Morgunblaðið - 22.03.2003, Síða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 13
íslenskum lánastofnunum starfs-
umhverfi er sé sambærilegt við það
sem tíðkast í flestum Evrópuríkj-
um, eftir því sem aðstæður leyfa. Í
þessu skyni hefur Seðlabankinn
breytt reglum sínum á liðnum ár-
um. Bankastjórn hefur nýlega tekið
ákvörðun um að breyta reglum um
bindiskyldu og kemur fyrsti áfangi
breytinganna til framkvæmda í dag
[í gær]. Bindihlutföll verða lækkuð
og þannig losað um fé fyrir banka-
kerfið að fjárhæð um 8 milljarðar
króna. Það ætti að geta verið tilefni
vaxtalækkana í bankakerfinu.
Frekari breytingar eru svo fyrir-
hugaðar síðar á árinu.“
Meiri hagvöxtur á næstu árum
en búist hafði verið við
Að sögn Birgis Ísleifs hafa
nokkrar mikilvægar breytingar átt
sér stað, síðan bankinn birti þjóð-
hagsspá sína í byrjun febrúar.
Ákveðið hefði verið að flýta ýmsum
opinberum framkvæmdum og hefj-
ast handa við stækkun álvers Norð-
uráls á Grundartanga. Að auki
muni meiri þungi verða í fram-
kvæmdum við Kárahnjúkavirkjun á
þessu ári en áður hafi verið gert
ráð fyrir. „Þetta þrennt, ásamt
lækkun stýrivaxta Seðlabankans í
febrúar, leiðir til meiri eftirspurnar
á árinu 2003 og 2004 en reiknað var
með í þjóðhagsspánni og mun það
að óbreyttu auka hagvöxt.“
29 milljarðar á
tveimur árum
Birgir sagði að samanlagt væri
um að ræða beina aukningu fjár-
festingar um 13 milljarða króna á
þessu ári og um 19 milljarða króna
á því næsta, umfram það sem búist
hefði verið við þegar þjóðhagsspá
Seðlabanka hafi verið gefin út í
febrúar.
„Vegna breyttra forsendna
benda athuganir til að hagvöxtur
geti í ár hæglega orðið á bilinu 2–
2,5% og farið vel yfir 3% á næsta
ári. Þetta er allt að 1% meiri hag-
vöxtur hvort árið um sig en áður
var reiknað með. Einnig batna at-
vinnuhorfur umtalsvert. Í ljósi þess
að framleiðsluslaki varð aldrei mik-
ill og árstíðaleiðrétt atvinnuleysi í
febrúar var um 3,2% og hefur lítið
breyst frá því í september er ljóst
að mun styttra er nú í það en áður
var talið að spenna geti farið að
gera vart við sig á ný. Líklegt er að
verðbólga á þessu ári verði nálægt
2,5% verðbólgumarkmiði bankans,
en geti að óbreyttu farið hækkandi
á næsta ári,“ sagði Birgir Ísleifur.
Mikilvægt verkefni að koma
í veg fyrir ofþenslu
Hann sagði að fyrirsjáanlegt
væri, að þessar stórframkvæmdir
féllu að einhverju leyti saman árin
2004 og 2005, en mestur þunginn
kæmi á árin 2005 og 2006. „Hag-
stjórnarvandinn verður því meiri
en talið var þegar eingöngu var
reiknað með álverinu í Reyðarfirði
og tengdum raforkuverum. Þessar
horfur kalla á viðbrögð í hagstjórn,
bæði við stjórn peningamála og rík-
isfjármála. Umfang viðbragðanna
mun ráðast af gengisþróun, en ljóst
er að það verður mjög mikilvægt
verkefni næstu misserin að koma í
veg fyrir ofþenslu og verðbólgu.“
Birgir sagði að raunhæfar að-
gerðir í ríkisfjármálum væru nauð-
synlegar til að álagið yrði ekki fyrst
og fremst á peningastefnuna og
bitnaði þannig í of miklum mæli á
útflutnings- og samkeppnisgrein-
um. „Því öflugri sem aðhaldsað-
gerðir í ríkisfjármálum verða í há-
toppi framkvæmdanna, því minni
verður sú hækkun raungengis sem
þeim mun óhjákvæmilega fylgja og
því betur mun núverandi útflutn-
ings- og samkeppnisgreinum farn-
ast.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Húsfyllir var í höfuðstöðvum Seðla-
banka á ársfundi bankans í gær.