Morgunblaðið - 22.03.2003, Síða 8

Morgunblaðið - 22.03.2003, Síða 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Teg.: Celeste Rauðvínsglas kr. 710 Karafla 3/4 l. kr. 2.790 Teg.: Twist Rauðvínsglas kr. 1.130 Karafla kr. 4.790 Tertudiskur kr. 3.210 Vasi kr. 6.980 Klingjandi kristall Nú er bara að velja frá hverjum við viljum fá stöffið. Hollvinafélag Gufubaðsins á Laugarvatni Nú verður eitt- hvað að gerast FÉLAGSSKAPURsem heitir Holl-vinafélag Gufu- baðsins og Smíðahússins á Laugarvatni blæs til fund- ar í Smíðahúsinu í dag klukkan 16. Félagið hefur á stefnuskránni uppbygg- ingu gamalla minja á Laugarvatni. Morgunblað- ið spurði Hafþór B. Guð- mundsson, lektor við Kennaraháskóla Íslands, aðeins út í félagið og fund- inn. – Segðu okkur fyrst frá félagsskap ykkar og yfir- lýstum markmiðum hans. „Þetta eru samtök sem heita Hollvinafélag Gufu- baðsins og Smíðahússins á Laugarvatni. Ekki er hægt að segja frá samtök- unum nema að rifja upp sögu Gufubaðsins og Smíðahússins í stuttu máli. Smíðahúsið er eitt fyrsta fimleika/leikfimishús lands- ins. Var það áður konungshús, notað sem sýningarskáli við Al- þingishátíðina 1930 og stóð í garði Alþingishússins. Síðar fluttu nem- endur af Laugarvatni húsið í pört- um hingað austur og byggðu upp sjálfir og notuðu sem leikfimishús hér á Laugarvatni, þar til íþrótta- salurinn var byggður við Héraðs- skólahúsið. Eftir það var Smíða- húsið meira notað til smíða- kennslu og annarra slíkra verka og hefur dregið nafn sitt af þeirri starfsemi. Gufubað hefur verið á Laugar- vatni frá því 1930. Litlar breyt- ingar hafa verið gerðar á því sjálfu. Klefar voru byggðir yfir hverinn á sínum tíma. Gríðarlegur fjöldi fólks hefur farið í gufuna á þessum árum og þá oft í tengslum við skólana sem hér hafa verið starfræktir. Mjög margir af þess- um gestum hafa orðið fastagestir og miklir gufuvinir. Undanfarin ár hafa gufuvinir rætt um það þegar þeir hittast í gufunni að nú verði eitthvað að gerast til að halda Gufubaðinu gangandi, en ástand þess er vægast sagt slæmt. Hollvinafélagið vonast til að geta samið við menntamálaráðu- neytið, sem er eigandi mannvirkj- anna og strandarinnar hér, um að fá að standa fyrir endurbótum á Gufubaðinu, Smíðahúsinu og um- hverfi þess, standa fyrir markaðs- setningu á þessu svæði til hags- bóta fyrir alla ferðaþjónustu og styrkja og efla Gufubaðið og Smíðahúsið og umhverfi fjárhags- lega og á annan hátt.“ – Eru umræddar minjar í nið- urníðslu og liggja undir skemmd- um? „Eins og fram hefur komið, er um mjög merkar menningar- tengdar byggingar að ræða. Smíðahúsið var listaskáli Dana- konungs á Alþingishátíðinni 1930. Liggur það undir skemmdum. Þak er farið að síga og og ytri járnklæðning ryðguð og illa farin. Gufubaðið sem á sér enga hlið- stæðu í heiminum hef- ur verið haldið gang- andi, en þarf algerrar endurnýjunar við.“ – Hvað þarf mikla fjármuni og tíma í þessa uppbyggingu? „Það hefur nú ekki verið reikn- að nákvæmlega út hvað þurfi af fjármagni í þessa hluti en ljóst er að það er talsvert og hleypur á milljónum, því hugmyndin er ekki eingöngu að gera við húsin heldur allt umhverfið, það er að útbúa yl- strönd með tilheyrandi þjónustu og leiktækjum, sem sagt frábæra fjölskylduparadís.“ – Fundurinn í dag – markmið og áherslur? „Já, það er rétt, við erum með fyrsta aðalfund samtakanna í dag, sem einnig er stofnfundur og þeir sem mæta verða þá stofnfélagar Hollvinasamtakanna. Samtökin hafa nú þegar fengið 5 milljóna króna fjárveitingu frá fjárveit- inganefnd til að koma málinu af stað. Dagskrá fundarins verður einhvern veginn á þessa leið: Rak- in verður stuttlega saga Smíða- hússin og Gufubaðsins á skemmti- legan hátt. Gestir halda stuttar ræður. Einhver skemmtiatriði verða á dagskrá, en síðan verður gengið til aðalfundarstarfa sem ætti ekki að taka langan tíma þar sem aðeins verður fjallað um lög félagsins og gengið til kosninga um stjórn. Eftir aðalfundinn verð- ur öllum boðið í gufuna sem þess óska. Loks verður veitingahúsið Lindin opið fyrir gesti og þar geta menn keypt sér léttar veitingar og haldið áfram að ræða málefnin fram eftir kvöldi. Eins og sést er áætlað að þetta verði allt á léttu nótunum og að allir geti haft gaman af heimsókn- inni hingað á Laugarvatn.“ – Er fundurinn öllum opinn? „Já, þessi fundur er öllum opinn og vonumst við til að sjá sem allra flesta velunnara Gufubaðsins og Smíðahússins. Það er ljóst að margir eiga frábærar minningar frá þessum stað og vilja örugglega leggja sitt af mörkum til að viðhalda honum.“ – Ef félagið kemur brýnustu málum á koppinn, eru þá ekki næg önnur verkefni til að ráðast í á Laugar- vatni og jafnvel víðar á Suður- landi? „Við sjáum fyrir okkur mikla uppbyggingu hér á Laugarvatni og þetta er bara fyrsti hlutinn í því að gera Laugarvatn aftur að þeirri paradís fjölskyldunnar sem það var hér á árum áður.“ Hafþór B. Guðmundsson  Hafþór B. Guðmundsson fædd- ist í Reykjavík 26. febrúar 1954. Íþróttafræðingur frá háskólanum í Alberta. Sundþjálfari um árabil, bæði hjá landsliði og félagsliðum. Hóf kennslu við Íþróttakenn- araskóla Íslands 1993. 1998 breyttist skólinn í íþróttaskóla á háskólastigi. Er lektor við skól- ann í dag og helstu kennslugrein- ar eru sundfræði, þjálffræði og skyndihjálp og björgun fyrir verðandi kennara. Maki er Sig- ríður V. Bragadóttir flugfreyja og framkvæmdastjóri Íþrótta- miðstöðvar Íslands á Laug- arvatni. Eiga fjögur börn, Braga Dór, Guðmund Svein, Árna Pál og Sigurð Orra, 26 til 12 ára. …hafa orðið fastagestir og miklir gufuvinir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.