Morgunblaðið - 01.04.2003, Side 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er ekki einvörðungu á suð-
ursvæðum Íslands sem furðulegir
hlutir eru að gerast í náttúrunni
miðað við árstíma. Hér við heim-
skautsbaug gekk oddvitinn okkar,
Óttar Jóhannsson, fram á smá-
plöntur í Miðgarðamóum sem voru
farnar að sýna maí og júní tilburði.
Það skal tekið fram að gróður á
almennt erfitt uppdráttar í Gríms-
ey vegna seltu og legu eyjarinnar.
Því vakti þessi sjón enn meiri furðu
oddvitans. Gaman verður að fylgj-
ast með spám eldri borgaranna á
Dalbæ, hvað þeir koma til með að
segja um síðasta hluta þessa
óvenjulega vetrar.
Ljósmynd/Brynjólfur Árnason
Vormerki við
nyrsta haf
Grímsey. Morgunblaðið.
VEIÐIBANN vegna friðunar hrygningarþorsks,
hrygningarstoppið svokallaða, hefst í dag á veiðisvæð-
inu vestan Dyrhólaeyjar og verða allar veiðar bann-
aðar innan svæðisins til 21. apríl nk. Á svæðinu austan
Dyrhólaeyjar hefst veiðibannið hinn 8. apríl nk. og
stendur til 28. apríl. Á meðan friðun hrygningarþorsks
stendur yfir eru allar veiðar bannaðar í 21 dag á svæði
frá Stokksnesi vestur um að Skor. Fyrri hluta tímabils-
ins eru veiðar bannaðar að meginefni til innan fjögurra
sjómílna frá fjörumarki en eftir það eru veiðar bann-
aðar á mun stærra svæði. Þá eru veiðar bannaðar inn-
an þriggja sjómílna frá og með 15. apríl til loka apr-
ílmánaðar á svæði frá Hornbjargsvita austur um að
Stokksnesi, innan þriggja sjómílna við Grímsey og í
öllu Ísafjarðardjúpi. Loks hafa allar veiðar með drag-
nót, botnvörpu og kolanetum verið bannaðar allan apr-
ílmánuð á þremur tilgreindum svæðum á Breiðafirði,
Hafnarleir og Selvogsbanka. Er þetta ákveðið að til-
lögu Hafrannsóknastofnunar til að hlífa skarkola með-
an á hrygningu hans stendur.
Morgunblaðið/Alfons
Hrygningarstoppið hefst í dag
EMBÆTTI yfirdýralæknis hefur
sagt garnaveiki í sauðfé stríð á hend-
ur og ætlar að útrýma veikinni á
næstu tíu árum. Verður það fyrst og
fremst gert með því að bólusetja öll
ásetningslömb á svæðum þar sem
veikin er landlæg. Í fyrra fundust 36
tilfelli af veikinni, sem getur gert
töluverðan skaða á bæjum sé henni
ekki haldið niðri.
Halldór Runólfsson yfirdýralækn-
ir segir að síðustu ár hafi verið tekin
sýni úr sláturhúsum víðs vegar um
landið til að fylgjast með útbreiðslu
sjúkdómsins. Hefur veikin verið til
staðar bæði í lágsveitum og upp-
sveitum í Árnessýslu, í Kjós, í upp-
sveitum Borgarfjarðar og á Mýrum,
í Vestur- og Austur-Húnavatnssýslu,
Suður-Þingeyjarsýslu og Austur-
Skaftafellssýslu.
Halldór segir að allir bæir sem vit-
að er til að sjúkdómurinn hafi
greinst á séu á ákveðinni skrá. „Út-
rýming sjúkdómsins fer fyrst og
fremst fram með því að hindra út-
breiðslu og fækka tilfellum með
skipulagðri notkun á garnaveikibólu-
efni. Átakið felst í því að skipuleggja
bólusetningu betur og tryggja að all-
ar kindur sem eru á þessu svæði
verði bólusettar á réttum tíma. Það
er gert á haustin þegar búið er að
velja ásetningslömb.“
Halldór segir að bæir hafi ekki
verið settir í sóttkví til að koma í veg
fyrir útbreiðslu sjúkdómsins, en
lömbum sé skipt upp í varnarhólf og
bæir þar sem garnaveiki hefur kom-
ið upp megi ekki selja frá sér ásetn-
ingslömb. Sjúkdómurinn hefur ekki
áhrif á gæði kjötsins, að sögn Hall-
dórs.
Til mikils að vinna
Sjúkdómurinn leggst fyrst og
fremst á sauðfé en getur einnig bor-
ist í kýr. „Þetta er mjög hægfara
sjúkdómur en getur gert töluverðan
skaða á einstökum bæjum ef ekki er
fylgst með og bólusett til að halda
sjúkdómnum niðri. Einkennin eru
þau að dýrin þrífast illa, einnig getur
fylgt þessu skita. Dýrin horast og
veslast upp ef ekkert er að gert á
löngum tíma,“ segir Halldór. Ekki er
hægt að lækna kindur sem einu sinni
hafa fengið sjúkdóminn. Sjúkdómur-
inn berst milli dýra við náinn sam-
gang, sýkillinn lifir í saurnum og
berst því gjarnan milli dýra sem eru
hýst undir sama þaki.
Halldór segir erfitt að átta sig á
umfangi sjúkdómsins, en samkvæmt
ársskýrslu yfirdýralæknisembættis-
ins komu upp 36 tilfelli í fyrra frá 22
bæjum. „Það er til mikils að vinna
fyrir landið og sauðfjárbændur að
losna við þetta, það er umstang og
kostnaður við að bólusetja þótt tjón
sé yfirleitt ekki mikið af völdum
sjúkdómsins,“ segir yfirdýralæknir.
Hyggjast útrýma
garnaveiki á
næsta áratug
LEIÐBEINENDUR eru óánægðir
með fyrirhugaðar breytingar á
skipulagi félagsstarfs hjá þjónustu-
miðstöðvum Félagsþjónustunnar í
Reykjavík og hafa fulltrúar þeirra
óskað eftir fundi með félagsmála-
stjóra til að fara yfir stöðu mála, að
sögn Huldu Guðmundsdóttur, for-
manns FAG, Félags leiðbeinenda.
Hulda segir að þegar sé byrjað að
segja upp fastráðnum leiðbeinend-
um, lausráðnir vinni til 1. júní og
óvíst sé hvort þeir verði endurráðnir
eftir sumarið. „Í þjónustumiðstöð-
inni sem ég vinn hjá hafa fjárveit-
ingar fyrir vinnustundir leiðbein-
enda t.d. verið skertar úr 75 á viku í
25.“ Hún segir óöryggi ríkja vegna
þessa, bæði hjá leiðbeinendum og
þeim hópi eldra fólks sem noti þjón-
ustuna, en hún snýst einkum um að
fólkið komi saman, vinni handavinnu
og hafi félagsskap hvert af öðru.
„Mikilvægt er að fólkið sem kemur
hingað fái að halda við hreyfigetu
sinni og stytta daginn.“
Hafa óskað eftir fundi
Hulda segir enn fremur að upp-
sagnir komi mjög illa við leiðbein-
endur sem margir hverjir séu komn-
ir yfir miðjan aldur. Hún segist hafa
tvívegis óskað eftir fundi með for-
stöðumönnum félagsþjónustunnar,
fyrst fyrir tveimur vikum, en ekki
hafa fengið nein svör enn sem komið
er.
Lára Björnsdóttir félagsmála-
stjóri segir að af 14 félagsmiðstöðv-
um borgarinnar muni breytingarnar
ná til fimm. „Fjárveitingar í fé-
lagsstarfið á þessum fimm stöðum
eru nú 10 milljónir fyrir árið 2003 en
voru áður 14 svo það er alveg aug-
ljóst að einhver hagræðing verður að
eiga sér stað.“ Hún segir að aldrei
hafi staðið til að loka fimm stöðvum
eins og fram kom í fjölmiðlum í vetur
heldur hafi verið ætlunin að breyta
um áherslur í starfinu, auka sjálf-
bært starf og hlut sjálfboðaliða.
Viðbrögð við fréttum
um breytingar
Mörgum hafi hins vegar brugðið
við fréttir um breytingarnar og sterk
viðbrögð hafi komið frá eldri borg-
urum og starfsfólki. Þá hafi verið
haldinn fundur þar sem hugmynd-
irnar hafi verið kynntar og málin
rædd. „Breytingarnar eiga alls ekki
að rýra hlut gesta félagsstarfsins,
þvert á móti. Starfið eins og það er
núna byggist á 30 ára gömlu kerfi og
því sjálfsagt að einhvers staðar þurfi
að breyta um áherslur í takt við nú-
tímann. Til dæmis er verið að auka
sjálfstýrt starf sem þýðir að starfs-
fólk og þátttakendurnir sjálfir hafa
meira um skipulagið að segja,“ segir
Lára. Hún bendir á að uppsagnir
leiðbeinenda séu ekki miðstýrðar
heldur taki forstöðumenn félagsmið-
stöðvanna ákvörðun um þær, hver
fyrir sig út frá þörfum á hverjum
stað og fjárhagsramma. Hún segir
að ef ekki hafi þegar verið ákveðinn
fundur með þeim leiðbeinendum sem
hafa óskað þess verði það gert á
næstunni. „Það er alveg sjálfsagt að
fá fram sjónarmið leiðbeinenda og
því er slíkur fundur hið besta mál.“
Breytingar hjá þjónustumiðstöðvum
Leiðbein-
endur segjast
óánægðir
Félagsmálastjóri segir hagræðingu
brýna vegna minni fjárveitinga
TANNLÆKNIR á fimmtugs-
aldri var dæmdur í fimm mán-
aða skilorðsbundið fangelsi í
Héraðsdómi Reykjaness í gær
fyrir tilraun til fjársvika og
skjalafals. Falsaði hann reikn-
inga og gerði með því tilraun til
að hafa rúmlega 320 þúsund
krónur út úr Tryggingastofnun
ríkisins.
Maðurinn var ákærður fyrir
tilraun til fjársvika og skjala-
fals með því að hafa í blekking-
arskyni gefið út sjö reikninga,
tilhæfulausa að hluta og öllu
leyti, með tilbúnum dagsetn-
ingum aftur í tímann, samtals
að upphæð rúmar 430 þúsund
krónur.
Fullnustu refsingar ákærða
var frestað og fellur hún niður
eftir tvö ár haldi hann skilorðið.
Jónas Jóhannsson héraðs-
dómari kvað upp dóminn. Örn
Clausen hrl. var verjandi
ákærða. Málið sótti Helgi M.
Gunnarsson, fulltrúi frá efna-
hagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra.
Dæmdur
fyrir
skjalafals
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
fékk 9,3% fylgi í könnun Frétta-
blaðsins og hefur fylgi flokksins ekki
mælst eins lágt áður.
Samkvæmt niðurstöðum könnun-
arinnar fengi Sjálfstæðisflokkurinn
35% fylgi, Samfylkingin fengi 38,5%,
Vinstri grænir 9% og Frjálslyndi
flokkurinn 8% fylgi. Í könnun blaðs-
ins fyrir viku fékk Framsóknar-
flokkurinn 11%, Sjálfstæðisflokkur-
inn 33%, Samfylkingin 38,3%,
Vinstri grænir 9,4% og Frjálslyndi
flokkurinn 7,8%.
Skoðanakönnun
Fréttablaðsins
Framsóknar-
flokkurinn
með 9,3% fylgi