Morgunblaðið - 01.04.2003, Síða 26
LISTIR
26 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
STÆRSTI kammersalur stór-
Reykjavíkur var nærri hálfsetinn á
tónleikum Xuar Wen og Önnu
Rúnar Atladóttur á laugardag og
þar með töluvert fleirum áheyr-
endum en sóttu síðustu tónleika
þeirra á höfuðborgarsvæðinu í ná-
vist undirritaðs fyrir fullu húsi
Sigurjónssafns í ágústmánuði s.l.
Dagskráin virtist öll ný (að frá-
taldri aríu Liù úr Turandot) og
hófst með fruntaerfiðu konsertarí-
unni Mia speranza adorata er Moz-
art samdi 1783 fyrir mágkonu sína
Aloysiu Weber þar sem Xu sýndi
eftirtektarverða hæðartækni. Síð-
an var ljóðaflokkur Rodrigos að
hluta í endurreisnarstíl, Quatro
Madrigales Amatorios, sem eins og
margir muna var einnig á pró-
grammi heimsdívunnar June And-
ersons í fyrravor; hreint frábær-
lega fersk og falleg lög og nokkuð
vel flutt þrátt fyrir frekar einsleita
raddbeitingu. Með Ich trage meine
Minne eftir Richard Strauss lauk
fyrri helmingi við heldur bragðlitla
túlkun, enda þótt þýzkuframburð-
ur væri furðugóður.
Seinni hálfleikur hófst með smá-
perlum Páls Ísólfssonar, Í dag
skein sól og Sáuð þið hana systur
mína, með hið sjaldheyrðara Frá
liðnum dögum í miðju. Píanóleikur
var hér í slappara lagi og óná-
kvæmur á köflum, en söngurinn
var snotur þó að heyrðist lítill
texti. Í næsta atriði, Þremur kín-
verskum þjóðlögum í útsetningum
Shens Wujun (Jasmínblóm), Dings
Shande (Hvenær opnast blóm
fuglatrésins) og Dongs Sheng (Út-
saumaða skjóðan) opnaðist söng-
túlkunin svo um munaði og mynd-
aði, a.m.k. í huga undirritaðs,
hápunkt kvöldsins með svífandi
náttúrulýrískum hendingum er
hljómuðu eins og stroknar á erl hu
fiðlu í austrænum meistarahönd-
um. Fylgdu textaþýðingar söng-
konunnar á íslenzku, en uppruna-
héraða laganna var því miður ekki
getið.
Í samanburði við téðan hápunkt
vantaði, þrátt fyrir grípandi nið-
urlag, sjáfstæðari mótun í aríu Liù
næst á eftir, og manndrápsflúrið í
Ombre légére, hinni óárennilegu
aríu Dinoruh úr Le pardon de
Ploërmel eftir Meyerbeer, var ekki
alltaf nógu hreint, en vakti engu að
síður mikla hrifningu tónleika-
gesta. Svo fór einnig um lokaatriði
dagsins, Glitter and be Gay, úr
söngleik Bernsteins til höfuðs of-
sóknum McCarthys, Candide (unn-
um úr Birtingi Voltaires), jafnvel
þótt enn sem oftar heyrðist fulllít-
ill texti. Öllu verra var að „vals“-
kafli síðasta hlutans lenti í handa-
skolum þegar söngur og píanó
náðu ekki nógu vel saman; trúlega
að mestu á ábyrgð píanóleikarans
er þarf að standa skil á viðsjár-
verðum krosshrynjum. Það var
synd, því söngurinn var að mörgu
leyti hrífandi, enda var atriðinu
tekið með kostum og kynjum.
Úr austri
og vestri
TÓNLIST
Salurinn
Kínversk þjóðlög; sönglög og aríur eftir
Mozart, Rodrigo, R. Strauss, Pál Ísólfs-
son, Puccini, Meyerbeer og Bernstein.
Xu Wen sópran, Anna Rún Atladóttir pí-
anó. Laugardaginn 29. marz kl. 16:00.
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
HILMIR Snær Guðnason fer með
aðalhlutverkið í þýsku kvikmynd-
inni Erbchen auf Halbsechs, sem
tekin verður í Þýskalandi í vor, eins
og greint var frá í Morgunblaðinu á
sunnudag. Því er ljóst að Hilmir
mun hverfa af fjölum Þjóðleikhúss-
ins um stundar sakir, en þar fer
hann með aðalhlutverk í tveimur
stórum sýningum: Veislunni, sem
sýnd hefur verið á Smíðaverkstæð-
inu síðan í apríl á síðasta ári, og
Rauða spjaldinu á Stóra sviðinu,
sem frumsýnt var síðastliðinn
fimmtudag.
Að sögn Stefáns Baldurssonar
þjóðleikhússtjóra mun Hilmir Snær
fljótlega hætta að leika í umrædd-
um sýningum og mun að líkindum
ekki koma aftur inn í þær á þessu
leikári. „Við erum að æfa nýja leik-
ara í hlutverkin um þessar mundir,
en Hilmir á eftir að leika eina sýn-
ingu af Veislunni og tvær sýningar
af Rauða spjaldinu áður en hann
heldur utan,“ segir Stefán. „Auðvit-
að hefur brotthvarf hans ákveðna
röskun í för með sér fyrir okkur, en
við höfum vitað með nokkrum fyr-
irvara að þetta stóð til og höfum því
getað gert nauðsynlegar ráðstaf-
anir með eðlilegum hætti. En við
samgleðjumst honum innilega með
hlutverkið þarna úti, sem virðist
vera stórt og flott.“
Leiksýningarnar tvær munu
halda áfram göngu sinni út leikárið
með nýjum leikurum í hlutverkum
þeim sem Hilmir Snær hefur farið
með. Kjartan Guðjónsson mun taka
við hlutverki Halls í Rauða spjald-
inu og Hilmar Jónsson mun taka við
hlutverki sonarins Christians í
Veislunni. Að sögn Stefáns er óvíst
á þessu stigi hvort sýningum á þess-
um leikritum verður haldið áfram á
næsta leikári.
Ekki leikið þar síðan árið 1996
Kjartan Guðjónsson er í hópi
fastráðnu leikaranna við Þjóðleik-
húsið og var ákvörðun um val á
honum í hlutverk Halls tekin í sam-
ráði við leikstjóra Rauða spjaldsins,
Kjartan Ragnarsson. Þó nokkur ár
eru hins vegar liðin síðan Hilmar
Jónsson lék síðast í Þjóðleikhúsinu,
en síðasta sýning hans var Trölla-
kirkja árið 1996. Undanfarin ár
hefur hann að mestu fengist við
leikstjórn og starfað við Hafn-
arfjarðarleikhúsið Hermóð og Háð-
vöru, sem hann stofnaði ásamt
fleirum árið 1995. „Við fáum hann í
hlutverkið vegna þess að mér finnst
hann góður leikari sem ég treysti
mjög vel í hlutverkið,“ segir Stefán,
sem jafnframt er leikstjóri Veisl-
unnar.
Hilmar mun jafnframt leikstýra
Pabbastrák eftir Hávar Sig-
urjónsson, sem verið er að æfa í
Þjóðleikhúsinu um þessar mundir.
Ekki er enn ljóst hvort sýningin
verði frumsýnd á þessu leikári eins
og fyrirhugað var. „Leikritið er
mjög langt komið í æfingu. Það á að
koma inn á litla sviðið að loknum
sýningum á Rakstri, en þær hafa
gengið mjög vel og þar með ýtt
þessari frumsýningu aðeins á und-
an sér. Hugsanlegt er að Pabba-
strákur verði forsýndur í vor, ef
frumsýningin dregst fram á haust-
ið,“ segir Stefán að síðustu.
Þjóðleikhúsið sýnir Rauða spjaldið og Veisluna áfram
Aðrir leikarar taka við
hlutverkum Hilmis Snæs
Hilmir Snær Guðnason Kjartan Guðjónsson Hilmar Jónsson
KAMMERKÓR Hafnarfjarðar og
barrokksveitin Aldavinir halda tón-
leika í Hásölum, tónleikasal Tónlist-
arskólans í Hafnarfirði, í kvöld kl.
20.00. Flutt verða verk eftir William
Lawes, Dietrich Buxtehude og Jo-
hann Sebastian Bach.
Einsöngvarar verða Guðrún Edda
Gunnarsdóttir, alt, Garðar Thór
Cortes, tenór, og Benedikt Ingólfs-
son, bassi. Aldavinir leika á barrokk-
hljóðfæri en hópurinn er skipaður
Rut Ingólfsdóttur fiðluleikara, Lilju
Hjaltadóttur fiðluleikara, Hildigunni
Halldórsdóttur, sem leikur á fiðlu og
gömbu, Sigurði Halldórssyni á selló
og gömbu, Gunnlaugi Torfa Stefáns-
syni, sem leikur á víólóne, Peter
Tompkins og Gunnari Þorgeirssyni,
sem leika á barrokkóbó, og Kára
Þormar á orgel. Stjórnandi Kamm-
erkórs Hafnarfjarðar er Helgi
Bragason.
„Aldavinir sem spila með okkur
leika á barrokkhljóðfæri, en forkólf-
ar hópsins eru systkinin Sigurður
Halldórsson og Hildigunnur Hall-
dórsdóttir. Hópurinn spilar einnig
mjög skemmtilegt verk eftir William
Lawes, samið á fyrri hluta sautjándu
aldar, og svo kanóna eftir Bach sem
fundust 1974 eða 5, en þeir eru
byggðir á stefinu sem Bach notaði í
Goldberg-tilbrigðunum. Þetta er
mögnuð músík. Ég veit ekki hvað
Bach var að gera þarna, maður fer
bara að hlæja, það er svo sniðugt að
heyra hvað hann getur gert með
þessa fáu tóna. Kórinn syngur svo
tvær kantötur, aðra eftir Buxtehude,
Alles was ihr tut, og er með þeim
stærri sem hann samdi – með mikl-
um kórsöng. Hin kantatan er Allein
zu dir Herr Jesu Christ eftir Bach,
mjög falleg.“
Helgi segir að það sé sérstaklega
áhugavert að á tónleikunum leiki þau
Hildigunnur og Sigurður á tenór-
gömbur en þær heyrast nánast aldr-
ei á tónleikum hér. „Við erum að
reyna að setja svolitla fúkkalykt í
tónlistina með því að nota hljóðfæri
þess tíma sem hún var samin á. Þeg-
ar ég var í námi í Vínarborg, heyrði
ég í fyrsta sinn í hljómsveitinni Con-
centus Musicus að spila Bach og þá
féll ég alveg fyrir þessum gömlu
hljóðfærum. Eftir það hefur mig allt-
af langað til þess að flytja barrokk-
músík þannig svona lítið og heimilis-
legt, frekar en í stóru
útsetningunum eins og tíðkaðist fyrr
á síðustu öld. Mér finnst tækifærið
komið núna, því það eru svo margir
góðir hljóðfæraleikarar orðnir sér-
fróðir í leik á þessi hljóðfæri. Svo
eigum við líka orgel í lægri stillingu
hér í Tónlistarskólanum og það hent-
ar þessari tónlist vel. Ég er líka hrif-
inn af Bach. Maður ætti að líta á það
sem heilagt hlutverk að flytja minnst
eina kantötu á ári. Þetta eru frábær
verk, þótt þær séu ekki kassastykki
eins og passíurnar og óratorían.
Gæðin liggja í tónlistinni sjálfri og
það er óstjórnlega skemmtilegt að
fást við þessi verk.“ Helgi segist
heppinn með söngfólk, það sé mikið
af ungu fólki í Kammerkór Hafnar-
fjarðar. „Maður rekst aldrei á vegg.
Með þennan hóp er alltaf hægt að
komast aðeins lengra í hvert sinn
sem glímt er við stærri verk.“
Heilagt hlutverk að
flytja Bach-kantötur
Kammerkór Hafnarfjarðar og Helgi Bragason stjórnandi fyrir utan Hásali.
LEIKLISTARNÁMSKEIÐ fyrir
áhugafólk verður haldið í Kram-
húsinu um páskana. Námskeiðið
er á vegum Öld Akademin sem
skipuleggur námskeið á Norður-
löndum. Leiðbeinandi er Ásgeir
Sigurvaldason, leikari og leik-
stjóri sem starfar í Svíþjóð. Unnið
verður með stutt eintöl, frumsam-
inn texta eða ljóð að eigin vali. Há-
marksfjöldi þátttakanda er 10.
Skráning í Kramhúsinu.
Leiklist fyrir áhugafólk