Morgunblaðið - 28.03.2003, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„Drottinn minn, nú er komið að dauðastundinni“
Charles Horgan, særður bandarískur hermaður
STRÍÐ Í ÍRAK
GEORGE W. Bush
Bandaríkjaforseti og
Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands,
hétu því í gær að her-
ir þeirra yrðu í Írak
uns tekist hefði að
steypa Saddam
Hussein Íraksforseta
af stóli. Þeir voru
ennfremur sammála
um hlutverk Samein-
uðu þjóðanna í Írak
að stríðinu loknu.
„Markmið okkar
er aðeins eitt – sig-
ur,“ sagði Bush.
Blair tók undir orð
forsetans og sagði að
markmið banda-
manna réðust ekki af
tímaáætlun heldur
því, hvers eðlis verk-
ið væri sem þyrfti að
vinna.
Á sameiginlegum
blaðamannafundi í
bústað Bush í Camp
David í Maryland
kröfðust forsetinn og
forsætisráðherrann
þess ennfremur að
olíu- og mataráætlun
Sameinuðu þjóðanna
yrði framfylgt aftur
án tafar.
Samkvæmt henni mega Írakar
selja ótakmarkað magn af olíu
gegn því að tekjurnar renni
óskertar til kaupa á matvælum,
lyfjum og öðrum neyðargögnum
fyrir írösku þjóðina. Áætluninni
var fyrst hrint í framkvæmd 1996,
og um 60% írösku þjóðarinnar
reiða sig á hana til framfærslu.
Báðir leiðtogarnir drógu upp
jákvæða mynd af þeim árangri
sem náðst hefði á fyrstu viku
stríðsins. „Saman hafa herir
bandamanna sótt fram gegn óvin-
inum, dag frá degi, statt og stöð-
ugt,“ sagði Bush.
Hvorugur vildi segja til um
hvenær stríðinu lyki. Bush var
spurður hvort hann teldi það
myndi taka vikur eða mánuði og
sagði hann það ráðast af því
hversu langan tíma tæki að vinna
sigur. „Hversu langan tíma það
tekur að ná markmiðinu. Þetta
snýst ekki um tíma, þetta snýst
um sigur.“
Á fréttamannafundinum svör-
uðu Blair og Bush spurningum
um skort á stuðningi frá hefð-
bundnum bandalagsþjóðum
Bandaríkjamanna og Breta. Blair
sagði að þótt „sumir séu á móti
okkur“ væri hann „sannfærður
um að við séum að breyta rétt, ég
efast ekki um að málstaður okkar
sé réttur“. Bush sagði: „Við eig-
um marga vestræna bandamenn.
Ég get látið ykkur fá lista.“
Munu æskja nýrra ályktana
Sameinuðu þjóðanna
Blair sagði að hann og Bush
hefðu ákveðið að fara fram á nýj-
ar ályktanir Sameinuðu þjóðanna
um neyðaraðstoð, stjórn Íraks að
stríði loknu og loforð um að
landamærum Íraks yrði haldið
óbreyttum.
En Blair og Bush virtust ekki
alveg á einu máli um hversu víð-
tæku hlutverki Sameinuðu þjóð-
irnar ættu að gegna í stjórn Íraks
eftir stríðið. Hefur Blair viljað
hlut SÞ heldur stærri en Bush
hefur viljað.
„Sameinuðu þjóðirnar hljóta að
verða að gegna stóru hlutverki,“
sagði Blair. Hann sagði að þeir
Bush væru sammála „í grundvall-
aratriðum“, en enn ætti eftir að
ræða „fjölmörg smáatriði við
bandamenn okkar“ um hvernig
framkvæmdum yrði nákvæmlega
háttað.
Reuters
Tony Blair og George W. Bush mæta til
fréttamannafundar í Camp David í gær.
„Markmið
okkar er
aðeins eitt
– sigur“
Bush og Blair sammála um
gang stríðsins en ekki um
stjórnun Íraks að því loknu
Thurmont í Maryland. AP.
BANDARÍSKIR hermenn, sem
særzt hafa í bardögum í Írak og
liggja nú á hersjúkrahúsi í Þýzka-
landi, tjáðu fjölmiðlum í gær að það
hefði komið þeim á óvart hve harða
mótstöðu Írakar sýndu innrásarher
bandamanna.
Á þriðja tug særðra bandarískra
hermanna hafa síðustu daga verið
fluttir á sjúkrahús í Þýzkalandi, þar
sem hlúð er að sárum þeirra unz
þeir geta flutzt á sjúkrahús vest-
anhafs.
Liðþjálfinn Chalres Horgan
særðist illa á fæti er herflokkur
hans varð fyrir árás Íraka við brú
yfir Efrat-fljót við borgina Nas-
iriyah. Horgan sagði frá því í gær,
að hann og félagar hans hefðu haft
það verkefni að fara að einni
brúnni yfir Efrat, þar sem hópur
óeinkennisklæddra Íraka var fyrir.
„Það var eitthvað einkennilegt
við þá. Þeir virtust taugaveiklaðir,“
sagði Horgan, sem var í skyttu-
hlutverkinu við vélbyssuna á palli
herjeppans. „Einn hélt á riffli, svo
að ég sneri hlaupinu í átt að honum.
Þá heyrði ég háværan hvin og
hugsaði með mér: „Drottinn minn,
nú er komið að dauðastundinni“.
Augnabliki síðar þeytti sprengingin
mér af jeppanum.“ Önnur sprengi-
flaug, sem skotið var úr sprengju-
vörpu að þeim, geigaði.
Félagi Horgans, Jamie Villafane,
var við stýrið á jeppanum. Hann
slasaðist illa á vinstri handlegg.
Hann sagðist hafa komizt út úr bíl-
flakinu og hlaupið á eftir hinum
borgaralega klæddu mönnum við
brúna, með herriffil sinn í skot-
stöðu. „Ég náði einum náunga sem
kastaði strax frá sér byssunni …
Hinir þrír komu síðan og ég sá að
þeir voru allir skelfdir,“ sagði
Villafane. „Þeir köstuðu frá sér
byssunum. Þeir voru íklæddir bed-
úínabúningum.“ Innanundir
bedúínaklæðunum voru Írakarnir
hins vegar í hermannabúningum.
Staðfestu særðu hermennirnir
þar með frásagnir af því að íraskir
hermenn hefðu ítrekað dulbúizt
sem óbreyttir borgarar til að geta
betur komið liðsmönnum innrásar-
hersins að óvörum. Í slíkum árásum
á herflutningalestir bandamanna
eru Írakar sagðir hafa fellt 10
bandaríska landgönguliða við
Nasiriyah á undanförnum sólar-
hringum og tekið að minnsta kosti
tólf til fanga.
„Íraskir hermenn
verjast dulbúnir“
Reuters
Bandarískur hermaður aðstoðar liðþjálfann Charles Horgan er hann bjóst
til að ræða við blaðamenn á sjúkrahúsi í Landstuhl í SV-Þýzkalandi í gær.
Særðir bandarísk-
ir hermenn greina
frá reynslu sinni
!
"
#
$%%& )*
)+
&62."7.8, 8
6998: 694483
-.# 0 /(. (1 ('2
%/34#1/%
,.
. 0/
(5
% (.(
2/0,6
) 3 6,%
( 77 7 ,%.,, (
8
02
3),6
) ./9:; . #((
/3