setningu og kippti sér ekkert upp við það þó ég segði ekki alltaf já á réttum stöðum. Ákefðin og hug- myndaflugið var óstöðvandi. Dimmu árin þegar hann hvarf okk- ur og gekk um niðurlútur og bug- aður með síða hárið sitt. Gleðin og þakklætið þegar hann náði yfir- höndinni á ný og kom aftur inn í líf- ið okkar. Gamlárskvöld í Stekkjar- bergi þegar margt ungt fólk var samankomið í eldhúsinu og við hlógum að ýkjunum í Íslendinga- sögunum okkar. Reglubundnar fréttir af því að Valla liði vel og allt gengi honum í haginn. Svo þetta hörmulega slys sem tekur lífið hans og laskar önnur með sorginni og missinum. Viðhorf- ið „við erum ekki á leið til grafar heldur á leið til himnaríkis“ hjálpar ef til vill á þessum sorgartímum. Valli er á þeirri leið. Elsku Sigga, Gunni, Daði og Ax- el, megi algóður Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Minningin um góðan dreng lifir. Sigríður og Ágúst Bjarmi. Elsku Valli. Það er erfitt að skilja það að ung- ur maður í blóma lífsins sé tekinn frá okkur svo skyndilega. Þegar svona nokkuð gerist flæða minning- arnar yfir mann og við eigum marg- ar góðar minningar með þér, elsku Valli, þú reyndist okkur alltaf svo vel þegar við þurftum á hjálp þinni að halda, sérstaklega sumrin 1997 og 1998 þegar við bjuggum öll í Kaupmannahöfn. Heima hjá þér vorum við alltaf velkomin, þar sát- um við í góðu yfirlæti og drukkum kaffi. Spjölluðum um tónlist og það sem á daga okkar hafði drifið og fylgdumst með þér spila á gítarinn þinn, sem aldrei var langt undan. Alltaf þegar við hittum þig mætt- um við umhyggju þinni og hlýju sem við munum alla tíð koma til með að geyma í hjarta okkar. Þú varst ekki bara góður frændi Ingu, þú varst einnig góður vinur okkar beggja og komst alltaf til dyranna eins og þú varst klæddur. Það hefur verið skilið eftir stórt skarð í hjarta okkar sem aldrei verður fyllt upp í. Elsku Valli, við munum hugsa til þín með söknuði og til allra góðu stundanna sem við áttum saman. Blessuð sé minning þín. – Drottinn, þinnar ástar óður endurhljómi um jörð og höf. Breiddu þína blessun yfir blóma lífs og þögla gröf. Vígi og skjöldur vertu þeim, sem vinda upp hin hvítu tröf. Drottinn, þinnar ástar óður endurhljómi um jörð og höf. (Jón Magnússon.) Elsku Sigga, Gunni, Daði, Dísa og Axel, guð veri með ykkur og veiti ykkur styrk í sorginni. Inga og Magnús. Látinn er vinur minn Valdimar Gunnarsson. Það var í Kaupmannahöfn um vorið ’97 sem ég hitti Valdemar first. Á þeim tíma bjó sameiginleg- ur vinur okkar hjá þeim Valda og Láru þáverandi sambýliskonu hans, en í heimsóknum mínum þangað tókust með okkur kynni sem varað hafa æ síðan og hvergi borið skugga á. Við áttum samleið í lífinu, – tveir hugsjónarmenn – sóttum fundi í sameiginlegum félagsskap, höfðum báðir mikinn áhuga á tónlist og gát- um rætt saman um hin ólíklegustu mál næturlangt, óþvingað og af fyllstu einlægni. Vinskapur tókst fljótt með okkur enda ekki skrítið þar sem Valdi var heillandi per- sónuleiki, brosmildur hlýr og opinn í mannlegum samskiptum. Frá Kaupmannahöfn fluttumst við svo til Íslands um svipað leyti og eftir því sem ég kynntist Valda betur hér heima fór ég að gera mér grein fyrir því hvers konar gull af manni hann var, og á bakvið rólegt yf- irbragð leyndist kraftur sannfær- ingar, vit og trú, – en oft fékk ég að verða vitni að því þegar hann notaði hæfileika sína í þágu hins góða og munu þau verk hans lifa um ókomna tíð. Hver hefði svo trúað því að sú stund sem við áttum saman sl. gamlárskvöld í hljóðfæraslætti, söng, gleði og góðra manna hópi yrði sú síðasta sem okkur yrði skömmtuð. Það er erfitt að sjá á eftir svo góðum og fallegum vini á besta aldri hverfa á braut á svo sviplegan hátt og mega rök og skynsemi sín lítils hér. En eftir stendur minningin um heilsteyptan mann sem gaf mikið af sér og hafði djúp áhrif á mig sem og aðra, – vin í raun sem ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast og eiga nokkur ár með. Ég kveð þig hér góði vinur minn. Ef það er líf eftir þetta líf og menn eru dæmdir eftir verkum sínum hér á jörðinni, þá ert þú nú á þeim besta stað sem til er. Eftirlifandi syni, unnustu, fjölskyldu og ástvin- um sendi ég mína dýpstu samúð. Einar Þór Guðmundsson. Ef vér lifum, lifum vér Drottni, ef vér deyjum, deyjum vér Drottni. Hvort sem vér lifum eða deyjum erum vér Drottins. Allar góðar minningar um ljúf- an dreng geymum við í hjarta okkar og þökkum fyrir þær góðu stundir sem við höfum átt saman, þær munu ylja okkur í sorginni um ókomna framtíð. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgr. Pétursson.) Kveðja, Ragna, Karl og Valdís. HINSTA KVEÐJA  Fleiri minningargreinar um um Valdimar Gunnarsson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BORGHILDUR HJARTARDÓTTIR veitingakona frá Bjargi, Búðardal, Kópavogsbraut 1a, Kópabogi, lést laugardaginn 15. febrúar. Útförin auglýst síðar. Elísabet Á. Ásgeirsdóttir, Hilmar S. Ásgeirsson, Huldís Ásgeirsdóttir, Geir Þórðarson, barnabörn og langömmubörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SKÚLI ÞORKELSSON rakarameistari frá Vestmannaeyjum, er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Ólafur V. Skúlason, Guðrún Ólafsdóttir, Ásbjörn Skúlason, Ragnheiður Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi, FRIÐRIK ÓLAFUR ÓLAFSSON, lést í Laos miðvikudaginn 12. febrúar. Útförin auglýst síðar. Ólafur Friðriksson, Lilja K. Hallgrímsdóttir, Albertó Marquez, Ólafur Friðriksson, Brynhildur Jónsdóttir, Þóra G. Friðriksdóttir, Skúli H. Magnússon, Elísabeth A. Friðriksdóttir, Bjarndís H. Friðriksdóttir, Alexander H. Friðriksson, Kristófer R. Friðriksson, systkini og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ANNA SIGRÍÐUR SIGURMUNDSDÓTTIR frá Svínahólum í Lóni, áður til heimilis í Akurgerði 42, lést á Hrafnistu í Reykjavík 15. febrúar sl. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðju- daginn 25. febrúar kl. 13.30. Halla Steingrímsdóttir, Guðný Steingrímsdóttir, Ólafur V. Guðmundsson, Erlendur Steingrímsson, Guðný B. Guðmundsdóttir, Áslaug Steingrímsdóttir, Birgir L. Blöndal, Hanna Steingrímsdóttir, Magni Ólafsson, Sigrún Steingrímsdóttir, Gunnar Þórðarson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.