Morgunblaðið - 01.04.2003, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 01.04.2003, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Skítt með að tapa Reykjavík, félagar, við erum að vinna Bagdad. Ráðstefna um ESB og sveitarstjórnarstigið Nýir stjórnun- arhættir ESB RÁÐSTEFNA verð-ur haldin nk.föstudag á Nord- ica hótel og er efni hennar nýir stjórnunarhættir hjá ESB og áhrif þeirra á sveitarstjórnarstigið hér á landi. Það eru utanríkis- ráðuneytið og Samband ís- lenskra sveitarfélaga sem standa saman að ráðstef- unni. Anna G. Björnsdótt- ir, sviðsstjóri þróunarsviðs Sambands íslenskra sveit- arfélaga, er í forsvari fyrir ráðstefuna. – Hver er yfirskrift ráð- stefnunnar og hvert er til- efni hennar og markmið? „Yfirskrift ráðstefnunn- ar er: „Nýir stjórnunar- hættir hjá ESB og áhrif þeirra á sveitarstjórnar- stigið.“ Íslensk sveitarfélög hafa mikilla hagsmuna að gæta gagn- vart Evrópusambandinu. Sveitar- félög eru einn helsti fram- kvæmdaaðili ESB-löggjafar sem skylt er að innleiða í íslenskan rétt samkvæmt EES-samningn- um. Það er mikilvægt að íslenskir sveitarstjórnamenn séu vel upp- lýstir um Evrópumál og fylgist með þeirri þróun sem á sér stað hjá Evrópusambandinu þar sem túlkun og framkvæmd EES- samningsins tekur mið af henni. Hjá Evrópusambandinu á sér nú stað athyglisverð þróun sem varðar sveitarstjórnarstigið sem ætlunin er að kynna á ráðstefn- unni, auk þess sem staða sveit- arstjórnarstigsins innan Evrópu- sambandsins verður kynnt almennt. ESB hefur boðað áherslubreyt- ingar í starfsemi sinni, í svokall- aðri hvítbók, eða stefnumótun um nýja stjórnunarhætti. Þar eru boðaðar leiðir til að ESB geti bet- ur náð til almennings. Ein leiðin til þess er talin sú, að styrkja stöðu staðbundinna stjórnvalda gagnvart ESB þar sem þau standa næst borgurunum. Í hvít- bókinni er boðað aukið samráð við sveitarstjórnarstigið og aukið vægi þess innan ESB. Önnur stefnumótun ESB, sem hefur áhrif á sveitarfélög, er köll- uð Lissabonáætlun. Á fundi í Lissabon vorið 2000 komust æðstu stjórnendur í ESB-löndum að samkomulagi um að beita hinni svokölluðu opnu samráðsaðferð til þess að vinna að því markmiði að ESB verði fyrir árið 2010 virk- asta þekkingarefnahagssvæði heims. Til þess að ná þessu mark- miði verður lögð áhersla á svið, sem falla ekki undir löggjafarvald ESB, en sveitarfélög bera ábyrgð á í flestum Evrópulöndum, þ. e. menntamál, þróun atvinnulífs og félagslegt öryggi. Gert er ráð fyr- ir að koma á víðtæku samanburð- arkerfi á þessum sviðum til að mæla árangur aðildarríkja.“ Nú er unnið að nýjum sáttmála fyrir Evrópusambandið eða eins konar stjórnarskrá, „European Convention“. Meðal annars er ætlunin að fella Mann- réttindasáttmála Evr- ópu inn í hinn nýja sáttmála. Afrakstur þessarar vinnu mun vafalaust skila nýjum áherslum í starf sambandsins. Fulltrúar sveitarstjórnarstigsins hafa lagt mikla áherslu á að koma sínum sjónarmiðum að í undir- búningsvinnunni. – Hverjir munu taka til máls á ráðstefnunni og hvert verður um- ræðuefni þeirra? „Frá árinu 1994 hefur verið starfandi landsvæðanefnd innan ESB. Hún er skipuð kjörnum sveitarstjórnamönnum í aðildar- ríkjum sambandsins. Nefndin er umsagnaraðili um tillögur ESB að löggjöf sem snerta sveitar- stjórnarstigið. Á ráðstefnunni mun skrifstofustjóri í landsvæða- nefndinni flytja erindi um stöðu sveitarstjórnarstigsins innan ESB og þá þróun sem þar er að eiga sér stað og varðar sveitar- stjórnarstigið. Formaður dönsku sendinefnd- arinnar innan landsvæðanefndar- innar, sem er „amtborgmester“ á Borgundarhólmi, mun fjalla um það hvernig það er að vera sveit- arstjórnarmaður á vettvangi ESB, hvaða áhrif þeir geti haft innan sambandsins og hvaða áhrif þátttaka þeirra í Brussel hefur á starfið heima fyrir. Finnskur sveitarstjórnarmað- ur, sem jafnframt er fram- kvæmdastjóri á Evrópuskrifstofu Lapplands og Oulo-svæðisins í Brussel, mun segja frá því hvern- ig Norður-Finnland hefur nýtt þau sóknarfæri, sem felst í byggðastefnu Evrópusambands- ins fyrir norðlæg svæði og að- komu sveitarfélaga í því sam- bandi. Árni Magnússon, varaformaður sambandsins, mun fjalla um Evr- ópumál út frá stöðu íslenskra sveitarfélaga. Starfsmaður utan- ríkisráðuneytisins mun kynna Lissabon-áætlunina. Fyrrverandi sérfræðingur hjá EFTA og nú- verandi forstöðumaður Evrópu- stofnunar Háskólans í Reykjavík mun fjalla um það hvernig EFTA-ríkin geta brugðist við breytingum innan ESB. Utanríkisráðherra mun setja ráðstefnuna og flytja ávarp. Einnig mun Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður sam- bandsins, ávarpa ráðstefnuna.“ – Hverjum er ráðstefnan ætl- uð? „Ráðstefnan á erindi við sveit- arstjórnamenn en einnig við aðra sem hafa áhuga á Evrópumálum og þróun þeirra en þessir nýju stjórnunarhættir innan Evrópu- sambandsins hafa lítt verið kynntir hér á landi til þessa.“ Anna G. Björnsdóttir  Anna Guðrún Björnsdóttir er fædd 1956. Lauk embættisprófi frá lagadeild HÍ 1982. Starfaði hjá Tryggingarstofnun ríkisins og á lögmannsstofu 1982-85 og í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 1986-93. Í félagsmálaráðu- neytinu 1993-96 og gegndi starfi bæjarritara og forstöðumanns fjármála- og stjórnsýslusviðs Mosfellsbæjar frá 1996 til 2001 er hún varð sviðsstjóri þróun- arsviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga. Á erindi við sveitar- stjórnarmennSkógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 19.550 Flugsæti til Prag, út 10. apríl, heim 13. apríl. Almennt verð með sköttum. Flug og skattar á mann miðað við að 2 ferðist saman, 2 fyrir 1. Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800. Verð frá kr. 3.400 Glæsileg hótel í hjarta Prag frá aðeins 3.400. M.v. 2 í herbergi á Parkhotel. Tryggðu þér síðustu sætin til Prag í apríl á ótrúlegu verði. Nú getur þú kynnst þessari fegurstu borg Evrópu og tryggt þér farmiða frá aðeins kr. 19.550 og upplifað fallegasta tíma ársins í Prag. Hér upplifir þú mörg hundruð ára sögu á hverju horni og mannlíf og andrúmsloft sem á ekki sinn líka. Í boði eru spennandi kynnisferðir um kastalahverfið og gamla bæinn, eða til hins einstaklega fagra heilsubæjar Karlovy Vary, með íslenskum fararstjórum Heimsferða. Tryggðu þér síðustu sætin í vor 3. apríl - 11 sæti 7. apríl - laust 10. apríl - 19 sæti 13. apríl - 8 sæti 17. apríl - 7 sæti Vorið er komið í Prag. Í apríl er kominn 20 stiga hiti. Munið Mastercard ferðaávísunina Helgarferð til Prag 10. apríl frá kr. 19.550 Perlunni. Opið alla daga kl. 10 -18 NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK Íslands hafa kært til umhverfisráð- herra ákvörðun Umhverfisstofnunar um útgáfu á starfsleyfi fyrir álver Reyðaráls. Náttúruverndarsamtök- in benda á að dreifingarspá fyrir loftmengun hafi ekki legið fyrir þeg- ar tillögur að starfsleyfi voru aug- lýstar: „Auglýsing án fullnægjandi gagna brýtur í bága við 11. gr. reglugerðar um starfsleyfi. Þegar dreifingarspá lá svo fyrir nokkrum dögum fyrir út- gáfu leyfisins kom í ljós að Reyðarál gat ekki uppfyllt þau skilyrði fyrir útgáfu starfsleyfisins sem auglýst voru. Í stað þess að krefjast bættra mengunarvarna þannig að skilyrðin yrðu uppfyllt greip Umhverfisstofn- un til þess ráðs að slaka á áður sett- um umhverfismörkum. Þar með er ljóst að skilyrðin fyrir starfsleyfinu eru ekki í samræmi við niðurstöður mats á umhverfisáhrifum. Það brýt- ur gegn 16. gr. laga um mat á um- hverfisáhrifum sem kveður á um að leyfisveitendur skuli taka tillit til úr- skurðar um mat á umhverfisáhrif- um. Jafnframt er brotið gegn ákvæði 23. gr. reglugerðar um starfsleyfi þar sem skýrt er kveðið á um að í starfsleyfi skuli tekið „fullt tillit til niðurstöðu mats á umhverf- isáhrifum“. Þá benda samtökin á að ekki sé gerð krafa um bestu fáan- legu tækni og því verði losun brenni- steinsdíoxíðs hátt í fimm sinnum meiri en gert var ráð fyrir í mati á umhverfisáhrifum eða tæplega 3.900 tonn í stað 828 tonna. Í aðalkröfu samtakanna er farið fram á að í starfsleyfi verði gerð krafa um vothreinsibúnað, í vara- kröfu að Umhverfisstofnun verði gert að leggja mat á hvaða tækni sé best til þess fallin að vernda alla þætti umhverfisins og í þrautakröfu að henni verði gert að vinna starfs- leyfið að nýju. Kæra útgáfu á starfsleyfi fyrir Reyðarál

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.