Morgunblaðið - 01.04.2003, Page 23

Morgunblaðið - 01.04.2003, Page 23
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 23 NÝLOKIÐ er aðalfundum Ferða- þjónustu bænda hf. og Félags ferða- þjónustubænda. Þeir voru að þessu sinni haldnir á Gistihúsinu á Egils- stöðum og sóttu þá hartnær sextíu manns hvaðanæva af landinu. Sævar Skaptason er framkvæmda- stjóri Ferðaþjónustu bænda. „Mark- miðið með fundi Ferðaþjónustu bænda að þessu sinni, utan venju- legra aðalfundarstarfa, var að ræða nýtt gæðaflokkunarkerfi í bændagist- ingu. Það á að taka upp næsta vetur. Menn eru ágætlega í stakk búnir til að gangast undir slíkt vegna þess að ferðaþjónusta bænda hefur í rúmlega tíu ár verið með flokkun á sinni gist- ingu. Það er fyrst og fremst verið að aðlaga kerfið að nútímanum, þar sem þjónustan er orðin fjölbreyttari og þjónustustigið víða hærra en áður var,“ segir Sævar. Hann segir ferðaþjónustubændum almennt vera að vaxa fiskur um hrygg. „Gistirýmum innan samtak- anna hefur fjölgað mikið á síðustu ár- um. Nú eru um þrjú þúsund gistirými innan þeirra. Markmið skrifstofu Ferðaþjónustu bænda hf. er mark- aðssetning á bændagistingunni fyrir erlenda ferðamenn, auk kynningar innanlands. Það hefur orðið mikil aukning í starfseminni á síðustu árum og við vorum árið 1998 að velta hér í gegn í sölu bændagistingar til er- lendra aðila á milli fimmtíu og sextíu milljónum króna, en á síðasta ári voru það tæplega þrjúhundruð milljónir. Utan við þetta eru síðan beinar bók- arnir á bæina, þannig að þetta segir ekki alla söguna,“ segir Sævar. Dagskrá fundanna stóð í tvo daga og fóru gestir milli atriða í skoðunar- ferð umhverfis Lagarfljót. Þeir skoð- uðu m.a. Skriðuklaustur og tóku hús á Hákoni Aðalsteinssyni skáldbónda í Fljótsdal. Boðið var til kvöldskemmt- unar í Svartaskógi í Jökulsárhlíð og segir Sævar einstaklega vel hafa tek- ist til með alla framkvæmd og skipu- lagningu dagskrár ferðaþjónustu- bænda að þessu sinni. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Frá aðalfundi Ferðaþjónustu bænda sem haldinn var á Gistihúsinu á Egils- stöðum nýverið. F.v. Kolbrún Úlfsdóttir, Jóhannes Kristjánsson formaður, Ásmundur Gíslason, Sigurlaug Gissurardóttir og Ágúst Sigurðsson. Egilsstaðir Ferðaþjónustu- bændum vex fiskur um hrygg GRÁSLEPPUVERTÍÐIN er hafin og 13 bátar gera út á grásleppu frá Þórshöfn þetta vorið. Karlarnir segja að það líti betur út með vertíð- ina en í fyrra og heldur meiri fiskur er á grunnslóð núna. Tengdafeðgarnir á Leó II lögðu strax 20. mars í ágætu veðri og hafa nú fengið um 1.400 kg af hrognum á móti 900 kg á sama tíma í fyrra. Ólíkt betra var að eiga við netalögn- ina í 5 stiga hita núna í stað 17 stiga frosts eins og var 20. mars í fyrra, sögðu þeir. Flestir grásleppukarlarnir salta hér á Þórshöfn en tveir á Bakka- firði. Smábátaútgerðin setur alltaf svip á bæjarlífið á þessum árstíma og mikil athafnasemi er við höfnina. Nýr bátur bættist í smábátaflotann þegar ungur Þórshafnarbúi, Jóhann Halldórsson, festi kaup á þriggja tonna Skagstrendingi. Hann er á sóknardögum, um 21 dag, og verður á handfærum en ekki grásleppu þetta vorið, grásleppan er þó inni í myndinni á næsta vori, sagði þessi ungi sjómaður. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Jóhann Halldórsson á nýja Skagstrendingnum sínum í smábátahöfninni. Grásleppu- vertíð fer vel af stað Þórshöfn FYRIR skemmstu var nýtt tæki tek- ið í notkun á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík. Tækið sem um ræðir er í daglegu tali kallað Hol- ter, þar er um að ræða nokkurs konar stöðugt hjartalínurit í 24 klst. Tækið er þannig notað að það eru festir litlir nemar á brjóstkassa einstaklingsins, leiðslur úr þessum nemum liggja í lít- ið tæki sem hægt er að bera á sér í sólarhring. Tækið skráir þar allar upplýsingar um hjartslátt, aukaslög og annað sem hægt er að nema með rafeðlisfræðilegum hætti frá hjart- anu. Tækið nýtist einnig mjög vel til hjartarannsókna. Að sögn Ásgeirs Böðvarssonar, yf- irlæknis á Heilbrigðisstofnun Þing- eyinga, hefur stofnunin hingað til notað eldri gerð af Holter. Það var svokallað segulband sem raunar er enn notað víðast hvar um landið og hafa þá svipaðar upplýsingar verið teknar á segulbandsspólur og sendar til úrlestrar á Landsspítala – há- skólasjúkrahús. Þessi nýja tækni er hins vegar á stafrænu formi og er hægt að senda hana símleiðs úr tölvu héðan strax að rannsókn lokinni í móðurtölvu á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri. Úrlestur tækisins er jafnframt hægt að senda sömuleiðis á stafrænu formi til baka í tölvu hér. „Hér er um að ræða sameiginlegt verkefni sem heilbrigðisstofnanir á Austurlandi, Norðurlandi og Vest- fjörðum standa að,“ segir Ásgeir. Möguleikar verða því til þessara rannsókna á ýmsum stöðvum á þessu svæði, en móðurstöðin með úrlestr- armöguleika er á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Breyting til batnaðar Gunnar Þór Gunnarsson, hjarta- læknir á FSA, átti frumkvæðið að því að hafist var handa við þetta sameig- inlega verkefni heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni. „Enginn vafi er á því að hér er um að ræaða talsverða breytingu til batnaðar bæði fyrir starfsfólk og sjúklinga sem þurfa í fyrrnefnda 24 klst. hjartalínurits- skráningu því bæði er að tækið gefur meiri möguleika til rannsókna heldur en fyrri tæki og eins geta svör borist mun fyrr en ella einfaldlega vegna þess að ekki þarf lengur að senda segulbandsspólur í pósti milli lands- hluta,“ sagði Ásgeir að lokum. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga fylgist með er sölumaður út- skýrir notkunarmöguleika hins nýja Holters fyrir þeim. Stafræn tækni í stað segulbanda við hjartalínurit Húsavík FRAMSÓKNARFLOKKURINN ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL Garðabær kl. 20:30 – Safnaðarheimilið Kirkjulundur Siv Friðleifsdóttir, Páll Magnússon, Egill Arnar Sigurþórsson. Fundarstjóri: Una María Óskarsdóttir. Vestmannaeyjar kl. 20:30 – Salur Sveinafélags járniðnaðarmanna, Heiðarvegi 7 Hjálmar Árnason, Eygló Þóra Harðardóttir, Björn Ingi Hrafnsson. Fundarstjóri: Svanhildur Guðlaugsdóttir. Höfn kl. 20:30 – Hótel Höfn Ísólfur Gylfi Pálmason, Helga Sigrún Harðardóttir. Fundarstjóri: Ólafur Sigurðsson. Blönduós kl. 20:30 – Félagsheimilið Guðni Ágústsson, Magnús Stefánsson, Kristinn H. Gunnarsson, Herdís Á. Sæmundardóttir. Fundarstjóri: Valgarður Hilmarsson. Fáskrúðsfjörður kl. 20:30 – Hótel Bjarg Valgerður Sverrisdóttir, Jón Kristjánsson, Dagný Jónsdóttir. Fundarstjóri: Guðmundur Þorgrímsson. vinna - vöxtur - velferð Fundaferð Framsóknarflokksins 2003 til aukinnar velferðar Leggjum áfram leiðina             

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.