Morgunblaðið - 22.03.2003, Side 60

Morgunblaðið - 22.03.2003, Side 60
60 LAUGARDAGUR 22. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDASAFN Íslands stendur fyrir sýningu myndarinnar Stúlkan með ljósa hárið (La Baie des anges) í dag. Myndin er frá árinu 1963 og eru aðalhlutverkin í höndum Claude Mann og hinnar íðilfögru Jeanne Moreau sem var kölluð Bette Davis Frakklands síns tíma. Leikstjóri er Jacques Demy en hann hefur einnig gert myndirnar Stúlkan með regn- hlífarnar og Lola. Jean (Mann) er bankastarfsmaður sem lifir hefðbundnu reglusömu lífi þar til vinur hans kynnir hann fyrir freistingum spilavítanna. Jean er heppinn og í sigurvímu heldur hann til frönsku Rivíerunnar til að spila. Þar kynnist hann Jackie (Moreau), ljóshærðri þokkadís, sem er altekin af spilamennskunni, spilar djarft, vinnur mikið en tapar líka oft miklu. Ástarævintýri þeirra einkennist af lífi fjárhættuspilarans og í lokin verða þau að gera upp við sig hvaða ástríða í lífi þeirra skiptir þau mestu máli. Myndin verður sýnd í sýningarsal safnsins í Bæjarbíói, Strandgötu 6 í Hafnarfirði, klukkan 16 í dag. Miða- verð er 500 krónur. Stúlkan með ljósa hárið Jeanne Moreau á hvíta tjaldinu í Hafnarfirði Stúlkan með ljósa hárið með Jeanne Moreau verður sýnd í Bæjarbíói í Hafnarfirði í dag. ANIMA Reykjavík er nafnið á nýrri hreyfimyndahátíð sem Bíó Reykjavík stendur fyrir. Hátíðin verður haldin í MÍR við Vatnsstíg 10a, og hefst klukkan19.30 í kvöld. Á hátíðinni verða eingöngu sýnd- ar myndir sem gerðar eru með hreyfimyndatækni eða „Stop Motion“. Er leikstjórunum Jan Svankmeyers, Jiri Trinka, Aard- man og Tim Burton gert hátt undir höfði. „Anima Reykjavík mun sýna hingað til óséðar myndir á opin- berum vettvangi og reyna að gera þessari vanmetnu listgrein hærra undir höfði. Andrúmsloftið sem ríkja mun í MÍR þetta kvöld verð- ur ekki síðra og mikið lagt upp úr sjónrænni sem og huglægri upp- lifun,“ segir í tilkynningu frá Bíó Reykjavík. Sunnudagsbíó á Sirkus Annar viðburður sem félagið stendur fyrir er svokallað Sunnu- dagsbíó á Sirkus, sem er haldið vikulega. Á morgun verða sýndar kvikmyndir Orson Welles, Borg- ari Kane (Citizen Kane) frá árinu 1941og F fyrir falsað (F for Fake) frá 1975. Sirkus er á horni Laugavegar og Klapparstígs og hefst dag- skráin klukkan 19.30 og stendur til miðnættis. Á báða ofantalda viðburði eru allir velkomnir og er aðgangur ókeypis á meðan húsrúm leyfir. Bíó Reykjavík með dagskrá um helgina Borgari Kane eftir Orson Welles skipar sér iðulega í hóp bestu mynda sögunnar á listum kvikmyndagagnrýnenda. TENGLAR ............................................... www.bioreykjavik.com Hreyfimyndatækni og Orson Welles DAGBLAÐIÐ New York Times mælti sérstaklega með tónleikum ís- lensku sveitarinnar Sigur Rósar sem fram fóru á hinum margfræga stað Radio City Music Hall í New York á föstudagskvöld. Blaðið segir tónlist Sigur Rósar vera nýja útgáfu af „sækadelíu“ sveita á borð við Pink Floyd. Bendir það á að tilbúna tungumálið sem Jón Þór Birgisson söngvari notast við gefi einungis betra tækifæri til að fylgjast með stígandi tónlistarinnar. Með Sigur Rós á tónleikum leikur strengjakvartettinn Amina og hljómsveitin The Album Leaf hitar upp. New York Times mælir með Sigur Rós Tónleikar í Radio City Vesturfarar: Sigur Rós. Sýnd kl. 2 og 4. Óskarsverðlaunaleikarnir Nicolas Cage og Meryl Streep fara á kostum í myndinni. Frá höfundum og leikstjóra „Being John Malkovich“. SV MBL HK DV HJ MBL  SG Rás 2 Radio X Kvikmyndir.com ÓHT Rás 2 HK DV  Radio X  ÞÞ Frétta- blaðið Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 14. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Sýnd kl. 2, 4, 8 og 10. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20. B.i. 12. 7 Bestamyndársins Bestileikstjóri RomanPlanski Besti leikari íaðalhlutverki: AdrianBrody TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA Sýnd kl. 2. Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal.Sýnd kl. 3.45.  Radíó X  H.K. DV 1/2 HL Mbl Kvikmyndir.is 1/2 Kvikmyndir.com Frítt í bíó fyrir 67 ára og eldri Sýnd kl. 8 og 10.30. / Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. / Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 12. ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI Ögrandi mynd sem hefur fengið lof gagnrýnenda um allan heim með þeim Edward Norton (Fight Club, American HistoryX), BarryPepper (Saving Private Ryan, GreenMile) og Philip Seymour Hoffman (Red Dragon, Boogie Nights) Ef þú ættir 1 dag eftir sem frjáls maður.. gætir þú gjörbreytt lífi þínu? Sýnd kl. 6 og 8. 1/2 HL Mbl 1/2 Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is SV MBL  Kvikmyndir.is Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 SG DV ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI  Kvikmyndir.is KEFLAVÍK Tilnefningar til Óskarsverðlauna, þ.á.m. besta mynd og besti leikstjóri 10  HJ MBL  RADIO X  Kvikmyndir.com SG DV  ÓHT RÁS 2 SV MBL Sýnd kl. 2, 4 og 6. / Sýnd kl. 2, 3, 4 og 5. / Sýnd kl. 2 og 4. Með hinum rauðhærða Rupert Grint sem leikur Ron Weasley í HARRY POTTER myndunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.