Morgunblaðið - 22.03.2003, Qupperneq 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu er húseignin
í Heiðarlundi 4G á Akureyri
Íbúðin er mjög góð 5 herbergja raðhússíbúð á tveimur hæðum í níu íbúða húsi.
Frábær staðsetning, skólinn við sömu götu, íþróttahús og verslun í nágrenninu
og góðir nágrannar. Ásett verð er 15,2 milljónir.
Nánari upplýsingar gefur Björn á fasteignasölunni Byggð,
s. 897 7832, Þóra s. 864 4113, Snorri s. 894 3113
AKUREYRI
STEFNT er að stofnun hlutafélags
um byggingu og rekstur stórrar
frystigeymslu á Akureyri. Samherji
hefur haft forgöngu í þessu máli og
að sögn Kristjáns Vilhelmssonar út-
gerðarstjóra fyrirtækisins er horft
til þess að koma frystigeymslunni
upp í skemmu sem Samskip og FMN
hafa haft afnot af á Togarabryggj-
unni. Húsnæðið er í eigu Fasteigna-
félagsins Kletta, sem er í eigu Kald-
baks. Kristján sagði að staðsetning
slíkrar starfsemi á Togarabryggj-
unni væri mjög góð og að í skemm-
unni væri hægt að koma fyrir 1.100
fermetra frystigeymslu.
Kristján sagði málið ekki lengra
komið en svo að stefnt væri að því að
boða til stofnfundar fljótlega, búið
væri að teikna húsið upp en eftir
væri að fjalla um málið hjá skipu-
lagsyfirvöldum bæjarins. „Fyrir-
tækjum í svona atvinnurekstri eins
og við erum í er nauðsyn að hafa að-
gang að frystigeymslum,“ sagði
Kristján.
Hörður Blöndal hafnastjóri
Hafnasamlags Norðurlands sagði að
með tilkomu frystigeymslu verði
hægt að bjóða upp á alla þjónustu
hjá höfninni. Hér væri því um mjög
stórt mál að ræða og eftirspurnin
væri vissulega fyrir hendi. „Það eru
frystigeymslur í bænum en þarna er-
um við að tala um geymslu sem rekin
yrði af ákveðnu fyrirtæki og ynni í
því að sækja sér verkefni. Svona
frystigeymsla hefði því svipaða þýð-
ingu fyrir okkur og Slippstöðin hef-
ur, þ.e. stórt fyrirtæki sem veitir sér-
hæfða þjónustu. Við reiknum með
því, eins og allar hugmyndir ganga
út á, að þessi frystigeymsla verði
reist í sumar.“
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær, lönduðu þrír frystitog-
arar miklu magni af frystum afurð-
um á Akureyri á einni viku og var
aflaverðmæti þeirra samtals um 420
milljónir króna. Hörður sagði að í því
tilviki hefði flutningaskipi verið
stefnt til bæjarins, til að taka afurð-
irnar strax til útflutnings. Hann
sagði að þegar frystigeymslan yrði
að veruleika myndaðist meiri slaki í
þessu ferli og hægt að safna saman
afurðum á einn stað til útflutnings.
Jafnframt væri mögulegt að fá fleiri
skip til löndunar á Akureyri. Að auki
gætu flutningaskip komið með fryst-
ar afurðir til vinnslu í bænum, eins
og t.d. rækju til Strýtu.
Akureyrarhöfn hefur miklar
tekjur af þeirri umsýslu sem fylgir
löndun, t.d. á frystum afurðum.
Höfnin fær ½% af því aflaverðmæti
sem þar fer í gegn og tekjur af lönd-
un frystitogaranna þriggja síðustu
daga nam því rúmum tveimur millj-
ónum króna. Að auki fékk höfnin
tekjur af flutningaskipinu sem fór
með afurðirnar í burtu.
„Þess vegna erum við mjög
óhressir með að menn skuli sjá sér
hag í því að flytja afurðir landleiðina
í burtu.“
Morgunblaðið/Kristján
Stefnt er að því að koma upp um 1.100 fermetra stórri frystigeymslu í hús-
næði Fasteignafélagsins Kletts á Togarabryggjunni á Akureyri.
Byggja stóra
frystigeymslu á
Togarabryggju
SKÚLI Árnason var kjörinn formað-
ur Súlna, björgunarsveitarinnar á
Akureyri, á aðalfundi sveitarinnar ný-
lega og tók hann við starfinu af Ingi-
mar Eydal, sem verið hefur formaður
frá stofnun Súlna árið 1999. Á fund-
inum var lögð fram skýrsla síðasta
starfsárs þar sem m.a. kemur fram að
útköll sl. árs voru 20 auk útkalla
vegna sjúkragæslustarfa. Stærsta út-
kall ársins var leitin að Ítalanum Dav-
id Paita sem ekki bar árangur.
Af öðrum verkefnum má nefna
skíðagæslu í Hlíðarfjalli og þá sá
sveitin um sjúkragæslu á Landsmóti
skáta að Hömrum í júlí. Ellefu félagar
heimsóttu fjallabjörgunarsveit
breska hersins í Skotlandi í maí sl.
Sveitinni var boðið að heimsækja
breska herinn í kjölfar vinnu sveit-
arinnar við björgun líkamsleifa
breskra hermanna sem fórust í flug-
slysi á Tröllaskaga fyrir um 60 árum.
Sveitarmeðlimir unnu mikið starf
við að koma sér fyrir í nýju húsi sveit-
arinnar að Hjalteyrargötu 12 og hef-
ur húsið sannað gildi sitt fyrir sveit-
ina. Sveitin gerði styrktarsamning við
Akureyrarbæ á árinu sem gildir til
ársins 2007 og er hann mjög mikil-
vægur vegna kaupa á húsinu. Útgerð-
arfélag Akureyringa gaf sveitinni
lyftara ásamt hleðslustöð til nota í
húsinu og nýtist hann vel við flutning
á búnaði innanhúss. Slöngubátur
sveitarinnar var endurnýjaður á
árinu og ennfremur tveir vélsleðar en
endurnýjun tækja hefur setið á hak-
anum vegna húsakaupa sveitarinnar.
Aðrir í stjórn Súlna eru Leonard
Birgisson, Ásgeir Hreiðarsson, Sig-
urbjörn Gunnarsson og Indíana Ósk
Magnúsdóttir.
Skúli Árnason nýr formaður Súlna
Sveitin sinnti 20 út-
köllum á síðasta ári
SKÓLANEFND Akureyrarbæjar
hefur samþykkt fyrir sitt leyti tillögu
frá Hrafnhildi Sigurðardóttur leik-
skólafulltrúa, þar sem hún leggur til
að leikskólarnir Holtakot, Síðusel og
nýi leikskólinn við Hólmatún verði
einsetnir með haustinu.
Þessi tillaga er fram komin þar
sem aðeins er óskað eftir síðdegis-
plássi fyrir 10% leikskólabarna og þá
er mun hagkvæmara að dreifa þeim
á færri leikskóla en nú er gert.
Leikskólar
einsetnir
♦ ♦ ♦
MEIRIHLUTI starfsmanna leik-
skólans Tjarnaráss í Hafnarfirði hef-
ur ekki áhuga á að starfa undir stjórn
Íslensku menntasamtakanna sem
reka leikskólann. Þetta kemur fram í
bréfi sem trúnaðarmaður starfs-
mannanna hefur sent bæjaryfirvöld-
um. Áður hafa leikskólastjóri og að-
stoðarleikskólastjóri báðir sagt upp
störfum vegna ágreinings við fram-
kvæmdastjóra samtakanna, Sunitu
Gandhi. Ekki var rætt um yfirtöku
reksturs leikskólans á fundi fræðslu-
yfirvalda í Hafnarfirði og fram-
kvæmdastjóra ÍMS á miðvikudag, en
málið fer fyrir fund Fræðsluráðs í
næstu viku.
Eins og Morgunblaðið greindi frá í
byrjun vikunnar sendi stjórn For-
eldrafélags Tjarnaráss bæjaryfir-
völdum bréf. Kemur þar fram að í
ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin
vegna uppsagna skólastjórnendanna
og þeirrar staðreyndar að samningur
við ÍMS um reksturinn rennur út
vorið 2004, telji stjórnin að best sé að
Hafnarfjarðarbær taki reksturinn
yfir.
Mikil óvissa meðal foreldra
og starfsfólks
Bréfið var tekið fyrir á fundi leik-
skólanefndar bæjarins í síðustu viku
sem lýsti yfir áhyggjum sínum með
þá stöðu sem upp er komin í leikskól-
anum.
Í gær funduðu fræðsluyfirvöld í
bænum með Sunitu Gandhi en að
sögn Magnúsar Baldvinssonar
fræðslustjóra var búið að boða til
þess fundar áður en stjórn foreldra-
félagsins sendi frá sér erindi sitt.
Meðal þess sem hafi verið á dagskrá
fundarins hafi verið uppsagnir leik-
skólastjórnendanna tveggja.
„Ég kallaði eftir viðbrögðum við
þessum uppsögnum og fékk þær
upplýsingar að verið sé að svipast um
eftir nýjum stjórnendum og hugsan-
lega verði störfin auglýst um næstu
mánaðamót,“ segir Magnús. „Við
lögðum hins vegar ríka áherslu á að
niðurstaða lægi fyrir sem allra fyrst
því það væri mikil óvissa meðal for-
eldra og starfsmanna leikskólans.“
Starfsmenn vilja að bærinn
taki yfir reksturinn
Eftir fundinn í gær barst bæjaryf-
irvöldum erindi trúnaðarmanns
starfsmanna Tjarnaráss þar sem
kemur fram að vegna þeirra breyt-
inga, sem fyrirhugaðar eru í starfs-
mannahaldi leikskólans, hafi stærst-
ur hluti starfsmanna ekki áhuga á að
starfa undir stjórn ÍMS. Farið er
fram á að bærinn taki reksturinn yfir
til að tryggja stöðugleika í starfs-
mannahaldi. Erindið var tekið fyrir í
leikskólanefnd á fundi hennar í gær
sem vísaði því áfram til Fræðsluráðs
en það fundar á miðvikudaginn í
næstu viku.
„Þá skýrist kannski hvort bærinn
setji ÍMS einhverja tímaramma en
fram að því ætlum við ekkert að
gera, við grípum ekkert inn í þetta af
fyrra bragði. Við erum hins vegar til-
búnir að taka við þessum rekstri ef
viðræðurnar við samtökin þróast
þannig,“ segir Magnús. „Það er
greinilegt að þetta er að verða svolít-
ið alvarlegra með hverjum degin-
um.“
Sunita Gandhi vildi ekki tjá sig um
málið en boðaði yfirlýsingu um málið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Málefni Tjarnaráss verða rædd á fundi Fræðsluráðs í næstu viku.
Starfsmenn leikskólans Tjarnaráss
senda erindi til bæjaryfirvalda
Vilja ekki starfa
undir stjórn ÍMS
Hafnarfjörður
REYKJAVÍKURBORG mun greiða
30% af kostnaði við viðbyggingu
hjúkrunarheimilisins Eirar en Þór-
ólfur Árnason borgarstjóri og Sig-
urður Helgi Guðmundsson, for-
stöðumaður hjúkrunarheimilisins,
skrifuðu í gær undir samning þess
efnis.
Áætlað er að byggingin kosti 660
milljónir króna en þar af mun borg-
in greiða 130 milljónir. Framlag
framkvæmdasjóðs aldraðra verður
að lágmarki 40% af bygging-
arkostnaðinum og hefur Eir þegar
tryggt sér það sem upp á vantar að
því er fram kemur í frétt frá
Reykjavíkurborg.
Í nýju byggingunni verða 40
hjúkrunaríbúðir og dagvistun fyrir
20 manns og geta þá alls um 200
aldraðir dvalið á hjúkrunarheim-
ilinu. Framkvæmdir eru þegar
hafnar og lýkur þeim á næsta ári.
Borgin
greiðir 30%
af stækkun
Eirar
Grafarvogur
Morgunblaðið/Jim Smart
BÚSETI hefur óskað eftir því við
bæjaryfirvöld í Garðabæ að fá lóð
eða lóðum úthlutað til uppbyggingar
leiguíbúða í bæjarfélaginu. Bærinn
bendir á að rástöfunarréttur nýrra
lóða fyrir fjölbýlishús í bænum sé í
höndum einkaaðila.
Í erindi Búseta kemur fram að fé-
lagið hafi þegar gert samninga um
uppbyggingu 80 leiguíbúða á höfuð-
borgarsvæðinu á næstu þremur ár-
um og eru Reykjavík og Bessastaða-
hreppur sérstaklega nefnd í því
sambandi. Hins vegar hafi Búseti
tryggt sér fjármagn til uppbygging-
ar á allt að 300 leiguíbúðuum á sama
tímabili. Er því óskað eftir lóð eða
lóðum til áframhaldandi uppbygg-
ingar leiguíbúða.
Bærinn úthlutar sérbýlis-
lóðum á næstu árum
Í bókun bæjarráðs kemur fram að
einkaaðilar hafi ráðstöfunarrétt á
lóðum á þeim svæðum í Garðabæ þar
sem uppbygging mun fara fram
næstu árin.
Að sögn Ásdísar Höllu Bragadótt-
ur bæjarstjóra er þar um að ræða
þau svæði þar sem áformað er að
byggja upp hefðbundin fjölbýlishús
á næstu árum. „Næstu stóru fjöl-
býlishúsin hjá okkur eru annars veg-
ar í Sjálandi, sem fyrirtækin Björg-
un og Bygg eru með, og hins vegar
eru þau í Akrahverfinu, sem er í eigu
einkaaðila,“ segir hún. Hins vegar
muni bærinn úthluta lóðum fyrir ein-
býlishús, parhús, raðhús og minni
fjölbýli á næstu árum.
Þá bendir hún á að Garðabær hafi
tekið 14 leiguíbúðir á síðasta ári sem
ætlaðar eru fyrir stúdenta. Sömu-
leiðis hafi bærinn úthlutað lóð undir
fjölbýlishús fyrir leiguíbúðir og þær
íbúðir verði tilbúnar til notkunar á
þessu ári. Þannig hafi bærinn í raun
verið á undan öðrum sveitarfélögum
með að fá einkaaðila til liðs við sig við
uppbyggingu leiguíbúða.
Búseti
vill byggja
leigu-
íbúðir
Ráðstöfun
lóða í höndum
einkaaðila
Garðabær