Morgunblaðið - 19.02.2003, Side 44
ÍÞRÓTTIR
44 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞORBERGUR Aðalsteinsson, fyrrverandi landsliðs-
þjálfari í handknattleik, var í gær ráðinn þjálfari
Hafnarfjarðarliðsins FH út þetta keppnistímabil.
Hann tók við starfi Einars Gunnars Sigurðssonar,
sem hætti með FH-liðið á mánudag, og stjórnaði
Þorbergur sinni fyrstu æfingu í gærkvöld.
Þorbergur, sem er gamalkunnur landsliðsmaður
úr Víkingi, lék á árum áður og þjálfaði sænska 1.
deildarliðið Saab í Norrköping. Hann tók við lands-
liði Íslands eftir HM í Tékkóslóvakíu 1990 og var
þjálfari liðsins fram yfir HM á Íslandi 1995. Eftir
það gerðist hann þjálfari ÍBV og fyrir þremur árum
tók hann við liði Víkings, en tók sér hvíld frá þjálf-
un eftir sl. keppnistímabil.
FH er í níunda sæti 1. deildar með 20 stig eftir
19 leiki. Grótta/KR er með 21 stig eftir 20 leiki,
Fram 24 stig eftir 20 leiki, Þór A. með 26 stig eftir
20 leiki og HK er einnig með 26 stig . Þar fyrir of-
an eru Haukar, KR, ÍR og Valur, en átta efstu liðin
komast í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn
og er Þorbergur ákveðinn að koma FH í úrslita-
keppnina.
Þorbergur tók
við FH-liðinu
Tveir fyrrverandi leikmenn Víkings þjálfa í
Hafnarfirði – Viggó Sigurðsson Hauka og Þor-
bergur Aðalsteinsson FH.
ÞJÓÐVERJAR ætla að prófa raf-
eindabúnað, sem skynjar hvort
knötturinn fer inn fyrir marklínu,
þegar þeir leika gegn Litháen í
Evrópuleik 29. mars. Búnaðurinn
verður settur upp við mörkin á
Franken Stadium í Nürnberg.
Þetta verður söguleg tilraun, en
oft hafa risið deilur um hvort
knötturinn hafi farið inn fyrir
marklínu eða ekki.
Frægt er atvik sem átti sér stað
í úrslitaleik heimsmeistarakeppn-
innar 1966 á Wembley, þegar
Englendingurinn Geoff Hurst
þrumaði knettinum upp undir
þverslána á marki Þýskalands og
þaðan þeyttist knötturinn niður á
völlinn. Þá gerðist það að rúss-
neskur línuvörður, sem var í afar
slæmri aðstöðu, veifaði til dómara
leiksins og sagði að knötturinn
hefði farið inn fyrir marklínu.
Dómarinn gat ekki annað en
dæmt mark, þó að knötturinn
hefði ekki farið inn fyrir marklínu
– leikmenn Englands hafa við-
urkennt það. Þetta var þriðja
mark Englendinga, sem fögnuðu
sigri í framlengingu, 4:2.
Nýi búnaðurinn á að koma í veg
fyrir að þannig atburðir geti end-
urtekið sig. Dómarinn á að geta
fengið upplýsingar um hvort
knötturinn fari inn fyrir marklínu
eða ekki, augnabliki eftir að vafa-
atriði koma upp.
Um síðustu helgi voru leikmenn
Crystal Palace óhressir að fá ekki
dæmt mark þegar knötturinn fór
inn fyrir marklínu Leeds í stöð-
unni 1:1. Búnaður eins og verður
reyndur í Nürnberg hefði komið
að góðum notum í leiknum.
Þjóðverjar prófa marka-
skynjara í Nürnberg
GUNNAR B. Ólafsson, sem lék
með Fram í úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu síðasta sumar, hefur samið
við 1. deildarlið Breiðabliks. Gunnar
er 26 ára miðjumaður en hann lék 9
leiki með Fram í deildinni í fyrra og
skoraði eitt mark. Hann lék áður
með Breiðabliki og á að baki 12 leiki
með félaginu í efstu deild, en spilaði
síðan í nokkur ár með Tindastóli.
HANDKNATTLEIKSLIÐ KA
tekur þátt í æfingamóti í Friesen-
heim í Þýskalandi í ágúst og mætir
þar liði heimamanna sem fyrrum
KA-þjálfarinn Atli Hilmarsson stýr-
ir og Halldór Sigfússon leikur með.
Samkvæmt heimasíðu KA er einnig
búist við því að Guðjón Valur Sig-
urðsson og félagar í Essen taki þátt í
mótinu.
TEITUR Þórðarson, þjálfari
norska knattspyrnuliðsins Lyn, sá
lærisveina sína fá skell, 5:0, gegn
bandaríska liðinu LA Galaxy á al-
þjóðlegu móti á La Manga á Spáni í
gær. Helgi Sigurðsson og Jóhann B.
Guðmundsson léku í fremstu víglínu
hjá Lyn.
ALEXEI Lalas, fyrrum landsliðs-
maður Bandaríkjanna, skoraði eitt
markanna fyrir LA Galaxy en hann
vakti mikla athygli á sínum tíma,
ekki síst fyrir sitt síða skegg og op-
inskáa framkomu. Lalas hætti með
landsliðinu fyrir mörgum árum en er
þó enn aðeins 32 ára.
OTTO Rehhagel, hinn gamal-
kunni þjálfari Werder Bremen og
Kaiserslautern, er á leiðinni á ný til
Þýskalands eftir að hafa verið lands-
liðsþjálfari Grikklands. Hann á í við-
ræðum við Leverkusen um að gerast
tæknilegur ráðgjafi liðsins. Í því
starfi var Rudi Völler áður en hann
gerðist landsliðsþjálfari Þýskalands.
JOERG Albertz, fyrrverandi mið-
vallarleikmaður Þýskalands og
Glasgow Rangers, sem hefur verið í
herbúðum Hamburger SV, er á för-
um til Kína til að leika með Shanghai
Shenhua. Þýska liðið leysti Albertz,
32 ára, undan samningi sem átti að
renna út í sumar.
MEHMET Scholl, miðjumaður hjá
Bayern München, sagði í gær að
hann myndi ekki leika á ný með
þýska landsliðinu. Frans Becken-
bauer, forseti Bayern og varafor-
maður þýska knattspyrnusambands-
ins, sagði á mánudaginn að þýska
landsliðið þyrfti á kröftum Scholl að
halda, en hann átti stórleik og skor-
aði þrjú mörk gegn 1860 München
um sl. helgi.
RUDI Völler, landsliðsþjálfari,
sagði einnig að hann vonaði að Scholl
myndi skipta um skoðun og leika á
ný með landsliðinu. „Að byrja að
leika á ný með landsliðinu er ekki til í
myndinni hjá mér,“ sagði Scholl, 32
ára, í viðtali við Bild.
FÓLK
Ég var á leik LA Clippers ogWashington Wizards í síðustu
viku (vildi sjá kappann leika í síðasta
sinn). Eins og í flest-
um útileikjum Wiz-
ards, var uppselt á
leikinn og áhorfend-
ur mættu fyrr til
sæta sinna en venjulega. Þegar
Jordan kom til upphitunar með sam-
herjum fyrir leik var hann hylltur
með miklu lófaklappi. Á meðan á
leiknum stóð mátti heyra saumnál
detta í Staples Center þegar hann
reyndi körfuskot og ef hann skoraði
fögnuðu áhorfendur af ákafa, mun
meira en þegar heimaliðið skoraði.
Þetta var óvenjuleg reynsla, en er
saga sem hefur endurtekið sig í allan
vetur þar sem Jordan hefur leikið á
útivelli.
Jordan er ekki sami leikmaðurinn
og þegar hann stýrði Chicago Bulls
til sex meistaratitla, en hann er samt
sem áður lykilmaður hjá Wizards.
Andstæðingar kappans inni á vell-
inum líta með aðdáunaraugum á
hann, enda Jordan goð í augum
þeirra flestra. Þrátt fyrir það verður
Jordan að hafa mikið fyrir hverri
körfu. Enginn af yngri leikmönnun-
um vill verða gerður að athlægi í
viku með því að láta fertugan mann
skilja sig eftir og því er hans jafnan
mjög vel gætt, oftast af miklu yngri
leikmönnum.
Jordan skoraði 23 stig í leiknum
um daginn og var lykilmaður í sigri
Wizards. Hann hefur misst
sprengjukraftinn í kringum körfuna,
en bætir upp fyrir það með hinu
fræga stökkskoti, þar sem hann snýr
andstæðinginn af sér og stekkur aft-
urábak áður en hann lætur skotið
ríða af. Þannig skorar hann flest
stigin sín þessa dagana, en það er
enn unun að sjá hversu mikill glæsi-
bragur er á leikstíl og hreyfingum
hans á vellinum. Til hamingju með
afmælið!
Þrátt fyrir nokkuð harða keppni
um góð sæti í úrslitakeppninni, er
það sem fyrr sápuóperan í kringum
meistara Los Angeles Lakers sem er
mesta skemmtunin í augum flestra
hér vestra. Eftir fimm sigurleiki fyr-
Michael Jordan hélt upp á fertugsafmæli sitt í Los Angeles
AP
Goð í
augum
flestra
MICHAEL Jordan varð fertugur á mánudag og hefur sýnt undan-
farið hversu mikið hann mun skilja eftir sig þegar hann loksins
leggur skóna á hilluna fyrir fullt og allt. Hann lék stórt hlutverk í
stjörnuleiknum á dögunum og vegna afmælisdagsins hafa fjöl-
miðlar hér í landi verið uppfullir af greinum um áhrif kóngsins á
NBA-deildina, innan sem utan vallar.
Gunnar
Valgeirsson
skrifar frá
Bandaríkjunum
BOBBY Robson, knattspyrnustjóri
Newcastle, hélt upp á sjötugs-
afmælið sitt í gærkvöld með því að
stjórna liði sínu gegn Bayer Lever-
kusen í meistaradeild Evrópu. Rob-
son hefur nú verið á fleygiferð í
knattspyrnunni í 53 ár sem leik-
maður, þjálfari og knattspyrnu-
stjóri, og engan bilbug virðist enn á
honum að finna.
Robson lék á sínum tíma 584
deildaleiki með Fulham og WBA og
spilaði 20 landsleiki fyrir Englands
hönd á árunum 1957–1962. Hann
skoraði tvö mörk í fyrsta lands-
leiknum, gegn Frökkum 1957, og
lék með enska landsliðinu á HM í
Svíþjóð 1958.
Frumraun Robsons í þjálfun var
hjá Fulham en hann tók við liðinu á
botni efstu deildar 1968 og var sagt
upp störfum eftir að það féll þá um
vorið. Í janúar 1969 tók hann við
Ipswich og lyfti félaginu í efstu
hæðir á 13 árum þar. Undir hans
stjórn varð Ipswich bikarmeistari
1978, náði öðru sæti ensku deilda-
keppninnar og varð UEFA-meistari
1981. Árið 1982 tók Robson við
enska landsliðinu og stýrði því sam-
fleytt í átta ár, en hann hætti á
toppnum eftir að það komst í und-
anúrslitin á HM á Ítalíu 1990.
Robson stýrði PSV Eindhoven í
Hollandi 1990–1992 og félagið varð
meistari bæði árin. Þaðan fór hann
til Portúgal og stýrði Sporting og
Porto og vann þrjá titla með síð-
arnefnda félaginu. Þaðan fór hann
til Barcelona sem varð bikarmeist-
ari og Evrópumeistari bikarhafa
undir hans stjórn, aftur til PSV og
tók loks við Newcastle á botni
ensku úrvalsdeildarinnar 1999.
Robson er með opinn samning við
Newcastle. „Þetta er eins árs samn-
ingur sem rennur aldrei út. Á
hverjum morgni þegar Bobby fer á
fætur veit hann að hann á enn eitt
ár eftir af samningnum. Ég vona að
hann stjórni liðinu næstu fimm árin
í það minnsta. Bobby er einstakur í
sinni röð. Hann stendur ekki á lín-
unni á æfingum, heldur er hann
inni á vellinum og tekur fullan þátt
í því sem um er að vera. Áhuginn og
krafturinn eru með eindæmum,
hann er ótrúlegur maður,“ segir
Freddie Shepherd, stjórnar-
formaður Newcastle.
Sjötugur þjálfari
á fullri ferð
Reuters
Sir Bobby Robson með orðuna góðu.