Morgunblaðið - 22.03.2003, Side 30

Morgunblaðið - 22.03.2003, Side 30
UMRÆÐAN 30 LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Í GREIN í Mbl. 19. þ.m. afsann- ar forseti lagadeildar HR, Þórður Gunnarsson, með afgerandi hætti fullyrðingu forseta lagadeildar HÍ, Eiríks Tómassonar, í sjónvarps- þætti á dögunum um að sifjaréttur (eða fjölskylduréttur) sé ekki á námskrá lagadeildar HR. Reyndar tel ég ekki hafa þurft ýkja mikið til að greina meiningu Eiríks óháð hugtökunum, einkum ef allt er virt í samhengi en gott og vel. Rétt skal vera rétt. Ég vil hins vegar velta aðeins fyrir mér tilteknum orðum Þórðar. Hann segir, og sýnir reyndar um leið að þrátt fyrir allt fór inntak orða Eiríks ekki fram hjá honum: „Ályktunin um að allt þurfi að kenna í lagadeildum er í sjálfu sér fráleit enda þurfa þeir lögfræðing- ar, þ.m.t. lögmenn og dómarar, sem ætla að standa undir nafni, að afla sér stöðugt nýrrar þekkingar á sviði lögfræðinnar. Þetta þekkja allir sem við lögfræði hafa starfað. Sifjaréttur er með aðgengilegustu fræðigreinum lögfræðinnar og lítið mál að ná góðum tökum á henni, ef áhugi og vilji eru fyrir hendi og við- komandi hefur næg tök á lögfræði- legri aðferðafræði.“ Þórður telur þannig að sumt þurfi ekki að kenna í lagadeildum og vísar til þeirrar viðurkenndu staðreyndar að gegnir lögfræðing- ar þurfi að fylgjast vel með þróun fagsins og bæti þannig við grunn- þekkingu sína með tímanum, með- vitað og ómeðvitað. Flestir eru sammála um þetta. Mér finnst Þórður hins vegar taka þessa eðlilegu endurnýjun mjög úr samhengi þegar hann telur hana réttlæta það að mikilvægum fögum sé sleppt úr grunnnámi í lögfræði og koma að öllu leyti í staðinn fyrir almenna kennslu í þeim. Skóli lífsins Til stuðnings þessu – sem sumir myndu kannski kalla sjálfsnám í lögfræði, a.m.k. þegar engin grunn- þekking er fyrir í faginu – nefnir Þórður í fyrsta lagi að sifjaréttur sé tiltölulega auðvelt fag og lítið mál að læra hann að vissum skil- yrðum uppfylltum. Þar mælir Þórð- ur fyrir sig og kannski fleiri. Tæp- lega er hann eða nokkur annar þó endanleg heimild um hvaða fög lög- fræðinnar eru auðveld og hver erf- ið? Vafalaust má finna margar skoðanir á því hvað sé auðvelt og hvað erfitt í lögfræði og grunar mig að á endanum mætti fella flestar greinar hennar í hvorn flokkinn sem er eftir því hver spyrði og hvern. Þórður nefnir einnig áhuga og vilja. Velta má fyrir sér hvort ekki sé sennilegt að áhugi laganema við lagadeild HR á sifjarétti, svo dvalið sé við það afmarkaða dæmi, komi til með að mótast í samræmi við það hvernig deildin forgangsraðar og stillir greininni upp í námskrá sinni. Þó virðist sammæli vera um að telja hana meðal þess sem gera eigi kröfu um að lögmenn kunni, hvernig svo sem þeir læra hana. Varðandi viljann tel ég hrein- skilnislega að þorri skólafólks, þar á meðal laganemar, miði nám sitt fyrst og fremst við það að standast þau próf sem sett eru fyrir það og ljúka námi með sem bestum ár- angri. Sumir hafa meiri metnað, getu og styrk en aðrir en ég held a.m.k. að vilji fæstra standi stífur til þess eftir langt og erfitt nám að bæta við sig að eigin frumkvæði fögum sem skólayfirvöld þeirra hafa metið léttvæg. Að síðustu nefnir Þórður lög- fræðilega aðferðafræði. Ég vil nú síst draga úr gildi hennar en mín skoðun er í stuttu máli sú að hér ofmeti Þórður hana verulega. Þar er fyrst og fremst um að ræða form- og vinnureglur sem gagnast lítt einar og sér ef önnur þekking er ekki til staðar. Um jafnræði í lagakennslu Hér var fjallað um sifjarétt. Kjarni málsins er þó auðvitað sá að álitaefnið í þessu máli er engan veginn bundið við hann heldur allar greinar sem telja má til höfuð- greina lögfræðinnar, þ.e. þær greinar sem talið hefur verið nauð- synlegt út frá almennu réttarör- yggi að lögmenn kunni skil á. Nemendum og forsvarsmönnum lagadeildar HR verður tíðrætt um jafnræði. Ef því er játað að laga- deildirnar sjálfar eigi að ráða öllu um námið, t.a.m. að persónuleg skoðun deildarforseta eða mat lagadeildar HR á sifjarétti nægi til þess að þeim sem ætla sér að ljúka embættisprófi í lögum frá deildinni sé ekki skylt að standast einhvers konar próf á því sviði, vaknar knýj- andi spurning: Geta þá ekki allar lagadeildir gert samsvarandi til- slakanir á þeim sviðum lögfræð- innar sem þeim finnst einhverra hluta vegna ekki skipta máli að kenndar séu? Rök Þórðar um sifja- rétt, sem nefnd voru hér að ofan, má hæglega yfirfæra á aðrar grein- ar lögfræðinnar eftir „smag og be- hag“. Að sjálfsögðu krefjast svo all- ar deildir með vísan til jafnræðis að geta útskrifað lögfræðinga með embættispróf. Hvað mun þá felast í starfsheitinu lögmaður og hvers virði verður það? Rökbundin nauðsyn er til setn- ingar almennra reglna um lág- marksinntak náms til embættis- prófs í lögum. Það er eðlileg og sjálfsögð afleiðing breyttra að- stæðna í lagakennslu á Íslandi og öllum í hag. Eftir Finn Þór Vilhjálmsson Höfundur er laganemi á Íslandi. „Rökbundin nauðsyn er til setningar almennra reglna um lágmarksinntak náms til embættisprófs í lögum.“ Sjálfslaga- nám – lítið mál að læra gegn fíkniefnaneyslu ungs fólks.“ Áætlað er að allir kórarnir sem fram koma á tónleikunum syngi í verkinu, alls um 500 manns, ásamt fjórum ein- söngvurum. Organistinn Víera Manásek leikur í verkinu á Klais- orgelið. „Þetta er kannski einhver stærsti kór sem saman hefur komið í einu verki,“ segir Sigurður, en text- inn við verkið er eftir Valdimar Lár- usson og byggist á píslarsögunni. Verkið hefst þannig á lofsöng, fer svo yfir í píslarsöguna og lýkur aftur með lofsöng. Umgjörð verksins eins og það mun koma fyrir á tónleikunum í Hall- grímskirkju er nokkuð stórbrotin, að sögn Sigurðar. „Uppi hjá orgelinu syngur kammerkór ásamt einsöngv- ara. Í hinum enda kirkjunnar er ann- ar kammerkór, sem syngur svokall- aðan bergmálskór. Þegar stóri 500 TÓNLEIKAR til styrktar vímuefna- vörnum verða haldnir í Hallgríms- kirkju kl. 17 í dag. Verkefnið nefnist Fíkn er fjötur og hafa Ungmenna- félag Íslands og Kammerkór Reykjavíkur staðið fyrir átakinu. Tónleikar voru haldnir um land allt á fimmtudag og tók fjöldi kóra og tón- listarmanna, bæði úr heimabyggð og gestir, þátt í tónleikunum. Lokatónleikarnir verða í dag þar sem fimm hundruð manna kór flytur verkið „Á páskum“ eftir Sigurð Bragason við texta eftir Valdimar Lárusson og stjórnar Sigurður kórn- um. Einsöngvarar eru Signý Sæ- mundsdóttir, Snorri Wium, Davíð Ólafsson og Kristín Sigtryggsdóttir, auk Kammerkórs Reykjavíkur, Kammerkórs Seltjarnarneskirkju, Kammerkórs Suðurlands, Kvenna- kórs Reykjavíkur, Skaftfellingakórs- ins, Kvennakórs Hafnarfjarðar, Karlakórsins Þrasta, Kórs Flens- borgarskóla og Árnesingakórsins í Reykjavík. Einsöngvarar með þeim eru Stefán Helgi Stefánsson, Auður Perla Svansdóttir, Elfa Sif Jónsdótt- ir og Eva Hrönn Guðnadóttir, Smári Vífilsson og Ardís Ólöf Víkingsdóttir. Grunnskólanemar hefja verkið „„Á páskum“ var upphaflega sam- ið vegna tónleika sem haldnir voru fyrir hjartveik börn og var áætlað að yrði verk fyrir stóran kór, orgel og einsöngvara,“ segir tónskáldið og stjórnandi tónleikanna, Sigurður Bragason. „Síðan hefur verkið stækkað þó nokkuð mikið og verið bætt við það og breytt. Í núverandi mynd hefja grunnskólanemar verk- ið, þar sem um er að ræða tónleika manna kórinn syngur af fullum krafti bergmálar hinum megin í kirkjunni lítill kór það sem hann syngur. Það er geysilega spennandi að sjá hvernig þetta mun koma út.“ Þegar safnast mikið fé Sigurður hefur átt veg og vanda af skipulagningu verkefnisins Fíkn er fjötur, ásamt Þorsteini Þorsteinssyni og Pétri Guðmundssyni, í samstarfi við Ungmennafélag Íslands. Hann segir tónleikana á fimmtudagskvöld ákaflega vel heppnaða. „Við fengum mjög góðar viðtökur og það var troð- fullt hús á Egilsstöðum, þar sem ég var. Mér skilst að það sé sömu sögu að segja af Akureyri, Selfossi og öðr- um stöðum sem ég hef heyrt frá. Alls staðar hefur verið mikil stemmning og safnast heilmiklir peningar,“ segir hann að lokum. 500 manna kór syngur til styrktar vímuefna- vörnum í Hallgrímskirkju Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Frá Fíkn er fjötur-tónleikum í Glerárkirkju á fimmtudagskvöld. Loka- tónleikarnir í þessari dagskrá verða í Hallgrímskirkju í dag, þar sem 500 manna kór flytur verkið „Á páskum“ eftir Sigurð Bragason. UNGMENNAFÉLAGIÐ Þórsmörk frumsýnir gamanleikinn Grænu lyftuna eftir Avery Hopwoort í fé- lagsheimilinu Goðalandi í Fljótshlíð annað kvöld, laugardagskvöld, kl. 21. Að sögn leikstjórans, Svölu Arn- ardóttur, er þetta fyrsta leiksýn- ingin í nýju félagsheimili Fljótshlíð- inga, sem reist var í fyrra, og fyrsta leikritið sem sett er upp í Fljótshlíð- inni í sex ár. Hún segir hafa komið í ljós að nýja húsið henti vel fyrir leik- starfsemi. „Hljómburðurinn í húsinu er mjög góður. Það hefur líka verið gaman að vinna með leikhópnum í þessu nýja húsi, því fólk hefur það svolítið á tilfinningunni að það sé að nema nýtt land. Svo er þetta mjög skemmtilegt verk með gráglettnum undirtón, þannig að leikhópnum hefur ekki leiðst á æfingum.“ Það kannast sjálfsagt ýmsir við Grænu lyftuna, því fyrir u.þ.b. tveimur ára- tugum fór þessi sígildi gamanleikur sigurför um landið. „Ég held að við getum alveg lofað því að sýningin á ekki eftir að valda depurð hjá áhorf- endum,“ sagði Svala að lokum. Leikendur í Grænu lyftunni eru Úlfar Gíslason Hellishólum, Ingi- björg Sigurðardóttir Kirkjulæk, Fjölnir Sæmundsson skólastjóri Goðalandi, Svala Arnardóttir Tuma- stöðum, Arndís Pétursdóttir Goða- landi, Kristinn Jónsson Stað- arbakka, Sigurður Daðason Barkarstöðum og Marie Persson Hellishólum. Leikmyndasmiður er Sigurður Eggertsson Smáratúni, Helga Stefánsdóttir er sminka og Sigrún Þórarinsdóttir hvíslari. Næstu sýningar verða í Goðalandi 25., 28., 29. og 30. mars. Morgunblaðið/Önundur S. Björnsson Leikendur í Grænu lyftunni ásamt leikstjóra. Græna lyftan sýnd í Goðalandi í Fljótshlíð Fljótshlíð. Morgunblaðið. LISTIR ELLA Vala Ármannsdóttir horn- leikari og Hrefna Unnur Eggerts- dóttir píanóleikari halda tónleika í Salnum í dag kl. 14. Tónleikarnir eru seinni hluti einleikaraprófs Ellu Völu frá Tónlistarskólan- um í Reykjavík. Á efnisskránni eru sónata í F- dúr fyrir horn og píanó eftir Lud- wig van Beethov- en, Canto serioso eftir Carl Niel- sen og Appel interstellaire úr hljómsveitarverkinu Des Canyons aux Étoiles eftir Olivier Messiaen. Einnig verður flutt Serenade op. 31 fyrir tenór, horn og strengja- sveit eftir Benjamin Britten, en ásamt Ellu Völu koma þar fram Þorbjörn Rúnarsson tenórsöngvari og nemendur úr strengjasveit Tón- listarskólans undir stjórn Josephs Ognibene. Tónverkin sem Ella Vala hefur valið að leika á tónleikunum eru nokkuð ólík, allt frá Beethoven-ein- leikskonsert til Britten-kammer- verks. „Það stóð alltaf til að taka eitt kammerverk á þessum tónleik- um, og þar stóð valið milli Brahms- tríós og Britten-serenöðu, sem eru uppáhalds kammerverkin mín,“ segir hún. „Auk þess varð ég að hafa í huga við val á efnisskránni að þar sem við erum tvö að ljúka prófi á horn, gæti ég ekki valið sömu verk og hinn hornleikarinn. Verkin sem ég valdi eru frá mis- munandi löndum, og svo spanna þau tónlistarsöguna að einhverju leyti, þannig að þau eru fjölbreytt. En ég tel að þessi efnisskrá passi mjög vel saman.“ Einleikara- próf á horn í Salnum Ella Vala Ármannsdóttir flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið ÍÞRÓTTIR mbl.is FRÉTTIR mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.